Skessuhorn - 14.01.2015, Blaðsíða 19
19MIÐVIKUDAGUR 14. JANÚAR 2015
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri í
Reykjavík og Regína Ásvaldsdótt-
ir bæjarstjóri á Akranesi áttu fund
í stjórnsýsluhúsinu á Akranesi á
mánudaginn. Að sögn Regínu bæj-
arstjóra fóru þau yfir fjölmörg mál
sem snerta bæði sveitarfélögin, svo
sem málefni Sundabrautar, Grund-
artangasvæðisins, Faxaflóahafna
og Orkuveitu Reykjavíkur. Einn-
ig ræddu þau samstarf sveitarfélag-
anna á höfuðborgarsvæðinu en
Dagur er formaður stjórnar þeirra.
,,Fundurinn var mjög gagnlegur
en við eigum í miklu samstarfi við
Reykjavíkurborg í gegnum OR og
Faxaflóahafnir,“ segir Regína. Hún
segir vilja til þess að treysta sam-
starfið enn betur. mm/ akranes.is
GRUNDARGÖTU 30, 350 GRUNDARFIRÐI
SÍMI: 430 8500, FAX: 430 8501
Grundarfjarðarbær
Auglýsing um breytingu á deiliskipulagi Framness
Bæjarstjórn Grundarfjarðarbæjar hefur samþykkt á fundi 11. desember 2014 að
auglýsa breytingu á deiliskipulagi samkvæmt 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Deiliskipulagsbreytingin felst í sameiningu lóða 4b og 6 á Nesvegi í lóð 6. Lóðarmörk lóðar 4
breytist jafnframt á móti lóð 6. Nýtingarhlutfallið breytist úr 0.90 í 0.95. Mesta leyfilega hæð
mannvirkis verður 16m. Sjá nánari upplýsingar í deiliskipulagstillögu.
Deiliskipulagstillagan verður aðgengileg á vef Grundarfjarðar, www.grundarfjordur.is og á skrifstofu skipulags- og
byggingarfulltrúa, Borgarbraut 16 á skrifstofutíma frá 10-14 frá 14. janúar 2015 til 25. febrúar 2015. Þeir sem telja sig eiga
hagsmuna að gæta eru hvattir til að kynna sér breytinguna og koma ábendingum eða athugasemdum á framfæri skriflega til
skipulags- og byggingarfulltrúa Grundarfjarðar, Borgarbraut 16, 350 Grundarfjörður í síðasta lagi 25. febrúar 2015.
Sigurbjartur Loftsson,
Skipulags- og byggingarfulltrúinn í Grundarfirði.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Eyrarrósin verður veitt í ellefta sinn í mars
næstkomandi, fyrir framúrskarandi menningar-
verkefni á starfssvæði Byggðastofnunar. Markmið
viðurkenningarinnar er að beina sjónum að og
hvetja til menningarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar
og uppbyggingar á sviði menningar og lista.
Tíu verkefni verða valin á Eyrarrósarlistann og
þrjú þeirra hljóta tilnefningu til Eyrarrósarinnar
ásamt peningaverðlaunum og flugmiðum frá
Flugfélagi Íslands. Handhafi Eyrarrósarinnar
hlýtur verðlaun að upphæð 1.650.000 krónur.
Frú Dorrit Moussaieff, forsetafrú og verndari
Eyrarrósarinnar, afhendir verðlaunin.
Umsóknum skal fylgja
Lýsing á verkefninu
Tíma- og verkáætlun
Upplýsingar um aðstandendur
Fjárhagsáætlun
Umsóknarfrestur er til miðnættis 8. febrúar 2015
og verður öllum umsóknum svarað. Þær skulu sendar
með tölvupósti til Listahátíðar í Reykjavík á netfangið
eyrarros@artfest.is
Allar nánari upplýsingar er hægt að fá á skrifstofu
Listahátíðar í síma 561-2444 og á vefsvæði
Eyrarrósarinnar www.listahatid.is/eyrarrosin
Eyrarrósin ����
www.skessuhorn.is
Fylgist þú með? S: 433 5500
Bæjarstjóri og borgarstjóri funduðu
Sjónvarp Skessuhorns brátt í loftið á ÍNN
Sjónvarp Skessuhorns verður heiti
nýs mannlífs- og atvinnuþáttar sem
hefur göngu sína á sjónvarpsstöðinni
ÍNN miðvikudaginn 28. janúar næst-
komandi. Gerður hefur verið samn-
ingur um framleiðslu tólf hálf tíma
þátta sem sýndir verða öll miðviku-
dagskvöld fram í miðjan apríl á ÍNN
og endursýndir oft. Í þáttunum verð-
ur lögð áhersla á fjölbreytt mannlífs,-
menningar- og atvinnutengt efni af
öllu Vesturlandi. Ritstjóri þáttanna er
Magnús Magnússon en um dagskrár-
gerð sjá fréttamenn Skessuhorns.
Magnús Þór Hafsteinsson blaða-
maður Skessuhorns hefur talsverða
reynslu af útvarps- og sjónvarps-
fréttagerð, starfaði meðal annars um
árabil sem fréttaritari RUV í Nor-
egi. Hann mun vera burðarás í frétta-
tengdu efni í þættina, þótt fleiri komi
við sögu. Myndataka og vinnsla verð-
ur í höndum Friðþjófs Helgasonar,
reynslubolta á sviði ljósmynda- og
kvikmyndatöku. Þórarinn Ingi Tóm-
asson mun einnig koma að klippingu,
hljóð- og grafískri vinnslu.
„Ef vel tekst til gerum við ráð fyrir
að um góða kynningu verði að ræða
fyrir Vesturland og erum spennt að
prófa nýja hluti. Blaðamenn okkar
eru á ferð og flugi um landshlutann
alla daga og því ljóst að nýta má ferð-
ir, búnað og aðstöðu betur. Óvissan
er kannski fyrst og fremst sú að sam-
þætta án árekstra nýjan miðlunarmáta
við blað og vef. Sumt af því efni sem
við erum að vinna með passar reynd-
ar betur í sjónvarp og svo öfugt,“ seg-
ir Magnús Magnússon ritstjóri.
Hann segir að rennt sé blint í sjó-
inn með fjármögnun þáttanna, en
fyrirkomulag í samningi við ÍNN
er einfaldlega þannig að verktakar í
þáttagerð sjá alfarið um fjármögnun
þeirra. „Við munum bjóða auglýsing-
ar á viðráðanlegu verði og er mark-
miðið til að byrja með að ná að selja
upp í kostnað. Viðtökur fyrirtækja og
stofnana hér á Vesturlandi við boði
um auglýsingakaup mun alfarið ráða
því hvort við framleiðum fleiri en
þessa tólf þætti. Að því leyti erum við
að velta boltanum til samfélagsins hér
á Vesturlandi. Við eigum ekki sífellt
að vera að bíða eftir því að það komi
fjölmiðlamenn að sunnan til að fjalla
um málefni landshlutans. Þar eigum
við að geta gert betur,“ segir Magnús.
eo
Merki þáttanna er að taka á sig mynd. Ljósmyndina tók Kristín Jónsdóttir.
17. janúar 2015
Opin dagskrá frá kl 13-15:30
Allir velkomnir
Íþróttahús: Gögl kl. 13-15
Atlantís: leikir kl.13-14
Lillulundur: Útivist og leikir kl.13-15
Gengið um skólann með leiðsögn kl. 14
Alþingi: Myndband og myndir
Kaffiveisla kl. 15:30
Ef vel viðrar er tilvalið að koma á Laugar og njóta
útivistar, gott er að renna, leika í Lillulundi eða fara á
gönguskíði.
Kl. 15:30-17:30 Opið í sundi og á byggðasafni.
Frítt er í sund fyrir alla.
Sögustund verður á byggðasafninu. Verð 500 kr fyrir fullorðna
og frítt fyrir börn 10 ÁRA
10 ÁRA AFMÆLI