Skessuhorn


Skessuhorn - 13.05.2015, Side 12

Skessuhorn - 13.05.2015, Side 12
12 MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 2015 Línubáturinn Sverrir SH er kom- inn til heimahafnar í Ólafsvík eft- ir miklar breytingar sem gerðar voru í Bátahöllinni á Hellissandi. Eins og áður hefur komið fram í Skessuhorni var báturinn nán- ast allur tekinn í gegn og var ein- ungis kjölurinn og brú skilin eftir áður en endurbygging hófst. Ný John Deere-vél var sett í bátinn auk þess sem hann var lengdur og breikkaður. Nú er hann tæp- lega 12 metra langur og 14,9 tonn í stað 9 brúttótonna áður. Meðal nýs búnaðar er hliðarskrúfa að aft- an. Að sögn Örvars Marteinsson- ar skipstjóra urðu talsverðar taf- ir á verkinu, en á móti kemur að vel var vandað til verka hjá Báta- höllinni og vinnubrögð til fyrir- myndar. Um rafmagn sá Mareind í Grundarfirði. Sverrir SH fór sinn fyrsta túr á sunnudaginn með 28 bala og sagði Örvar að báturinn hafi reynst mjög vel þrátt fyrir leiðindaveður. Ekkert óvænt kom hins vegar upp á í þessari fyrstu veiðiferð. „Þetta er allt annað líf. Báturinn er góð- ur í sjó og mikið dekkpláss. Auk þess komum við fleiri körum í lest en áður og fer það að sjálfsögðu betur með allan afla,“ segir Örv- ar og bætir við að nánast sé hægt að tala um nýjan bát. „Nú megum við hafa okkur alla við að ná kvót- anum, áður en línuaflinn fer að detta niður, en það gerist að jafn- aði um 20. maí. Það er allavega mín reynsla,“ segir Örvar. af Reynslutúr á nánast nýjum Sverri SH Sverrir SH er sem nýr bátur eftir breytingarnar. Þannig leit fyrrum Sverrir út. Örvar Marteinsson og Sigurður Scheving lönduðu átta tonnum á sunnudaginn, sem fengust á 28 bala. Fyrirtækið Þorgeir & Ellert (Þ&E) á Akranesi hefur sent stjórn Faxa- flóahafna bréf þar sem kynntar eru hugmyndir um stórfellda upp- byggingu fyrir aðstöðu til skipavið- gerða við Lambhúsasund á Akra- nesi. Þar hefur Þ&E haft starfsemi sína frá því snemma á síðustu öld. Lagt er til að grjótgarðar og skipa- viðlegukantar verði búnir til eða stækkaðir og núverandi skipalyfta stækkuð verulega. Þessar fram- kvæmdir myndu kallast á við fyrir- hugaða uppfyllingu Faxaflóahafna við Steinsvör í grennd við núver- andi höfn á Akranesi. Fullyrt er að þessar framkvæmdir myndu aðeins kosta um þriðjung þess sem áætl- að er að fari í að byggja upp að- stöðu fyrir skipaviðgerðir og frek- ari málmiðnað á Grundartanga. Stórhuga framkvæmdir Það er Ingólfur Árnason fram- kvæmdastjóri Þ&E sem skrifar undir bréf fyrirtækisins til stjórnar Faxaflóahafna. Afrit af því var einnig sent bæjarstjóra og bæjar- stjórn Akraness. Bréfið var tekið fyrir á stjórnarfundi Faxaflóahafna síðastliðinn föstudag. Þar er bent á að frá upphafi hafi það verið yf- irlýst markmið Faxaflóahafna að Akranes yrði eflt sem fiskiskipa- höfn. Þar hefur þó lítið orðið úr efndum því landanir fiskiskipa á Akranesi hafi dregist saman á und- anförnum árum. Nú sé hins veg- ar rætt um að stækka verulega at- hafnasvæði við Akraneshöfn með landfyllingu frá Steinsvör í átt að stóra hafnargarðinum þar. Sú að- staða sé meðal annars gerð með fyrirsjáanlega stækkun fiskiskipa- flotans í huga. Nú fer fram mikil endurnýjun bæði á uppsjávarfiski- skipum og togurum landsmanna. Í framhaldi af þessu megi búast við aukinni umferð fiskiskipa í Akra- neshöfn sem komi þar þá ekki síst til löndunar og kaupa á þjónustu. Samhliða þessu hafi Faxaflóahafnir síðan viðrað hugmyndir um minnst 10 milljarða króna framkvæmdir á Grundartanga til að koma upp að- stöðu til skipaviðgerða og annarr- ar þjónustu tengdri málmiðnaði og útgerð. Mikill vöxtur við Lambhúsasund Í bréfi Ingólfs fyrir hönd Þ&E er bent á að við Lambhúsasund sé nú að verða til einn stærsti klasi Ís- lands þegar málmiðnaður sé ann- ars vegar. Vöxturinn hafi ver- ið mikill. Þ&E hafi ásamt systur- fyrirtækjunum Skaganum ehf. og Grenjum ehf. fjárfest í húsum og búnaði fyrir á annan milljarð króna til að mæta sífellt meiri umsvifum í málmiðnaði, ekki síst í þróun og smíði vinnslulína og annars bún- aðar fyrir fiskiskip. Eigi málmiðn- aðurinn á Akranesi að geta brugð- ist rétt við þróuninni sé brýnt að skapa aðstöðu svo nýta megi þau tækifæri sem verði í boði í fram- tíðinni. Til að svara þessu leggur Ingólfur fyrir hönd Þ&E og Skag- ans fram nýjar hugmyndir um ný upptökumannvirki og viðlegu- kanta fyrir skip í Lambhúsasundi. Auk þessa yrði gerður nýr sjóv- arnargarður og innsiglingin dýpk- uð inn sundið. Nýir viðlegukantar yrðu alls 425 metra langir. Í þessu felst meðal annars að núverandi viðlegubryggja yrði bæði lengd og breikkuð verulega frá því sem nú er. Skipalyftan yrði stækkuð þann- ig að hún réði við allt að 80 metra löng og 20 metra breið skip. Telur Lambhúsasund hagkvæmast Faxaflóhafnir eiga öll hafnarmann- virki og grjótgarða í Lambhúsa- sundi og myndu bera kostnað við endurbóta á þeim hluta sem Ing- ólfur áætlar í bréfinu að nemi um 2,5 milljörðum króna miðað við þær tillögur sem hann leggur fram. Þ&E á hins vegar skipalyftuna og myndi þannig fjárfesta í stækkun hennar. Áætlað er að það myndi kosta á annan milljarð króna. „Uppbygging þessi við Lamb- húsasund mun því í heild kosta um 3,5 milljarða króna eða um þriðj- ung af því sem áðurnefnd upp- bygging við Grundartanga er tal- in kosta. Auk lægri stofnkostnaðar verður rekstrarkostnaður mann- virkja og fyrirtækja einnig lægri í Lambhúsasundi,“ skrifar Ingólfur. Hann væntir þess að vel verði tek- ið í hugmyndir um uppbyggingu í Lambhúsasundi og óskar eftir við- ræðum hið fyrsta við stjórnendur Faxaflóahafna um þær. „Þetta eru dálítið stórar tillög- ur. Við eigum eftir að fara í gegn- um þær. Þetta varðar líka skipu- lag svæðisins þannig að það þarf að hafa samband við Akraneskaup- stað. Við þurfum að skoða betur hvað í þessu felst áður en erindinu verður svarað,“ segir Gísli Gísla- son hafnarstjóri Faxaflóahafna. Á stjórnarfundi fyrirtækisins á föstu- dag var Gísla falið að leggja fram frekari upplýsingar um hvað felst í erindi Þ&E. Faxaflóahafnir munu einnig óska eftir umsögn Akranes- kaupstaðar um hugmyndirnar um uppbygginguna í Lambhúsasundi. mþh Vilja byggja upp skipasmíðahöfn í Lambhúsasundi Horft yfir athafnasvæðið sem um ræðir í Lambhúsasundi frá þeim stað þar sem nýr grjótvarnargarður lægi út í sundið samkvæmt hugmyndum. Núverandi skipalyfta Þ&E er fyrir miðri mynd. Teikning sem sýnir tillögu Þ&E að nýju skipulagi við Lambhúsasund og hefur nú verið kynnt stjórn Faxaflóahafna og send bæjarstjórn Akraness. Ingólfur Árnason leggur fram stórar hugmyndir um hafnarmannvirki í Lamb- húsasundi.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.