Skessuhorn - 10.06.2015, Page 6
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 20156
Kristjana Hermannsdóttir formaður bæjarráðs Snæfellsbæjar, Sigrún Ólafsdóttir
íþrótta- og æskulýðsfulltrúi og Kristín Björk Árnadóttir formaður bæjarstjórnar
klipptu á borðann við nýju aðstöðuna. Ljósmynd: Þórey Úlfarsdóttir.
Rafmagn fór af
sveitinni
MELASVEIT: Rafmagn fór
af Melasveitarlínu í Borgarfirði
kl. 12:57 á mánudaginn þegar
grafið var í háspennustreng við
Skipanes. Rafmagn komst aftur
á línuhlutann frá Brennimel að
Skipanesi um klukkustund síðar.
Straumlaust var frá Skipanesi að
Höfn fram eftir deginum vegna
viðgerðar á háspennustrengn-
um.
–mm
Fasteignasala
í maí
VESTURLAND: Á Vestur-
landi var 49 kaupsamningum
um fasteignir þinglýst í maí-
mánuði. Þar af var 21 samning-
ur um eign í fjölbýli, 20 samn-
ingar um eignir í sérbýli og
átta samningar um annars kon-
ar eignir. Heildarveltan var 908
milljónir króna og meðalupp-
hæð á samning 18,5 milljónir
króna. Af þessum 49 samning-
um voru 24 um eignir á Akra-
nesi. Þar af voru 15 samningar
um eignir í fjölbýli og níu samn-
ingar um eignir í sérbýli. Heild-
arveltan var 524 milljónir króna
og meðalupphæð á samning á
Akranesi 21,8 milljón króna. Í
sama mánuði var 94 samning-
um þinglýst á Norðurlandi, 27
á Austurlandi, 90 á Suðurlandi,
59 á Reykjanesi og 17 á Vest-
fjörðum. –mm
Segir Silicor
menga lítið
GRUNDART: „Ég fullyrði að
engin verksmiðja á Íslandi mun
menga minna,“ segir Neil Z.
Auerbach stjórnarmaður Silicor
Materials um fyrirhugaða verk-
smiðju fyrirtæksins á Grund-
artanga í opnuviðtali við Við-
skiptablaðið. Hann segir að
hluti af gagnrýni sem komið
hafi fram á verksmiðjuna byggi
á grundvallarmisskilningi. „Hún
byggir á því að við séum að nota
Siemens-tæknina, sem er ekki
reyndin,“ segir Auerbach með-
al annars í viðtalinu sem lesa má
í nýjasta tölublaði Viðskipta-
blaðsins. –mþh
Aflahæstu strand-
veiðibátarnir
LANDIÐ: Fyrsta tímabili
strandveiða lauk um mánaða-
mótin. Veiðidagar voru 14 í
maí. Dugði viðmiðunarafli á
öllum svæðum að A undan-
skildu, þar sem hann kláraðist
19. maí. Veiðidagar þar urðu
aðeins níu talsins. Ónýttur afli í
maí á svæðum B, C og D færist
yfir í júní og hækkar viðmiðun
sem því nemur. Alls voru 447
bátar sem stunduðu strandveið-
ar í maí sem er nokkru færra en í
fyrra. Þá lönduðu alls 510 bátar
strandveiðiafla í sama mánuði.
Aflinn nú varð alls 1.483 tonn.
Það er um 500 tonnum minna
en í fyrra. Þá fækkaði löndunum
um eitt þúsund sem er fjórð-
ungs samdráttur. Aflahæstu bát-
arnir á hverju svæði voru: Svæði
A: Naustvík ST 80, 7.376 kg. í
níu róðrum. Svæði B: Fengur
ÞH 207, 10.594 kg í 14 róðrum.
Svæði C: Sóley ÞH 28, 8.019
kg. í ellefu róðrum. Svæði D:
Hulda SF 197, 8.910 kg. í ellefu
róðrum. Þessar upplýsingar eru
af vef Landssambands smábáta-
eigenda. -mþb
Ekkert sést til
makríls
SNÆFELLSNES: Fyrir ári
síðan, 3. júní 2014, birti Skessu-
horn frétt þess efnis að bátasjó-
menn við veiðar umhverfis
Snæfellsness teldu sig hafa orð-
ið vara við makríltorfur. Talað
var við Arnar Laxdal Jóhanns-
son skipstjóra á Tryggva Eð-
varðs SH. „Við sáum þó nokk-
uð af torfum sem óðu í yfir-
borðinu hér í gærkvöldi. Það
lóðaði töluvert á þetta. Þetta
líktist makrílnum. Við reyndum
þó ekki að veiða neitt. Skilyrð-
in eru líka óvenjuleg. Sjórinn
í yfirborðinu hérna við Snæ-
fellsnesið er tveimur gráðum
heitari en á sama tíma í fyrra,“
sagði Arnar þá. Réttu ári eft-
ir, eða síðastliðinn miðvikudag
höfðum við samband við Arn-
ar þegar hann var staddur úti á
miðunum. Í þetta sinn er hann
á strandveiðum, þar sem bátur
hans Tryggvi Eðvarðs er farinn
í slipp en á síðan að fara til mak-
rílveiða í lok mánaðar. Nú eru
skilyrði önnur en á sama tíma í
fyrra. „Það er miklu kaldari sjór
núna heldur en á sama tíma í
fyrra. Þetta getur þó vissulega
breyst mjög fljótt. En við höf-
um ekki orðið varir við neinn
makríl. Þó virðist meira af síli
af ferðinni en áður. Það gúl-
past upp úr þorskinum þegar
við drögum hann um borð. Það
er mjög mikið af æti alls staðar
fyrir þorskinn. Til að mynda er
nú mikið af síld bæði við Arnar-
stapa og Malarrifið,“ sagði Arn-
ar.
-mþh
Óhapp í
umferðinni
BORGARFJ: Ökumaður missti
stjórn á bifreið sinni í Norður-
árdal í Borgarfirði að morgni
sl. laugardags. Bifreiðin valt og
hafnaði á hliðinni. Ökumaður
og barn í aftursæti hlutu minni-
háttar meiðsli. Bifreiðin var
flutt af vettvangi með kranabíl.
–mm
Íbúar Snæfellsbæjar voru í hátíðar-
skapi á föstudaginn þegar nýtt úti-
svæði fyrir sundlaugargesti var vígt
í blíðskaparveðri. Fjölmargir gestir
voru saman komnir til þess að fagna
þessum merka áfanga. „Það er er
mikið gæfuspor að fá þessa glæsilega
útaðstöðu. Við erum með tvo heita
potta, vaðlaug og lendingarbraut
fyrir rennibrautina, auk þess sem
gervigras er við sólbaðsaðstöðuna,“
segir Sigrún Ólafsdóttir íþrótta- og
æskulýðsfulltrúi Snæfellbæjar í sam-
tali við Skessuhorn.
Sigrún segir ennfremur að inni-
aðstaðan í sundlauginni sé ger-
breytt. „Þar voru settir stórir
gluggar á húsið. Mikil fjölgun hef-
ur orðið í gestakomu í sundlaug-
ina eftir þessar breytingar allar. Ég
á von á því að þeim fjölgi enn frek-
ar, nú þegar þessi nýja útiaðstaða er
komin í notkun. Við mætum þessu
með lengri opnunartíma. Nú verð-
ur opið alla daga vikunnar. Á virkum
dögum verður opið frá klukkan 7:30
á morgnana til 22. Um helgar er svo
opið frá klukkan 10 til 17.“ af
Umsvif og framkvæmdagleði er
að aukast í Borgarnesi. Blaðamað-
ur Skessuhorns var staddur á skrif-
stofu verkfræðistofunnar Verk-
íss í vikunni sem leið. Starfsmenn
þar létu vel af verkefnastöðunni og
töldu ljóst að framkvæmdahugur
væri að aukast. Voru þeir að ganga
frá útboðsgögnum fyrir endurnýj-
un Kveldúlfsgötu í Borgarnesi.
„Allar veitulagnir í götunni voru
orðnar lélegar. Gangstétt nán-
ast ónýt. Vatnslagnir í götunni
hafa verið mjög viðhaldsfrekar og
kostnaðarsamar, leki úr lögnum,
þannig að endurnýjun var orðin
mjög aðkallandi,“ segir Gísli Kar-
el Halldórsson hjá Verkís. Hann
segir að áform hafi verið um end-
urnýjun Kveldúlfsgötu fyrir efna-
hagshrunið. „Eins og mörg sveitar-
félög þá fór Borgarbyggð illa út úr
hruninu og skuldahlutfall fór yfir
viðmiðunarmörk. Strax eftir hrun-
ið var því hætt við alla endurnýjun
Kveldúlfsgötu því fjármagn var ein-
faldlega ekki til. Borgarbyggð hefur
unnið staðfastlega að því undanfar-
in ár að bæta fjárhagsstöðu, laga og
styrkja rekstur. Í sumar munu sveit-
arfélagið ásamt Orkuveita Reykja-
víkur, Mílu og Rarik standa saman
að endurnýjun allra lagna í Kveld-
úlfsgötu og gangstétta. Eftir þessar
framkvæmdir geta íbúar við götuna
fengið góða ljósleiðaratengingu inn
í hvert hús, auk þess sem viðhald
og lekar lagnir ættu að heyra sög-
unni til.“
mm
Þeir voru á skrifstofu Verkíss í síðustu viku, f.v. Jökull Helgason, Hlynur Ólafsson
og Gísli Karel Halldórsson.
Verkísmenn undirbúa
útboðsgögn við Kveldúlfsgötu
Fulltrúar Lionsklúbbanna í Snæfellsbæ með leikfangaorm sem þeir gáfu
sundlauginni og á eflaust eftir að vekja mikla lukku hjá ungum sem eldri.
Ljósmynd: Árni Guðjón Aðalsteinsson.
Nýtt útisvæði vígt við sundlaug Ólafsvíkur