Skessuhorn - 10.06.2015, Síða 17
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2015 17
Tveir hópar úr Grunnskóla Grund-
arfjarðar unnu til verðlauna í verk-
efni Landsbyggðarvina sem kall-
ast „Sköpunargleði - Heimabyggð-
in mín: Nýsköpun, heilbrigði og for-
varnir“. Hóparnir varð í fyrsta og
öðru sæti í keppninni. Í vetur hafa
nemendur í 7.-10. bekk í Grunnskóla
Grundarfjarðar tekið þátt í verk-
efninu ásamt nemendum úr Grunn-
skóla Patreksfjarðar og Grunnskóla
Drangsness. Verkefnið var í tveim-
ur hlutum og unnu Grundfirðingar
einnig til verðlauna í fyrri hlutanum.
„Í fyrri hlutanum unnu krakkarn-
ir einstaklingsverkefni þar sem þeir
skrifuðu ritgerð um það sem betur
má fara í sínum heimabæ. Í seinni
hlutanum var unnið í hópum og þá
komu þau með hugmyndir sem þau
útfærðu nánar,“ segir Unnur Birna
Þórhallsdóttir, kennari í Grunnskóla
Grundarfjarðar.
Heitir pottar í
Kolgrafafirði
Áslaug Stella Steinarsdóttir, Emilía
Rós Sólbergsdóttir, Freyja Líf Ragn-
arsdóttir og Lydía Rós Unnsteins-
dóttir nemendur í 8. bekk mynduðu
hópinn sem hlaut fyrstu verðlaun í
keppninni. Þær settu fram hugmynd
um hvernig nýta mætti heitt vatn í
Kolgrafafirði í lífræna, heita potta.
Jarðhiti er ekki algengur á Snæfells-
nesi en heitt vatn hefur fundist á Ber-
serkseyrarodda í mynni Kolgrafa-
fjarðar. Vatnið er aftur á móti ekki
nothæft þar sem það tærir málma.
„Hugmyndin snerist um að setja þar
tvö kör og gera heita potta. Hægt
væri síðan að mynda skjól með gras-
hólum og byggja kofa fyrir fataskipti.
Þá datt þeim líka í hug að sniðugt
væri að gera ylströnd á svæðinu þar
sem heita vatnið rennur út í sjó. Þarna
væri þá komin fullkomin aðstaða fyr-
ir ferðamenn og þá sem stunda sjó-
böð,“ útskýrir Unnur Birna. Stúlk-
urnar í hópnum bjuggu til líkan eft-
ir hugmyndinni og komu einnig með
hugmyndir að aðilum sem hugsan-
lega gætu styrkt verkefnið.
Vilja bæta
íþróttaaðstöðu
Hópurinn sem varð í öðru sæti
kom með hugmyndir að því hvern-
ig mætti betrumbæta alla íþrótta-
aðstöðu í Grundarfirði. Hópur-
inn samanstóð af stúlkum úr 7.
og 8. bekk, þeim Elvu Björk Jóns-
dóttur, Brynju Gná Heiðarsdóttur,
Björgu Hermannsdóttur og Tönju
Lilju Jónsdóttur. Þær stungu meðal
annars upp á því að bæta mætti að-
stöðu fyrir frjálsar íþróttir, til dæm-
is með því að byrja á því að malbika
hlaupabrautir og atrennubraut-
ir og að bæta geymsluaðstöðu fyr-
ir íþróttaáhöldin. Þær skiptu hug-
myndum sínum í þrjá flokka; eitt-
hvað sem hægt væri að gera strax,
það sem mætti gera á næstu árum
og að lokum það sem flokkaðist
til stórra drauma. Í hugmyndum
stúlknanna kom meðal annars fram
að strax væri hægt að snyrta og laga
til í kringum íþróttavöllinn, að laga
sand í gryfjum og að hægt væri að fá
tjald til að skipta salnum í íþrótta-
húsinu. Þær voru með hugmyndir
um að settur yrði sólpallur og sól-
baðsbekkir við sundlaugina og að
rusl yrði hreinsað af golfvellinum.
Þá stungu þær upp á því að strax
yrði farið í umræður um hvar hægt
væri að byggja skólahreystibraut og
að fundið yrði skíðasvæði fyrir allt
Snæfellsnes. Stúlkurnar komu svo
með fleiri hugmyndir sem tengdust
svæðunum um það sem hægt væri
að gera á næstu árum.
Hátíðleg athöfn
Að sögn Unnar Birnu myndað-
ist góð stemning í hópunum þeg-
ar krakkarnir voru komnir á skrið
með verkefnið. „Það tók smá tíma
að koma þeim í gang en svo þegar
það var komið þá gekk þetta ljóm-
andi vel. Þetta var flott og skemmti-
legt hjá þeim, það komu fram fjór-
ar hugmyndir sem allar voru fram-
kvæmanlegar og góðar.“
Verðlaunaafhending fór svo
fram í Norræna húsinu 27. maí
síðastliðinn. Unnur segir athöfn-
ina hafa verið flotta og mjög há-
tíðlega. „Þetta var allt saman mjög
formlegt. Þarna voru flutt ávörp og
meðal þeirra sem komu fram var
Ragnheiður Elín Árnadóttir ráð-
herra og Sigurður Björn Blöndal
formaður borgarráðs. Krakkarn-
ir kynntu verkefnin sín og svo var
verðlaunaafhending.“ Fyrstu verð-
laun voru 100 þúsund krónur en
25 þúsund krónur fengust í verð-
laun fyrir annað sætið. „Stelpurnar
settu peningana í bekkjarsjóð sem
við munum svo nýta til að gera eitt-
hvað skemmtilegt saman seinna,“
segir Unnur Birna að endingu.
grþ
Hlutu fyrstu og önnur verðlaun í verkefni Landsbyggðarvina
Líkanið sem stúlkurnar gerðu af hugmynd sinni í Kolgrafafirði.
Frá verðlaunaafhendingunni. Frá vinstri: Fríða Vala Ásbjörnsdóttir framkvæmda-
stjóri Landsbyggðarvina, Unnur Birna Þórhallsdóttir umsjónarkennari, Áslaug
Stella, Emilía Rós, Freyja Líf, Lydía Rós og Ragnheiður Elín Árnadóttir ráðherra.
Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ laugardaginn 13. júní.
Sýnum öðrum hlaupurum
tillitssemi og skiljum hunda og
önnur gæludýr eftir heima.
Þátttökugjald:
12 ára og yngri: 1.000 kr.
13 ára og eldri: 1.500 kr.
Hlaupið er á eftirtöldum
stöðum á Vesturlandi:
Innfalið er Kvennahlaupsbolurinn
og verðlaunapeningur.
AKRANES: Hlaupið frá Akratorgi kl. 10:30. Vegalengdir í boði:
2 km og 5 km. Forsala í íþróttamiðstöðinni á Jaðarsbökkum og á
Akratorgi að morgni hlaupadags. Ávaxtaveisla í boði eftir hlaup.
HVALFJARÐARSVEIT: Hlaupið frá Heiðarborg í Hvalfjarðarsveit
kl. 10:30. Vegalengdir í boði: 1,5 km, 3 km og 5 km. Forsala á
skrifstofu Hvalfjarðarsveitar og hjá Guðnýju í s. 846 0162.
BORGARNES: Hlaupið frá íþróttamiðstöðinni kl. 11:00.
Vegalengdir í boði: 2,5 km og 5,5 km. Forsala á bolum í
íþróttamiðstöðinn föstudaginn 12. júní.
HVANNEYRI: Hlaupið frá Sverrisvelli á Hvanneyri kl. 11:00.
Vegalengdir í boði: 2 km og 5 km. Forsala hjá Sólrúnu Höllu á
netfangið solla@vesturland.is. Ókeypis í sund í Hreppslaug fyrir
þær konur sem hlaupa á Hvanneyri.
REYKHOLT: Hlaupið frá Fosshóteli Reykholti kl. 11:15, upphitun
hefstkl. 11:00. Forskráning verður í móttökunni á Fosshóteli
Reykholti frá kl. 10:45. Vegalengdir í boði: 1,6 km sem liggur í
gegnum skóg og 1,2 km á malbiki. Fosshótel Reykholti býður
öllum súpu og salat að loknu hlaupi. Skráning og frekari uppls
í síma 435 1260 eða á reykholt@fosshotel.is
STYKKISHÓLMUR: Hlaupið frá Íþróttamiðstöðinn i kl. 11:00.
Vegalengdir í boði: 3 km, 5 km og 7 km. Forsala í Heimahorninu.
Ókeypis í sund að loknu hlaupi.
GRUNDARFJÖRÐUR: Hlaupið frá íþróttahúsinu kl. 11:00.
Hver og einn ræður sinni vegalengd en tímaramminn er 40 mín.
Forsala hjá Kristínu Höllu í síma 899 3043.
SNÆFELLSBÆR: Hlaupið frá Sjómannagarðinum í Ólafsvík kl.
11:00. Vegalengdir í boði: 2,5 km og 5 km. Forsala í Sundlaug
Ólafsvíkur. Ókeypis í sund að loknu hlaupi.
STAÐARSVEIT: Hlaupið frá Lýsuhólsskóla í Staðarsveit kl. 11:00.
Vegalengdir í boði: 2,5 km og 5 km. Ókeypis í sund í Lýsuhólslaug
að loknu hlaupi.
HELLISSANDUR: Hlaupið frá Hraðbúð Hellissands kl. 11.
Vegalengdir í boði: 2,5 km og 5 km. Forsala í Naustabúð 6.
BÚÐARDALUR: Hlaupið frá Leifsbúð í Búðardal og Tjarnarlundi
í Saurbæ kl. 11:00. Vegalengdir í boði: 1 km og 2,2 km. Forsala í
síma 823 7060 (Tóta) eða 823 3098 (Bjögga). Einnig á netfangið
the12@simnet.is.
REYKHÓLAR: Hlaupið frá Grettislaug kl. 11:00. Vegalengdir í
boði: 2 km, 3 km, 5 km og 7 km.