Skessuhorn


Skessuhorn - 10.06.2015, Blaðsíða 1

Skessuhorn - 10.06.2015, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 24. tbl. 18. árg. 10. júní 2015 - kr. 750 í lausasölu Rafræn áskrift Ný áskriftarleið Pantaðu núna Fluconazol ratiopharm Fæst án lyfseðils Er þér annt um hjartað? Eru bólgur og verkir að hrjá þig? Arion hraðþjónusta – hafðu það eins og þú vilt Arion appið • Netbanki • Hraðbankar Merino ullarnærföt sem halda líkamanum alltaf þurrum og hlýjum Fyrir dömur, herra og börn SK ES SU H O R N 2 01 5 Hann Heikir Darri Hermannsson er nemandi í Leikskólanum Sólvöllum í Grundarfirði. Hér heldur hann hróðugur á fiski en í síðustu viku kíktu sjómenn í heimsókn í skólann og sýndu börnunum ýmsa fiska, ræddu við þau um sjómannslífið og skoruðu þau loks á hólm í reiptogi. Það var líf og fjör að fá þessa skemmtilegu karla í heimsókn. Sjá nánar bls. 21. Ljósm. tfk. Lögreglan í Ólafsvík veitti á föstudagskvöldið athygli bíl þar sem aksturslag ökumanns var at- hugunar virði. Þegar lögreglu- menn hugðist stöðva för öku- manns reyndi hann flótta. Var bílnum veitt eftirför og komst ökumaðurinn á hlaupum inn í íbúð sína í bænum. Lögregla elti manninn inn á heimili hans þar sem kom til snarpra átaka. Lag- anna verðir voru tveir en kusu að hörfa og kölluðu til aðstoðar liðs- auka úr umdæmi lögreglunnar á Vesturlandi auk þess sem vakt- bílar frá sérsveit ríkislögreglu- stjóra voru kallaðir til. Áður en til þess kom tókst lögreglu að tala manninn til í gegnum síma og féllst hann á að koma út án þess að til frekari átaka kæmi. Var hann handtekinn og tekinn til yf- irheyrslu og sýnatöku. Reyndist hann ölvaður. Lögreglumenn- irnir voru talsvert lemstraðir eft- ir átökin en óbrotnir. Maðurinn á yfir höfði sér þungar sektir vegna gjörða sinna. mm Lögregla í átök- um við ölvaðan ökumann Árlegum vorleiðangri Hafrann- sóknastofnunar lauk 30. maí síð- astliðinn. Farið var á rannsókna- skipinu Bjarna Sæmundssyni. Leið- angurinn var liður í langtímavökt- un á ástandi sjávar þar sem með- al annars er fylgst með næringar- efnum, gróðri og átu á hafsvæðinu við landið. Athuganir voru gerðar á um 110 rannsóknastöðvum um- hverfis landið, bæði á landgrunninu og utan þess. Jafnframt voru gerð- ar mælingar með síritandi búnaði á siglingaleið skipsins og sýni tek- in á nokkrum völdum stöðum til mælinga á geislavirkum efnum og ólífrænum kolefnissamböndum. Í þessum leiðangri mældist hiti efri sjávarlaga umtalsvert lægri en ver- ið hefur undanfarin ár í hlýsjónum sunnan og vestan við landið. Selta hafði þó hækkað lítillega frá lægri gildum síðustu ára á sömu slóðum. Yfirborðslög fyrir norðan land voru um meðallag í hita og seltu. Norð- austan- og austanlands var hiti yfir meðallagi. Vorkoma gróðurs var víða vel á veg komin. Mest áberandi voru nær samfelldir gróðurflekkir yfir landgrunninu bæði norðan og sunnan landsins. Átumagn var um eða undir langtímameðaltali. mm Kaldari sjór og minna af átu Þessi mynd sýnir hvar tekin eru sýni með svokölluðum átuháfi um borð í Bjarna Sæmundssyni. Átan í sjónum reyndist undir meðallagi og sjór kaldari við vestan- og sunnanvert landið. Ljósm. hafro.is Laugargerðisskóli í Eyja- og Mikla- holtshreppi hlaut skólaviðurkenn- inguna í ár í Fjármálahreysti Lands- bankans. Viðurkenninguna hlýtur sá skóli þar sem hlutfallslega flestir nemendur á unglingastigi spreyta sig á leiknum. Allir nemendur í 8.-10. bekk skólans tóku þátt, en vegna tækniörðugleika gátu þrír nemend- ur ekki lokið leiknum. Þátttaka í Laugargerðisskóla var því um 80% þegar upp var staðið. Þetta er í ann- að skipti sem Laugargerðisskóli fær skólaviðurkenninguna, en 9. bekkur skólans vann Fjármálahreysti skóla- árið 2011-2012. Þessi árangur vek- ur ekki síst athygli fyrir þær sakir að skólinn er í hópi fámennustu grunn- skóla landsins. Fjármálahreysti er spurningaleik- ur frá Landsbankanum sem er ætl- að að efla fjármálalæsi ungmenna. Leikurinn gengur út á að leysa verk- efni af fjölbreyttu tagi sem taka mið af markmiðum OECD í fjár- málafræðslu. Verkefnin eru á fjór- um ólíkum efnissviðum og eru sett fram á jafnmörgum þyngdarstigum. Efnissviðin fjögur eru: Ég, Heimil- ið, Nám og atvinna og Samfélagið. Grunnskólakrakkar úr rúmlega 100 skólum um land allt spreyttu sig á leiknum vorið 2015. mm/ Ljósm. Sigurður Jónss. Laugargerðisskóli skóla- sigurvegari í Fjármálahreysti

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.