Skessuhorn - 10.06.2015, Síða 2
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 20152
Vert er að minna á Kvennahlaup-
ið sem fram fer um allt land á laug-
ardaginn. Konur á öllum aldri eru
hvattar til að taka þátt og spretta úr
spori, hver á sínum hraða.
Áframhaldandi austlægar áttir eru í
kortunum. Á fimmtudag spáir norð-
austan og austan 5-10 m/s. Skýjað
og skúrir eða rigning, en þurrt að
kalla á Vesturlandi. Hiti verður frá
þremur stigum í innsveitum á norð-
austanverðu landinu en upp í 12
stig suðvestanlands. Á föstudag og
laugardag verður hæg breytileg átt
og skúrir, einkum sunnan- og vest-
an til á landinu. Hiti á bilinu 6 til 12
stig að deginum. Á sunnudag spáir
hægri suðlægri átt og bjartviðri en
smá súld með suðurströnd landsins.
Hiti víða 10 til 15 stig. Á mánudag
er útlit fyrir suðaustanátt með rign-
ingu eða súld. Hiti 8 til 12 stig. Þurrt
og bjart verður norðan- og aust-
anlands og hiti allt að 17 stigum á
þeim slóðum.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessu-
horns: „Ætlar þú á bæjarhátíð í sum-
ar?“ Fæstir þeirra sem svöruðu ætla
á fleiri en eina hátíð eða 9,86%. Þeir
sem segjast ætla á eina hátíð voru
32,39% en 23,24% höfðu ekki tek-
ið ákvörðun enn. Flestir sögðu „Nei,
sennilega ekki,“ eða 34,51% þeirra
740 sem tóku þátt í könnuninni.
Í þessari viku er spurt:
„Hvernig veðri spáir þú í sumar?“
Nemendur 8.-10. bekkjar Laugar-
gerðisskóla á Snæfellsnesi eru Vest-
lendingar vikunnar. Þau eru betri
en jafnaldrar þeirra á landinu í fjár-
málalæsi, eins og lesa má um í frétt í
Skessuhorni í dag.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Spunaleiksýning í
Frystiklefanum
RIF: Nú um helgina kemur
leikhópurinn Improv-Ísland
í heimsókn í Frystiklefann í
Rifi. Leikhópurinn er samsett-
ur úr öllum bestu spunaleikur-
um þjóðarinnar og hefur hóp-
urinn nýverið lokið við sýning-
ar í Þjóðleikhúsinu. Spunasýn-
ingar hópsins eru grínsýning-
ar sem eru búnar til á staðnum
og spunnar út frá einu orði sem
áhorfendur stinga upp á. Ekk-
ert er ákveðið fyrirfram og hver
einasta sýning er því einstök og
verður aldrei endurtekin. „Fyr-
ir þá sem vilja hlæja gríðarlega
mikið og upplifa einstakt leik-
húsform er þessi viðburður al-
gjörlega ómissandi,“ segir í til-
kynningu frá Kára í Frystiklef-
anum. Sýningin hefst klukkan
20:00 og eru frjáls framlög gild
sem miðaverð. -mm
Þrír ölvaðir
VESTURLAND: Lögregl-
an á Vesturlandi tók þrjá öku-
menn fyrir ölvun við akstur í
liðinni viku. Einn þeirra reyndi
þar að auki að komast undan
laganna vörðum og veittist síð-
an að þeim þegar til hans náð-
ist. Sagt er frá því máli á forsíðu.
Alls voru fimm ökumenn teknir
fyrir akstur undir áhrifum fíkni-
efna í umdæmi lögreglunnar á
Vesturlandi í vikunni.
-mm
Stóðhestapantanir
fóru rólega af stað
VESTURLAND: Stóðhest-
arnir Brennir frá Efri-Fitjum,
Farsæll frá Litla-Garði, Hvin-
ur frá Vorsabæ, Jarl frá Ár-
bæjarhjáleigu og Snillingur
frá Íbishóli verða ekki á svæði
Hrossaræktarsambands Vestur-
lands í sumar. Ástæðan er sú að
ekki hafa náðst lágmarkspant-
anir undir hestana. „Því miður
standa málin þannig að pantan-
ir hafa farið mjög rólega af stað
þetta árið og ekki er útséð með
að hætta verði við fleiri hesta en
hér hafa verið taldir upp. Með
von um að hryssueigendur taki
við sér svo mögulegt verði á að
halda þeim hestum sem enn eru
eftir í pottinum, en það eru þeir
Eldjárn frá Tjaldhólum, Hrafn
frá Efri Rauðalækn, Þorlák-
ur frá Prestsbæ, Loki frá Sel-
fossi, Skýr frá Skálakoti, Stegg-
ur frá Hrísdal og Æsir frá Efri
Hrepp,“ segir í tilkynningu frá
Hrossaræktarsambandi Vestur-
lands. Nánari upplýsingar má
finna á hrossvest.is –mm
Óhapp í
göngunum
HVALFJ: Loka þurfti Hval-
fjarðargöngunum um tíma eftir-
miðdag sl. mánudags vegna um-
ferðaróhapps. Að sögn lögreglu
var ungur ökumaður á ferð og
sofnaði hann undir stýri. Hafn-
aði bifreið hans utan í göngun-
um. Ökumaðurinn hlaut minni-
háttar meiðsli við áreksturinn.
Göngin voru lokuð um tíma
á meðan verið var að afgreiða
málið. -mm
Stúlkan sem lést í kjölfar þess að
hafa neytt eiturefnisins E-pillu að-
fararnótt sunnudagsins 31. maí
hét Ingibjörg Melkorka Ásgeirs-
dóttir, búsett á Akranesi. Ingi-
björg Melkorka var fædd 8. mars
1998 og var því nýlega orðin 17
ára. Ingibjörg lætur eftir sig for-
eldra, fjórar systur og einn bróður.
Hún var nemandi í Menntaskóla
Borgarfjarðar síðastliðið skólaár
en stundaði áður nám í Brekku-
bæjarskóla á Akranesi og í Heiðar-
skóla í Hvalfjarðarsveit.
Ingibjörg Melkorka tók inn eina
og hálfa E-töflu. Eftir það sofnaði
hún og vaknaði ekki aftur. Hún var
flutt á gjörgæsludeild Landspítal-
ans við Hringbraut þar sem hún
var úrskurðuð látin aðfararnótt
þriðjudagsins 2. júní. Aðstand-
endur Ingibjargar Melkorku vilja
koma því á framfæri að þetta var
í fyrsta og eina skipti sem vitað er
að hún hafi neytt þessara eiturefna
sem E-pillur eru. Eitt skipti get-
ur því verið nóg til að hafa þessar
hörmulegu afleiðingar. „Von okk-
ar er að þessum skilaboðum verði
komið út í samfélagið sem víðast,
öðrum til aðvörunar um þá dauð-
ans alvöru sem neysla vímuefna
getur haft,“ segir í yfirlýsingu frá
aðstandendum. „Ingibjörg Mel-
korka hafði látið í ljós þá ósk, að ef
til þess kæmi, yrði hún líffæragjafi.
Við því var orðið og er það okkur
nokkur huggun á erfiðum stund-
um að líf hennar geti orðið öðrum
til aðstoðar. Við fjölskyldan vilj-
um þakka samhug og vinarþel sem
okkur hefur verið sýnt á erfiðum
stundum undanfarna daga.“
Útför Ingibargar Melkorku fer
fram frá Akraneskirkju föstudag-
inn 12. júní klukkan 15:00.
mm
And lát:
Ingibjörg Melkorka Ásgeirsdóttir
Ráðninga- og ráðgjafafyrirtæk-
ið Hagvangur opnaði á dögunum
útibú í Stjórnsýsluhúsinu við Bjarn-
arbraut 8 í Borgarnesi. Hagvang-
ur er með elstu fyrirtækjum sinn-
ar tegundar hér á landi og hefur frá
því á áttunda áratugnum þjónustað
hundruði fyrirtækja við ráðningar,
stjórnun, mannauðsmál, fjármál og
rekstur, svo eitthvað sé nefnt. Mið-
vikudaginn 3. júní síðastliðinn var
blásið til opnunarhófs Hagvangs í
Stjórnsýsluhúsinu í Borgarnesi.
Vestlendingar hafa tekið vel á
móti Hagvangi og lagði fjöldi fólks
leið sína í Stjórnsýsluhúsið til að
heilsa upp á starfsfólk fyrirtækis-
ins. Geirlaug Jóhannsdóttir, sem
síðustu tíu ár hefur starfað við Há-
skólann á Bifröst, mun stýra starf-
seminni í Borgarnesi. Áhersla verð-
ur lögð á ráðningar á Vesturlandi
en einnig veitir Geirlaug fagráðgjöf
á sviði mannauðsmála. Auk Geir-
laugar mun skrifstofan í Borgarnesi
njóta stuðnings allra ráðgjafa Hag-
vangs í Reykjavík sem munu taka
þátt í verkefnum eftir því sem við á.
Við opnun Vesturlandsskrifstofunn-
ar kynnti Leifur Geir Hafsteinsson,
aðstoðarframkvæmdastjóri Hag-
vangs, orkustjórnun á vinnustöðum.
Hún gengur út á að gera einfaldar
en áhrifamiklar breytingar á hegð-
un og hugarfari til að bæta vellíðan
stjórnenda og starfsfólks og um leið
bæta frammistöðu í starfi samhliða
því að auka svigrúm til að sinna eig-
in heilsu og velferð.
„Hagvangur hefur verið í mikl-
um vexti síðustu ár og meðal annars
tvöfaldað starfsmannafjölda sinn
á síðustu þremur árum. Fyrirtæk-
ið hefur verið mjög sýnilegt í end-
uruppbyggingu íslensks atvinnulífs
og verið virkt í því að uppfæra þjón-
ustuframboð og nálgun við ráðn-
ingar og ráðgjöf. Þjónustframboð
Hagvangs spannar í dag víðtæk-
ar lausnir í ráðningum, matsferlum
og greiningum auk þess að bjóða
heildstæðar lausnir á sviði stjórn-
enda- og mannauðsmála. Loks má
nefna nýjasta svið Hagvangs, fjár-
mála- og rekstrarráðgjöf, sem ein-
beitir sér að rekstri opinberra aðila
og bættri nýtingu á rammasamn-
ingum,“ segir Geirlaug í samtali
við Skessuhorn. Hún vill fyrir hönd
Hagvangs koma á framfæri þakk-
læti fyrir jákvæðar móttökur í sam-
félaginu. „Við hjá Hagvangi hlökk-
um til að eiga gott samstarf við fyr-
irtæki og stofnanir á Vesturlandi á
næstu árum.“
mm
Ingibjörg Melkorka Ásgeirsdóttir.
Anna Þorvaldsdóttir verðlaunuð í New York
Anna Þorvaldsdóttir tónskáld úr
Borgarnesi hlaut í liðinni viku
Kravis Emerging Composer verð-
launin frá Fílharmóníusveit New
York borgar. Verðlaunaféð nam 50
þúsund dölum, jafnvirði hátt í sjö
milljóna íslenskra króna. Auk þess
Fjölmenni var við opnun skrifstofu
Hagvangs á Vesturlandi
Katrín S Óladóttir framkvæmdastjóri Hagvangs, Þórir Þorvarðarson stjórnar-
formaður og Geirlaug Jóhannsdóttir ráðgjafi sem mun veita skrifstofunni á
Vesturlandi forstöðu.
er Önnu falið að semja tónverk fyr-
ir hljómsveitina. New York Times
greinir frá verðlaununum og hef-
ur eftir Önnu að hún hlakki til að
hefjast handa við tónsmíðarnar fyr-
ir hljómsveitina. Þar er Anna sögð
þekkt fyrir margslungin verk. Tón-
listarstjóri Fílharmóníunnar í New
York hrósar henni fyrir einstaka
hljóðmynd sem tengist íslenskri
arfleifð hennar traustum böndum.
Anna Þorvaldsdóttir hlaut Tón-
listarverðlaun Norðurlandaráðs
árið 2012 fyrir verk sitt Dreymi.
Sama ár hlaut hún tvenn verðlaun
á Íslensku tónlistarverðlaununum,
sem tónskáld ársins og fyrir klass-
íska plötu ársins. mm
Í hálfleik á leik meistaraflokks Vík-
ings í Ólafsvík og BÍ/Bolungarvík-
ur, sem fram fór á síðasta laugardag,
var undirritaður samningur á milli
Landsbankans, Víkings Ólafsvík og
Snæfellsnessamstarfsins í fótbolta.
Samningurinn er mjög mikilvægur
fyrir félögin og Landsbankann og
er hann til þriggja ára. Á meðfylgj-
andi mynd má sjá þau Jónas Gest
Jónasson úr meistaraflokki Vík-
ings, Þórhöllu Huld Baldursdótt-
ur frá Landsbankanum og Freydísi
Bjarnadóttur frá Snæfellsnessam-
bandinu. Fyrir aftan þau eru ung-
ir fótboltaiðkendur í nýju búning-
unum.
þa
Skrifað undir styrktarsamning við Víking