Morgunblaðið - 09.08.2019, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 09.08.2019, Qupperneq 38
38 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. ÁGÚST 2019 Arnar Þór Jónsson héraðsdómari hefur skrifað þónokkuð margar greinar um hinn svonefnda orku- pakka (OP3). Það er gott að löglærðir menn, einkum vand- aðir dómarar, blandi sér í þá og reyndar aðra umræðu. Al- menningur þarf á því að halda að þeir sem þekkingu hafa deili henni. Ég er eindregið þeirrar skoðunar að ekki megi setja neinar skorður við málfrelsi dómara né reyndar nokkurra ann- arra. – En ábyrgð dómara er miklu meiri en annarra þegar þeir kjósa að tjá sig. Mér finnst að þar skorti á hjá dómaranum. Ég skal nefna nokkur dæmi. Stenst EES stjórnarskrá? Skilja má af skrifum dómarans að hann telji EES-samninginn eða a.m.k. hluta hans stangast á við stjórnarskrá. Þetta voru veigamik- il rök andstæðinga aðildar á sínum tíma. Prófessor Þór Vilhjálmsson og að mig minnir allir helstu fræðimenn töldu svo ekki vera. Ríkisstjórn Davíðs Oddssonar taldi samninginn fyllilega stand- ast. Alþingi samþykkti hann. Einn þingmaður sagði þá við ráðherra úr ræðustóli: „Svík þú aldrei ætt- land þitt í tryggðum, drekktu heldur, já – drekktu þig heldur í hel.“ Forsetinn gerði svo grein fyrir undirritun sinni. Dómstól- arnir hafa auðvitað ótal sinnum stuðst við samninginn. Nú 25 ár- um síðar koma fram efasemdir eins hér- aðsdómara. Hvaða ályktun má draga af öllu þessu? Er Alþingi af- greiðslustofnun fyrir útlend lög? Dómarinn ritaði grein um efnið meðan eiginkonan reimaði á sig skó. Það er ekki til eftirbreytni. Reyndar bera fleiri greinar hans þess merki að vera skrifaðar í svipuðum flýti. Þannig telur hann það andstætt fullveld- issjónarmiðum að Alþingi afgreiði útlenda löggjöf í stað þess að þing- menn riti lögin frá eigin brjósti. En svona hefur það lengstum ver- ið, ekki einungis til forna heldur eftir 1918. Enginn þarf lengi að lesa löggjöf um hagnýt efni til að átta sig á að hún er meira og minna þýðingarstarf úr norrænum málum. Þess vegna var það hreinn óþarfi hjá dómaranum að bregðast illa við prýðilegum skrifum Skúla Jóhannssonar verkfræðings. Skúli gerði að mínu viti ekkert lítið úr dómaranum heldur benti á augljós sannindi um löggjöf af þessu tagi. – Eða væri kannski best að Logi og hans nótar rituðu lagatextann um rafmagnið? Stafar hætta af EFTA-dómstólnum? Og talandi um fljótaskrift; hvar hefur dómarinn ritað um tilteknar greinar OP3 og hættuna af þeim? Og hvar og hvenær hefur EFTA- dómstóllinn tekið upp á þeim (ólögmæta) ósið að dæma ekki eft- ir lagatexta heldur aðfararorðum lagatextans? Og af hverju láta dómarar EFTA-dómstólsins slík svigurmæli yfir sig ganga? Hlutverk Alþingis Hlutverk Alþingis í nútímanum er að marka pólitíska stefnu í veigamiklum málum. Einna helst með skattlagningu og ráðstöfun fjár. Gott dæmi um pólitíska stefnu er einmitt aðildin að EES. Mér hugnast hins vegar ekki að andstæðingar EES-aðildar fari í víking gegn þeim samningi, efni til blekkingarherferðar um smámál með því að telja fólki trú um að OP3 sé hættuspil. Það er hrein ævintýramennska. Hún mun enda á versta hugsanlegan máta; með aðild að Evrópusambandinu. Uppsagnarheimild er á EES-samningnum Setjum svo að skylt sé að tengja Ísland við raforkumarkað Evrópu- sambandsins. Skoðun allra helstu fræðimanna í lögfræði er að það sé hreinlega óhugsandi. – Að svarta- gallsspárnar rættust sem sé. Væri ekki þá fyrst rétti tíminn til að taka hatt sinn og staf og kveðja EES-félagsskapinn, en hætta dómsdagsspám að sinni? Héraðsdómari ritar greinar Eftir Einar S. Hálfdánarson »Dómarinn ritaði grein um EES- samninginn meðan eiginkonan reimaði á sig skó. Það er ekki til eftirbreytni. Einar S. Hálfdánarson Höfundur er hæstaréttarlögmaður. Töfrar eldamennskunnar byrja með Eirvík Eldhúsið er ekki bara herbergi, heldur upplifun Við hjá Eirvík trúum því að eldhúsið sé hjarta heimilisins. Innanhússarkítektar og sérfræðingar í heimilistækjum keppast við að hanna hágæða eldhús sem standast tímans tönn, með virkni, gæði og sveigjanleika að leiðarljósi. Eldhúsið er fjárfesting til framtíðar – tryggðu þér raunveruleg gæði á hagstæðu verði. Eirvík Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is. Opnunartími mánudaga - föstudaga 10-18, laugardaga 11-15 Miskunnsami Guð! Skapari himins og jarð- ar og alls sem er. Þú sem ert höfundur lífsins og jafnframt fullkomn- ari þess. Vertu okkur náðugur og líknsamur. Hjartans þakkir fyrir alla þína fallegu og und- ursamlegu sköpun. Hjálpaðu okkur að læra að meta fegurð náttúr- unnar og kraftinn sem í henni býr. Hjálpaðu okkur að minnast ábyrgðar okkar svo við fáum lifað í sátt við hana. Hjálpaðu okkur að nýta auðæfi hennar á varfærinn hátt og með sem víðtækastri sátt við allt og alla svo við fáum notið hennar og nýtt hana með sem skynsamlegustum hætti, okkur til farsældar og framfara, blessunar og heilla. Hjálpaðu okkur að skynja og skilja að við erum hluti af sköpun þinni. Ráðsmenn í aldingarði þínum hér á jörð sem kölluð erum til þess að rækta, hlúa að og uppskera með eðli- legum hætti án þess að ganga of langt eða að taka að gína yfir og ráðskast með. Takk fyrir þau óendanlegu forrétt- indi að fá að vera hluti af þessari stórfenglegu náttúru og fá að kallast þín börn. Það eru sannarlega forrétt- indi og mikil blessun. Gefðu að jafnvægi mætti komast á í vernd náttúrunnar og þess lofts sem við lifum í og drögum að okkur. Veit okkur yfirvegun og þolinmæði, skyn- semi og skilning í umgengni okkar við náttúruna og hvert við annað. Þá er sannarlega fullkomin ástæða til að þakka þér fyrir alla þá hreinu orku sem við bú- um yfir. Hjálpaðu okk- ur að nýta hana skyn- samlega til hagsældar, friðar og blessunar. Gefðu ráðamönnum, vísindamönnum og al- menningi visku og skilning á eðli náttúru og umhverfis og gef að okkur auðnist að standa saman í að vernda hana og hvert annað frá hvers kyns níðslu og háska, tóni eða ofbeldi. Opnaðu augu okkar svo við fáum lifað í þakklæti til þín og með hags- muni heildarinnar að leiðarljósi. Já, þín sem græðir og styður með fyrirgefandi sigrandi lífsins hendi þinni sem gefur líf og hlúir að því um eilífð. Þinn sé mátturinn og dýrðin. Í frelsarans Jesú nafni. Amen. Með kærleiks- og friðarkveðju. Lifi lífið! Bæn fyrir umhverfi okkar, náttúru og loftslagi Eftir Sigurbjörn Þorkelsson Sigurbjörn Þorkelsson » Takk fyrir þau óend- anlegu forréttindi að fá að vera hluti af þess- ari stórfenglegu náttúru og fá að kallast þín börn. Það er sannarlega mikil blessun. Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.