Skessuhorn - 13.05.2015, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 2015
Stjórnin sam-
þykkti kjara-
samning
FAXAFLÓI: Faxaflóahafnir
gengu þann 5. maí frá nýjum
kjarasamningi við Verkalýðs-
félag Akraness vegna starfs-
manna í gæslustörfum á Grund-
artanga. Samninginn má skoða
á vef Faxaflóahafna undir liðn-
um „fundargerðir“. Í bókun
með samningnum skuldbind-
ur Verkalýðsfélag Akraness sig
til að komi til vinnustöðvun-
ar starfsmanna Faxaflóahafna í
gæslustörfum á Grundartanga
þá skuli eftir því sem frekast er
unnt forðast að röskun verði á
starfsemi Elkem og Norður-
áls á svæðinu. Verkalýðsfélag-
ið skuldbindur sig til að veita
nauðsynlegar undanþágur til
að svo megi verða. Undanþág-
urnar eiga að gilda í minnst
þrjár vikur eftir að vinnustöðv-
un hefst.
–mþh
Mikill kostnaður
vegna kirkjuvið-
gerðar
STYKKISH: Stykkishólms-
söfnuður hefur samþykkt að
taka tilboði um múrviðgerð-
ir á kirkjunni þar í bæ. Úttekt
hafði áður leitt í ljós að gera
þarf viðamiklar viðgerðir á múr
og þaki kirkjunnar. Kostnaðar-
áætlun hljóðaði upp á 33 millj-
ónir króna. Stykkishólmspóst-
urinn greinir frá því að söfn-
uðurinn hafi nú tekið tilboði
frá K16 ehf. upp á 29.780.000
krónur. Sjö milljóna króna
styrkur fékkst úr Jöfnunarsjóði
kirkjusókna. Næstu tvö árin
verður einnig leitað til sjóðs-
ins um fjárstyrki. Arionbanki
mun fjármagna framkvæmdir.
Opnaður verður bankareikn-
ingur þar sem fólk og fyrirtæki
geta styrkt kirkjuna til þessara
aðgerða. Hefja á framkvæmdir
nú í maí og reiknað er með að
þeim ljúki í október.
–mþh
Hrognkelsin gefa
sig misjafnlega
LANDIÐ: Grásleppuveiðar
hófust 20. mars og heimilt er að
veiða í 32 daga sem er óbreytt
frá því í fyrra. Búið er að út-
hluta um 250 leyfum til veiða
sem er um 30 leyfum fleira en
á allri vertíðinni í fyrra. Vertíð-
in hófst með afar góðri veiði á
Norður- og Norðausturlandi.
Á Norðvesturlandi og Strönd-
um var hins vegar minni veiði
en á sama tíma í fyrra. Veiði
á Vestfjörðum hófst rólega en
hefur glæðst síðustu daga. Á
utanverðum Breiðafirði og í
Faxaflóa er sömu sögu að segja.
Veiðar á innanverðum Breiða-
firði mega ekki hefjast fyrr
en 20. maí. Heildaraflinn er
að nálgast 4.000 tonn, þann-
ig að enn er óveiddur rúm-
ur þriðjungur þess sem heim-
ilt er að veiða. Fram kemur á
vef Landssambands smábáta-
eigenda að verð fyrir grásleppu
og hrogn á vertíðinni hafi ekki
enn náð væntingum grásleppu-
karla. Meðalverð á heilli grá-
sleppu á mörkuðum er 206 kr.
fyrir kílóið. Búkurinn selst á 80
krónur kílóið. Heildaraflaverð-
mæti grásleppu til þessa er því
rúmar 800 milljónir.
–mþh
Enn ein úttektin á
kútternum
AKRANES: Danski sérfræðing-
urinn Morten Møller kom í vik-
unni til Akraness. Erindi hans
er að gera úttekt á ástandi kútt-
ers Sigurfara sem stendur uppi á
Safnasvæðinu á Akranesi. Møller
vinnur við forvörslu og viðgerð-
ir á tréskipum hjá þjóðminja-
safni Dana (Nationalmuseet) í
Kaupmannahöfn. Þjóðminjasafn
Íslands hefur fengið hann til að
kanna ástand kúttersins. Morten
Møller hefur einnig starfað með
Norðursiglingu á Húsavík og
Síldarminjasafninu á Siglufirði.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem út-
tekt er gerð á ástandi kúttersins
á Akranesi en lítið hefur þokað í
málefnum skipsins til þessa um-
fram það. -mþh
Reglugerð um
rækjuveiðar
BREIÐAFJ: Stjórnvöld hafa
gefið út nýja reglugerð um rækju-
veiðar í Breiðafirði. Á tímabilinu
frá og með 8. maí til og með 31.
júlí ár hvert er skipum sem eru
105 brúttórúmlestir að stærð eða
minni og hafa aflamark til veiða
á rækjustofninum á miðum við
Snæfellsnes leyfilegt að stunda
rækjuveiðar á Breiðafirði. Þetta
gildir sunnan 65°10´N og utan
línu sem dregin er réttvísandi
norður frá Krossnesvita. Afli
sem fenginn er við þessar veið-
ar reiknast til aflamarks í rækju á
miðunum við Snæfellsnes. –mþh
Dagskrá um
Jónas og Guðrúnu
BORGARFJ: Fimmtudaginn
28. maí næstkomandi klukkan 21
verður farið í tali og tónum um
æviferil hjónanna á Kópareykj-
um II, þeirra Guðrúnar Jóns-
dóttur og Jónasar Árnasonar.
Þau hjónin bjuggu lengi í Reyk-
holtsdalnum. Dagskráin verður
á vegum Snorrastofu í samstarfi
við Tónlistarfélag Borgarfarðar
og Ungmennafélag Reykdæla.
–mþh
Fulltrúar íbúa í Borgarfirði afhentu
síðastliðinn fimmtudag byggðarráði
Borgarbyggðar undirskriftalista þar
sem skorað er á stjórnendur sveitar-
félagsins að falla frá fyrirhuguðum
breytingum á rekstri Grunnskóla
Borgarfjarðar (GBF). Listinn sam-
anstóð af 437 skriflegum undirskrift-
um auk 111 rafrænna. Þóra Geir-
laug Bjartmarsdóttir, fulltrúi íbúa á
svæðinu, afhenti byggðarráði listann
og hélt stutta tölu við tilefnið. Þar
sagði hún meðal annars að starfs-
stöðvar GBF væru ekki bara vinnu-
staðir fjölda fólks, eða menntastofn-
anir yngstu íbúanna, heldur einnig
límið í samfélaginu. Hún sagði gríð-
arlega samstöðu meðal íbúa sveit-
arfélagsins, fólk vildi halda í starfs-
stöðvarnar í núverandi mynd vegna
þess hve mikilvægar það telur þær
fyrir samfélagið.
Í kjölfarið las Þóra Geirlaug upp
áskorunina sem fylgdi undirskrifa-
listunum. Hún hljóðar svo:
„Við undirrituð, íbúar í Borgar-
byggð, stöndum heilshugar vörð um
Grunnskóla Borgarfjarðar (GBF).
Blómlegt samfélag líkt og Borgar-
byggð þarf að hafa sterkar grunn-
stoðir. Þær eru fyrir hendi og þurfa
að vera það áfram ef að áframhald-
andi uppbygging á að vera í sveit-
arfélaginu. Þær öflugu starfsstöðvar
Grunnskóla Borgarfjarðar á Hvann-
eyri, Kleppjárnsreykjum og á Varma-
landi eru styrkur sveitarfélagsins en
ekki veikleiki og við skorum á sveit-
arstjórn að halda starfsemi áfram á
öllum stöðvum í núverandi mynd.“
Að endingu lokinni bað Þóra
Geirlaug þá sem valdið hafa að horfa
til framtíðar þegar komi að hagræð-
ingarframkvæmdum. „Skólarnir
okkar eiga að vera síðastir í röðinni
þegar kemur að niðurskurði, ekki
fyrstir,“ sagði hún.
Það var Guðveig Eyglóardóttir,
formaður byggðarráðs og fræðslu-
nefndar, sem tók við undirskrifta-
listunum.
kgk
Byggðarráði afhentur undirskriftalisti vegna GBF
Í lok byggðarráðsfundar var Guðveigu
afhent kort af Hvanneyri sem sýnir
fjölda barna á svæðinu og starfsmanna
á leikskóla og í grunnskólanum. Hér er
Sólrún Halla Bjarnadóttir að afhenda
kortið.
Ljósm. Birgitta Sigþórsdóttir.
Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir, fulltrúi íbúa, afhendir Guðveigu Eyglóardóttur, for-
manni byggðarráðs, undirskriftalistann. Ljósm. kgk.
Svanur Tómasson, sem gegnt hef-
ur starfi slökkviliðsstjóra í Snæ-
fellsbæ undanfarin tíu ár, hefur
sagt upp stöðu sinni. Við starfinu
tímabundið tekur Sigurður Sveinn
Guðmundsson. Svanur vildi ekkert
láta hafa eftir sér um ástæðu upp-
sagnarinnar, að svo stöddu. Eins
og greint hefur verið frá í síðustu
tveimur tölublöðum Skessuhorns
hafa verið uppi deilur milli slökkvi-
liðsmanna og bæjaryfirvalda sem
snúa að tryggingamálum slökkvi-
liðismanna í Snæfellbæ og hafa allir
slökkviliðsmenn sagt upp störfum.
Munu þær uppsagnir taka gildi í
endaðan júlí hafi ekki fundist lausn
og um samist. Deilunni hefur ver-
ið vísað til Landssambands slökkvi-
liðsmanna annars vegar og Samtaka
sveitarfélaga hins vegar.
af
Slökkviliðsstjórinn í Snæfellsbæ lætur af störfum
Mynd frá því slökkviliðið tók við nýjum slökkvibíl 2008. Svanur Tómasson og
Kristinn Jónasson bæjarstjóri. Ljósm. úr safni. af.