Skessuhorn - 14.01.2015, Qupperneq 13
13MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 2015
Borgarbyggð auglýsir eftir
framsæknum leiðtogum
Sviðsstjóri fjölskyldu- og fjármálasviðs
Við leitum að framsæknum leiðtoga í stöðu sviðsstjóra
fjölskyldu- og fjármálasviðs. Sviðsstjóri hefur yfirumsjón með
fjármálum, stjórnsýslu, fræðslumálum, íþrótta- og tómstunda-
málum, félagsþjónustu og menningarmálum.
Verkefni og ábyrgðarsvið
Ábyrgð á rekstri skrifstofu og framkvæmd málaflokka
sem heyra undir sviðið
Yfirumsjón með gerð fjárhags- og starfsáætlana fyrir
sviðið og stofnanir þess
Yfirstjórn stofnana sem heyra undir sviðið
Vinnur að stefnumótun og mannauðsmálum fyrir sviðið
og stofnanir þess
Eftirlit með framkvæmd samninga, laga og reglugerða
sem í gildi eru og heyra undir sviðið
Menntunar- og hæfnikröfur
Háskólamenntun á sviði stjórnunar og fjármála
Menntun á sviði fræðslumála er æskileg
Reynsla af stjórnun og mannauðsmálum
Reynsla af áætlanagerð og fjármálastjórn
Þekking á opinberri stjórnsýslu
Hæfni í mannlegum samskiptum
Skipulagshæfileikar og sjálfstæði í vinnubrögðum
Hæfni í framsetningu á efni í ræðu og riti
Sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs
Við leitum að framsæknum leiðtoga í stöðu sviðsstjóra um-
hverfis- og skipulagssviðs. Sviðsstjóri hefur yfirumsjón með um-
hverfis-, hreinlætis- og sorpmálum, umferðar- og samgöngu-
málum, skipulags- og byggingarmálum, landbúnaðarmálum,
fasteignaumsjón og áhaldahúsi, brunamálum og almanna-
vörnum.
Verkefni og ábyrgðarsvið
Ábyrgð á rekstri og framkvæmd verkefna sem heyra
undir sviðið
Umsjón með gerð fjárhags- og starfsáætlana
Yfirumsjón með skipulags- og byggingarmálum,
umhverfismálum, sorpmálum, samgöngumálum,
brunamálum og almannavörnum
Yfirumsjón með framkvæmdum, rekstri mannvirkja,
útboðum og gerð samninga
Eftirlit með framkvæmd samninga, laga og reglugerða
sem í gildi eru og heyra undir sviðið
Menntunar- og hæfnikröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi, s.s. á sviði tækni,
verkfræði og skipulagsmála
Þekking og reynsla af stjórnun og framkvæmdum
Þekking og reynsla á skipulags- og byggingarmálum
Þekking og reynsla á sviði umhverfismála
Reynsla af verk-, kostnaðar og fjárhagsáætlunum
Hæfni í mannlegum samskiptum
Skipulagshæfileikar og sjálfstæði í vinnubrögðum
Hæfni í framsetningu á efni í ræðu og riti
Upplýsingar veitir Kolfinna Jóhannesdóttir í síma 433 7100
Umsóknarfrestur er til og með 26. janúar nk.
Umsækjendur eru beðnir um skila inn umsóknum á
netfangið kolfinna@borgarbyggd.is. Með umsókn
þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf
þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og
rökstuðningur fyrir hæfni í starfið.
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
5
N1 bauð í
heimsókn
Heimilisfólk á Brákarhlíð í Borg-
arnesi fékk gott heimboð frá ná-
granna sínum á þrettándanum,
síðastliðinn þriðjudag. N1 í
Borgarnesi bauð þá í kaffi og ekki
vantaði hnallþórurnar þegar gest-
ir gengu í hús. „Það var starfsfólk
N1 sem bauð upp á og skenkti
heimilisfólki og starfsmönn-
um Brákarhlíðar kaffi og kök-
ur. Stundin var notaleg í vistleg-
um húsakynnum N1,“ sagði Björn
Bjarki Þorsteinsson framkvæmda-
stjóri í Brákarhlíð að heimsókn
lokinni.
mm/ Ljósm. bbþ.
www.skessuhorn.is
Fylgist þú með?
Áskriftarsími:
433 5500