Morgunblaðið - 15.08.2019, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 15.08.2019, Blaðsíða 37
1. RAFORKUVERÐ HÆKKAR MEÐ ORKUPÖKKUNUM Lágt raforkuverð hefur verið ein af undirstöðum góðra lífskjara í landinu. Fyrri orkupakkar ESB juku kostnað í raforkukerfi landsins með óþarfri uppskiptingu raforkufyrirtækja. Sá kostnaður er nú borinn af fyrirtækjum og heimilum í landinu. Með þriðja orkupakkanum hækkar flutningskostnaður rafmagns. 2. SÆSTRENGUR HÆKKAR ORKUVERÐ Verði sæstrengur lagður til ESB mun raforkuverð hækka verulega hér eins og gerðist í Noregi. Áform eru um sæstreng sem gæti flutt 20-40% af raforku sem framleidd er í landinu úr landi en það er mun hærra hlutfall en í Noregi. Komi strengur munu mörg innlend fyrirtæki gefast upp og störf munu flytjast úr landi. 3. ÞAÐ MÁ SEGJA NEI TAKK Ísland hefur enga tengingu við orkumarkað ESB og ætti því að vera undanþegið orkupökkunum. Undanþágur aðildarríkja frá óþarfri eða skaðlegri löggjöf EES eru mikilvægur hluti EES- samningsins. Ísland hefur meðal annars fengið undanþágur frá EES-reglum um jarðgas, járnbrautir og skipaskurði. Undanþágurnar hafa ekki valdið vandamálum hingað til og engin ástæða til að ætla að undanþága frá orkupakkanum geri það. Segjum nei takk við orkupakkanum. 4. VIÐ ERUM MESTA RAFORKUÞJÓÐ HEIMS Engin þjóð framleiðir meiri raforku á íbúa en við og öll raforka okkar er framleidd án mengunar. Við framleiðum tífalt meiri raforku á íbúa en ESB. Við megum ekki missa forræði í svo mikilvægum málaflokki úr landi til aðila sem hafa aðra hagsmuni en fólk á Íslandi. 5. ORKULÖGGJÖF ESB VELDUR OKKUR TJÓNI Aðstæður í orkumálum ESB og Íslands eru gerólíkar og sú löggjöf sem hentar aðstæðum í ESB getur valdið tjóni hér. Hér er gnótt raforku en ESB býr við orkuskort. Hagsmunir ESB og Íslands í orkumálum fara ekki saman og ESB lætur sína hagsmuni að sjálfsögðu ganga fyrir. 6. ORKUPAKKAR MARKAÐSVÆÐA ORKUKERFIÐ Orkupakkarnir markaðsvæða raforkukerfi landsins sem hingað til hefur nær alfarið verið í eigu ríkis og sveitarfélaga. Hagnaður raforkufyrirtækja nemur tugum milljarða árlega og rennur allur til samfélagslegra verkefna. Vilja Íslendingar breyta því? 7. NÁTTÚRVERND VÍKUR FYRIR GRÓÐASÓKN Orkupakkarnir hvetja til aukinnar fjárfestingar einkaaðila í raforkuframleiðslu. Virkjunum einkaaðila skal veittur aðgangur að flutningskerfi raforku sem er í ríkiseigu. Kalli einkavirkjanir á aukna flutningsgetu skal sú fjárfesting borin af ríkinu og neytendum. 8. EKKI HÆGT AÐ HAFNA SÆSTRENG Raforka er vara samkvæmt EES-rétti og því er stjórnvöldum óheimilt að hefta viðskipti með raforku milli landa. Með þriðja orkupakkanum kæmi regluverk um flutning raforku yfir landamæri. Tvö sæstrengsverkefni eru í startholunum og bíða eftir samþykkt orkupakkans. Hafni stjórnvöld umsóknum um sæstrengi gætu þessir aðilar krafist himinhárra skaðabóta úr ríkissjóði. 9. ORKUÖRYGGI STEFNT Í HÆTTU Orkupakkinn dregur úr orkuöryggi því með honum verður auðlindastýring talin ólöglegt inngrip í frjálsan markað. Í ESB- ríkjunum er brugðist við orkuskorti með því að brenna gasi en hér er það ekki valkostur. Tæmist uppistöðulón hér er ekki hægt að panta meiri rigningu. Bili sæstrengur tekur viðgerðin marga mánuði. Hér þarf því allt aðra forðastýringu en í ESB. 10. ÁSTÆÐULAUST AÐ TAKA VIÐ PAKKANUM Hvers vegna ætti Ísland að skuldbinda sig til að innleiða reglur orkumarkaðar sem það hefur engin áform um að tengjast? Sé eitthvað talið gagnlegt í orkupökkum getum við ávallt innleitt þá hluta að eigin frumkvæði og án nokkurra skuldbindinga gagnvart EES. TAKTU ÞÁTT! Geymdu þetta þar sem fleiri geta lesið og kynntu fleirum rökin! Taktu þátt í áskorun Orkan okkar á vefnum: www.orkanokkar.is/askorun Nánari upplýsingar á www.orkanokkar.is 10 GÓÐAR ÁSTÆÐUR TIL AÐ SEGJA NEI VIÐ ORKUPAKKANUM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.