Skessuhorn - 21.01.2015, Page 19
19MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 2015
Segir gaman að geta byrjað í starfi með bættri löggæslu
Spjallað við Úlfar Lúðvíksson nýjan lögreglustjóra á Vesturlandi
Öryggi íbúanna eru eitt af stóru
velferðarmálunum í samfélagi
okkar. Löggæslumálin eru þar of-
arlega á blaði. Um síðustu áramót
áttu sér stað breytingar á þeim
málum á Vesturlandi, samhliða
breyttri skipan lögregluumdæma
í landinu. Nýr lögreglustjóri fyr-
ir Vesturland er Úlfar Lúðvíksson
sem verður með aðsetur í Borg-
arnesi. Blaðamaður Skessuhorns
hitti Úlfar á dögunum þar sem
meðal annars var forvitnast um
nýjar útfærslur í löggæslumálun-
um. Skoðun Úlfars er að þetta nýja
skipulag boðar byltingu í löggæslu
á Vesturlandi og má taka undir þau
orð. „Það er gaman að geta byrjað
í þessu starfi með bættri löggæslu,
með því að taka upp sameiginlega
sólarhringsvakt í Borgarnesi og
á Akranesi “ segir Úlfar. Þannig
verða fjórir lögreglumenn á hverj-
um tíma saman á vakt í almennri
deild, tveir í Borganesi og tveir á
Akranesi. „Liðsafli verður góður
en þrír rannsóknalögreglumenn
eru við störf á Akranesi, yfirlög-
regluþjónn og dagmaður. Í Borg-
arnesi er jafnframt yfirlögreglu-
þjónn og dagmaður. Ég stend og
fell með þessari breytingu, sólar-
hringsvakt á þessu svæði er komin
til að vera. Hún styrkir jafnframt
löggæslu í Dalasýslu og á Snæfells-
nesi það er ekki nokkur spurning,“
segir Úlfar.
Viðbótarfjármagn
muni skila sér
Úlfar segir að samkvæmt rekstrar-
áætlun fyrir árið 2015 eigi dæmið
að ganga upp. Hann segir það hins
vegar með nokkrum ólíkindum að
endanlegar fjárheimildir lögreglu-
embætta liggja ekki fyrir þar sem
þingmannanefnd hefur enn ekki
ráðstafað þeim 520,2 milljónum
króna sem koma eiga til eflingar
almennri löggæslu. „Það er baga-
legt að hafa ekki fast land undir
fótum þegar unnið er að skipulagi
nýs embættis og rekstri ársins. Ég
á hins vegar ekki von á öðru en það
viðbótarfjármagn sem úthlutað var
í fyrra skili sér að fullu til nýrra
embætta en þingmannanefndin
mætti að ósekju bæta í, ekki síst
þegar horft er til þeirra breytinga
sem eru að verða hér á Vestur-
landi. Lið mitt er skipað öflugu,
framsýnu og vel menntuðu fólki
sem vill standa sig vel í sinni vinnu.
Það hef ég til að mynda reynt í
þeirri undirbúningsvinnu sem far-
ið hefur fram undanfarna mánuði
þar sem menn hafa sýnt nýju emb-
ætti einstakan áhuga og lagt fram
góð ráð og vandaða vinnu,“ segir
Úlfar. Eins og meðal annars hef-
ur komið fram í Skessuhorni varð
töluverð togstreita um það meðal
Akurnesinga og Borgfirðinga hvar
lögreglustjórinn ætti að vera stað-
settur á svæðinu. Samkvæmt fyrir-
komulagi nýs embættis hafa þrír
yfirlögregluþjónar sín afmörkuðu
verkefni og verða staðsettir á sömu
stöðum og áður, það er á Akranesi,
í Borgarnesi og Stykkishólmi.
Góð löggæsla skiptir
mestu máli
Allt er breytingum undirorpið,
segir Úlfar, en telur að það sem
mestu skipti verði að bjóða upp á
öfluga og góða löggæslu í umdæm-
inu. Hann segir að mikil áherslu
verði lögð á búnaðarmál lögreglu-
manna. „Ég tel afar mikilvægt að
lögreglumenn séu tveir saman í
bíl, það verði meginreglan. Því
miður er það þannig að því verður
ekki komið við á fámennari svæð-
um eins og til dæmis á vaktinni í
Búðardal, en það á að vera víkjandi
að mínu mati að menn séu einir
að störfum. Stóra breytingin hjá
okkur sem styrkir alla löggæslu á
svæðinu er sólarhringsvaktakerfið
í Borgarnesi og á Akranesi. Lög-
reglumaður á bakvakt sinnir bara
útköllum en engu eftirlitsstarfi.
Þannig má segja að bakvaktin snú-
ist bara um viðbragð, þ.e. þegar
ræsa þarf út lögregla.“
Alltaf á fjallvegum
fyrir vestan
Úlfar kemur til starfa í Borgarnes
og á Vesturland frá Ísafirði. Hann
var settur sýslumaður og lögreglu-
stjóri á Vestfjörðum frá 1. júlí 2010
og gegndi því starfi samhliða starfi
sýslumanns Barðstrendinga á Pat-
reksfirði sem hann var skipaður
í 15. júlí 2008. Úlfar var reyndar
nokkru áður fulltrúi sýslumanns í
Mýra- og Borgarfjarðarsýslu í smá-
tíma, frá júlí 1990 til 1. september
1991, þannig að hann er ekki alveg
ókunnugur á Vesturlandi. Hann
segist hafa kunnað vel við sig fyr-
ir vestan, en mestu viðbrigðin að
koma í Borgarnes séu samgöngu-
málin. „Fyrir vestan fannst mér ég
alltaf vera á fjallvegum og yfir vet-
urinn eru þetta stórhættulegir veg-
ir. Það eru kannski bara hjólför á
mjóum vegi í mikilli hæð og ef þú
ferð upp úr förunum ertu kominn
fram af brúninni. Sérstaklega eru
samgöngurnar erfiðar frá Patreks-
firði og suðurfjörðunum. Á leið-
inni frá Patreksfirði til Reykjavík-
ur þarf til dæmis að fara yfir Kleifa-
heiði; Klettsháls, Ódrjúgsháls og
Hjallaháls. Vestfirðirnir hafa setið
eftir í samgöngum og sumir segja
að þeir hafi ekki haft nógu öfluga
þingmenn um tíðina, þá hafi eink-
um vantað á suðurfirðina. Þetta er
samt að potast og nú nýlega er búið
að þvera bæði Kjálkafjörð og Mjóa-
fjörð á sunnanverðum Vestfjörðum.
En það var gaman að kynnast þessu
svæði og því góða fólki sem þar býr.
Nú nýt ég þeirrar reynslu.“
Afslappaðra á
landsbyggðinni
Úlfar ólst upp í Norðurmýrinni
í Reykjavík og er því miðbæjar-
barn. Leiksvæðin voru Valssvæð-
ið á Hlíðarenda, þar sem hann var
mikið í fótbolta fram á unglings-
ár, Öskjuhlíðin og róluvöllurinn
við Austurbæjarbíó. „Við hjóluð-
um í Nauthólsvíkina og um allt,
þetta var mjög frjálslegt og gott
að alast upp á þessu svæði. Rauð-
arárstíginn gengu rónar þess tíma
sem við strákarnir óttuðumst ekki,
sumir bráðsnjallir og aðrir kúnst-
ugir. Allir voru þeir á leið eftir
brennsluspritti í apótekið á horni
Rauðarárstígs og Háteigsvegar.“
Úlfar starfaði sem lögreglu-
maður á háskólaárunum og var
um tíma „garðprófastur“ á Nýja
Garði, stúdentagarði Háskóla Ís-
lands. „Ég hef starfið mikið úti á
landsbyggðinni, enda uppgötv-
aði ég snemma að veröldin breyt-
ist ekki mikið þótt komið sé upp
fyrir Ártúnsbrekkuna, nema að
hún verður svolítið afslappaðri,“
segir Úlfar. Hann var auk rúma
ársins í Borgarnesi og undanfar-
inna sex ára fyrir vestan, fulltrúi
hjá sýslumanninum í Gullbringu-
sýslu og bæjarfógetanum í Kefla-
vík, Njarðvík og Grindavík frá maí
1988 til vors 1989. Sex sinnum
hefur hann verið settur sýslumað-
ur á Höfn í Hornafirði, síðast árið
2004. Hann var dómarafulltrúi hjá
yfirsakadómaranum í Reykjavík frá
1. september 1991 til 30. júní 1992
og síðan starfsmaður sýslumanns-
ins í Reykjavík frá þeim tíma og til
15. júlí 2008. Þar var hann deildar-
stjóri þriggja deilda en skrifstofu-
stjóri og staðgengill sýslumanns
frá árinu 2005. Úlfar segist oft
hafa átt góðar stundir í sumarbú-
stað foreldra sinna í Syðri-Hraun-
dal á Mýrum, en lítill tími hafi gef-
ist til þess síðustu árin. Nú hugsi
hann sér gott til glóðarinnar með
það, en Úlfar er kvæntur Halldóru
R Björnsdóttur og saman eiga þau
þrjú börn.
þá
Úlfar Lúðvíksson nýr lögreglustjóri á Vesturlandi.
Framtíð háskóla í Borgarbyggð
Ráðstefna föstudaginn 30. janúar frá kl. 9:30 – 14:30 í Hjálmakletti
Framfarafélag
Borgfirðinga
Dagskrá
Skráning með tölvupósti á borgarbyggd@borgarbyggd.is
Verð fyrir léttan hádegismat 750 kr.
Ráðstefnan er öllum opin, íbúar eru hvattir til að mæta.
09:40-10:00 Hlutverk háskóla í þróun
svæða
Kolfinna Jóhannesdóttir sveitarstjóri
Borgarbyggðar
10:00-10:20 Háskóli og samfélag Vilhjálmur Egilsson rektor Háskólans á
Bifröst
10:20-10:40 Háskólar í dreifbýli.
Hlutverk og ögranir
Björn Þorsteinsson rektor
Landbúnaðarháskóla Íslands
10:40-11:00 Kaffihlé
11:00-11:20 Sérstaða Snorrastofu-
rannsóknir í sínu rétta
umhverfi
Bergur Þorgeirsson forstöðumaður
Snorrastofu
11:20-11:40 Hugmyndir um
sameiginleg verkefni fyrir
háskóla
Óskar Guðmundsson formaður
Framfarafélags Borgfirðinga
11:40-12:20 Svæðisþróun og starfsemi
haskóla
Anna Karlsdóttir
12:20-13:00 Léttur hádegisverður
13:00-13:30 Framtíð háskóla í
Borgarbyggð
Illugi Gunnarsson mennta- og
menningarmálaráðherra
13:30-14:30 Panel umræður Anna Elísabet Ólafsdóttir
aðstoðarrektor Háskólans á Bifröst
Ráðstefnuslit
Guðveig Eyglóardóttir formaður
byggðaráðs Borgarbyggðar
Setning09:30-09:40