Skessuhorn - 13.05.2015, Qupperneq 38
38 MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 2015
Hvaða áhrif hafa
verkföllin haft á þig?
Spurning
vikunnar
(Spurt í Borgarnesi)
Rasa Satrauskiene
„Ég er í verkfalli og ég má ekki
vinna sem er slæmt því mig vant-
ar pening. Það er betra að vera
ekki í verkfalli og mega vinna.“
Salvör Gylfadóttir
„Lítil sem engin.“
Þórir Sigurðsson
„Mjög lítil, ennþá. Aðeins smá-
vægileg óþægindi eins og með
lokanir á bensínstöðvum.“
Jóhannes Ellertsson
„Eins og er ekki nein en horf-
urnar eru slæmar.“
Elín Helga Þórisdóttir
„Slæm, mér líkar ekki verkföll.
Hef illan bifur af þessu.“
Á Körfuknattleiksþinginu 2015
sem fram fór í Íþróttamiðstöðinni
í Laugardal um helgina var Ólaf-
ur Rafnsson, fyrrverandi formaður
KKÍ, sæmdur Heiðurskrossi KKÍ.
Eins og kunnugt er lést Ólafur um
aldur fram árið 2013, aðeins fimm-
tugur að aldri. Hann var forseti
FIBA Europe þegar hann féll frá
ásamt því að vera forseti ÍSÍ. Hann-
es S. Jónsson, formaður KKÍ, af-
henti Gerði Guðjónsdóttur eftirlif-
andi eiginkonu, Heiðurskrossinn.
Ólafur er aðeins fimmti Heiður-
skrosshafi KKÍ frá upphafi en aðrir
sem hafa fengið þessa æðstu heið-
ursviðurkenningu KKÍ eru Bogi
Þorsteinsson, Einar Bollason, Ein-
ar Ólafsson og Kolbeinn Pálsson.
Ólafur var leikmaður og þjálfari
með Haukum í Hafnarfirði. Hann
var formaður KKÍ árin 1996 til
2006 áður en hann var kjörinn í
embætti forseta ÍSÍ árið 2006. Árið
2010 var hann kjörinn forseti FIBA
Europe. Ólafur var giftur Gerði
Guðjónsdóttur og áttu þau þrjú
börn. Auði Írisi, Sigurð Eðvarð og
Sigrúnu Björg.
-fréttatilkynning
Sæmdur Heiðurskrossi KKÍ
Gerður Guðjónsdóttir ásamt börnum sínum og Guðbjörgu Norðfjörð, varafor-
manni KKÍ, og Hannesi S. Jónssyni formanni KKÍ.
Landslið kvenna U-16 ára í körfu-
bolta hélt utan til Svíþjóðar í gær-
morgun til keppni á Norðurlanda-
mótinu. Anna Soffía Lárusdóttir í
Snæfelli hafði verið valin í 12 manna
hóp U-16 landsliðs Íslands. Anna
Soffía er því með liðinu sem keppir í
Solna í Svíþjóð dagana 13.-17. maí.
Þar mun Anna Soffía hitta þjálfara
meistaraflokka Snæfells, hann Inga
Þór sem jafnframt er þjálfari U-16
liðs drengja. Snæfell á því leikmann
og þjálfara á mótinu og þarf það ekki
að koma á óvart miðað við frammi-
stöðu félagsins á liðnum árum.
mm/ Ljósm. Sumarliði Á.
Anna Soffía úr
Snæfelli í U-16
landsliðinu
Knattspyrnufélag ÍA og Frumherji
hafa gert nýjan þriggja ára sam-
starfssamning, en Frumherji hefur
verið einn af samstarfsaðilum KFÍA
í mörg ár. Af þessu tilefni var skrif-
að undir samninginn í skoðunar-
stöð Frumherja á Akranesi og tekin
meðfylgjandi mynd af Orra Hlöð-
verssyni, framkvæmdastjóra Frum-
herja og Haraldi Ingólfssyni, fram-
kvæmdastjóra KFÍA.
mm
Frumherji styð-
ur við Knatt-
spyrnufélag ÍA
Garðavöllur kemur vel undan vetri
og var opnað inn á sumarflatirn-
ar um liðna helgi. Mikil vinna hef-
ur verið lögð í að undirbúa völlinn
sem best fyrir Íslandsmótið í golfi
sem fer fram á Akranesi 23.-26.
júlí. Golfklúbburinn Leynir fagnar
hálfrar aldar afmæli á þessu ári og
verður Íslandsmótið hápunkturinn
í fjölbreyttri dagskrá afmælisársins.
Mótahald er nú þegar farið af
stað, þrátt fyrir að vorið hafi að-
eins látið standa á sér. Fyrsta golf-
mót ársins var haldið samhliða leik
ÍA gegn Íslandsmeistaraliði Stjörn-
unnar í Pepsideild karla. Það tókst
vel til, ræst var út á öllum teigum
samtímis og um 80 kylfingar léku 18
holur áður en þeir héldu á völlinn.
Einar Lyng Hjaltason, PGA golf-
kennari, stýrir golfkennslu Leynis
annað árið í röð. Hann er einnig
íþróttastjóri Leynis og skipuleggur
allt barna- og unglingstarf klúbbs-
ins. Æfingar hafa staðið yfir í all-
an vetur í nýrri aðstöðu sem sett
var upp í nýrri vélageymslu klúbbs-
ins. Það eru margir stórir viðburð-
ir á dagskrá hjá keppnisfólki af yngri
kynslóðinni en fyrsta mótið á Ís-
landsbankamótaröðinni verður á
Garðavelli 22.-24. maí þar sem að
allir bestu kylfingar landsins 18 ára
og yngri etja kappi.
Í fyrrasumar var boðið upp á golf-
námskeið fyrir börn á aldrinum sex
til tíu ára. Námskeiðin fengu góðar
viðtökur og því verður boðið upp á
slík námskeið aftur nú í sumar.
„Áherslan verður á golftengda og
almenna leiki og skemmtilegt golf-
námskeið þar sem krakkarnir öðl-
ast færni sem gerir þau að betri kylf-
ingum. Kennt verður á æfingasvæði
GL og litla Garðavellinum sem er 6
holu par 3 völlur,” segir Guðmund-
ur Sigvaldason framkvæmdastjóri
Leynis. „Námskeiðin standa yfir í
fimm daga í senn og byrja þau kl.
9 og standa fram til hádegis. Þetta
tókst ljómandi vel til í fyrra og við
hlökkum til að taka á móti krökkun-
um í sumar.”
Þegar blaðamann Skessuhorns
bar að garði stóð einmitt yfir nám-
skeið fyrir nemendur Grundaskóla
á Akranesi. Guðmundur sagði golf-
klúbbinn hafa boðið upp á slík nám-
skeið áður og einnig fyrir nemend-
ur Fjölbrautaskóla Vesturlands, þá
í tengslum við opna daga. Þau hafi
reyndar verið haldin innandyra,
enda opnir dagar iðulega nálægt
mánaðamótum febrúar og mars.
Guðmundur bætti því við að gríð-
arlega öflugur hópur sjálfboðaliða
hafi unnið þrekvirki í mörgum verk-
efnum í vetur og vor. Þar má nefna
að mokað hafi verið upp úr skurð-
um í kringum völlinn og árangur
af þeirri vinnu væri mjög sýnileg-
ur þar sem að tekist hafi að þurrka
upp mjög blaut svæði á vellinum.
Nýtt salerni er komið upp við sjöttu
flötina og eykur það þjónustustigið
við gesti vallarins mikið. „Við erum
heppnir að eiga góða að og án sjálf-
boðaliðastarfsins væri ekki hægt að
gera alla þessa hluti. Það er meðbyr
í starfinu og spennandi golfsumar
framundan á afmælisári.”
Skessuhorn mun heyra hljóð-
ið í forsvarsmönnum annarra golf-
klúbba á Vesturlandi og birta á
næstu vikum.
kgk/seþ
Golfsumarið að hefjast hjá Leyni
Vallarstarfsmaður í óðaönn að slá púttvöllinn bakvið golf-
skálann.
Að loknum slætti var sandur borinn á púttvöllinn.
Brynjar vallarstjóri var nokkuð vel á veg kominn með að bera sand á flatir og
teiga vallarins. Engu að síður kvaðst hann eiga nóg eftir og næsta verkefni væri
að bera áburð á völlinn. Hann sagðist una sér vel í starfinu sem hann er búinn að
sinna í tuttugu ár.
Guðmundur Sigvaldason, framkvæmdastjóri Golfklúbbsins Leynis sagðist fullur
eftirvæntingar fyrir komandi golfsumri og sér í lagi Íslandsmótinu á Garðavelli
23.-26. júlí.
Blaðamann bar að garði þegar golfnámskeið fyrir nemendur Grundaskóla stóð
sem hæst.
Einn þátttakenda á námskeiðinu leyfði blaðamanni að smella af sér mynd í miðri
sveiflu.