Morgunblaðið - 09.08.2019, Side 36

Morgunblaðið - 09.08.2019, Side 36
36 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. ÁGÚST 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Tuttugu ár eruí dag síðanBoris Jelt- sín, þáverandi for- seti Rússlands, skipaði Vladimír Pútín, tiltölulega óþekktan yfirmann hjá leyni- þjónustunni FSB, sem forsætis- ráðherra sinn. Bæði heilsa og vinsældir Jeltsíns voru þá á fall- anda fæti, en engu að síður kom það flestum á óvart þegar hann ákvað á gamlársdag sama ár að segja af sér völdum og útnefna Pútín sem sitjandi forseta fram að kosningum, sem halda átti sumarið 2000. Hin langa valdatíð Pútíns, þar sem hann hefur setið ýmist sem forseti eða forsætisráð- herra til að fullnægja ákvæðum stjórnarskrár Rússlands, hefur haft í för með sér ýmsar breyt- ingar fyrir Rússland og Rússa. Þannig reyndi hann í fyrstu að tryggja efnahag Rússlands eftir skakkaföll áratugarins á undan, og tókst meðal annars á við nokkra af hinum svonefndu „olí- görkum“. Eftir því sem leið á tók Pútín hins vegar að færa þá undir sinn verndarvæng gegn vissum skilyrðum og þeir hafa á móti stutt hann og styrkt. Sam- tímis því hefur hann aukið mið- stýringu stjórnvalda í Moskvu á rússneska ríkinu, og tekið fast á öllum mögulegum andstæð- ingum sínum. Þetta hefur Pútín getað í krafti persónulegra vinsælda sinna, sem löngum hafa verið miklar. Að undanförnu hefur hins vegar slegið nokkuð á þær af ýmsum ástæðum þó að enn hafi hann yfirburðastöðu. Síð- ustu daga og vikur hafa verið haldin fjölmenn mótmæli á götum Moskvuborgar, og hefur lögreglan beitt hörku til þess að halda aftur af þeim. Rót mótmæl- anna að þessu sinni var sú ákvörðun stjórnvalda að meina nokkrum yfirlýstum stjórn- arandstæðingum að bjóða sig fram í sveitarstjórnarkosn- ingum síðar á árinu. Mótmælin eru nokkur höf- uðverkur fyrir Pútín, en kann- anir benda til þess að vinsældir hans hafi ekki verið minni frá árinu 2012, en það ár komu upp nokkur spillingarmál sem tengdust nánum bandamönnum hans. Séu kannanirnar réttar er nærtækasta skýringin sú hversu mjög efnahagur Rúss- lands hefur farið halloka í kjöl- far þeirra þvingunaraðgerða, sem landið sætir í kjölfar Úkra- ínudeilunnar, auk þess sem rík- isstjórnin hefur neyðst til þess að fara í óvinsælar umbætur á lífeyriskerfi landsins auk þess að hækka skatta. Pútín hefur áður mætt mót- læti en alltaf staðið það af sér. Það flækir stöðuna nú að þegar næst verður kosið til forseta, árið 2024, má Pútín ekki bjóða sig fram á ný samkvæmt stjórn- arskránni. Hugleiðingar um mögulegan arftaka Pútíns hafa því komið nokkru róti á fylgj- endur hans. Engu að síður er staða Pútíns enn styrk og síð- ustu tuttugu ár sýna að hann kann þá list betur en flestir að halda sjálfum sér við völd. Eng- in ástæða er til að útiloka að honum takist að halda í völdin fram yfir árið 2024. Pútín hefur ráðið ríkjum í Rússlandi í tuttugu ár og staða hans er enn sterk} Löng valdatíð Tilkynnt var ívikunni um nýtt samkomulag milli stjórnvalda í Tyrklandi og Bandaríkjunum um stofnun sérstaks öryggissvæðis í norðurhluta Sýrlands. Örygg- issvæðið á að tryggja að sýr- lenskir Kúrdar þurfi ekki að óttast hernaðaraðgerðir af hálfu Tyrkja eftir að Banda- ríkjaher lætur af íhlutun sinni í Sýrlandi. Opinber afstaða stjórnvalda í Tyrklandi hefur hingað til verið sú, að samtök sýrlenskra Kúrda, YPG, séu hryðjuverka- samtök, sem bundin væru PKK, samtökum Kúrda innan Tyrk- lands, sterkum böndum. Tyrkir höfðu því hótað að hefja innrás til að hrekja YPG-liða frá stöð- um sínum í norðurhluta Sýr- lands nánast um leið og Banda- ríkjaher yfirgæfi landið. YPG-samtökin reyndust hins vegar haukur í horni Banda- ríkjamanna í baráttu þeirra gegn Ríki íslams, og höfðu varn- armálayfirvöld vestra því varað Tyrki við því að það væri óásættanlegt að bandalagsríki þeirra hæfi að- gerðir gegn þeim. Samkomulagið skiptir ekki síður máli þar sem samskipti Tyrkja og Bandaríkjamanna voru orðin mjög stirð og ekki bara vegna mismunandi skoð- ana á því hvernig taka ætti á hinum ýmsu þáttum sýrlensku borgarastyrjaldarinnar. Nýleg kaup Tyrkja á rússnesku loft- varnakerfi og mögulegar við- skiptaþvinganir Bandaríkjanna í kjölfarið hafa gert samskiptin til muna verri. Samkomulagið nú er jákvætt og gefur von um að ríkin geti aftur nálgast hvort annað eftir skakkaföll síðustu ára. Þetta skiptir miklu, ekki aðeins fyrir ríkin tvö, heldur einnig fyrir ná- granna Tyrkja og aðra banda- menn þeirra. Tyrkir og Banda- ríkjamenn semja um Kúrda í Sýrlandi} Batamerki í samskiptum H inn 7. ágúst sl. birtist dómsnið- urstaða Héraðsdóms Reykja- víkur í máli Kristins Sigurjóns- sonar gegn Háskólanum í Reykjavík. Umrætt mál og dómurinn er fyrir margar sakir mjög áhuga- verður. Í fyrsta lagi vegna þess hversu skýrt kemur fram að vinnuveitandi á almennum vinnumarkaði þarf ekki ástæðu til þess að segja starfsmanni upp, en áhugaverðara er stærra samhengi þessa máls. Tengsl þess við tjáningarfrelsi, siðareglur og ábyrgð. Örstutt um siðareglur. Niðurstaða úr siða- reglumáli segir ekki til um lögbrot heldur um rétt eða rangt í samhengi siðareglnanna. Siða- reglur geta aldrei verið fullkomin umgjörð um rétt eða rangt og í sumum tilvikum getur ver- ið í góðu lagi að hafa rangt fyrir sér. Á ná- kvæmlega sama hátt er borgaraleg óhlýðni gagnvart lög- um stundum viðeigandi. Siðareglur þingmanna hafa verið mikið til umfjöllunar að undanförnu en blaðamenn eru líka með siðareglur. Þegar siðareglur blaðamanna á Íslandi eru bornar sam- an við siðareglur blaðamanna í nágrannalöndum þá kem- ur í ljós talsverður munur. En hvaða máli skiptir það í þessu samhengi? Jú, spurningin er hvort þau ummæli sem fjallað var um í fjölmiðlum og leiddu til umrædds dómsmáls, hafi átt erindi til almennings. Sérstaklega þar sem viðkomandi var bara starfsmaður á almennum vinnumarkaði. Spurningin verður því mjög hávær í kjöl- farið, geta fjölmiðlar farið með hvað og hvern sem er í opinbera umræðu, hvenær sem er? Samræm- ist það ákvæðum stjórnarskrár um tjáning- arfrelsi og friðhelgi að fjórða valdið geti dreg- ið hvaða ummæli sem er í opinbera umræðu? Eru almennir borgarar nægilega vel varðir með siðareglum eða lögum gagnvart slíku? Í siðareglum íslenskra blaðamanna er til dæmis ekki að finna sambærilega reglu og finnst í dönsku, norsku og þýsku siðaregl- unum um að virða friðhelgi. Dönsku regl- urnar segja til dæmis að upplýsingar sem kunna að brjóta gegn friðhelgi einkalífs skulu sniðgengnar nema ef augljós almannahagur sé fyrir opinberri umræðu. Það er líka áhugavert að skoða þetta mál í samanburði við lögbannsmálið svokallaða, sem fjallaði um fjármál Bjarna Benedikts- sonar, og Klaustursmálið. Þar hafa rök frið- helgi verið dregin upp sem málsvörn en verið skýrt hafn- að í báðum tilvikum. Opinberar persónur þurfa að þola mun meiri umfjöllun um sig en almennir borgarar. Mörkin eru líka mun óljósari í dag en áður fyrr. Nú er- um við með samfélagsmiðla þar sem fólk deilir skoð- unum með vinum, í lokuðum hópum og með heiminum. Ýmislegt getur orðið tilefni til samfélagsumræðu sem á ekki erindi í opinbera umræðu en það undarlega er að samfélagsumræðan getur verið mjög opinber, með til- heyrandi vandamálum tengdum friðhelgi og dómstóli götunnar. Björn Leví Gunnarsson Pistill Siðareglur, tjáningarfrelsi og friðhelgi Höfundur er þingmaður Pírata. bjornlevi@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Kolefnisbinding og að skapabyggð á höfuðborg-arsvæðinu skjól fyriraustlægum áttum er helsti ávinningur þess að hefja stór- fellda skógrækt á Mosfellsheiði, eins og nú er í undirbúningi. Í tilrauna- skyni verða sta- fafura og íslenskt birki gróðursett í tólf reitum á svæðinu, en þannig væntir fólk þess að sjá áhrif hæð- armunar á hvern- ig plöntur spjara sig á þessum slóðum. Einnig hvaða áhrif búfjárbeit kann að hafa á skógræktina, en plantað verður innan og utan girðingar. Land vantar til gróðursetningar „Skógrækt á Mosfellsheiði gæti verið stórt og mikilvægt framlag Ís- lendinga til bindingar kolefnis í and- rúmsloftinu. Við höfum því gjarnan talað um þetta sem loftslagsskóg,“ segir Björn Traustason, landfræð- ingur hjá Skógræktinni á Mógilsá og formaður Skógræktarfélag Mos- fellsbæjar. Félagið kemur að þessu verkefni í gegnum Kolvið, sem að standa Skógræktarfélag Íslands og Landvernd í þeim tilgangi að vinna að bindingu kolefnis með nýskóg- rækt. Gangurinn er þá sá að fyrir- tæki styrkja Kolvið um tilsvarandi upphæð og kostar að rækta skóg sem kolefnisjafnar starfsemi þeirra. Hafa allmargir samningar þess efn- is verið gerðir að undanförnu milli Kolviðs og atvinnulífsins. Svæðið sem nú er í skoðun að taka undir loftslagsskóg er um 6.500 ha, en það afmarkast af Nesjavalla- vegi í suðri og Þingvallvegi í norðri. Að vestan væri landamæralínan við efstu bæi í Mosfellsdal og í austri þar sem halla fer niður í Þingvalla- sveit. Vegna mikils vaxtar Kolviðar síðastliðin misseri, segir Björn, vantar land til gróðursetningar og myndi Mosfellsheiði skipta sköpum í því sambandi Mosfellsbær er eigandi að stórum hluta þess lands sem hér um ræðir sem auðveldar mjög fram- vindu málsins, enda eru forsvars- menn bæjarfélagsins jákvæðir fyrir málinu, segir Björn Traustason. Fyrst er þó að koma skógræktinni fyrir á aðalskipulagi sveitarfélagsins eins og nú er unnið að. Þeirri vinnu á að ljúka árið 2022, eða um það leyti sem kjörtímabil sitjandi bæjar- stjórnar renna út. „Stór hluti Mosfellsheiðarinnar er afar rýr og mikið rofinn á köflum. Því er mikilvægt að stöðva rof og byggja upp land. Kolefnisbindingin verður svo lögmálinu samkvæmt mest meðan skógurinn er í sem hröðustum vexti. Því viljum við setja þarna niður fljótsprottnar plöntur, svo sem stafafuru og ís- lenskt birki enda hentar þær að- stæðum vel,“ segir Björn Trausta- son. Bætir við að allt verkefnið verði tekið með vísindalegri nálgun og kannað hvaða svæði eru best til gróðursetninga og hvaða tegundir gætu hentað. Einnig hvort sú sauð- fjárbeitar sem er á svæðinu skipti sköpum fyrir lifun og vöxt plantna á heiðinni. 15% af öllu ræktuðu skóglendi á Íslandi „Stefnt er að því að gróðursetja heldur gisnar í heiðina en gert er í hefðbundinni skógrækt eða um 2.500-3.000 plöntur á hvern hektara. Gert er ráð fyrir að í þessa 6.500 hektara fari nærri 17 til 18 milljónir plantna sem er sama og nú er gróð- ursett á Íslandi á fimm árum. Í því samhengi getum við séð stærðirnar, en skógurinn á Mosfellsheiði yrði um 15% af öllum ræktuðu skóglendi á Íslandi sem er nú um 42.000 hekt- arar. Alls myndu trén á hverjum hektara binda að meðaltali fimm tonn af koltvísýringi á ári í 60 ár,“ segir Björn og enn fremur. „Þá bindum við vonir við að hefja megi útplöntun á svæðinu eftir þrjú til fjögur ár héðan í frá. Að á mannsaldri verði þarna sprottinn upp myndarlegur skógur sem hefði mikil og góð áhrif á umhverfið; binda koltvísýring og breyta veðr- áttu með því að skapa skjól fyrir höfuðborgarsvæðið, með líku lagi og Heiðmerkurskógarnir hafa svo sannarlega gert.“ Morgunblaðið/Sigurður Bogi Skjól Skógrækt á Mosfellsheiði gæti hægt á austanátt í Reykjavík. Skógar breyta veðri eins og raunin er með Heiðmörk þaðan er sem þessi mynd er. Loftslagsskógurinn verði skjól borgar Björn Traustason Mosfells- bær Re yk ja ví k Hvera- gerði ÞIN GV EL LIR HEIÐ- MÖRK ESJA Þingv allveg ur Nesjavallale ið Loftslagsskógur Loftmyndir ehf. Þing- valla- vatn Svæðið er um 6.500 ha 1

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.