Skessuhorn - 10.06.2015, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 201522
„This is the best hot dog I´ve had in
my whole life (Þetta er besta pylsan
sem ég hef fengið á ævinni).“ Ung-
ur bandarískur ferðalangur stend-
ur fyrir utan pylsuvagninn Meist-
arann í Grundarfirði á föstudag í
síðustu viku. Hann hefur rétt lokið
við að snæða Henrik sem heitir eft-
ir eiginmanni sjálfrar Danadrottn-
ingar. Henrik, er djúpsteikt pylsa
með hvítlaukssósu, Doritos snakki,
meðlæti, bræddum osti og kryddi.
Blaðamaður Skessuhorns getur
vitnað um að þessi orð Bandaríkja-
mannsins eru sögð í einlægni. Pyls-
urnar hjá Meistaranum eru lost-
æti. Við tökum pylsusalann tali á
meðan túristarnir háma í sig pyls-
urnar skammt undan og blaðamað-
ur Skessuhorns át eina af þremur
pylsum sínum. Þær eru einfaldlega
betri en gerist og gengur í íslensk-
um pylsusjoppum.
Danska konungsfjöl-
skyldan í hávegum
„Pylsurnar er skírðar eftir dönsku
konungsfjölskylduni. Fólk getur
fengið sér drottninguna Þórhildi,
mann hennar Henrik eða soninn
Jóakim og áfram má telja. Ég erfði
þetta úr þeim danska bæ Stykk-
ishólmi en ég keypti pylsuvagn-
inn þaðan með matseðlinum árið
2011. Sá matseðill var mjög góð-
ur og ég hef bætt aðeins við hann
síðan,“ segir Baldur Orri Rafnsson,
tónlistarkennari og veitingamað-
ur í Grundarfirði. „Ég rek pylsu-
vagninn Meistarann og Kaffi Emil í
Sögumiðstöðinni, hvort tveggja hér
í bænum. Þetta er fimmta sumarið
með pylsuvagninn og annað sum-
arið með Kaffi Emil. Þetta geng-
ur mjög vel. Það er ágæt umferð af
fólki. Ég sé þó merkilegan mun á
pylsuvagninum og kaffihúsinu. Hér
í pylsunum eru um 80% viðskipta-
vinanna Íslendingar. Á kaffihúsinu
er þessu öfugt farið. Þar eru um
80% gestanna erlendir ferðamenn.
Það er dálítið magnað að sjá hvern-
ig þetta skiptist.“
Samlegð með kaffihúsi
Veitingamaðurinn segir að það
sé ágætur grundvöllur fyrir því
að reka pylsuvagn í Grundarfirði.
„Við erum með opið í um hundr-
að daga á hverju sumri. Það kem-
ur mjög vel út að vera með kaffihús
og svo pylsuvagn hér handan við
götuna. Ég næ fram ágætum sam-
legðaráhrifum eins og það heitir á
fínu máli. Það er nánast engin yfir-
bygging á pylsuvagninum, í grunn-
inn er þetta bara vagn á hjólum sem
stungið er í samband við rafmagn.
Það er meiri yfirbygging á kaffi-
húsarekstri. Þar er maður kominn í
húsnæði sem þarf að uppfylla miklu
meiri kröfur og hafa ákveðin leyfi.“
Baldur Orri starfar annars sem
tónlistarkennari í Grundarfirði og
hefur gert í tíu ár. „Ég er úr höf-
uðborginni og kom hingað á sínum
tíma til að kenna tónlist. Ég kann
mjög vel við mig hér í Grundar-
firði. Þó ætlum við hjónin að breyta
til í haust og flytja suður. Ég ætla
samt að kenna áfram hér og aka á
milli. Konan mín fer í ársleyfi frá
sinni stöðu hér í Grundarfirði. Við
ætlum aðeins að breyta um um-
hverfi án þess þó að sleppa hendi af
möguleikanum á að koma aftur. Ég
stefni svo að því að reka pylsuvagn-
inn áfram hér með kaffihúsi. Þetta
er bara skemmtilegt.“
mþh
Hópur bekkjarfélaga sem útskrif-
uðust fyrir 34 árum frá Klepp-
járnsreykjaskóla gerði sér rútuferð
í Borgarfjörðinn um síðustu helgi.
Farið var með nýuppgerðri Soffíu
II, gamla skólabíl hópsins, en Arnar
Guðnason, einn af þeim sem stóðu
að endurgerð rútunnar, er einmitt
einn nemanda úr árganginum. Há-
markshraði Soffíunnar er 60 km/
klst þannig að ferðin tók drjúga
stund og orsakaði bílaröð á þjóð-
veginum á stundum. Í ferðinni var
gróðursettur ilmreynir á skólalóð-
inni og bæði núverandi og fyrr-
verandi skólastjórnendur heilsuðu
upp á hópinn. Á heimleiðinni var
svo komið við í Landnámssetrinu í
Borgarnesi og snæddur þar kvöld-
verður. mm/ Ljósm. hb.
Bæjarstjórn Snæfellsbæjar sam-
þykkti á fundi nýverið að ganga
til samninga við Hilmar Má Ara-
son um að taka við stöðu skóla-
stjóra Grunnskóla Snæfellsbæj-
ar. Hilmar Már hefur starfað við
Grunnskóla Borgarness síðustu 29
ár, fyrst sem grunnskólakennari en
sem aðstoðarskólastjóri frá 1997.
Þá hefur hann leyst af sem skóla-
stjóri í þrígang. Hann segir starf-
ið leggjast vel í sig, enda sé það
spennandi og skólinn áhugaverð-
ur. „Það er gott skólastarf á Snæ-
fellsnesi og áhugaverð verkefni sem
unnið er að. Verkefni sem snúa að
átthagafræði, Olweusaráætluninni
gegn einelti og skólinn er auk þess
Grænfána skóli,“ segir Hilmar í
samtali við Skessuhorn. Hann seg-
ir Grunnskólann í Borgarnesi einn-
ig vera Grænfána skóla og því þekki
hann vel til þess verkefnis. „Í átt-
hagafræðinni er lögð áhersla á nær-
umhverfið í námi og kennslu, sem
mér finnst skemmtileg nálgun. Svo
er mikilvægt að skólar taki á einelt-
ismálum með skipulögðum hætti,“
heldur hann áfram. Hilmar seg-
ir Grunnskóla Snæfellsbæjar vera
ólíkan Grunnskólanum í Borgar-
nesi að því leyti að hann sé á þrem-
ur mismunandi stöðum; í Ólafsvík,
á Hellissandi og Lýsuhóli. „Það er
spennandi að kynnast slíkri skóla-
gerð. Það sem maður þekkir er að
allir séu undir sama þaki en þetta er
öðruvísi og áhugavert að kynnast.
250 nemendur eru í skólanum, sem
er heldur færra en í Borgarnesi.
Þetta er draumastærð af skóla,“
segir hann.
Hilmar er Norðfirðingur að
uppruna, fæddur og uppalinn í
Neskaupstað. Eiginkona hans er
frá Tálknafirði en þau kynntust í
Borgarnesi, þar sem þau voru bæði
við störf. „Ég kom í Borgarnes eft-
ir útskrift og ætlaði upphaflega bara
að kenna þar í eitt eða tvö ár. En
árunum fjölgaði og alltaf lengd-
ist tíminn,“ segir Hilmar sem flyst
nú búferlum ásamt fjölskyldu sinni
á Snæfellsnes í sumar. „Ég á von
á því að samfélagið á Snæfellsnes-
inu sé svipað og fyrir austan. Þeg-
ar ég horfi úr fjarlægð á Snæfellsbæ,
finnst mér það spennandi og kröft-
ugt samfélag, þarna er mikil nátt-
úrufegurð og gott mannlíf.“ Hilmar
tekur við starfi skólastjóra 1. ágúst
næstkomandi. Hann segist fara frá
Borgarnesi í sátt og samlyndi við
menn og umhverfi. „Ég er þakklát-
ur fyrir árin mín í Nesinu. Hér hef
ég átt góðan tíma, kynnst mörgu
góðu fólki sem ég hef átt góð sam-
skipti við. Grunnskólinn í Borgar-
nesi er góður skóli þar sem starfar
gott starfsfólk, skemmtilegir nem-
endur og áhugasamir foreldrar sem
ég vil þakka fyrir ánægjuleg kynni í
gegnum tíðina.“
grþ
Um helmingur gamla bekkjarins mætti í ferðina. Hér er unga fólkið aftast í
Soffíunni enda alltaf mest sport í að sitja þar.
Gerðu sér rútuferð á æskuslóðir
Hópurinn við ilmreynirinn og skólann sinn ásamt Guðlaugi Óskarssyni og Ingi-
björgu Ingu Guðmundsdóttur.
Þrátt fyrir að um 80% viðskiptavina pylsuvagnsins séu Íslendingar þá líta erlendir
ferðalangar einnig þar við og þeim fjölgar ört á Snæfellsnesi þessa dagana.
Danska konungsfjölskyldan
fæst pylsuð í Grundarfirði
Baldur Orri Rafnsson í ríki sínu, pylsuvagninum Meistaranum í Grundarfirði.
Hilmar Már Arason.
Hilmar Már Arason ráðinn skóla-
stjóri Grunnskóla Snæfellsbæjar
Líkt og glöggir vegfar-
endur á Akranesi hafa
tekið eftir hefur Heil-
brigðisstofnun Vestur-
lands látið setja upp hita-
mæli og klukku á suður-
endanum á elsta hluta
sjúkrahússins. Til stend-
ur að samskonar tæki
verði von bráðar einnig
sett upp framan á heilsu-
gæslustöð HVE í Borg-
arnesi. Gestir og gang-
andi geta þá séð hvað
tímanum líður og fylgst
með hitastigi.
grþ/Ljósm. ki
Hitamælir og klukka á HVE