Skessuhorn - 10.06.2015, Síða 8
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 20158
Minna
útflutnings-
verðmæti 2014
LANDIÐ: Árið 2014 var út-
flutningsverðmæti sjávaraf-
urða 244 milljarðar króna en
árið á undan var verðmæt-
ið 272 milljarðar, eða 10%
minna. Þorskurinn er enn
verðmætasta tegundin sem frá
landinu fer og nemur verð-
mæti hans 89 milljörðum
króna eða um 36% af heild-
arútflutningsverðmæti sjávar-
afurða. Útflutningsverðmæti
uppsjávartegunda eins og
síldar, kolmunna, makríls og
loðnu nam samtals 62 millj-
örðum króna. Útflutnings-
verðmæti loðnuafurða hafa
lækkað á milli ára, en megin-
ástæða lækkandi útflutnings-
verðmæta er að loðnuaflinn
hefur minnkað um 350 þús-
und tonn á milli ára. Heildar-
afli loðnu fór úr 460 þúsund
tonnum árið 2013 í 111 þús-
und tonn árið 2014 samkvæmt
vef Fiskistofu. Þá hefur gengi
krónunnar einnig styrkst á
milli ára um 4,5% bæði gagn-
vart Bandaríkjadollara og evru.
Eins hefur verðvísitala upp-
sjávarfisks lækkað um 0,5% á
milli ára. Úkraína hefur verið
stór kaupandi í uppsjávarteg-
undum eins og síld og mak-
ríl, en mikilvægir markaðir í
Austur-Evrópu hafa verið erf-
iðir og mikil óvissa ríkir þar.
–mm
Aflatölur fyrir
Vesturland
30. maí - 5. júní.
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes 24 bátar.
Heildarlöndun: 29.037 kg.
Mestur afli: Emilía AK:
2.916 kg í þremur löndunum.
Arnarstapi 24 bátar.
Heildarlöndun: 38.820 kg.
Mestur afli: Gestur SH:
3.132 kg í fjórum löndunum.
Grundarfjörður 34 bátar.
Heildarlöndun: 207.838 kg.
Mestur afli: Hringur SH:
66.531 kg í einni löndun.
Ólafsvík 37 bátar.
Heildarlöndun: 218.521 kg.
Mestur afli: Guðmundur
Jensson SH: 56.208 kg í fjór-
um löndunum.
Rif 35 bátar.
Heildarlöndun: 362þ033 kg.
Mestur afli: Tjaldur SH:
125.367 kg í tveimur löndun-
um.
Stykkishólmur 29 bátar.
Heildarlöndun: 115.169 kg.
Mestur afli: Þórsnes SH:
38.756 kg í einni löndun.
Topp fimm landanir á tíma-
bilinu:
1. Örvar SH – RIF:
70.304 kg. 1. júní
2. Hringur SH – GRU:
66.531 kg. 3. júní
3. Tjaldur SH – RIF:
66.254 kg. 5. júní
4. Tjaldur SH – RIF:
59.113 kg. 31. maí
5. Rifsnes SH – RIF:
47.066 kg. 3. júní
mþh
Píratar mælast
næst stærstir
NV-KJÖRD: Samkvæmt nýlegri
könnun Gallup á fylgi stjórn-
málaflokka þá mælist Sjálfstæð-
isflokkurinn með mest fylgi í
Norðvesturkjördæmi, eða 28,8%.
Píratar koma næstir með 20,1%.
Framsóknarflokkurinn mælist
í þriðja sæti með 19,5% fylgi.
Samfylkingin mælist með 13,5%,
VG 9,9% og Björt framtíð með
4,9%. Ef þetta yrðu niðurstöður
þingkosninga þá fengi Sjálfstæð-
isflokkur tvo kjördæmakjörna
þingmenn, Píratar tvo, Fram-
sóknarflokkurinn einn, Samfylk-
ingin einn og VG einn. Norð-
vesturkjördæmi mælist sterk-
asta vígi ríkisstjórnarflokkanna á
gervöllu landinu. Samanlagt fylgi
þeirra nálgast helming atkvæða,
48,3%. Á landsvísu er það mik-
il sigling Pírata sem vekur hvað
mesta athygli. Þeir mælast með
34,1% og fengju þannig 24 kjör-
dæmakjörna þingmenn. Fram-
sóknarflokkurinn, stærsti sig-
urvegari síðustu þingkosninga,
mælist hins vegar einungis með
8,9% og fengi samkvæmt því
fjóra kjördæmakjörna þingmenn
yrðu það niðurstöður þingkosn-
inga. Þessir þingmenn kæmu all-
ir úr landsbyggðakjördæmunum
þremur. -mþh
Ævintýraleg fjölg-
un ferðamanna
LANDIÐ: Um 91 þúsund er-
lendir ferðamenn fóru frá land-
inu í maí síðastliðnum samkvæmt
talningum Ferðamálastofu í Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar, eða 24.300
fleiri en í maí á síðasta ári. Aukn-
ingin nemur 36,4% milli ára.
Aukning hefur verið milli ára alla
mánuði frá áramótum eða 34,5%
í janúar, 34,4% í febrúar, 26,8% í
mars og 20,9% í apríl. Þriðjung-
ur ferðamanna kemur frá Banda-
ríkjunum og Bretlandi. Af ein-
staka þjóðernum fjölgaði Banda-
ríkjamönnum, Bretum, Þjóðverj-
um og Kínverjum mest milli ára
í maí en 8.772 fleiri Bandaríkja-
menn komu í maí í ár en í fyrra,
2.437 fleiri Bretar, 1.949 fleiri
Þjóðverjar og 1.048 fleiri Kín-
verjar. Þessar fjórar þjóðir báru
uppi um 58% aukningu ferða-
manna í maí.
–mm
Sameining skóg-
ræktarstarfs í
athugun
LANDIÐ: Sigrún Magnúsdótt-
ir umhverfisráðherra hefur skip-
að starfshóp til að skoða fýsileika
þess að sameina skógræktarstarfs
ríkisins í eina stofnun. Um er að
ræða Skógrækt ríkisins og lands-
hlutaverkefni í skógrækt, sem eru
Vesturlandsskógar, Skjólskógar á
Vestfjörðum, Norðurlandsskóg-
ar, Héraðs- og Austurlandsskóg-
ar og Suðurlandsskógar, auk um-
sjónar Hekluskógaverkefnisins.
Markmið vinnunnar er m.a. að
samræma stjórnsýslu skógrækt-
armála og gera hana skilvirkari,
auka faglega getu og yfirsýn og
að efla búsetu á landsbyggðinni,
m.a. með því að styrkja starfs-
stöðvar í héraði. Er starfshópn-
um ætlað að greina hver sam-
legð sameiningar skógræktar-
starfs ríkisins yrði og skila í lok
ágúst greinargerð um hugsanleg-
an ávinning og áskoranir. Hópn-
um er ætlað að hafa náið samráð
við Landssamtök skógareigenda
og Skógræktarfélag Íslands.
–mm
„Samtök atvinnurekenda á sunnan-
verðum Vestfjörðum (SASV) fagna
mjög þeirri ákvörðun Skipulags-
stofnunar að fallast á beiðni Vega-
gerðarinnar um heimild til endur-
upptöku á þeim hluta úrskurðar
stofnunarinnar um mat á umhverf-
isáhrifum Vestfjarðavegar sem varða
rúmlega 15 km kafla frá Þorska-
firði og vestur fyrir Gufufjörð og fer
meðal annars um Teigsskóg. Það er
von SASV að Vegagerðin hraði nú
eins og kostur er vinnu sinni að gerð
nýrrar tillögu að matsáætlun svo
hefja megi framkvæmdir eins fljótt
og kostur er,“ segir í tilkynningu frá
samtökunum. Þá segir að ákvörð-
un Skipulagsstofnunar grundvall-
ist á þeim verulegu breytingum
sem Vegagerðin hefur gert á fram-
kvæmdaáformum sínum á svæðinu,
ekki síst í Teigsskógi, þar sem horf-
ið hefur verið frá efnistöku með til-
heyrandi vegslóðum. Stofnunin telur
einnig að breytingar á legu vegarins
og hönnun þverana yfir Djúpafjörð
og Gufufjörð séu líklegar til að hafa
áhrif á umhverfismat framkvæmdar-
innar hvað varðar áhrif á skóglendi,
landslag og leirur og fjörur.
„Endurbætur á hönnun þessa
hluta Vestfjarðarvegar marka veru-
leg þáttaskil til aukinna framfara
fyrir efnahag íbúa og vaxandi at-
vinnulíf á sunnanverðum Vestfjörð-
um, allt frá Bíldudal til Reykhóla.
Bættar vegsamgöngur og aukið um-
ferðaröryggi á Vestfjarðarvegi mun
skjóta enn styrkari stoðum undir
vöxt svæðisins með auknum ferða-
mannastraumi, lífvænlegri sam-
félögum til búsetu og fyrir fyrirtæki
svæðisins sem þurfa að koma að-
föngum og vörum vestur og afurð-
um á markaði innanlands og erlend-
is,“ segja atvinnurekendur á sunnan-
verðum Vestfjörðum.
mm
Binda vonir við jákvæð þáttaskil
í Teigsskógsmálinu
Teikning úr Framkvæmdafréttum Vegagerðarinnar, sem sýnir legu vegarins sam-
kvæmt tillögunni nú.
„Það er búið að leggja klæðingu
á sex kílómetra hér í Svínadaln-
um. Það var gert í fyrra. Nú í ár
erum við að leggja á 2,5 kílómetra
til viðbótar. Þá er búið að leggja
klæðningu vestur úr inn að bæn-
um Kambshóli. Þessu á að vera lok-
ið 15. júlí. Það sem eftir stendur þá
af veginum er síðan spottinn þaðan
austur að veginum sem liggur að og
frá Draganum. Það eru svona tveir
til þrír kílómetrar. En með þessu er
búið að leggja slitlag að sumarbú-
staðahverfunum vestan Kambs-
hóls,“ sagði Óskar Ólafsson fram-
kvæmdastjóri hjá verktakafyrir-
tækinu Óskataki þegar blaðamað-
ur Skessuhorn ók fram á hann og
menn hans við störf í Svínadalnum
í síðustu viku. Óskar var þar með
mannskap og vélar við endurbæt-
um á veginum. Flestir sumarbú-
staðaeigendur norðanvert í Svína-
dal eiga því að geta ekið á malbiki
inn dalinn síðar í sumar.
Óskar bætti við að nú veitti vart
af því að fara að huga að því að
endurbæta veginn og leggja slitlag
yfir Ferstikluháls og Dragann nið-
ur í Skorradal og þaðan í Andakíl-
inn. „Það er mikil og sívaxandi um-
ferð eftir þessari leið, ekki síst hjá
erlendum ferðmönnum. Þeir fylgja
leiðsögutækjunum í bílunum sem
gefa þetta upp sem stystu leið milli
Hvalfjarðar og Borgarfjarðar. Mað-
ur þekkir þá á aksturslaginu þegar
þeir stoppa til að líta í kringum sig
og ná áttum þegar þeir uppgötva
að vera allt í einu komnir inn á af-
skekktan malarveg.“ mþh
Bundið slitlag lagt á Svíndal í Hvalfjarðarsveit
Menn frá Óskataki við vegagerð í Svínadal í síðustu viku. Frá vinstri: Guðgeir Hans
Kolsöe, Óskar Ólafsson framkvæmdastjóri og Adam Örn Óskarsson.
Jökulmílan er lengsta hjólakeppni
fyrir einstaklinga sem haldin er á
Íslandi. Hún fer fram þann 20. júní
næstkomandi og er samstarfsverk-
efni Grundarfjarðarbæjar, Snæ-
fellsbæjar, Stykkishólmsbæjar og
hjólreiðafélaganna Hjólamanna og
Þríkó-hjóla. Vegalengdin sem hjól-
uð verður er rétt rúmlega 100 ensk-
ar mílur eða 162 km. Lagt er af stað
frá Grundarfirði og hjólað til vest-
urs gegnum Rif, fyrir Snæfellsjök-
ul, til baka eftir suðurströnd Ness-
ins og norður yfir Vatnaleið áður
en endað er í Grundarfirði á ný.
Fyrir þá sem ekki treysta sér til
að hjóla alla 162 kílómetrana er
vert að nefna að einnig verður í
boði að fara hálfa Jökulmílu, 80km
leið frá Grundarfirði til Stykkis-
hólms og til baka, sem og Mílu-
spretturinn sem ætlaður er yngri
þátttakendum. Þar verða hjólaðir
nokkrir hringir um Grundarfjarð-
arbæ þar sem fjöldi hringja fer eftir
aldri þátttakenda.
„Þetta er fyrir alla, óháð getu og
aldri. Hugsunin er að sem flestir
af sem breiðustum hópi geti not-
ið þess að takast á við þessa áskor-
un,“ sagði Einar Stefán Kristins-
son, einn skipuleggjenda viðburð-
arins, í samtali við Skessuhorn á
dögunum. „Þarna er hjólað eftir
strandlengju Snæfellsness, gegn-
um þjóðgarð, kringum jökul og í
nálægð við friðað fuglavarp. Þar
fyrir utan er lítil umferð og útsýn-
ið frábært. Ég veit ekki hvort þetta
er möguleiki nokkurs staðar annars
staðar í heiminum,“ bætir hann við.
„Ég hef hjólað þessa leið nokkrum
sinnum sjálfur og það er æðislegt.“
Aðspurður segir hann skráningu
fara vel af stað og allt útlit fyrir að
þátttaka verði að minnsta kosti jafn
góð og í fyrra. „Undirbúningur er
í fullum gangi og skráningu lýk-
ur 16. júní næstkomandi. Ég hvet
alla til að skrá sig til leiks á www.jo-
kulmilan.is og njóta þess að takast
á við þessa áskorun í fallegu um-
hverfi,“ segir hann að lokum.
kgk
Jökulmílan er hjólreiðamót fyrir alla
Þátttakendur Jökulmílunnar í fyrra með Kirkjufell í baksýn. Ljósm. aðsend.