Skessuhorn - 13.05.2015, Blaðsíða 31
31MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 2015
Fiskmarkaður Íslands hf. óskar eftir að
ráða stöðvarstjóra á Akranesi
Þetta er 100% framtíðarstarf og er leitað eftir jákvæðum og drífandi einstaklingi með
ríka þjónustulund og góða samskiptahæfileika
Starfs- og ábyrgðarsvið:
Umsjón með daglegum rekstri útibúsins á Akranesi
Umsjón með uppboði og samskipti við kaupendur og seljendur
Umsjón með hafnarsvæði á Akranesi
Starfsmannamál
Innkaup á rekstrarvörum
Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur:
Viðskipta og/eða sjávarútvegsmenntun sem nýtist í starfi
Þekking á Microsoft hugbúnaði og færni til þess að læra á sérkerfi félagsins
Haldgóð almenn þekking á sjávarútvegsmálum
Reynsla af stjórnun og rekstri æskileg
Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagshæfni
Hæfni í mannlegum samskiptum
Lyftara og vigtarréttindi æskileg
Fiskmarkaður Íslands er stærsti fiskmarkaður á Íslandi og fer u.þ.b. 40% af öllu seldu magni á íslenskum
fiskmörkuðum gegnum félagið.
Fiskmarkaður Íslands starfar á 9 stöðum: Akranesi, Arnarstapa, Grundarfirði, Ólafsvík, Reykjavík, Rifi,
Skagaströnd, Stykkishólmi og Þorlákshöfn.
Aðalskrifstofa fyrirtækisins er í Ólafsvík. Einnig rekur félagið öfluga flokkunar- og slægingarþjónustu á Rifi.
Umsóknarfrestur er til 22. maí 2015
Nánari upplýsingar veita Páll Ingólfsson, sími 840 3702 eða Kristín Björg Árnadóttir, sími 840 3708
Umsóknir sendist á pall@fmis.is eða kristin@fmis.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Laus störf hjá Akraneskaupstað
Eftirfarandi störf eru laus til umsóknar:
Leikskólinn Garðasel
Starf leikskólakennara eða þroskaþjálfa í Leikskólanum Garðaseli.•
Leikskólinn Teigasel
Starf leikskólakennara í Leikskólanum Teigaseli.•
Brekkubæjarskóli
Störf umsjónarkennara á yngsta stigi, tvær 80% stöður til fastráðningar.•
Starf myndmenntakennara, 73% afleysingastaða til eins árs.•
Starf umsjónarkennara á yngsta stigi, 60% afleysingastaða til eins árs.•
Störf umsjónarkennara á miðstigi, tvær 80% afleysingastöður til eins árs.•
Starf umsjónarkennara á miðstigi, 80% afleysingastaða vegna •
fæðingarorlofs frá og með 1. október 2015.
Tónlistarskóli Akraness
Starf fiðlukennara, 100% staða.•
Starf píanókennara, 100% staða.•
Sótt er um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar
á þar til gerðu eyðublaði.
Allar nánari upplýsingar má finna á www.akranes.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Óskilamunir í íþróttamannvirkjum
Akraneskaupstaðar
Hægt er að vitja óskilamuna í öllum íþróttamannvirkjum
Akraneskaupstaðar dagana 14. - 22. maí n.k.
Við hvetjum alla þá sem sakna íþróttafatnaðar, útifatnaðar, sundfatnaðar
eða annarra muna til að koma og athuga hvort þeir geti verið hjá okkur.
Eftir 26. maí 2015 verða óskilamunir gefnir í fatasöfnun Rauða krossins.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Kristján Guðmundsson er ungur
Borgfirðingur sem starfar nú sem
forstöðumaður Markaðsstofu Vest-
urlands með aðsetur í Borgarnesi.
Blaðamaður leit við hjá honum í síð-
ustu viku og spjallaði við hann um
það sem er á döfinni í ferðaþjónustu
á Vesturlandi. Kristján sagði með-
al annars að nú stæði yfir kynning-
arverkefni á litlum ferðaþjónustu-
aðilum og öðrum sem taka á móti
ferðamönnum. Hlaut Markaðsstof-
an styrk til að vinna það verkefni.
Hann sagði ferðamenn sem hing-
að koma ekki bara hafa áhuga á því
að skoða sig um heldur einnig að
kynnast landsmönnum. „Samkvæmt
skýrslum og rannsóknum um hvað
dregur ferðamenn til landsins er það
náttúran númer eitt og síðan í öðru
sæti er það menningin og fólkið í
landinu. Ferðamenn vilja kynnast
fólkinu,“ segir Kristján.
Kynningarefni tekið upp
á nýjustu græjur
„Svo er unnið að verkefni sem ein-
skorðast við vetrarferðamennsku.
Verkefnið er fjármagnað til hálfs
af fyrirtækjum á svæðinu og hinn
helmingurinn með styrk sem við
fengum úr Sóknaráætlun. Við feng-
um til dæmis kvikmyndatökumenn
frá fyrirtæki í Bandaríkjunum til
að gera kynningarmyndbönd um
áhugaverða staði á Vesturlandi gegn
því einu að þeir fengju gistingu. Það
fyrirtæki prófar græjur, myndavél-
ar og annað, fyrir framleiðendur.
Þeir voru með fullt af græjum sem
ég veit ekki einu sinni hvað heita,“
segir Kristján og brosir. „Við bind-
um því vonir við að þessi myndbönd
verði mjög flott,“ bætir hann við.
Námskeið í notkun
samfélagsmiðla
„Síðan koma hingað blaðamenn
víðsvegar að úr heiminum, með-
al annars frá National Geographic,
þýsku tímariti sem heitir Focus og
nokkrir frá Kína. Þessir blaðamenn
koma og skrifa umfjallanir fyrir
landa sína. Þeir fjalla auðvitað um
þá staði sem þeim þykja áhugaverð-
ir og telja að löndum sínum þyki
áhugaverðir. Við stýrum umfjöllun-
um þeirra ekki á neinn hátt en svæð-
ið fær umfjallanir, það skiptir mestu
máli,“ segir Kristján.
Hluti af áðurnefndu vetrarverk-
efni eru til dæmis námskeið í notkun
samfélagsmiðla fyrir þá ferðaþjón-
ustuaðila sem koma að fjármögn-
un verkefnisins. Þá er ekki síst átt
við miðla eins og tripadvisor, hvern-
ig megi fá umfjallanir þar og hvern-
ig hægt sé að nýta sér þann miðil til
að auka áhuga á fyrirtækinu og þar
með auka viðskiptin. „Þetta vetrar-
verkefni okkar hefur svo verið kynnt
á stóru ferðaskrifstofunum í Reykja-
vík og það er liður í því að beina
fólki í auknum mæli inn á svæðið,“
segir Kristján.
Pílagrímaleið frá
Bæjarsveit í Skálholt
„En það sem er næst á dagskrá er
útgáfa ferðabæklingsins okkar og
borðkortanna sem eru í prent-
un núna, það eru fastir punktar hjá
okkur á hverju ári,“ segir Kristján.
„Dagur ferðaþjónustunnar er núna
13. maí [í dag] og haldinn á Bifröst.
Fyrir hádegi er aðalfundur Ferða-
málasamtaka Vesturlands og eftir
hádegi eru fyrirlestrar. Meðal ann-
ars verður kynnt þar ný gönguleið,
svokölluð Pílagrímaleið, sem liggur
frá Bæ í Bæjarsveit og endar í Skál-
holti. Hún liggur meðal annars um
Síldarmannagötur og yfir Leggja-
brjót, vinsælar gönguleiðir. Það sem
er skemmtilegt við þessa göngu-
leið er að tryggð verður haldið við
gömlu þjóðleiðina. Þannig verða til
dæmis einhverjir spottar þar sem er
bara gengið eftir malarvegum, sem
er kannski ó-spennandi en svo verða
aðrir áfangar virkilega fallegir. En
sem sagt, áhersla á að halda tryggð
við gömlu þjóðleiðina og hún ekk-
ert fegruð þó að ákveðnir kaflar séu
kannski ekkert sérstaklega spenn-
andi,“ segir Kristján. Einnig verða á
Degi ferðaþjónustunnar örkynning-
ar frá nýjum fyrirtækjum á svæðinu.
„Það er spennandi sumar fram-
undan. Til dæmis er ég spenntur að
sjá hvernig Íshellinum í Langjökli
vegnar. Það framtak ætti að draga
fleiri ferðamenn á svæðið í heild.
Þetta er nefnilega ekki Snæfellsnes
að keppa við Borgarfjörð eða eitt-
hvað slíkt. Svæðið vinnur allt sam-
an, hefur sameiginlegra hagsmuna
að gæta,“ bætir Kristján við.
Kvöldin oft dauður tími
í ferðamennsku
„Mér er ofarlega í huga þau 30
skemmtiferðaskip sem koma við í
Grundarfirði í sumar. Það eru að
langstærstum hluta skipulagðar
ferðir, ekki fólk sem ferðast á eigin
vegum. Það vantar nefnilega fleiri
leiðsögumenn af svæðinu fyrir þessa
hópa. Fyrirtækin sem skipuleggja
ferðir fyrir þá þurfa oftar en ekki að
sækja leiðsögumennina til Reykja-
víkur. Best væri ef leiðsögumenn-
irnir væru heimamenn, það myndi
skilja eftir meiri pening í sveitarfé-
laginu,“ segir Kristján og bætir við
að nú sé til skoðunar hvernig stuðla
megi að því.
„Ef það verða til góðir leiðsögu-
menn myndu þeir líka vekja athygli
á öðrum hlutum hérna á svæðinu.
Það eru mörg tækifæri í leiðsögn
fyrir hópa, til dæmis kvöldferðir um
bæina á svæðinu sem eru troðfull-
ir af ferðamönnum á kvöldin,“ seg-
ir Kristján. Kvöldin geta oft orð-
ið dauður tími í skipulagðri ferða-
mennsku. Þá eru ferðamenn meira
á eigin vegum. „Það myndi auðvitað
þýða mikla viðveru, en væri kannski
kjörið fyrir einhvern félagsskap að
skipta með sér sumrinu. Þarna ligg-
ur að minnsta kosti klárt tækifæri í
ferðaþjónustu,“ segir Kristján að
lokum.
kgk
Kristján Guðmundsson, forstöðumaður Markaðsstofu Vesturlands.
Ferðamenn koma hingað til
að kynnast fólkinu