Skessuhorn - 21.01.2015, Blaðsíða 21
21MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 2015
Dag ur í lífi...
Nafn: Þórdís Kolbrún Reykfjörð
Gylfadóttir.
Fjölskylduhagir/búseta: Í sambúð
með Hjalta S. Mogensen, búsett í
Garðabæ með okkar manni Marvin
Gylfa, tveggja og hálfs árs.
Starfsheiti/fyrirtæki: Aðstoðarmað-
ur innanríkisráðherra.
Áhugamál: Ferðast til annarra landa,
stjórnmál, sund, matarboð og rauð-
vín, fjölskyldan mín og vinir, meist-
arastykkið Marvin Gylfi og lífið
sjálft.
Dagurinn: 20. janúar 2015.
Klukkan hvað vaknaðirðu og hvað
var það fyrsta sem þú gerðir? Ég
vakna alla morgna við það að einka-
sonurinn kallar hlýlega og síðan ekki
svo hlýlega á móður sína. Ég vona
alltaf í smástund að hann dotti aðeins
en það gerist sjaldnast. Hann toll-
ir í stutta stund undir hlýrri sæng hjá
okkur þangað til hann spyr vongóð-
ur: „Mamma, pabbi, eijum við að fara
fram að borða harragraut með kan-
ilsykri og mjólki og horfa kannski á
sjónpapið, eijum við að gera það?”
Yfirleitt fer pabbinn með hann fram
og ég fæ að sofa í hálftíma í viðbót.
Það er rosa góð verkaskipting að
mínu mati.
Hvað borðaðirðu í morgunmat? Ég
ólst upp við Cheerios en eftir tilkomu
Marvins Gylfa borðum við fjölskyld-
an hafragraut á hverjum morgni.
Hvenær fórstu til vinnu og hvern-
ig? Alla jafna keyri ég drengnum á
leikskólann og Hjalti tekur strætó.
Í morgun byrjuðum við daginn á að
lyfta lóðum svo ég var mætt í vinnu
kl. 9:30. Til að auka orku og hress-
leika er mikilvægt að púla, þótt það
sé einungis á þriðjudögum og laugar-
dögum.
Fyrstu verk í vinnunni: Fyrsta verk-
ið í vinnunni var fundur með skrif-
stofustjóra vegna mála í ráðuneytinu
sem þarfnast úrvinnslu. Allra fyrsta
verkið var samt að fá mér fyrsta kaffi-
bolla dagsins.
Hvað varstu að gera klukkan 10?
Fara yfir póstinn frá Fjölmiðlavakt-
inni sem er sendur á hverjum morgni
kl. 10 þar sem ég fylgist með umfjöll-
un fréttamiðla um ráðherrann minn
og tengd mál. Það er alltaf ákveðin
stemning. Fór svo yfir framsöguræð-
ur ráðherra fyrir fimmtudaginn en
þá mun hún mæla fyrir fjórum frum-
vörpum í þinginu.
Hvað gerðirðu í hádeginu? Borð-
aði ristað brauð og ávexti með starfs-
fólki ráðuneytisins, drakk kaffiboll-
ann með ráðherranum.
Hvað varstu að gera klukkan 14:
Við Ólöf fórum á Alþingi þegar þing-
fundur hófst kl. 13:30. Mér þyk-
ir voða vænt um þingið og líður vel
þar. Umræðuhefðin mætti og ætti að
vera betri en samskiptin út fyrir þing-
salinn eru allt önnur. Síðastliðna eina
og hálfa árið starfaði ég sem fram-
kvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðis-
flokksins sem var meira en skemmti-
leg, lærdómsrík og frábær vinna. Ég
hlakka til að fara í þingið og heilsa
upp á þingflokkinn minn, aðra hressa
þingmenn og starfsfólkið. Í eldhúsinu
eru bakaðar kökur nánast daglega.
Ég ætla að fá mér nýbakaða köku eða
hjónabandssælu.
Hvenær hætt og það síðasta sem
þú gerðir í vinnunni? Fundaði með
ráðherra og þingmanni um ýmis mál.
Fór heim um kl. 18:30.
Hvað gerðirðu eftir vinnu? Knús-
aði Marvin Gylfa í góða stund. Afi
Gylfi sótti hann á leikskólann. Þá
fara þeir saman í bakaríið og kaupa
sér snúð. Við æfðum okkur á helstu
störfunum, þ.e. starfi fjölskyldumeð-
lima og Dóru, Klossa og Nappa. Ég
ryksugaði og hann aðstoðar almennt
með því að skúra (í þykjustunni en
fullur ábyrgðar þó).
Hvað var í kvöldmat og hver eld-
aði? Í kvöldmat var steiktur fiskur og
í þetta sinn eldaði ég en það er allur
gangur á því hvort okkar eldar.
Hvernig var kvöldið? Kvöldin eru
almennt notaleg og róleg. Eftir að
hafa dansað á eldhúsgólfinu við lag-
ið „Eyjameyjapeyja“ og gert æfingar
með Marvin Gylfa eins og íþróttaálf-
urinn gerir, lásum við tvær bækur fyr-
ir svefninn. Hjalti er í vinnutörn svo
ég horfði á The Good Wife og vafr-
aði á netinu eftir fallegu sófaborði.
Leitin bar ekki árangur.
Hvenær fórstu að sofa? Ég er A
manneskja og þarf mína átta tíma. Ég
fór að sofa kl. 23:30.
Hvað var það síðasta sem þú gerð-
ir áður en þú fórst að hátta? Las að-
eins í riti eftir Pál Skúlason sem heit-
ir Ríki og rökvísi stjórnmála sem ég
fékk í jólagjöf. Af því ég er A mann-
eskja sem þykir gott að sofa eru bæk-
urnar á náttborðinu orðnar allmargar.
Ég er til dæmis alveg að verða búin
með Lean In eftir Sheryl Sandberg
(hæ konur), Ár drekans eftir Össur
Skarphéðinsson (hæ Össur - endilega
skrifaðu meira) og Hollráð Hugos
(hæ uppbyggjandi barnauppeldi).
Hvað stendur uppúr eftir daginn?
Marvin Gylfi sagði: „Sú ert besti vin-
ur minn”. Það er rosalega gott fyrir
sálina að elska skilyrðislaust. Annars
var dagurinn fínn. Ég er með harð-
sperrur eftir rækt, upplýstari í dag en
í gær um ýmis mál og spennt fyrir
morgundeginum sem fer meðal ann-
ars í fund um útlendingamál, minn-
ingarfund um Ólaf Thors og í sauma-
klúbb með vinkonum úr lagadeild.
Eitthvað að lokum? Áfram Skaga-
menn. Berjast!
Aðstoðarmanns innanríkisráðherra
SKATTAMÁL
Fróðleiksfundur
í Borgarnesi
Fim. 29. jan. | kl. 16:00 | Bjarnarbraut 8
Á hverju ári eru fjöldi skattalagabreytinga
sem snerta fólk og fyrirtæki. Á
þessum fróðleiksfundi verða helstu
breytingarnar kynntar auk þess sem
Skattabæklingi KPMG verður dreift.
Skráning er án endurgjalds
og fer fram á kpmg.is
SKATTA- OG LÖGFRÆÐISVIÐ
Skattabæklingur
2015
Upplýsingar um skattamál
einstaklinga og rekstraraðila
2014 / 2015
kpmg.is
Skattabæklingur 2015
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Fjölskyldu „selfie“ við Svartafoss.