Skessuhorn - 10.06.2015, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2015 21
Í tilefni af sjómannadeginum
sunnudaginn 7. júní, fóru börn og
starfsmenn í leikskólanum Teiga-
seli á Akranesi í skrúðgöngu í síð-
ustu viku niður að bryggju. Skoð-
uðu þau bátana og enduðu á Akra-
torgi þar sem farið var í ýmsa leiki.
Vilhjálmur formaður Verkalýðs-
félags Akraness og Kristófer, fyrir
hönd sjómanna, komu og gáfu öll-
um harðfisk. Meðfylgjandi myndir
bárust Skessuhorni frá Teigaseli.
mm
Sjómanna-
dagurinn
í Teigaseli
Grundfirskir sjómenn kíktu í heim-
sókn í leikskóla bæjarins eins og
þeir gera á hverju ári í aðdraganda
sjómannadags. Þá komu þeir með
þessar algengustu fisktegundir og
sýndu krökkunum. Þau sýndu þessu
mikinn áhuga. Að lokum skoruðu
sjómenn svo á krakkana í reiptog
og vakti það mikla lukku. Frábært
framtak hjá þeim. tfk
Sjómenn skoruðu á
börnin í reiptog
Fimmtudaginn 28. maí síðastliðinn
var Leiðtogadagur í leikskólunum
Andabæ á Hvanneyri og Hnoðra-
bóli á Grímstöðum í Reykholtsdal.
Þar sýndu leiðtogarnir hvernig þeir
hafa verið að vinna með venjurn-
ar sjö og þjálfa leiðtogafærni sýna
út frá hugmyndafræði Leiðtogans í
mér. Leiðtogadagurinn er hugsað-
ur að hann sé barnanna, þau tóku
á móti gestunum, voru með upp-
ákomu í sal, leiddu gesti um leik-
skólana og sýndu þeim það sem
þau hafa verið að gera. Í lokin buðu
börnin gestum upp á veitingar sem
þau tóku þátt í að útbúa. Rúmlega
30 boðsgestir komu á leiðtogadag-
inn sem tókst í alla staði mjög vel.
Eftir hádegi var svo opið hús á báð-
um stöðum og voru foreldrar sem
og fólk í samfélaginu duglegt að
koma í heimsókn og vill starfsfólk
leikskólana þakka öllum kærlega
fyrir komuna.
Leiðtoginn í mér (The Leader in
Me) er hugmyndafræði fyrir skóla
sem byggir á bók Steven R. Co-
vey „The 7 Habits of Highly Ef-
fective People“. Hún gengur út
á það byggja upp sterka einstak-
linga með góða leiðtogafærni til
að takast á við áskoranir í lífi og
starfi. Tilgangurinn er að undirbúa
næstu kynslóð undir það að tak-
ast á við áskoranir og tækifæri 21.
aldarinnar. TLiM snýst ekki um
að búa til litla leiðtoga úr öllum
börnum, heldur að hjálpa hverjum
einstaklingi til að blómstra. Hver
einstaklingur fær tækifæri til að
vinna út frá sínum eigin styrkleik-
um og verða besta útgáfa af sjálf-
um sér. TLiM byggir upp skilningi
og færni til að geta borið ábyrgð á
eigin ákvörðunum og þannig mót-
að líf sitt til hins betra ásamt því að
þroska samskiptahæfni nemenda og
starfsfólks. Nánari upplýsingar er
hægt að finna á heimasíðu: www.
theleaderinme.org/
Fjórir leikskólar í Borgarbyggð
og Grunnskóli Borgarfjarðar taka
þátt í þessu verkefni og hafa þeir
nú allir haldið leiðtogadag og hafa
þeir heppnast mjög vel og verið
skemmtilegir.
-fréttatilkynning.
Leiðtogadagur í leikskólunum Andabæ og Hnoðrabóli í Borgarbyggð
Leiðtogar á Hnoðrabóli með gestum.Móttökuleiðtogar á Hnoðrabóli taka á móti Kolfinnu Jóhannesdóttur sveitar-
stjóra og Birni Bjarka Þorsteinssyni sveitarstjórnarmanni.
Kveðjuleiðtogar á Hnoðrabóli færa gestum sínum sólblóm í kveðjugjöf.
Elín María Björnsdóttir sem hefur
innleitt verkefnið leiðtoginn í mér inn
í skólana í Borgarbyggð ásamt elstu
börnunum í Andabæ og Áslaugu Ellu
Gísladóttur, leikskólastjóra.
Gestir á leiðtogadeginum í Andabæ.