Skessuhorn - 13.05.2015, Blaðsíða 27
27MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 2015
RARIK ohf • Dvergshöfða 2 • 110 Reykjavík • Sími 528 9000 • www.rarik.is
Rafvirki í Stykkishólmi
Starfssvið
Eftirlit
Hnitamælingar
Samskipti við viðskiptavini
Spennugæðamælingar
Verkundirbúningur
Nánari upplýsingar veita Björn Sverrisson, deildarstjóri rekstrarsviðs á Vesturlandi og starfsmannastjóri
RARIK í síma 528 9000. Umsóknarfrestur er til 1. júní n.k. og skal skila umsóknum með ferilskrá á
netfangið atvinnuumsokn@rarik.is.
RARIK ohf. er rekið sem opinbert hlutafélag í eigu ríkisins. Hlutverk RARIK er að dreifa raforku auk þess að afla, dreifa og
annast sölu á heitu vatni. Starfsmenn RARIK eru um 200, aðalskrifstofa er í Reykjavík og um 20 starfsstöðvar eru dreifðar
vítt og breitt um landið.
Hæfniskröfur
Sveinspróf í rafvirkjun
Þekking og reynsla af háspennukerfum er kostur
Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum
Drifkraftur og geta til að vinna sjálfstætt
RARIK ohf auglýsir eftir rafvirkja á rekstrarsvið fyrirtækisins með aðsetur í Stykkishólmi. Æskilegt er að
viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Hér er um ölbreytt starf að ræða við dreifikerfi fyrirtækisins.
Rekstrarsvið ber ábyrgð á rekstri og viðhaldi á dreifikerfi RARIK. Meginverkefni sviðsins eru hönnun,
nýframkvæmdir, breytingar, viðhald og rekstur dreifikerfis fyrirtækisins.
GRUNDARGÖTU 30, 350 GRUNDARFIRÐI
SÍMI: 430 8500, FAX: 430 8501
Grundarfjarðarbær
Grundararðarbær auglýsir starf skólastjóra Grunnskóla
Grundararðar laust til umsóknar.
Skólastjóri ber fag- og rekstrarlega ábyrgð á star skólans,
stjórnar honum og hefur forgöngu um mótun faglegrar
stefnu í samstar við skólanefnd og bæjarstjórn.
Leitað er að einstaklingi sem hefur skýra sýn í skólamálum og
er reiðubúinn að leita nýrra leiða í skólastar.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Kennsluréttindi og kennslureynsla á grunnskólastigi er skilyrði
Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar er æskileg
Frumkvæði, metnaður, skipulagshæfni og leiðtogahæleikar
Hæfni í mannlegum samskiptum
Í Grunnskóla Grundararðar stunda tæplega 100 nemendur
nám. Talsvert er um samkennslu árganga sem hefur skapað
áhugaverð tækifæri. Skólinn er vel búinn tækjum og hann er í
fararbroddi grunnskóla á landinu í spjaldtölvuvæðingu.
Umsóknum um ofangreint starf skal fylgja greinargott yrlit
yr menntun, fyrri störf, ábendingar um meðmælendur og
annað það sem umsækjandi telur máli skipta.
Nánari upplýsingar veita bæjarstjóri og skrifstofustjóri í
síma 430-8500 eða með því að senda fyrirspurnir á
thorsteinn@grundarordur.is eða sigurlaug@grundarordur.is
Umsóknarfrestur er til 30. maí nk.
Skólastjóri Grunnskóla Grundararðar
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Nemendur í Grunnskóla Grund-
arfjarðar nýttu hádegishléið síð-
asta föstudag vel því að þá slógu
þeir upp heljarmikilli danssýningu
í íþróttahúsi bæjarins. Þar voru ófá
sporin tekin undir dynjandi lófa-
klappi gesta. Krakkarnir höfðu ver-
ið á þrotlausum dansæfingum vik-
una á undan og var uppskeran eftir
því hjá þeim. Þarna mátti sjá glæsi-
leg tilþrif hjá þessum dönsurum
framtíðarinnar. tfk
Sýndu afrakstur dansnámskeiðs
Fimmtudaginn 30. apríl síðast-
liðinn var haldinn leiðtogadag-
ur í öllum deildum Grunnskóla
Borgarfjarðar. Nemendur tóku á
móti gestum, sýndu þeim skólann
sinn og það starf sem þar er unn-
ið. Í anda verkefnisins „Leiðtog-
inn í mér“ höfðu nemendur tek-
ið að sér mismunandi leiðtoga-
hlutverk þennan dag. Það voru
leiðtogar í móttöku, í leiðsögn, í
kynningu starfa í kennslustundum
og alls staðar var vinnan tengd við
venjurnar 7 sem leiðtogaverkefn-
ið byggir á.
Leiðtoginn í mér er hug-
myndafræði fyrir skóla sem bygg-
ir á bók Steven R. Covey: 7 venj-
ur til árangurs. Hún gengur út á
að byggja upp sterka einstaklinga
til að takast á við áskoranir í lífi
og starfi. Tilgangurinn er ekki að
búa til leiðtoga úr öllum, heldur
að hjálpa hverjum einstaklingi til
að blómstra og vinna út frá sínum
eigin styrkleikum. Læra að bera
ábyrgð á eigin ákvörðunum og
þannig móta líf sitt til hins betra
ásamt því að þroska samskipta-
hæfni nemenda og starfsfólks.
Þetta er annað árið sem unnið er
í anda þessa verkefnis í GBF. Fyrst
var lögð áhersla á að starfsfólk
lærði og tileinkuðu sér fræðin, en
í vetur hefur verið lögð áhersla á
að kenna nemendum þessa hug-
myndafræði ásamt nýjum starfs-
mönnum. Áætlað er að það taki
þrjú ár að innleiða verkefnið.
Gaman var að fylgjast með því
hversu leiðtogadagurinn gekk vel
fyrir sig báru gestir lof á frammi-
stöðu nemenda og starf skólans.
-fréttatilkynning
Leiðtogadagur í Grunnskóla
Borgarfjarðar
Veggmynd nemenda GBF á Hvanneyri. Leiðirnar að skólanum hafa hver sína
venju. Samvinna barna og starfsfólks deildarinnar. Þetta verkefni er meðal
annars samtvinnað grænfánaverkefninu því allt efnið er endurnýtt. Skemmtileg
vinna og við erum stolt af afrakstrinum, segja starfsmenn GBF á Hvanneyri.
Það var ekki leiðinlegt á Leiðtogadeginum á Kleppjárnsreykjum eins og sjá má.
Boðið upp á hollar veitingar á Varmalandi.