Skessuhorn - 10.06.2015, Qupperneq 15
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2015 15
Ísgöngin í Langjökli voru vígð
formlega með mikilli viðhöfn
föstudaginn 5. júní síðastliðinn.
Alls voru um hundrað gestir við-
staddir vígsluna að meðtöldu fjöl-
miðlafólki. Hópurinn lagði af stað
frá Húsafelli áleiðis upp að Geitá
þaðan sem jöklatrukkar óku gest-
um upp á jökul að gangamunn-
anum. Sigurður Skarphéðinsson,
framkvæmdastjóri Into the glacier,
eignarhaldsfélagsins um ísgöngin
í Langjökli, bauð gesti velkomna
og setti dagskrána. Það var síðan
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðn-
aðar- og viðskiptaráðherra, sem
vígði göngin formlega þegar hún
reiddi ísöxi til höggs og klauf ís-
klump í tvennt. Að svo búnu hélt
hún stutta tölu þar sem hún lýsti
ánægju sinni með framtakið sem
hún taldi til þess fallið að hvetja
ferðaþjónustuaðila á svæðinu til
frekari uppbyggingar í atvinnu-
greininni.
Anna G. Sverrisdóttir, stjórn-
arformaður ísganganna, ávarpaði
samkomuna og Gissur Páll Giss-
urarson tenór söng fyrir gesti og
vakti flutningur hans á Hamra-
borginni lukku meðal áheyrenda.
Að lokum fræddi Ari Trausti Guð-
mundsson jarðfræðingur gesti um
Langjökul og jökla almennt. Að
formlegri dagskrá lokinni skoð-
uðu gestir sig um og nutu veit-
inga í boði Hótels Húsafells. Ósk-
ar Guðjónsson saxófónleikari beið
hópsins við enda hringsins og lék
ljúfa tóna fyrir gesti og gangandi.
Ekki var annað að heyra en flestir
gesta væru ánægðir en líklega voru
engir jafn lukkulegir með daginn
og aðstandendur ganganna. „Þetta
var stórkostlegt í alla staði, veðr-
ið alveg eftir pöntun og við erum
virkilega ánægð með mætinguna,“
sagði Ingibjörg Ásta Halldórsdótt-
ir, markaðsstjóri Into the glacier,
eftir ferðina og bætti því við að ís-
göngin væru kærkomin viðbót við
afþreyingarmöguleika í ferðaþjón-
ustu á Íslandi. Enn fremur tók hún
í sama streng og Ragnheiður Elín
og taldi opnun ganganna skapa
meðbyr fyrir landshlutann í heild.
kgk
Ísgöngin í Langjökli vígð formlega af ráðherra
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, vígði göngin. Það
gerði hún með því að kljúfa ísklump í tvennt með ísöxi og var hæstánægð með að
takast verkið í fyrstu atrennu. Gestir fylgdust með dagskrá og nutu veitinga í boði Hótels Húsafells.
Jöklatrukkarnir sem fluttu gesti upp á Langjökul. Þeir voru áður notaðir til að
flytja sprengjuflaugar.
Gestir ganga inn í ísgöngin við upphaf ferðarinnar. Starfsfólk Into the glacier ánægt eftir vel heppnaða vígslu
ganganna.
Gangamunninn lætur lítið yfir sér utan frá séð.
Hópurinn hlýddi á jöklafróðleik Ara
Trausta Guðmundssonar.
Óskar Guðjónsson lék á saxófón
meðan gestir skoðuðu sig um.
SEPT O AID eru þurrfrystar örverur tilbúnar til
að brjóta niður allan lífrænan úrgang í rotþróm.
Kemi • Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík • www.kemi.is • Sími: 415 4000
Opið: Mánudag - fimmtudags: Frá kl. 8.00-17.30. Föstudaga: Frá kl. 8.00-17.00.
KOMDU ROTÞRÓNNI
Í LAG MEÐ
SEPT-O-AID
UMHVER
FISVÆN
VARA F
RÁ KEM
I
Samsetning 13 mismunandi örvera hjálpar til að vinna á og minnka fastan úrgang
og breyta í fljótandi form ásamt því að eyða allri ólykt frá rotþrónni. Einfalt í notkun;
sett í klósett skálina og beðið í 20 mínútur, því næst er efninu skolað niður.