Skessuhorn


Skessuhorn - 10.06.2015, Síða 20

Skessuhorn - 10.06.2015, Síða 20
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 201520 Sjómannadagurinn á Vesturlandi Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur í Ólafsvík eins og í öllum helstu útvegsplássum landsins. Áhöfnin á Ólafi Bjarnasyni SH var heiðruð fyrir björgun úr sjávarháska. Þórður Almar Björnsson, sem bjargað var utan við Hellissand 19. maí eftir að bátur hans Herkúles SH sökk, er lengst til hægri. Ljósm. af. Í Grundarfirði buðu útgerðir íbúum og gestum að fara í skemmtisiglingu. Hér er hópur um borð í Farsæli SH. Ljósm. sk. Í tilefni Sjómannadagsins var einn sjómaður heiðraður við guðs- þjónustu á Akranesi. Það er Hallgrímur Þór Hallgrímson. Hann er lýðveldisbarn, fæddur 8. apríl 1944. Hér er Hallgrímur Þór í hópi ásamt valinkunnu fólki, m.a. formanni verkalýðsfélagsins, sóknar- presti, bróður, presti, forsvarsmönnum bæjarfélagsins og fánabera. Ljósm. Sigríður Valdimarsdóttir. Konur í slysvarnadeildinni Líf á Akranesi stóðu sig að vanda með prýði og buðu upp á veglegt kaffihlaðborð í Jónsbúð. Ljósm. mm. Andlitsmálun, sykurfrauð og blöðrublástur var meðal þess sem boðið var upp á við Jónsbúð á sunnudaginn. Ljósm. mm. Sjómannadagsráð Grundarfjarðar heiðraði tvo fyrrverandi sjómenn í sjómannamessu síðasta sunnudag. Þá var splunkuný orða kynnt til sögunnar en það var Þorgrímur Kolbeinsson hjá Lavaland sem hannaði og bjó til þessar fallegu orður. Það voru heiðursmennirnir Magnús Álfsson, Gunnar Magnússon og Friðsemd Ólafsdóttir, eiginkona Gunnars, sem fengu orðu að þessu sinni við hátíðlega athöfn í Grundarfjarðarkirkju. Með þeim á myndinni eru séra Aðalsteinn Þorvaldsson og Jón Frímann Eiríksson formaður sjómannadagsráðs. Ljósm. tfk. Keppt var í sjómanni á sjómannadaginn á Akranesi. Hér er Ólafur Adolfsson dómari ásamt sigurvegaranum, Stefáni sterka Rafnssyni. Ljósm. mm. Illugi Jónasson, Pétur Steinar Jóhannsson og Börkur Guðmundsson sjómaður sem var heiðraður í Ólafsvík á sjómannadaginn. Ljósm. af. Tekið á því í reiptogi í Ólafsvík. Ljósm. af. Í Stykkishólmi voru þeir Jens Óskarsson og Pétur Ágústsson heiðraðir á sjómannadaginn. Á myndinni má sjá þá ásamt konum sínum, þeim Ingveldi Ingólfsdóttur og Svanborgu Siggeirsdóttur. Ljósm. sá.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.