Skessuhorn - 10.06.2015, Blaðsíða 5
11. júní fimmtudagur
11.00 Höfði, hjúkrunar- og dvalarheimili - Kvennahlaup ÍSÍ
Kvennahlaup ÍSÍ fyrir heimiliskonur á Höfða og fyrir konur sem eru í dagvist.
Aðstandendur eru velkomnir.
17.00 Guðnýjarstofa Safnasvæðinu – Opnun sýningarinnar
Saga líknandi handa
Fjölbreytt og spennandi saga heilbrigðisþjónustu á Akranesi og víðar á
landinu rifjuð upp og nokkrum stórbrotnum konum gerð skil.
Allir hjartanlega velkomnir, sýningin er opin alla daga kl. 10.00-17.00.
13. júní laugardagur
Garðavöllur - Opna Landsbankamótið
Styrktarmót barna og unglinga hjá Golfklúbbnum Leyni.
10.30 Akratorg – Kvennahlaup ÍSÍ
Hlaupið frá Akratorgi.
12.00 - 15.00 Garðakaffi - Saga þjóðbúninga
12.00 Mæting í þjóðbúningum; konur, karlar og börn.
13.00 Guðrún Hildur Rosenkjær kjóla- og klæðskerameistari
segir sögu íslenskra þjóðbúninga og útskrifar af námskeiði í þjóðbúningasaum.
Allir sem hafa þjóðbúninga til afnota eru hvattir til að mæta í þeim,
en allir hinir eru að sjálfsögðu líka velkomnir.
17. júní miðvikudagur
10.00 – 16.00 Akranesviti – Learning to Fly ... Soul Flight
Málverk og teikningar í innsetningu eftir listakonuna Danielle DeRoberts. Sýningin
byrjaði í vinnustofu listakonunnar í Colorado, en er nú sett upp í Akranesvita
og stendur til júníloka, opið alla daga kl. 10.00-16.00.
10.00 - 14.00 Safnasvæði - Þjóðlegur morgunn
Þjóðlegur morgunverður í Garðakaffi. Söfnin opin og ókeypis aðgangur.
Gestir sem mæta í þjóðbúningi fá óvæntan glaðning.
Teymt undir börnunum kl. 11.00-13.00.
Boðið verður upp á andlitsmálun. Ekta 17. júní dót til sölu.
Garðakaffi verður opið til kl. 18.00.
Hlökkum til að sjá ykkur.
10.30 Akratorg – Hvaða kellingar ?
Ganga í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna. Lagt verður af stað í
gönguna frá Akratorgi kl. 10.30. Létt og fróðleg ganga í umsjón
Skagaleikflokksins og Bókasafns Akraness.
Gangan er styrkt af framkvæmdanefnd um 100 ára kosningarétt kvenna.
11.00 – 15.00 Samsteypan, Mánabraut 20 – Opnar vinnustofur
Listamenn í Samsteypunni, Mánabraut 20 opna vinnustofur sínar.
Gestum og gangandi er velkomið að taka í pensil,
móta hluti úr leir, þrykkja í grafíkpressu, lita og skissa.
Allir eru velkomnir, börn jafnt sem fullorðnir.
13.00 – 14.00 Akraneskirkja - Hátíðarguðsþjónusta
Sr. Þráinn Haraldsson þjónar. Sveinn Arnar Sæmundsson leikur á orgel.
Vilborg Júlía Pétursdóttir nýstúdent heldur ræðu.
14.00 - 17.00 Safnaðarheimilið Vinaminni - Hátíðarkaffisala
Kaffisala kirkjunefndar Akraneskirkju. Verð kr. 2.000 fyrir fullorðna og
kr. 500 fyrir börn 6-12 ára. Athugið að enginn posi verður á svæðinu.
14.00 Frá Brekkubæjarskóla - Skrúðganga sem endar á Akratorgi
Gengið verður frá Brekkubæjarskóla, fram hjá Akraneskirkju. Að venju verða
Skólahljómsveit Akraness, Skátafélag Akraness og lögreglan í fararbroddi.
Á bilinu 14.15-14.30 Akratorg – Dagskrá hefst
• Fánahylling í umsjón Skátafélags Akraness, blásarar
Skólahljómsveitar Akraness leika undir
• Formaður menningarmálanefndar býður gesti velkomna
• Hátíðarræða, Sigríður Indriðadóttir, forseti bæjarstjórnar
• Ávarp fjallkonu
• Þjóðsöngurinn, félagar úr kór Akraneskirkju undir stjórn
Sveins Arnars Sæmundssonar
• Bæjarlistamaður Akraness 2015 heiðraður
Að lokinni hátíðardagskrá tekur við skemmtidagskrá á sviði
• Freestyle dans, Dansstudio Írisar
• Tónlistaratriði unga fólksins undir stjórn Heiðrúnar Hámundardóttur og
Samúels Þorsteinssonar, krakkar úr Brekkubæjarskóla og Grundaskóla
• Latibær
14.00 - 18.00 Merkurtún – Skemmtun fyrir börnin
Hoppukastalar og sprell!
16.00 – 18.00 Þyrlupallur á Jaðarsbökkum – Útsýnisflug í þyrlu
Spennandi nýjung. Hefur þig ekki alltaf dreymt um að sjá Akranes úr þyrlu.
Núna er tækifærið. Norðurflug ætlar að bjóða Skagamönnum uppá þyrluflug.
Þyrlan verður staðsett á þyrlupallinum og tekur hvert flug rétt um 7 mínútur.
Selt verður í ferðirnar á staðnum, verð kr. 10.000 á mann, kr. 7.000 fyrir
börn undir 12 ára. Ath. útsýnisflugið er háð veðri.
Gleðilega þjóðhátíð!
... Og svo heldur gleðin áfram...
19. til 21. júní
Norðurálsmótið, nánar á www.kfia.is/um_kfia/norduralsmot
Föstudagurinn 19. júní
Kvennréttindadagurinn. Dagskrá auglýst síðar.
Laugardagurinn 20. júní
Garðavöllur – Golfmót
Opna Texas Scramble mót Norðuráls og Opna miðnæturmót Norðuráls.
13.00 - 17.00 Suðurgata 57 – Matar- og antikmarkaður
Ekta markaðsstemning á og við Akratorg alla laugardaga 20. júní til 15. ágúst n.k.
2. - 5. júlí
Írskir dagar
Á Bókasafni Akraness er einnig sýningin „Vér heilsum glaðar framtíðinni“.
Farandsýning frá Landsbókasafni í tilefni af 100 ára afmæli
kosningaréttar kvenna.
kl. 10-17
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
::: Vinsamlega athugið að hundar eru ekki leyfilegir á útisamkomum
á Akranesi, sjá 13. grein Samþykktar um hundahald á Akranesi.