Morgunblaðið - 09.08.2019, Side 11

Morgunblaðið - 09.08.2019, Side 11
Gengi júans, evru og dollars gagnvart krónu Frá 8. júlí til 8. ágúst 2019 18,5 18,0 17,5 17,0 142,5 140,0 137,5 135,0 132,5 128 126 124 122 120 8. júlí 8. ágúst Júan DalurEvra Kínverskt júan Bandaríkjadalur Evra 17,38 18,39 Heimild: Landsbankinn Hvað varðar viðskiptakjör bendir Stefán Broddi á að verðvísitala sjávarafurða, samkvæmt mælingum Hagstofunnar, hafi hækkað um tæp 6% frá áramótum mælt í erlendri mynt. „Verð sjávarafurða í erlendri mynt hefur hækkað eftir því sem liðið hefur á árið. Reyndar hefur verð ís- lenskra sjávarafurða almennt séð hækkað undanfarin ár, með ákveð- inni undantekningu undir lok síðasta árs. Jafnvel þótt verð á hrávöru hafi farið upp og niður, sem og olíuverð, hefur verð sjávarafurða haldið sér og farið hækkandi,“ segir Stefán Broddi. Hins vegar hækkaði verð á súráli, sem er helsta hráefni til álfram- leiðslu, talsvert vegna framboðsskells í fyrra en álverð hefur hins vegar ekki fylgt því eftir. „Hvað varðar álið, sem er stærsta útflutningsgrein okkar í iðnaði, hafa viðskiptakjörin versnað,“ segir Stef- án Broddi. Við þetta má að bæta að bilun hjá álverinu í Straumsvík kann að draga úr útflutningi álversins í ár. „Það sem skiptir mestu máli í þessu efni er ferðaþjónustan. Það sem af er ári hefur t.d. verð á gist- ingu, sem er útflutt þjónusta, lækkað í erlendri mynt og krónum líka. Því er erfitt að alhæfa um að viðskiptakjörin hafi verið að batna. Þau hafa þó þróast á jákvæðan hátt fyrir sjávar- útveginn. Heilt yfir hefur þetta verið svolítið upp og ofan,“ segir Stefán Broddi. Vísitölur viðskiptakjara og verðhlutföll álverðs, fi skverðs og olíuverðs Frá mars 2000 til september 2019 Viðskiptakjör Álverð/olíuverð, fi skverð/olíuverð og raungengi 125 120 115 110 105 100 95 90 85 300 250 200 150 100 50 0 ’00 ’01 ’02 ’03 ’04 ’05 ’06 ’07 ’08 ’09 ’10 ’11 ’12 ’13 ’14 ’15 ’16 ’17 ’18 ’19 Viðskiptakjör Álverð/olíuverð Fiskverð/olíuverð Raungengi m.v. verðlag 2010=100 Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands og Analytica FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. ÁGÚST 2019 Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. s: 781-5100 Opið: Mán-fim: 12-18 fös: 12-16 NÝ SENDING Skoðið laxdal.is Skipholti 29b • S. 551 4422 LAXDAL SUMARSALAN ÚTSÖLULOK VERÐHRUN 60-70% afsláttur + Ýmsir aukaglaðningar Nanni buxur Ökklasídd Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Við erum á facebook Kr. 6.900.- Str. S-XXL Litir: svart, blátt Excecutive & Professional Language Training Markviss enskuþjálfun fyrir fólk í erlendum samskiptum Námskeið erlendis fyrir þá sem vilja bæta stöðu sína og ná betri tökum á faglegu tungutaki. Hagnýt þjálfun og reyndir kennarar tryggja miklar framfarir á stuttum tíma. Form nám- skeiða er sniðið að þörfum hvers og eins. Lengd; Ein vika, eða fleiri og í boði allt árið. Fjórir einstaklingar voru í fólksbíl sem lenti í árekstri við olíuflutn- ingabíl á Suðurlandsvegi í gær. Tveir þeirra voru fluttir á sjúkra- hús til aðhlynningar en ekki er talið að áverkar þeirra séu lífshættuleg- ir. Þetta sagði Oddur Árnason, yf- irlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Suðurlandi, í samtali við mbl.is. Hinir tveir voru með minni háttar meiðsl og slapp bílstjóri olíuflutn- ingabílsins ómeiddur. „Þetta atvik flokkast sem minni háttar,“ sagði Oddur. Slysið átti sér stað skammt frá Skógafossi upp úr klukkan ellefu í gær. Var þyrla Landhelgisgæslunn- ar kölluð út, en þegar hún var rétt ókomin var hún afboðuð. Þess í stað var þyrlan beðin um að halda upp á Eyjafjallajökul þar sem vélsleða- maður hafði slasast. Var þyrlan því snögg á vettvang. Hún lenti laust eftir klukkan 12 og flutti vélsleða- manninn á Landspítalann í Foss- vogi að sögn Landhelgisgæslunnar. Þá kom eldur upp í vöruflutn- ingabíl á Reykjanesbrautinni við N1 í Hafnarfirði á tíunda tímanum í gærmorgun. Ökumaður bílsins slapp ómeiddur en litlu munaði að eldurinn næði að læsa sig í stórt fiskitroll sem var í bílnum. Elds- upptök eru ókunn. „Sem betur fer náðist að bjarga trollinu en það myndaðist þó nokk- uð mikill eldur og reykur í bílnum sjálfum,“ sagði varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu í samtali við mbl.is. Ef eldurinn hefði náð að læsa sig í trollinu hefði slökkvistarf orðið mjög erfitt. Annir hjá lögreglu og sjúkraliði Brynjólfur Stefánsson, sjóð- stjóri hjá Íslandssjóðum, segir viðskiptastríðið milli Kína og Bandaríkjanna hafa haft mjög neikvæð áhrif á hrávöruverð. Kína sé enda stórtækur kaup- andi á flestum hrávörum. Við það bætist áhyggjur manna af því að þessar deilur muni bitna á heimshagvexti. Hins vegar sýni nýjar tölur frá því á miðvikudag að birgða- staða í Bandaríkjunum hafi hækkað. Það hafi komið mark- aðnum töluvert á óvart. Hluta- bréfaverð hafi síðan jafnað sig að hluta en olíuverðið síður. Gull hefur hækkað í verði. Brynjólfur segir of djúpt í árinni tekið að ræða um aðlögun á markaði eftir langvarandi hag- vöxt í kjölfar efnahagskrepp- unnar 2008. „Menn eru samt varir um sig og sjá að slík að- lögun gæti verið í spilunum þegar fram líða stundir,“ segir Brynjólfur um þróunina. STÓRVELDIN OG OLÍAN Áhrif við- skiptastríðs SMARTLAND

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.