Morgunblaðið - 15.08.2019, Blaðsíða 58
58 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 2019
Við framleiðum lausnir
Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is
DVERGARNIR PLÚS+
Öflugri undirstöður
DVERGARNIR R
Dvergarnir plús+ henta vel undir merkingar
og skilti. Ofan á þá er hægt að festa úrval
af tengistykkjum, t.d. fyrir skiltarör eða
kaðalgrip til afmörkunar.
NAGGUR PLÚS+ PURKUR PLÚS+ TEITUR PLÚS+
ÁLFUR
PLÚS+
Í KAPLAKRIKA
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
FH leikur til úrslita í annað skiptið á
þremur árum í bikarkeppni karla í
fótbolta eftir 3:1-heimasigur á KR í
undanúrslitum Mjólkurbikarsins í
gærkvöldi. Þrátt fyrir að KR hafi
verið sterkari aðilinn stærstan hluta
fyrri hálfleiks var FH með 2:1-
forystu í hálfleik. FH spilaði seinni
hálfleikinn svo af mikilli fagmennsku
og sigldi góðum sigri í hús.
Brandur allur í öllu
Færeyingurinn Brandur Olsen
var afar áberandi hjá FH. Hann náði
í víti sem fyrsta markið kom upp úr,
skoraði annað markið sjálfur og
lagði svo upp þriðja markið. Brand-
ur pirraði auk þess leikmenn KR all-
an leikinn og voru þeir orðnir vel
þreyttir á honum undir lokin. Þegar
leikmenn andstæðinganna eru orðn-
ir pirraðir út í þig, þá ertu að gera
eitthvað rétt. Guðmundur Krist-
jánsson var eins og klettur í vörn
FH og Morten Beck Guldsmed og
Steven Lennon verða flottari saman
frammi með hverjum leiknum.
Þótt KR hafi verið sterkari aðilinn
á köflum í leiknum, vantaði betri
frammistöðu frá lykilmönnum.
Pálmi Rafn Pálmason sást ekki,
Óskar Örn Hauksson skapaði lítið og
Atli Sigurjónsson var ekki áberandi.
Beitir Ólafsson var svo ekki öruggur
í markinu, en sjálfstraust Beitis
virðist ekki sérstaklega mikið núna
eftir erfiðan leik gegn HK í síðasta
deildarleik.
FH vann ekki einn einasta leik í
júní og tapaði svo fyrir HK og KA í
júlí. Sæti Ólafs Kristjánssonar,
þjálfara liðsins, var eflaust orðið
heitt á tímabili. Hann á hinsvegar
hrós skilið fyrir að rífa sína menn
upp og er liðið búið að vinna þrjá
leiki í röð og fimm af síðustu sjö og
komið í bikarúrslit. Hlutirnir eru
fljótir að breytast í fótboltanum og
það vita KR-ingar líka. KR vann átta
deildarleiki í röð fyrr í sumar og
virtist ætla að stinga af í deildinni.
Nú hefur liðið tapað tveimur leikjum
í röð, fengið sjö mörk á sig, og aðeins
skorað tvö. Það verður áhugavert að
sjá hvort uppgangur FH haldi áfram
og hvernig KR-ingar bregðast við
mótlæti á tímabili sem hefur til
þessa verið afar hlýtt og gott.
FH einu skrefi frá fyrsta
bikartitlinum í níu ár
Annar úrslitaleikurinn á þremur árum Brandur náði í víti, skoraði og lagði upp
Morgunblaðið/Arnþór
Dýrmætur Færeyingurinn Brandur Olsen átti risaþátt í sigri FH á KR-ingum í gær. Brandur fiskaði víti snemma
leiks í fyrsta marki liðsins, skoraði svo sjálfur mark númer tvö og lagði upp það þriðja með fyrirgjöf.
1:0 Steven Lennon 10. (víti).
1:1 Finnur Tómas Pálmason 14.
2:1 Brandur Olsen 41.
3:1 Morten Beck 71.
Dómari: Helgi Mikael Jónasson.
Áhorfendur: 2.153.
FH – KR 3:1
I Gul spjöldDavíð Þór Viðarsson, Cédric
D’Ulivo og Pétur Viðarsson (FH),
Arnþór Ingi Kristinsson og Skúli Jón
Friðgeirsson (KR).
Mjólkurbikar karla
Undanúrslit:
FH – KR.....................................................3:1
Stórbikar Evrópu
Liverpool – Chelsea .................................2:2
Sadio Mane 46., 95. – Olivier Giroud 36.,
Jorginho 101. (víti).
Liverpool sigraði 7:6 eftir vítakeppni.
Danmörk
B-deild:
Vejle – Fredericia.................................... 0:1
Kjartan Henry Finnbogason lék allan
leikinn með Vejle.
Svíþjóð
A-deild kvenna:
Rosengård – Limhamn Bunkeflo .......... 3:0
Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leik-
inn fyrir Rosengård.
Andrea Thorisson kom inn á hjá LB á 77.
mínútu.
Kristianstad – Växjö ............................... 3:1
Sif Atladóttir lék allan leikinn með
Kristianstad en Svava Rós Guðmundsdótt-
ir var á varamannabekknum. Elísabet
Gunnarsdóttir þjálfar liðið og Björn Sig-
urbjörnsson er aðstoðarþjálfari.
Eskilstuna – Djurgården ........................ 4:2
Ingibjörg Sigurðardóttir lék allan leik-
inn með Djurgården en Guðrún Arnardótt-
ir var á varamannabekknum. Guðbjörg
Gunnarsdóttir er í barneignafríi.
Kungsbacka – Linköping ....................... 2:1
Anna Rakel Pétursdóttir kom inn á hjá
Linköping eftir 35 mínútur.
Staðan: Rosengård 30, Göteborg 26,
Vittsjö 25, Örebro 23, Linköping 22, Kristi-
anstad 22, Piteå 20, Eskilstuna 17, Växjö
15, Djurgården 9, Limhamn Bunkeflo 4,
Kungsbacka 4.
Noregur
Stabæk – Vålerenga................................ 1:1
Matthías Vilhjálmsson lék allan leikinn
með Vålerenga.
Viking – Sarpsborg ................................. 2:1
Samúel Kári Friðjónsson var ekki í leik-
mannahópi Viking. Axel Óskar Andrésson
er frá keppni vegna meiðsla.
Kristiansund – Bodö/Glimt.................... 1:2
Oliver Sigurjónsson var ekki í leik-
mannahópi Bodö/Glimt.
Staðan:
Bodø/Glimt 17 12 2 3 40:26 38
Molde 17 11 3 3 39:16 36
Odd 17 10 3 4 25:19 33
Brann 17 8 5 4 22:16 29
Rosenborg 17 8 4 5 26:21 28
Vålerenga 17 7 5 5 32:23 26
Kristiansund 17 6 5 6 20:19 23
Viking 17 6 4 7 23:28 22
Haugesund 17 5 6 6 25:20 21
Lillestrøm 17 6 3 8 22:28 21
Ranheim 17 5 3 9 18:29 18
Mjøndalen 17 3 8 6 24:29 17
Stabæk 17 4 5 8 16:23 17
Tromsø 17 5 2 10 19:35 17
Sarpsborg 17 2 8 7 18:24 14
Strømsgodset 17 3 4 10 19:32 13
KNATTSPYRNA
Sautjánda umferð úrvalsdeildar karla í fótbolta fer fram
á sunnudag og mánudag og þar verða 11 leikmenn fjarri
góðu gamni eftir að hafa verið úrskurðaðir í eins leiks
bann hver á fundi aganefndar KSÍ í vikunni.
Skagamennirnir Albert Hafsteinsson, Óttar Bjarni
Guðmundsson og Sindri Snær Magnússon verða allir í
banni þegar ÍA heimsækir Stjörnuna á Samsung-völlinn
í Garðabæ. Heimamenn verða án miðvarðanna Daníels
Laxdal og Martin Rauschenberg sem taka út bann.
Blikarnir Elfar Freyr Helgason og Thomas Mikkelsen
verða í banni þegar Breiðablik fær Valsmenn í heimsókn
og þá tekur Árbæingurinn Geoffrey Castillion út leik-
menn þegar Fylkir heimsækir FH í Hafnarfjörðinn. Davíð Þór Viðarsson,
fyrirliði FH, verður einnig í banni í leiknum. Miðjumaður Grindvíkinga,
Rodrigo Gomes, verður í banni þegar Grindavík fær nýliða HK í heimsókn
og þá verður Sölvi Geir Ottesen, fyrirliði Víkinga, í banni þegar Víkingar
heimsækja KR á Meistaravelli í Vesturbænum.
Fimm í banni í Garðabæ
Sölvi Geir
Ottesen
Portúgal vann 16 stiga sigur á Sviss
á heimavelli í gær, 84:68, í riðli Ís-
lands í forkeppni EM karla í körfu-
bolta. Ísland tekur á móti Portúgal
í Laugardalshöll á laugardaginn
eftir sigurinn sæta á Sviss um síð-
ustu helgi, og getur sett allt í hnút í
riðlinum með sigri. Lokaleikur rið-
ilsins er viðureign Sviss og Íslands í
Sviss.
Miguel Cardoso, Pedro Bastos og
Jeremiah Wilson skoruðu 16 stig
hver fyrir Portúgal en Clint Capela
flest fyrir Sviss eða 13.
Til Íslands eft-
ir sigur á Sviss
Morgunblaðið/Kristinn Magnúss
Höllin Jón Axel Guðmundsson sæk-
ir gegn Sviss sem tapaði aftur í gær.