Morgunblaðið - 15.08.2019, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 15.08.2019, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 2019 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a. 595 1000 Tilboð fyrir 2 Tenerife 21. ágúst í 7 nætur Verð á mann frá kr. 87.995 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Fjölmenni fagnaði því síðdegis í gær þegar nýr kafli á hringveginum fyrir botni Berufjarðar var opnaður fyrir almennri umferð. Með þessu er veg- urinn umhverfis landið, sem varð til með byggingu brúnna á Skeiðarár- sandi árið 1974, nú allur lagður bundnu slitlagi og eru það mikil tímamót. Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra klippti á borða og markaði það formlega opnun veg- arins nýja, sem er 4,9 km langur. Þar af eru vegfylling yfir sjó og leir- ur um einn kílómetri. Ný brú í Beru- fjarðarbotni er steinsteypt, 50 m löng og 10 m breið. Heildarkostn- aður er um 1,6 milljarðar króna. Undirbúningur framkvæmda í Berufirði hófst 2007, en þar sem deildar meiningar voru um veg- stæðið og fleira voru þær ekki boðn- ar út fyrr en 2017. Lægsta tilboðið var frá Héraðsverki ehf. og MVA ehf. á Egilsstöðum. Framkvæmdir hófust 2017 og lauk nú í sumar – tæpu ári seinna en vænst var – því fyllingarnar urðu talsvert meiri en búist var við. Nýi kaflinn styttir hringveginn um 3,6 km og er hann nú alls 1.322 km. „Sá áfangi sem við fögnum hér í dag leggur grunn að nýrri framtíð,“ sagði Sigurður Ingi Jóhannnsson í ávarpi sem hann flutti í Berufirði í gær. Bætti hann við að nú væru mörg járn í eldinum í samgöngu- málum. Í stjórnarsáttmála ríkis- stjórnarinnar væri boðuð sókn í samgöngumálum þar sem um 120 milljörðum króna yrði varið til fram- kvæmda á vegakerfinu á næstu fimm árum Í haust yrði svo lögð fram endurskoðuð samgönguáætlun þar sem leitað væri allra leiða til að hraða vegaframkvæmdum. Loksins slitlag all- an hringveginn Ljósmynd/Ingveldur Sæmundsdóttir Berufjörður Sigurður Ingi Jóhannsson sveitarstjórnar- og samgönguráðherra klippti á borðann á Berufjarðar- brúnni nýju og naut við það aðstoðar Bergþóru Þorkelsdóttur, forstjóra Vegagerðarinnar.  Tímamót í Berufirði  Styttri leið Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Tveir af fjórum fundarstjórum í fundaherferð seðlabankastjóra hafa forfallast. Ritstjóri Seðlabanka Ís- lands, Stefán Jóhann Stefánsson, stýrði fundi seðlabankastjóra á Ísa- firði í forföllum Einars K. Guðfinns- sonar. Snorri Styrkársson, fjármála- stjóri Fjarðabyggðar, stýrði fundi á Neskaupstað í forföllum Smára Geirssonar. Óbreytt dagskrá var á Akureyri þar sem Valgerður Sverr- isdóttir stýrði fundi og þá segist Guðni Ágústsson ákveðinn í að stýra síðasta fundi ferðarinnar í Árborg nk. mánudag – komi ekkert óvænt upp á. „Fundirnir hafa verið mjög gagn- legir og fundargestir lýst yfir ánægju með þá. Það hefur ekki aðeins verið skýrt frá endurreisn fjármálakerfis- ins og efnahagslífsins eftir fjármála- hrunið, þar með talið að setja á og losa fjármagnshöft, heldur hefur fundar- fólk einnig komið með áhugaverðar og gagnlegar spurningar um gengis- og gjaldmiðlamál, ýmis úrlausnarmál eftir hrunið, svo sem starfsemi gjald- eyriseftirlits, um áhrifin af Brexit, vaxta- og skuldamál og margt fleira,“ segir Stefán Jóhann Stefánsson, rit- stjóri Seðlabankans, við Morgunblað- ið. Að sögn hans hefur fundarsókn verið þokkaleg miðað við fundi af þessu tagi. Heimildir Morgunblaðsins herma að um 25 manns hafi mætt á fundinn á Akureyri og talsvert færri á Ísafirði, eða um 12 manns. Kostnaður við ferðina liggur ekki fyrir en verður tekinn saman að henni lokinni, að sögn Stefáns Jóhanns sem segir ferð seðlabankastjóra farna til að upplýsa og útskýra starfsemi Seðlabankans á liðnum árum og þau verkefni sem hann stendur frammi fyrir nú. Sagt sé frá nýlegum breyt- ingum í starfi bankans og áskorunum framundan, svo sem er varðar áhættu tengda greiðslumiðlun, en einnig sé greint frá árangri í peninga- og efna- hagsmálum undanfarinn áratug. Ferðin sé liður í því lögbundna mark- miði að skýra frá starfsemi bankans og sé í anda þeirrar gegnsæisstefnu sem margir seðlabankar í heiminum fylgja í auknum mæli. Þá segir Stefán Jóhann aðra seðlabankastjóra í heim- inum hafa farið í sambærilegar ferðir. Helmingur mætti ekki Á flandri Már Guðmundsson seðla- bankastjóri er nú í fundaferð.  Tveir af fjórum fundarstjórum hafa forfallast í hringferð seðlabankastjóra  Gagnlegar spurningar fundargesta Guðni Einarsson gudni@mbl.is Sauðfjárslátrun hófst á Hvamms- tanga á föstudaginn var, 9. ágúst, og var þá slátrað 411 lömbum. Meðal- vigtin var 15,1 kíló sem þykir mjög gott miðað við hve snemma var slátr- að, að sögn Ágústs Andréssonar, for- stöðumanns Kjötafurðastöðvar KS. Aftur verður slátrað í dag á Hvammstanga. Ágúst sagði að stefnt hefði verið að því að slátra 1.200 lömbum í dag en líklega yrðu þau ekki nema 600. Í kvöld verður því bú- ið að slátra rúmlega eitt þúsund lömbum í þessari sláturtíð. „Bændur eru frekar tregir til að senda fé til slátrunar og það lítur ekkert of vel út með næstu viku en þá var ætlunin að slátra í þrjá daga,“ sagði Ágúst. Hann taldi líklegast að bændum fyndist ekki borga sig að slátra lömbunum svo snemma. Þeir vilji heldur bíða og leyfa lömbunum að þyngjast enn meira. „Við erum með sömu álags- greiðslur fyrir forslátrun og við vor- um með í fyrra ofan á okkar nýja verð. Í fyrra slátruðum við um 12.000 lömbum í forslátrun og vonuðumst til að ná eitthvað svipuðu núna en það virðist vera eitthvað þyngra nú að fá lömb frá bændum,“ sagði Ágúst. Forslátrun stendur þar til al- menn sláturtíð byrjar 4. september hjá KS og SKVH. Ágúst nefndi að bændur hefðu beðið eftir því að einhver viðbót kæmi frá Landssamtökum sauðfjár- bænda eða Bændasamtökunum í gegnum samninginn sem þeir eru með við ríkisvaldið. Kjötinu af nýslátruðu lömbunum úr fyrstu slátruninni var dreift í verslanir Bónus í gær. Ekki varð því skortur á lambakjöti eins og útlit var fyrir á tímabili þegar ekki var hægt að fá afgreidda hryggi í heilu. Eins og kunnugt er rættist úr því án þess að til innflutnings kæmi. Kjöt af nýslátruðu frá KS kom í Bónusbúðirnar í gær  Sauðfjárslátrun heldur áfram í dag á Hvammstanga Morgunblaðið/RAX Sláturtíð Búið er að lóga fyrstu lömbum haustsins. Mynd úr safni. Þorsteinn Már Baldvinsson, for- stjóri Samherja, ætlar að stefna Seðlabanka Íslands, bæði fyrir sína eigin hönd og fyrir hönd Samherja, í kjölfar þess að Seðlabankinn hafn- aði kröfu hans um viðræður um bætur vegna málareksturs Seðla- bankans gegn Samherja. Þetta staðfesti Þorsteinn Már við mbl.is í gærkvöldi. Þorsteinn krafðist þess að Seðla- bankinn greiddi honum fimm millj- ónir króna í bætur vegna kostnaðar sem féll á hann í málarekstri bank- ans. Telur bankinn að málsmeð- ferðin hafi ekki brotið gegn rétt- indum Þorsteins Más þannig að það varði bótaskyldu. Þorsteinn Már segir að stefnurn- ar verði birtar í dag og á morgun. „Við viljum að sjálfsögðu klára þessa stefnu áður en Már Guð- mundsson [fráfarandi seðlabanka- stjóri] fer, eðlilega. Vegna þess að við höfum engan áhuga á að birta nýjum seðla- bankastjóra þessa stefnu. Már er búinn að draga það mjög að svara þessu og Seðlabankinn líka. Við munum klára þessi mál og birta honum þessar stefnur.“ Þorsteinn Már segir að stefnurnar hafi verið eðli- legt framhald af höfnun bankans á viðræðum. „Niðurstaða bankaráðs var skýr í skýrslu til forsætisráðherra, að það hafi verið brotin lög á Samherja og mörgum öðrum og niðurstaða um- boðsmanns Alþingis var einnig skýr – að það hefðu verið brotin lög á mér,“ segir Þorsteinn Már, en höfn- un Seðlabankans á viðræðum um bætur kom Þorsteini Má í opna skjöldu. Vill klára málið áð- ur en Már hættir  Mun stefna Seðlabanka Íslands Þorsteinn Már Baldvinsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.