Skessuhorn - 10.06.2015, Page 14
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 201514
Síðastliðinn föstudag voru 24 nem-
endur brautskráðir frá Mennta-
skóla Borgarfjarðar í Borgarnesi.
22 nemendur luku stúdentsprófi
og tveir nemendur útskrifuðust
af starfsbraut. Dúx skólans er Úr-
súla Hanna Karlsdóttir. Hún hlaut
viðurkenningu Arionbanka fyrir
besta árangur á stúdentsprófi og
jafnframt hlaut hún viðurkenn-
ingar frá danska sendiráðinu fyr-
ir dönsku, Stofnun Vigdísar Finn-
bogadóttur fyrir góðan árangur í
erlendum tungumálum, Háskólan-
um í Reykjavík fyrir góðan árang-
ur í raungreinum og Stærðfræð-
ingafélaginu fyrir góðan árangur í
stærðfræði. Karlotta María Scholl
er semidúx skólans. Hún hlaut við-
urkenningu fyrir góðan árangur í
náttúruvísindum frá Gámaþjón-
ustu Vesturlands og frá Kvenfélagi
Borgarness fyrir góðan árangur í
íslensku. Alexandra Rut Jónsdótt-
ir hlaut viðurkenningu Mennta-
skóla Borgarfjarðar fyrir sjálfstæði,
færni og framfarir í námi. Viður-
kenningu Borgarbyggðar fyrir góð
störf í þágu félagslífs nemenda
og við stjórn NMB hlutu Alex-
andra Rut, Helena Rós Helgadótt-
ir og Ingibjörg Jóhanna Kristjáns-
dóttir. Kristrún Kúld Heimisdótt-
ir hlaut viðurkenningu Sjóvár fyr-
ir góðan árangur í íþróttagreinum.
Hvatningarverðlaun Zontaklúbbs
Borgarfjarðar hlaut Angela Da-
nuta Gonder og Hvatningarverð-
laun Límtrés Vírnets hlaut Krist-
ófer Már Gíslason. Gunnar Árni
Hreiðarsson hlaut viðurkenningu
Menntaskóla Borgarfjarðar fyr-
ir vandaðasta lokaverkefnið. Berg-
lind Ýr Yngvarsdóttir lauk stúd-
entsprófi frá náttúrufræðibraut –
búfræðisviði og er hún fyrsti nem-
andinn sem lýkur þessu námi sem
er samstarfsverkefni MB og Land-
búnaðarháskóla Íslands.
Lilja S. Ólafsdóttir, aðstoðar-
skólameistari flutti annál skólans,
Guðrún Jónsdóttir forstöðumaður
Safnahúss Borgfirðinga, flutti gesta-
ávarp og af hálfu nýstúdenta talaði
Sigrún Rós Helgadóttir.
Guðrún Björg Aðalsteinsdóttir,
skólameistari, ræddi m.a. í ávarpi
sínu mikilvægi þess að geta stund-
að nám í heimabyggð, jákvæð áhrif
skólans í nærsamfélaginu og mikil-
vægan stuðning fyrirtækja og stofn-
ana við skólastarfið. Hún minnti á
þau fjölbreyttu tækifæri sem ungu
fólki standa til boða hvað nám varð-
ar og hvatti útskriftarnema til þess
að nýta þau vel.
mm/menntaborg.is
Brautskráð frá Menntaskóla Borgarfjarðar
Úrsúla Hanna Karlsdóttir var dúx
skólans.
Ljósm. úr safni Skessuhorns
frá því í vetur.
Útskriftarhópurinn ásamt skólameistara og aðstoðarskólameistara. Ljósm. menntaborg.is
Af því tilefni að 100 ár eru liðin frá
því að konur fengu kosningarétt
á Íslandi er saga formæðra okkar
rifjuð upp vítt og breytt um land-
ið. Í Guðnýjarstofu í Safnaskálan-
um á Akranesi er verið að setja upp
eina slíka sýningu þar sem brugð-
ið er upp myndum af sögu líknandi
handa. Hjúkrun, yfirseta og öll
umönnun barna og aldraðra hefur
meira og minna verið í verkahring
kvenna í áranna rás, við mismun-
andi aðstæður. „Á sýningunni verð-
ur því sýnt örlítið brot af öllu því
sem sagan geymir um þessi efni og
með sýningunni eru heiðraðar þær
konur sem hafa með fórnfýsi og
umhyggju líknað, huggað og grætt
mein í gegnum árin,“ segir Ingi-
björg Pálmadóttir bæjarfulltrúi og
formaður starfshópsins sem sér um
undirbúning sýningarinnar. Það er
Akraneskaupstaður sem setur upp
sýninguna í samstarfi við Byggða-
safnið, Skjalasafnið, Ljósmynda-
safn Akraness og Heilbrigðisstofn-
un Vesturlands en Menningarráð
Vesturlands styrkti verkefnið.
Skyggnst inn í
störf ljósmæðra
Á sýningunni verður hægt að
skoða mismunandi búnað og að-
stæður sem konurnar unnu við á
árum áður. „Byrjað er hjá Krist-
rúnu á Bjargi frá Akranesi, sem tók
í sinn litla bæ sjúklinga til hjúkr-
unar og náði þar undraverðum ár-
angri. Fyrsti sjúklingurinn kom
í hennar umsjá vorið 1886 en þá
var Ólafur Ólafsson læknir á Akra-
nesi. Hann þekkti hreinlætið og
nærgætnina sem húsfreyjan bjó
yfir þrátt fyrir þröngan húsakost
hennar og erfiðar aðstæður,“ seg-
ir Ingibjörg. Sett verður upp eld-
hús í sýningarsalnum, þar sem líkt
er eftir eldhúsi Kristrúnar. Því
næst er hægt að skyggnast inn í
störf ljósmæðra á Skaganum. Þar
er Guðrúnar Gísladóttur minnst,
sem var fyrsta og eina konan sem
gerð hefur verið að heiðursborg-
ara á Akranesi. „Hún var einstök
að allri gerð. Fæddist árið 1868 og
tók á móti 1.163 börnum á Akra-
nesi. Sett verður upp rúm og gert
herbergi þar sem líkt er eftir að-
stæðum á þeim tíma sem hún starf-
aði sem ljósmóðir,“ útskýrir Ingi-
björg. Sett verður upp apótek til
minningar um Fríðu Proppé sem
rak apótekið við Suðurgötu frá
1935 - 1973. Á skjá í sýningarsaln-
um verða sýnd viðtöl við nokkra
heilbrigðisstarfsmenn sem eiga sér
langa og merka sögu. Meðal ann-
ars er viðtal við Sigurlínu Gunn-
arsdóttur sem var önnur tveggja
hjúkrunarkvenna þegar sjúkra-
húsið var opnað á Akranesi. Einn-
ig verður sett upp í salnum sjúkra-
stofa, þar sem sýnt er hvernig börn
og fullorðnir lágu saman á sjúkra-
stofum.
Þakklæti og virðing við
allar líknandi hendur
„Við minnumst fyrstu menntuðu
hjúkrunarkvennanna og þeirrar
breytingar sem varð þegar sjúkra-
húsið tók til starfa. Þá eru bæjar-
og skólahjúkrunarkonunni Jónu
B. Guðmundsdóttur gerð góð skil.
Hún vó, mældi, bólusetti, plástraði
og huggaði flesta þá Skagamenn
sem nú eru á miðjum aldri og það-
an af eldri. Margir minnast hennar
með sérstakri virðingu og hlýju,“
segir Ingibjörg. Munirnir á sýning-
unni eru meðal annars fengnir að
láni frá Þjóðminjasafninu, Stykk-
ishólmi og Hvammstanga. „Sýndir
verða búningar hjúkrunarkvenna
fyrri tíma og jafnvel farkostir
þeirra. Við höfum átt gott samstarf
við Þjóðminjasafnið en þar hefur
Bergdís Kristjánsdóttir hjúkrunar-
fræðingur safnað gömlum munum
og búnaði sem tengist hjúkrun og
lækningum og varðveitt þá,“ seg-
ir Ingibjörg. Hún segir sýninguna
setta upp með djúpri virðingu og
þakklæti við allar líknandi hend-
ur, þó að aðeins fárra þeirra verði
getið á sýningunni. „Þeir sem hafa
tekið saman sögu þessara og ann-
arra skyldra þátta og varðveitt þá í
tímans rás eiga einnig skilið þakk-
læti okkar. Allar þessar sögur eig-
um við að þakka mönnum eins og
Þorkeli Kristinssyni, sem skrifaði
80 ára sögu Sjúkrahúss Akraness,
svo ekki sé talað um Braga Þórð-
arson sem varðveitt hefur ómetan-
legar heimildir og skráð.“
grþ
Guðrúnu Gísladóttur ljósmóður eru
gerð góð skil á sýningunni. Hér er hún
með þúsundasta barnið sem hún tók
á móti.
Sýningin Saga líknandi handa sett upp á Akranesi
Jón Allansson, forstöðumaður Byggðasafnsins, Ingibjörg Pálmadóttir og Anna Leif Elídóttir, verkefnisstjóri hjá Akranes-
kaupstað, við gamalt sjúkrarúm. Á myndina vantar Guðjón Brjánsson en hann hefur unnið ötullega með nefndinni.