Morgunblaðið - 09.08.2019, Side 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. ÁGÚST 2019
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Af og til sprettur upp umræða um
mengun frá skipum. Hún er talsvert
mikil enda brennir nær allur skipa-
floti heimsins jarðefnaeldsneyti.
Margoft hefur verið bent á að nauð-
synlegt sé að koma upp búnaði til að
tengja skipin við raforkukerfi lands-
ins þegar þau eru í höfn svo draga
megi úr mengun. Sumir halda að að-
eins þurfi að „stinga í samband“. En
málið er ekki svo einfalt. Um borð í
stærstu skipunum eru allt að 7.000
manns, farþegar og áhöfn, eða eins
og í fjölmennum kaupstað. Raf-
orkuþörfin er því gríðarleg.
Ef tengja á erlend skemmti-
ferðaskip í Sundahöfn í Reykjavík
við íslenska raforkukerfið þarf að
setja upp búnað sem kostar millj-
arða króna. Þá er landtenging talin
mun dýrari fyrir skipin en fram-
leiðsla raforku um borð í þeim með
jarðefnaeldsneyti.
Þetta er meðal niðurstaðna
skýrslu sem verkfræðistofan Efla
vann fyrir Veitur, dótturfélag Orku-
veitu Reykjavíkur. Höfundar skýrsl-
unnar eru Jónas Hlynur Hall-
grímsson og Kjartan Gíslason.
Í samantekt segja höfundarnir að
í aðgerðaáætlun stjórnvalda í orku-
skiptum sem og aðgerðaáætlun í
loftslagsmálum sé að finna umfjöll-
un um aukna raforkunotkun skipa
og landtengingar. Að sama skapi
hefur Reykjavíkurborg sett fram í
loftslagsstefnu sinni að stefnt sé að
rafvæðingu Faxaflóahafna.
Koma bara að sumarlagi
Skemmtiferðaskip koma í Sunda-
höfn nánast eingöngu að sumri. Þeg-
ar skemmtiferðaskip hafa viðlegu er
oftast um eitt skip að ræða (um 75-
80% tímans) og tvö skip samtímis
um 15-20% tímans. Hlutfallslega
sjaldan eru fleiri en tvö skip sam-
tímis í höfninni.
Stærð skemmtiferðaskipanna og
farþegafjöldi er breytilegur og það
allra stærsta, sem venur komur sín-
ar hingað, er með um 4.500 farþega
auk um 2.000 starfsmanna (áhafn-
ar).
„Við mat á aflþörf skipanna er lit-
ið til annars vegar meðalafls (á
ensku er oft talað um hotelling sem
hér verður kallað meðalafl) og há-
marksafls. Með því að notast við er-
lend gögn og samband stærðar og
aflþarfar má notast við gögn Faxa-
flóahafna um komu í Sundahöfn
sumarið 2018 til að áætla aflþörf
þeirra,“ segir m.a. í skýrslunni.
Skýrsluhöfundar hafa ekki rann-
sakað hvort skemmtiferðaskipin séu
með búnað til að tengjast raf-
dreifikerfi í landi og gert er ráð fyrir
að útgerðir skipanna haldi áfram að
senda skipin hingað til lands ef
tengiskyldu verður komið á.
Hámarksafl fyrir eitt skip er met-
ið um 14,5 MW (megavött) og ef tvö
skip liggja samtímis í höfninni getur
hámarksaflþörfin numið um 27 MW
og ef þau eru þrjú er aflþörfin metin
um 37 MW. Um mikið afl er því að
ræða og, eins og áður segir, koma
skemmtiferðaskipin hingað til lands
fyrst og fremst að sumarlagi, og því
er þessi aflþörf einungis til staðar
þá.
Nauðsynlegur búnaður til þess að
dreifa raforku til skipanna er nokk-
uð dýr og var leitað eftir ein-
ingaverðum til Cavotec sem og
Blueday Technologies sem selja
slíkan búnað. Til dæmis má nefna að
kranabíll sem myndi koma land-
tengingu um borð í skemmti-
ferðaskip kostar um 107 milljónir
króna og 10 MVA aflstöð um 362
m.kr. Áætlað er að kostnaður við að
koma upp 15 MVA tengingu verði
um 815 m.kr. Ef mögulegt á að vera
að þjónusta þrjú skemmtiferðaskip
samtímis er áætlaður kostnaður um
2,3 milljarðar króna.
Ef komið væri á fót tengiskyldu
fyrir öll skemmtiferðaskip væri því
rekstrarniðurstaða Veitna neikvæð
af því að veita þjónustuna miðað við
afltaxta og sérstaklega orkutaxta.
Skipin hafa þann möguleika að sinna
eigin orkuvinnslu um borð í skipinu
með jarðefnaeldsneyti. Áætlað hefur
verið að raforkuvinnsla um borði
kosti skipin um 28 kr./kWh en með
landtengingu og ef miðað er við afl-
taxta væri heildarkostnað (þ.e.
dreifing auk flutnings, opinberra
gjalda og raforku) þeirra um 36 kr./
kWh og er því hagkvæmra fyrir
skipin að sinna eigin orkuvinnslu. Ef
einungis um varmavinnslu er að
ræða er kostnaður skipanna enn
lægri eða um 9 kr./kWh.
Ef nægilegar tengingar eru ekki í
boði fyrir öll skemmtiferðaskip geta
stjórnvöld brugðist við með því að
setja á sérstakt gjald til að jafna
stöðu þeirra og gera landtengingu
ákjósanlegri en að brenna jarð-
efnaeldsneyti um borð. Gjaldið má
vissulega ekki vera svo hátt að það
fæli skipaútgerðirnar frá því að
senda skipin hingað til lands.
Flutningaskip til skoðunar
Viðlegutími flutningaskipa og afl-
þörf þeirra hefur einnig verið metin.
Nokkur óvissa er í viðlegutíma skip-
anna en gert ráð fyrir 70 klst. á
starfssvæði Eimskipa á viku og 40
klst. á starfssvæði Samskipa. Skipin
eru eins stutt í höfn og mögulegt er.
Aflþörfin getur verið um 1-2 MW
fyrir hvert skip og er t.d. Eimskipa-
félagið að láta byggja skip sem er
með þessa aflþörf. Flutningaskipin
eru ekki eins og stendur með búnað
til landtengingar þar sem hann þyk-
ir dýr.
Landtenging kostar milljarða
Ekki einfalt mál að tengja skemmtiferðaskip við raforkukerfi landsins Raforkuþörfin á við stór-
an íslenskan kaupstað Landtenging talin mun dýrari fyrir skipin en framleiðsla raforku um borð
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sundahöfn Skemmtiferðaskip kemur til hafnar. Eins og sjá má berst talsverður reykur frá skipunum og hefur verið leitað leiða til að draga úr honum.
Í skýrslu Eflu fyrir Veitur um land-
tengingar rafmagns fyrir skip í
Sundahöfn er tekið fram að ekki sé
lagt mat á kostnað við að koma raf-
magni þangað.
Liggja fyrir áætlanir um það
hvernig slík tenging yrði fram-
kvæmd og hver yrði kostnaðurinn?
Þeirri spurningu svarar Eiríkur
Hjálmarsson upplýsingafulltrúi:
„Kostnaður vegna tengingar velt-
ur nokkuð á samlegðaráhrifum af
þessari tengingu og eflingu al-
menns dreifikerfis Veitna á þessum
slóðum. Í undirbúningi hjá Veitum
er að reisa nýja aðveitustöð á
Kleppssvæðinu, við Sægarða nánar
tiltekið. Hún mun þjóna Sundahöfn
og nýju Vogabyggðinni auk þess að
efla almennt raforkuöryggi í þess-
um borgarhluta.
Tilhögun þessarar uppbyggingar
liggur ekki endanlega fyrir. Þar með
er ekki ljóst hvernig tengingu við
Sundahöfn verður nákvæmlega
háttað eða kostnaði við að þjóna
landtengingunum.
Ein aðveitustöð kostar um millj-
arð króna en það má auðvitað ekki
skrifa þann kostnað allan á land-
tengingu stórra skipa þó að stöðin
muni vissulega þjóna þeim.“
Veitur reisa nýja aðveitustöð
MUN ÞJÓNA SUNDAHÖFN OG NÝRRI VOGABYGGÐ
Uppskipun Til skoðunar er að tengja skip Eimskips og Samskips við raforkukerfið.
Morgunblaðið/Eggert
AUDI A3 E-TRON S-LINE
Árg. 2018, ekinn 20 Þ.km, bensín/rafmagn (plug in),
sjálfskiptur, S-line, stafræntmælaborð, bakkmyndavél
o.fl. TILBOÐSVERÐ 4.390.000 kr.
Raðnúmer 259292
AUDI A3 SPORTBACK E-TRON
nýskr. 01/2018, ekinn 15 Þ.km, bensín/rafmagn (plug
in), sjálfskiptur, stafræntmælaborð o.fl. aukahlutir!
Verð 4.590.000 kr.
Raðnúmer 259667
AUDI A3 E-TRON DESIGN
nýskr. 05/2017, ekinn 27 Þ.km, bensín/rafmagn
(plug in), sjálfskiptur, stafræntmælaborð o.fl.
TILBOÐSVERÐ 3.990.000 kr.
Raðnúmer 259467
VW PASSAT GTE PREMIUM
nýskr. 02/2018, ekinn 31 Þ.km, bensín/rafmagn
(plug in), sjálfskiptur, glerþak, leður, krókur og fullt af
aukahlutum. TILBOÐSVERÐ 5.150.000 kr.
Raðnúmer 259510
M.BENZ C 350e AVANTGARDE
nýskr. 06/2017, ekinn 17 Þ.km, bensín/rafmagn (plug
in), sjálfskiptur. Hlaðinn aukahlutum s.s. glerþak,
Burmester hljóðkerfi, 360°myndavél, hvítt leður o.fl.
Verð 5.490.000 kr. Raðnúmer 259656
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is