Morgunblaðið - 15.08.2019, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 15.08.2019, Blaðsíða 72
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is laugardaga og sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-18:30 af borðstofu- húsgögnum og borðbúnaði 8. - 19. ágúst 20-40% GROOVYMatarstell. Matardiskur. 26,5 cm. 995 kr. Nú 796 kr. Hliðardiskur. 22 cm. 895 kr. Nú 716 kr. Hliðardiskur. 19 cm. 795 kr. Nú 636 kr. Súpudiskur. 22 cm. 895 kr. Nú 716 kr. Kanna. 30cl. 895 kr. Nú 716 kr. Söngvararnir Lilja Guðmundsdóttir og Bjarni Thor Kristinsson, ásamt Ingileif Bryndísi Þórsdóttur píanó- leikara, halda tónleika í Hannesar- holti í dag og bera þeir yfirskriftina Bráðum kemur betri tíð. Þau munu flytja íslensk sönglög sem mörg hver heyrast ekki á hverjum degi og er m.a. leitað í smiðju Atla Heimis, Gunnars Reynis, Jóhanns Helga- sonar, Megasar og Baggalúts. Tónleikarnir hefjast kl. »20 Bráðum kemur betri tíð í Hannesarholti FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 227. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. „Ég er búin að gefa restina af tíma- bilinu upp á bátinn núna,“ segir Aníta Hinriksdóttir, hlaupakona úr ÍR. Snúin meiðsli í læri hafa haldið aftur af henni allt þetta ár og hún hefur því ekki getað hlaupið eins hratt og hún er vön. Þar með er HM í Katar úr sögunni en Aníta horfir til Ólympíuleikanna í Tókýó og leggur allt í sölurnar í vetur. »61 Gefur HM upp á bátinn en horfir til Tókýó ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Kitty Kovács, organisti Landakirkju í Vestmannaeyjum, leikur verk eftir Johann Sebastian Bach, Astor Piaz- zolla og Pierre Cochereau á Al- þjóðlegu orgelsumri í Hallgríms- kirkju í dag kl. 12. Kitty Kovács fæddist í Ungverja- landi, kom til Íslands árið 2006 og hefur starfað hér sem píanókennari og organisti. Frá árinu 2012 hefur Kitty stundað orgelnám við Tón- skóla þjóðkirkjunnar og vorið 2017 lauk hún kantorsnámi þaðan. Ári síðar lauk hún þaðan námi í ein- leiksáfanga. Bach, Piazzolla og Coc- hereau á orgelsumri Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Íslensk-þýska hljómsveitin En- semble Adapter, sem einbeitir sér að nútímatónlist innan klassískrar tón- listar, hefur vakið mikla athygli í Evrópu og víðar. Fyrir skömmu gekkst hún fyrir sérstökum tón- leikum, Global Adapter, með kammerhópunum Distractfold frá Manchester á Englandi og Dal Ni- ente frá Chicago í Bandaríkjunum. 1. september nk. verður seinni hluti tónleikanna á sama stað í Berlín, en þá með Ice Ensemble frá New York og Ensemble Offspring frá Ástralíu. Að loknu námi í Hollandi fluttu hjónin Gunnhildur Einarsdóttir hörpuleikari og Matthias Engler slagverksleikari til Berlínar og stofnuðu Ensemble Adapter 2004. Þau fengu Kristjönu Helgadóttur flautuleikara og Ingólf Vilhjálmsson klarinettleikara til liðs við sig og eft- ir því sem verkefnum fjölgaði fluttu þau líka til höfuðborgar Þýskalands. Gunnhildur segir að samvinnan með kammerhópunum hafi verið hugsuð til þess að læra hvert af öðru. „Samvinna er lykilorð í okkar vinnu og hefur verið rauður þráður í vinnunni frá byrjun,“ segir hún. Þau hafi enda alla tíð unnið mikið með tónskáldum að sköpun tónverka. „Það er gaman að vera hluti af ferl- inu,“ heldur hún áfram og bendir á að mikill munur sé á tónlistarsen- unni á milli landa. „Við höfum lært mikið af þessu.“ Atkvæðamiklir listamenn Fjórmenningarnir hafa verið at- kvæðamiklir á sínu sviði í Berlín og hafa meðal annars stofnað fjölmenn- ari hljómsveit, Ensemblekollektiv Berlin, úr fjórum kammerhópum í nútímatónlist. „Þetta hefur verið mjög skemmtileg samvinna í nokkur ár auk þess sem við náum lengra með því að sameina hópa frekar en einstaklinga,“ segir Gunnhildur. Ensemble Adapter er með tón- leikaröð í æfingahúsnæðinu og reglulega er opið hús hjá þeim, Open Mic, þar sem tónskáld og áhugafólk um tónsköpun getur komið með hug- myndir og nótur og fengið að reyna sig með þeim. Auk þess eru þau oft með vinnustofur, meðal annars í há- skólum, þar á meðal í Harvard og Stanford í Bandaríkjunum, þar sem þau halda fyrirlestra og vinna með doktorsnemum í tónsmíðum og halda tónleika með þeim. Uppselt var á fyrri tónleikana í Radialsystem í lok júlí og stemning góð. „Þetta tókst mjög vel og við er- um ánægð með útkomuna og ekki síst samvinnuna við hina hópana og hlökkum mikið til seinni hlutans,“ segir Gunnhildur. Áhorfendur sátu í miðju salarins og hóparnir fluttu verk sín hver frá sinni hlið auk þess sem þeir blönduðust og luku dag- skránni í einum hópi innan um við- stadda. Gunnhildur er sammála því að þetta hafi verið áhrifaríkt. „Það var mjög skemmtilegt að æfa með fólkinu og kynnast mismunandi vinnuaðferðum og æfingatækni.“ Tónleikarnir eftir rúmar tvær vik- ur eru annars vegar seinni hluti Global Adapter og hins vegar loka- tónleikar í samvinnu þessara þriggja hópa, sem komu saman í Ástralíu um jólin í fyrra og í New York í vor sem leið. „Við þekkjumst öll vel og sam- starfið hefur verið sérlega ánægju- legt,“ segir Gunnhildur. Ljósmynd/Phil Dera Í Radialsystem Gunnhildur Einarsdóttir, Kristjana Helgadóttir, Ingólfur Vilhjálmsson og Matthias Engler. Samvinna er lykilorðið  Íslensk-þýska hljómsveitin Ensemble Adapter ryður brautina í nútímatónlist innan klassískrar tónlistar Ljósmynd/Rut Sigurðardóttir Harpa Gunnhildur Einarsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.