Skessuhorn - 21.01.2015, Síða 25
25MIÐVIKUDAGUR 21. JANÚAR 2015
Snorrastofa í Reykholti
Fyrirlestrar í héraði
Snorrastofa, menningar- og miðaldasetur
í Reykholti
Sími 433 8000
www.snorrastofa.is
snorrastofa@snorrastofa.is
Þriðjudagurinn 27. janúar 2015
kl. 20:30
í Reykholtskirkju
Bjarni Guðráðsson varð áttræður
á dögunum og Reykholtskirkja
og Snorrastofa bjóða gestum á
Bjarnakvöldi í kaffi af því tilefni.
Bjarni rekur söguna og tekur
hljómdæmi, en hann var lengi
organisti í Reykholti, starfaði
að söngmálum héraðs ins
og vann að uppbyggingu
Reykholtskirkju – Snorrastofu
Af tónlist og hljóðfærum
í Reykholtskirkju
Bjarni Guðráðsson í Nesi flytur
Auglýsing um breytingu deiliskipulags
Smiðjuvalla á Akranesi
Bæjarstjórn Akraness auglýsir hér með tillögu að breytingu á
deiliskipulagi Smiðjuvalla samkvæmt 1. mgr. 43. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin nær til lóðanna Kalmansvalla 6 og Smiðjuvalla 3.
Um er að ræða að skipta lóð Smiðjuvalla 3 og stækka lóð nr. 6
við Kalmansvelli, nýtingarhlutfall lóðanna er óbreytt eða 0,5.
Tillagan verður til kynningar í þjónustuveri kaupstaðarins að
Stillholti 16-18, Akranesi frá og með miðvikudeginum 21. janúar
til og með föstudeginum 27. febrúar 2015. Tillagan er einnig til
kynningar á heimasíðu Akraneskaupstaðar, www.akranes.is
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með
gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna til og með
föstudeginum 27. febrúar 2015. Skila skal athugasemdum í
þjónustuver Akraneskaupstaðar að Stillholti 16-18,
eða á netfangið akranes@akranes.is
Byggingar- og skipulagsfulltrúi.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Til skógarbænda á Vesturlandi
Boðað er til ársfundar fimmtudaginn 29. janúar n.k. kl. 17:30 - 19:00
á Sögulofti Landnámsseturs Íslands í Borgarnesi.
Dagskrá:
Starfsáætlun Vesturlandsskóga 2015
Árangursmat í gróðursetningum
Úttektir 2014
Eftir fundinn gefst fólki kostur á að snæða saman kvöldverð á
Landnámssetri, matur verður borinn á borð um kl 19:15. Í boði verður
fiskur dagsins og kaffi/te og konfekt á eftir. Maturinn kostar 3.500,-
Þeir sem hafa áhuga á að vera með í kvöldverðinum, verða að láta
starfsfólk Vesturlandsskóga vita á netfangið vestskogar@vestskogar.is
eða í síma 433-7054 eða 433-7052 og gefa þá upp fjölda þátttakenda.
Frestur til að skrá sig í matinn er til 27. janúar. Ef fólk hefur áhuga á að
troða upp með gamanmál eða söng yfir kvöldverðinum er orðið laust.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Hlökkum til að sjá ykkur.
Starfsfólk Vesturlandsskóga
Úrskurðarnefndin hafnaði ógildingu
leyfa vegna Bugavirkjunar
Úrskurðarnefnd umhverfis-
og auðlindamála kom saman
12. desember sl. og kvað þá
upp úrskurð vegna kæra sem
nefndinni barst á vormánuð-
um 2013 vegna Bugavirkjun-
ar í Leirársveit. Úrskurðar-
orð nefndarinnar í málinu eru
á þá lund að kröfu um ógild-
ingu ákvörðunar Orkustofn-
unar frá 19. apríl 2013, um að
veita leyfi til vatnsmiðlunar
vegna fyrirhugaðrar virkjun-
ar Bugalækjar í landi Eystri-
Leirárgarða í Hvalfjarðar-
sveit, er hafnað. Hafnað er
einnig kröfu um ógildingu
ákvörðunar sveitarstjórn-
ar Hvalfjarðarsveitar frá 14.
maí 2013 um að veita fram-
kvæmdaleyfi fyrir stíflugerð,
sem og ákvörðunar bygginga-
fulltrúa sveitarfélagsins frá 3.
maí 2013 um að veita bygg-
ingarleyfi fyrir stöðvarhúsi
vegna virkjunar Bugalækjar.
Umræddar kærur komu frá
lögfræðingi Leirárskóga ehf.,
nágranna bændanna á Leir-
árgörðum. Af þessum ástæð-
um stöðvuðust framkvæmir í
nokkra mánuði. Bugavirkjun
var hins vegar formlega tek-
in í notkun síðasta haust. Frá
henni fæst um 400 kílóvött til
notkunar á Eystri- og Vestri-
Leirárgörðum, en bændur
á bæjunum stóðu straum að
virkjunarframkvæmdunum.
þáStífla og miðlunarlón Bugavirkjunar í Leirársveit.
Ábúendaskipti í Þurranesi
Hjónin Ingunn Jóna Jóns-
dóttir og Ólafur Gunnarsson
hafa um margra ára skeið ver-
ið ábúendur í Þurranesi II í
Dalabyggð. Þar hafa þau ver-
ið með bú og rekið ferðaþjón-
ustuna í Þurranesi um árabil.
Nú eru komnir nýir ábúendur
að Þurranesi og hefur sonur
þeirra hjóna, Jón Ingi Ólafs-
son búfræðingur, tekið við
keflinu. Jón Ingi segist lengi
hafa haft áhuga á bústörfun-
um. „En ég gerði aldrei neitt í
því þannig lagað. Ég vann sem
rafvirki en vinnan breyttist
við hrunið og hugurinn fór að
leita heim í sveitina,“ segir Jón
Ingi í samtali við Skessuhorn.
Hann dreif sig í framhaldinu í
búfræðinám á Hvanneyri, sem
hann lauk síðasta vor.
Tekur við góðu búi
Foreldrar Jóns Inga munu reka
ferðaþjónustuna áfram í einhvern
tíma. „Þetta kemur í ljós með tíð og
tíma. Þau verða áfram með ferða-
þjónustuna í sumar. Framtíðarsýn-
in er svo að ég taki við ferðaþjón-
ustunni líka, ásamt unnustu minni,
Guðrúnu Elínu Herbertsdóttur,“
útskýrir Jón Ingi. Í ferðaþjónust-
unni í Þurranesi er boðið upp á
gistingu í fjórum húsum; Þurra-
nesi 1 og þremur sumarhúsum. Á
Þurranesi II eru rúmlega fjög-
ur hundruð kindur á húsi í vet-
ur og tekur Jón Ingi því við
meðalstóru búi. Hann segist
taka við vel reknu búi. „Ég tek
við gríðarlega fínu búi. Hér er
margt gott en ýmis tækifæri
fyrir mig til að bæta á öðrum
stöðum.“ Hann segir líklegt að
bóndinn hafi blundað í hon-
um lengi. „En það náði aldrei
lengra en það að mann langaði
að sjá starfi mömmu og pabba
haldið áfram. Nú hef ég tæki-
færi til þess og get gefið í ef
eitthvað er,“ bætir hann við.
Jón Ingi er alinn upp að Þurra-
nesi og segist nú vera kominn
heim. „Ég er í þeim skrýtnu
umskiptum að henda foreldrum
mínum út úr húsinu sem þau ólu
mig upp í,“ segir hann og hlær.
„Þau ætla eitthvað aðeins að po-
tast áfram í ferðaþjónustunni og
svo að setjast í helgan stein. Þau eru
að skila gríðarlegu ævistarfi, bæði
uppbyggingunni á búinu og ferða-
þjónustunni,“ segir Jón Ingi Ólafs-
son að endingu.
grþ
Freisting vikunnar
Á bloggsíðu Emilíu Ottesen, emili-
aottesen.blogspot.com, markaðs-
stjóra Skessuhorns, má finna safn
ýmissa góðra uppskrifta. Emilía
er listakokkur og birtir uppskrift-
ir sínar af ýmsum mat, hollum og
góðum í bland við minna holl-
ar kræsingar sem gott er að gæða
sér á. Freisting vikunnar að þessu
sinni kemur því frá Emilíu og er af
ítölskum uppruna en þó með smá
tvisti. Uppskriftin kemur upp-
runalega frá móður Emilíu, sem
einnig er eðalkokkur og að sögn
Emilíu gerir hún heimsins besta
Lasagne. Sósan er gerð alveg frá
grunni og verður fyrir vikið fersk
og góð. Rétturinn fyllir þriggja
lítra eldfast mót og Emilía segist
nokkuð viss um að hann dugi fyrir
sex manns.
Heimsins besta lasagne:
1 hvítlauksrif
1 rauðlaukur
1 laukur
2 paprikur
4 tómatar
1/2 chilli pipar
1 sæt kartafla
gulrætur eftir smekk (mega
vera niðursoðnar)
1 krukka fetaostur
500 gr. nautahakk
400 gr. kotasæla
2 dósir tómat púrra
1 dós niðursoðnir tómatar (skornir)
rifinn ostur
parmesan ostur
Lasagne plötur
Skerið niður lauk, chilli, papriku
og tómatana. Byrjið á að steikja
chilli piparinn og hvítlaukinn upp
úr olíunni af fetaostinum. Gott
er að sjóða gulræturnar á með-
an grænmetið er skorið og leyfa
þeim að liggja í vatninu þar til þær
eru notaðar. Bætið við hvítlauks/
chilli blönduna; lauknum, rauð-
lauknum, paprikunni, tómötum,
tómatpúrru, niðursoðnum tóm-
ötum og fetaosti. Leyfið þessu að
malla í 25 mínútur. Steikið hakkið
á sér pönnu og kryddið það. Bætið
hakkinu og gulrótunum við sósuna
og látið malla í auka fimm mínút-
ur. Skerið sætu kartöfluna í mjög
þunnar sneiðar (Það gæti verið
sniðugt að sjóða kartöflurnar í smá
stund áður en þær eru notaðar svo
þær verði alveg örugglega mjúk-
ar). Svo má byrja að raða. Röð-
in er eftirfarandi: Kjötsósa, sætar
kartöflur, parmesan ostur og rifinn
ostur, lasagne plötur og að lokum
kotasæla. Svo er þessu raðað aft-
ur og koll af kolli. Hitað í ofni við
200° hita á blæstri í um 40 mín-
útur. Tekið út, settur rifinn ostur
ofan á og aftur inn í ofn í nokkr-
ar mínútur.
Verði ykkur að góðu!
Lasagne frá grunni
Jón Ingi ásamt Guðrúnu Elínu. Fyrir framan þau
stendur Ólafur Vignir sonur Jóns. Myndin er tekin
við útskrift Jóns Inga úr Landbúnaðarháskólanum
á Hvanneyri síðastliðið sumar. Ljósm. Ingunn Jóna
Jónsdóttir.
www.skessuhorn.is
Fylgist þú með? S: 433 5500