Skessuhorn - 13.05.2015, Síða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 2015
Sól skein í heiði og bros var á vörum fólks sem mætti á ár-
lega stórsýningu Bifhjólafjelagsins Raftanna og Fornbílafjelags
Borgarfjarðar í Brákarey á laugardaginn. Sýningarsvæðið var
salur fornbílafjelagsins, portið milli húsa og gamla fjárréttinn,
en sama dag var einmitt ritað undir leigusamning á því húsi til
næstu tíu ára, eins og sagt er frá í annarri frétt í blaðinu. Sýn-
ingin stóð frá hádegi og fram undir kvöld og var mikill fjöldi
sem mætti á svæðið. Þá mættu fjölmargir bíla- og tækjaeigend-
ur með fararskjóta sína. Má þar nefna rallý- og torfærubíla, rút-
ur, nýuppgerðan Rússajeppa, vörubíla, mótorhjól og önnur far-
artæki á ýmsum aldri og í ólíku ástandi. Forsvarsmenn Rafta og
Fornbílafjelagsins voru ánægðir með daginn, sögðu mætingu
svipaða og í fyrra en mannfjöldinn hefði dreifst yfir lengri tíma
að þessu sinni. Meðfylgjandi myndir voru teknar á hátíðisdeg-
inum stóra í Brákarey. Ljósm. mm og mþh.
Fjölmenni á fornbíla- og Raftasýningu í Borgarnesi
Einna mesta athygli á sýningunni nú vakti Soffía II sem mætti á svæðið nýkomin úr allsherjar endurgerð. Sómir sér vel við hlið Ford 1947
rútu Sæmundar.
Ford vörubílar þessir eru af sitthvorum landshlutanum, annar
ættaður frá Djúpuvík á Ströndum en hinn úr Hornafirði.
Hjól af ýmsum stærðum og gerðum. Willys-jeppi Tryggva Konráðssonar vekur alltaf athygli enda með
fallegri bílum.
Bensadeildin átti sitt svæði.
Rallýbíll Baldurs Haraldssonar var til sýnis og fræddi Aðalsteinn
Símonarson meðreiðarsveinn Skagfirðingsins gesti um bílinn.
Hér má sjá mikið breyttan jeppa, tilbúinn í hvað sem er.
Bræðurnir Bjarni og Sigurður Þorsteinssynir, en Siggi er starfs-
maður bílasafnsins í Brákarey og hafsjór af fróðleik um bíla og
samgöngusögu héraðsins.
Ótrúlega margar gerðir af bílum er að finna á safninu. Opel og
Volvo meðal annarra.
Al Capone hefði sómt sér vel á þessum.
Nýuppgerður frambyggður Rússajeppi Unnars Þorsteins
Bjartmarssonar.
Jens og Sæmundur ræða málin. Þeir eru með reyndari atvinnubíl-
stjórum á Vesturlandi.
Kaupfélagsbíllinn á sínum stað. Á húddi hans var skrifað undir
leigusamning um sláturhússréttina og gúanóið.
Líklega er þetta eitt elsta mótorhjól á Íslandi í dag, Ariel 350 cc,
árgerð 1929 í eigu Unnars Þ Bjartmarssonar.
Fjölmargir bifhjólamenn komu á fákum sínum í Borgarnes víðs-
vegar af landinu.