Skessuhorn - 10.06.2015, Page 4
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 20154
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smáaug-
lýsinga er til 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.800 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 2.573 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 2.230. Rafræn áskrift kostar 2.023 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 1.867
kr. Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Guðný Ruth Þorfinnsdóttir gudny@skessuhorn.is
Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is
Magnús Þór Hafsteinsson mth@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Emilía Ottesen, markaðsstjóri emilia@skessuhorn.is
Valdimar Björgvinsson valdimar@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Ómar Örn Sigurðsson omar@skessuhorn.is
Tinna Ósk Grímarsdóttir tinna@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Leiðari
Skóflustungutíð í vændum
Síðastliðinn föstudag ákvað ég í samráði við og að áeggjan konunnar að fara
í útilegu. Þá var nefnilega kominn júní og samkvæmt almanakinu og meðal-
hita þess árstíma í sögulegu samhengi átti hitastigið að vera allbærilegt, í það
minnsta fyrir hraustmenni. Viðlegubúnaðurinn var heldur ekki af lakari end-
anum, fellihýsi sem við keyptum fyrir ári, nokkurra ára gamalt og lítið notað
af burtfluttum athafnamanni sem þótti ekki lífvænlegt hér á klakanum leng-
ur. Þetta var reyndar afar lítið notað fellihýsi, framleitt ári fyrir hrun. Hafði
líklega verið notað þrisvar sinnum fyrsta sumarið í hans eigu, tvisvar annað
sumarið, einu sinni þriðja sumarið og ekkert í fjórða, fimmta og sjötta. Slíkt
notkunarmynstur er víst algengt. Fyrir réttu ári fékk ég það semsé í hendur
og notaði þá í aldeilis ágætri útilegu í Húsafelli og víðar um landið síðar um
sumarið. Ég komst að því að það hélt vel vatni. Í Húsafell var þannig brunað
á föstudaginn í bjartsýniskasti og alveg heilum átta gráðum á brottfararstað.
Fáir aðrir með viðlíka farartæki voru sýnilegir á leiðinni, reyndar alls engir!
Í Húsafelli voru enda býsna fáir mættir, utan nokkrir útlendingar sem virtust
una hag sínum vel, enda kaupa þeir ekki ferðir hingað út á margar plúsgráður.
En við hjónakornin og barnið vorum líklega þau einu sem töluðum íslensku
á svæðinu. Samlandar okkar höfðu ekki trú á að skynsamlegt væri að verja
helgi á íslensku tjaldsvæði við þessar aðstæður. En hvað um það. Við ákváð-
um að halda áfram að leika ferðamenn þótt hitastigið félli um kvöldmatar-
leitið á ógnarhraða niður undir núll gráðurnar. Meira að segja bjórinn hitn-
aði ekki og svei mér þá ef hann kólnaði ekki bara í höndunum á okkur. Það
var lagst til hvílu og drottinn blessi íslensku sauðkindina sem gefur af sér ull
og sem Álafoss hefur í áranna rás framleitt úr teppi. Með þeirra aðstoð kom-
umst við í gegnum nóttina og erum ekki þau fyrstu né síðustu sem sauðkind-
in bjargar frá dauða.
En veðrið í vor og það sem af er sumri hefur ekki verið neitt venjulegt og
maður ætti því að hunskast til að læra að taka mark á veðurspám og hætta
að horfa á almanök. Birkið í Húsafellsskóginum er miklu skynsamara. Lauf-
in kúra enn samanþjöppuð í knúpum og bíða þess tíma þegar hlýna tekur.
Þessi planta er nefnilega svo skynsöm að hún á enga sína líka. Hún er ekki að
sprengja út laufið til þess eins að það kali og visni. Við ákváðum eftir nokkra
yfirvegun að láta eina nótt nægja á annars frábæru tjaldsvæði. Við komum
bara aftur síðar, eftir nokkrar gráður. Það hefur nefnilega aldrei kólnað svo
svakalega, að ekki hlýni aftur.
En veðrið og hægfara sumarkoma var reyndar alls ekki það sem ég ætlaði
að skrifa um. Ég varð bara svo ritglaður um veðrið af því ég fékk aftur mátt-
inn í fingurna. Nei, það var blessuð pólitíkin. Nú eru innan við tvö ár þangað
til kosið verður til Alþingis. Þess bar glöggt merki á Alþingi um helgina. Þing-
menn voru kallaðir á vakt á sunnudaginn og skyldu samþykkja lög með hraði
sem undirbúa eiga afnám gjaldeyrishafta. Afgreiða þurfti þau fljótt og áður en
bjöllurnar hringdu markaði inn á mánudagsmorgun. Nú eru ráðamenn þjóð-
arinnar búnir að uppgötva að með því að skattleggja þrotabú föllnu bankanna,
sé hægt að öngla saman hátt í þúsund milljörðum fyrir fjárvana þjóðarbú.
Mikið afskaplega eru þetta ánægjuleg tíðindi og óska ég þess að bestu vonir
þeirra gangi eftir. Reyndar velti ég því fyrir mér, af hverju það hefur tekið heil
sjö ár fyrir stjórnendur þjóðarskútunnar að komast að þeirri niðurstöðu að
sjálfsagt væri að skattleggja hrægammasjóðina? Þeir sem keyptu kröfur föllnu
bankanna fyrir slikk og eiga ekkert inni hjá okkur sem þjóð. Hvað um það;
nú skal þessu bjargað og Guð láti gott á vita. Þar sem nú er meira en hálfnað
úr tímaglasi ríkisstjórnarinnar munu kosningaloforðin því fara að líta dagsins
ljós. Verksmiðjur, vegir og aðrar atkvæðaveiðandi framkvæmdir munu fara að
poppa upp. Komandi vetur verður því líklega mikil skóflustungutíð, vonandi
ekki þó vegna þungra snjóalaga, en örugglega vegna stjórnmálanna.
Magnús Magnússon.
Strandveiðitímabilið í júni byrjaði
ekki vel veðurfarslega en þó hafa
margir strandveiðimenn látið sig
hafa það og róið þrátt fyrir leið-
indaveður. Aflinn hefur verið með
ágætum þrátt fyrir þessa ótíð. Hálf-
bræðurnir Jens Brynjólfsson og Jón
Sigurðsson voru á strandveiðum
á fimmtudaginn. Að þeirra sögn
náðu þeir dagskammtinum, þrátt
fyrir kalda framan af degi. Alfons
Finnsson tók þessa mynd af bræðr-
unum, en sjálfur var hann á strand-
veiðum þennan dag.
mm
Náðu skammtinum þrátt fyrir kalda tíð
Meðal framkvæmda sem framund-
an eru hjá Akraneskaupstað í sumar
eru lagfæringar á Breiðinni. Unn-
ið hefur verið að hönnun svæðisins
og fyrr á árinu fékk Akraneskaup-
staður 12 milljóna króna styrk frá
Framkvæmdasjóði ferðamanna til
framkvæmda á því svæði. Nú þegar
hefur verið hafist handa við að lag-
færa trönurnar á Breið en til stend-
ur að skapa betri skilyrði á svæð-
inu og gera Breiðina að aðgengi-
legu dvalarsvæði sem nýtist íbúum
og ferðamönnum betur en það ger-
ir í dag. grþ /Ljósm. ki.
Byrjað að framkvæma á Breiðinni á Akranesi
Hér má sjá starfsmenn á vegum Akraneskaupstaðar við lagfæringar á trönunum.
Á sama tíma og unnið var við trön-
urnar sinntu menn frá Vegagerðinni
almennu viðhaldi á stóra vitanum.
Framkvæmdir á vegum Orkuveitu
Reykjavíkur eru nú hafnar að nýju
við fráveituna á Akranesi. Það er Ís-
tak sem vinnur verkið. Nú er unnið
að aðalútrás frá hreinsistöðinni við
Ægisbraut. Sjólagnir verða lagðar í
ár en meginhluti framkvæmdanna
á landi á Akranesi verða á næsta
ári. Hann felst í lagningu á um 500
metra löngum kafla við Krókalón
á Akranesi, framkvæmd sem fresta
þurfti af skipulagsástæðum á sín-
um tíma. „Viðræður við íbúa í ná-
grenni fyrirhugaðrar dælustöðvar
við Krókalón og útrás þar eru hafn-
ar en ljóst er að hafa þarf gott sam-
ráð við þá. Svona fráveitukerfi er
þannig gert að það fer ekki að virka
að fullu fyrr en nánast öllum verk-
þáttum er lokið og það á að verða
fyrir lok ársins 2016. Fjárfestingin á
Akranesi, í Borgarnesi og á Kjalar-
nesi nemur um 1,7 milljarði króna
á þessu ári og því næsta,“ segir í til-
kynningu frá OR. mm
Framkvæmdir hafnar að
nýju við fráveitu á Akranesi
Dýpkunarprammi að störfum í Kalmansvíkinni þar sem úthlaupið mun koma.
Ljósm. mþh.
Sex ára drengur skarst illa á tveim-
ur fingrum þegar hann var við leik í
rennibraut í Garðalundi á Akranesi
síðastliðinn fimmtudag. Að sögn
móður drengsins var hann að renna
sér niður rennibrautina og skarst
illa á fingrum vinstri handar þegar
fingurnir lentu á milli botns renni-
brautarinnar og hliðarinnar. Málið
var tilkynnt til bæjaryfirvalda sem
brugðust skjótt við og létu fjarlægja
rennibrautina á föstudaginn.
grþ
Skarst illa
við leik í
rennibraut
Hér má sjá hvar á rennibrautinni drengurinn skar sig.