Skessuhorn - 10.06.2015, Side 25
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2015 25
Fimmtudaginn 4. júní synti Ágúst
Júlíusson, sundmaður úr Sund-
félagi Akraness, flugsundsprett-
inn í 4x100m fjórsundsboðsundi
þegar sveit Íslands hreppti silf-
urverðlaun á Smáþjóðaleikunum
sem fóru fram í Reykjavík í síð-
ustu viku. Fyrr þann sama dag
synti Ágúst í úrslitum 50m skrið-
sunds og hafnaði í fjórða sæti á
nýju Akranesmeti. Fyrra met-
ið átti hann sjálfur en bætti það
um 0,46 sekúndur. Daginn áður
keppti Ágúst í úrslitum 100m
flugsunds og hafnaði í fimmta
sæti á tímanum 56,22 sek. sem
er aðeins 0,24 sek. frá hans besta
tíma.
Nafn: Ágúst Júlíusson
Fjölskylduhagir/búseta: Í sam-
bandi.
Íþróttafélag/íþróttagrein: Æfi
sund með Sundfélagi Akraness.
Hvað hefurðu stundað íþrótt-
ina lengi? 22 ár með smá hléum.
Hvað þykir þér skemmtilegast
við íþróttina? Félgsskapurinn og
hreyfingin.
Áhugamál: Íþróttir og ferðalög.
Keppnisdagurinn: Fimmtudag-
urinn 4. júní.
Klukkan hvað vaknaðirðu og
hvað var það fyrsta sem þú
gerðir? Vaknaði kl. 7:15, burst-
aði tennur og svona.
Hvað borðaðirðu í morgun-
mat? Hafragrautur og smá brauð
á farfuglaheimilinu í Laugardal.
Hvenær fórstu á keppnisstað
og hvernig? Ég lagði af stað
gangandi kl. 8:30.
Fyrstu verk í þegar þangað
var komið: Taka góða upphit-
un á bakkanum og skella sér svo í
laugina til að taka létta æfingu því
ég átti bara að keppa seinnipart-
inn þennan dag.
Hvernig undirbýrðu þig fyrir
keppni? Það þarf að borða vel,
hita vel upp og koma hausnum í
rétt stand.
Hvað varstu að gera klukkan
10? Þá var ég búinn á æfingu og
var mættur á bakkann til að hvetja
liðsfélagana.
Hvað gerðirðu í hádeginu?
Hádegismatur í skautahöllinni í
Laugardal
Hvað varstu að gera klukkan
14? Ég var að hvíla mig uppi á
farfuglaheimili.
Hvernig leið þér á meðan
keppni stóð? Mér leið alveg
svakalega vel.
Hvenær lauk keppni og hvað
var það síðasta sem þú gerðir í
þennan keppnisdag? Ég var bú-
inn að keppa um kl. 19 og eftir
það var stuttur fundur með þjálf-
urum og svo niðursund
Hvað gerðirðu eftir að keppni
lauk? Við fórum í kvöldmat í
skautahöllinni og svo beint upp á
farfuglaheimili.
Hvað var í kvöldmat og hver
eldaði? Það var þorskur, burrito
pasta og margt annað. Snilling-
arnir sem sáu um matinn á smá-
þjóðaleikunum elduðu fyrir okk-
ur.
Hvernig var kvöldið? Það var
frekar rólegt, kíkti aðeins í tölv-
una og slakaði á.
Hvenær fórstu að sofa? Var
kominn upp í rúm um 22.
Hvað var það síðasta sem þú
gerðir áður en þú fórst að sofa?
Þá fékk ég nudd frá sjúkraþjálfar-
unum sem var með okkur.
Hvað stendur upp úr eftir dag-
inn? Silfur í 4x100m fjórsund-
boðsundi þar sem ég bætti minn
besta tíma í 100m flugsundi
og svo líka 4. sætið og bæting á
Akranesmeti um hálfa sek. í 50m
skriðsundi.
Eitthvað að lokum? Vil þakka
öllum fyrir stuðningin sem ég hef
fengið undanfarin ár.
Dag ur í lífi...
Afreksíþróttamanns
Bókasafn Akraness og Leikfélagið
Skagaleikflokkurinn munu standa
fyrir fræðslugöngu á 17. júní í tilefni
af 100 ára kosningaafmæli kvenna.
Starfsfólk bókasafnsins sá um heim-
ildaleit fyrir gönguna en Skagaleik-
flokkurinn sér um gjörninginn. „Við
sóttum um styrk til Framkvæmda-
nefndar um 100 ára afmæli kosninga-
réttar kvenna og fengum 200 þúsund
krónur til að halda þessa fræðslu-
göngu. Rölt verður um gamla hluta
bæjarins og við segjum frá nokkrum
konum sem voru áhugaverðar. Við
náum auðvitað ekki að segja frá þeim
öllum, það verða því miður marg-
ar ónefndar,“ segir Halldóra Jóns-
dóttir bæjarbókavörður í samtali við
Skessuhorn.
Yfirskrift göngunnar verður
„Hvaða kellingar?“ og að sögn Hall-
dóru verður gangan bæði létt og
fróðleg. „Þarna segjum við frá kon-
um sem flestar eru fæddar í kringum
1900 en sú yngsta sem sagt verður frá
er nýlátin. Við segjum frá fyrstu og
einu konunni sem var heiðursborg-
ari á Akranesi, verkalýðskonum og
fleirum. Þetta eru konur sem gerðu
mikið fyrir samfélagið, voru hvetj-
andi fyrir aðrar konur, réðu sér sjálf-
ar og studdu og hvöttu aðrar konur
til sjálfstæðis. Svo eru það allt saman
konur sem koma að þessari fræðslu-
göngu.“ Fræðslugangan verður hluti
af hátíðardagskrá 17. júní á Akra-
nesi. Hist verður klukkan 10:30 við
Landsbankahúsið. „Svo göngum við
þennan hring og endum aftur á upp-
hafsreit þar sem þátttakendur geta
fengið sér kaffi og konfekt og hlust-
að á Huldu Gestsdóttur syngja. Þetta
tekur allt saman um klukkustund og
verður búið um klukkan 12.“
Tvær ólíkar
sýningar
Tvær sýningar eru nú í Bókasafni
Akraness. Snemma í síðustu viku
var sett upp farandsýningin „Vér
heilsum glaðar framtíðinni“. Sýn-
ingin er á vegum Landsbókasafns Ís-
lands – Háskólabókasafns en Fram-
kvæmdanefnd um 100 ára afmæli
kosningaréttar kvenna styrkir sýn-
inguna. Á henni er rekin saga kosn-
ingaréttar á Íslandi og sérstaklega
kosningaréttar kvenna, auk þess sem
kvennabaráttu og jafnréttismálum
eru gerð skil. Í yfirskrift sýningar-
innar er vitnað í orð Bríetar Bjarn-
héðinsdóttur kvenréttindakonu. Þá
er einnig á bókasafninu handverks-
sýning félagsstarfs aldraðra og ör-
yrkja. Þar eru sýndir munir frá vetr-
arstarfinu en hópur fólks sótti starf-
ið í vetur. „Þarna eru sýnd fjöl-
breytt verk, til dæmis munir úr leir,
gleri, silki, perlusaum, prjónavörur
og margt fleira. Verkin lýsa vel því
skapandi starfi sem fer þarna fram
en þetta félagsstarf er mikilvægur
þáttur í lífi margra,“ segir Halldóra.
Á sýningunni má einnig finna upp-
lýsingar um félagsstarfið. Farand-
sýningin stendur út júnímánuð en
handverkssýningin verður til júlí-
loka og eru þær opnar á afgreiðslu-
tíma bókasafnsins.
grþ
Fimmtudaginn 4. júní síðastliðinn
var Svandísarstofa vígð á Dvalar-
heimilinu Jaðri í Ólafsvík. Svandís-
arstofa er til minningar um Svan-
dísi Elímundardóttur frá Dverga-
steini á Hellissandi. Svandís, sem
var fædd 16. desember 1925, eft-
irlét Snæfellsbæ peningaupphæð
sem nota átti til uppbyggingar fyr-
ir Dvalarheimili aldraðra í bæn-
um, en hún lést 25. febrúar 2004.
Stofnaður var sjóður utan um þessa
peningagjöf. Við vígsluna sagði Ás-
björn Óttarsson frá Svandísi og ævi
hennar í nokkrum orðum áður en
Heimir Gíslason klippti á borðann.
Inga Kristinsdóttir, forstöðumaður
Dvalarheimilisins Jaðars, bauð svo
gestum að þiggja kaffiveitingar um
leið og hún sagði frá því að undan-
farin ár hefði Dvalarheimilið get-
að keypt ýmis hjúkrunartæki vegna
þessa sjóðs og hann því nýst afar
vel. þa
Vísindamenn við rannsóknasetrið
Vör í Ólafsvík stunda ýmsar rann-
sóknir í sumar á lífríki Breiðafjarð-
ar. Erlingur Hauksson sjávarlíf-
fræðingur hóf störf hjá Vör á síð-
asta ári. Hann segir að vísinda-
menn Varar hafi fylgst árlega með
vorkomunni í firðinum og stund-
að umhverfisrannsóknir allar göt-
ur síðan 2007. „Fyrsta ferð ársins í
þessu skyni var farin á föstudaginn
í síðustu viku. Í fyrra fórum við tólf
svona ferðir. Við reynum að fara
með tíu daga millibili allt sumarið,“
segir hann.
Umhverfis- og
fæðurannsóknir
Erlingur útskýrir að í þessum ferð-
um sé fylgst með magni svifþör-
unga og svifdýra í Breiðafirði á einu
svokölluðu sniði innst í Breiðafirði.
Það er rétt austan við Flatey og
fylgir línu sem dregin er frá norðan-
verðum Breiðafirði suður að Þórs-
nesi. Þarna eru fimm staðsetningar
eða stöðvar þvert yfir fjörðinn þar
sem gerðar eru mælingar og tekin
sýni. Sjávarhitinn er mældur, tekin
sýni af sjónum til efnagreiningar og
sýni til að athuga magn blaðgrænu
eða svifþörunga til að sjá hvernig
stendur til með gróðurinn. Svo er
einnig mæld selta og súrefni í sjón-
um. „Við eigum enn eftir að vinna
úr því sem við söfnuðum á föstudag
en þetta var kannski eitthvað að-
eins lélegra en á sama tíma í fyrra.
Sjórinn er enn kaldur, svona um sex
gráður þarna innarlega í Breiða-
firðinum. Háfurinn sem við notuð-
um til að kanna magn svifþörunga
var aðeins litaður af þeim en það er
ekki óvanalegt á þessum tíma. Það
fylgir hækkandi sól.“
Í sumar verða einnig stundaðar
rannsóknir á fæðu þriggja nytjafisk-
tegunda í Breiðafirði. „Við erum að
athuga fæðu þorsks, ýsu og makríls.
Í sumar ætlum við að safna mán-
aðarlega 50 mögum úr hverri fisk-
tegund í Breiðafirði og greina inni-
haldið til að rannsaka hvað fiskarn-
ir eru að éta. Þar erum við sérstak-
lega að reyna að fylgjast með hvort
það sé eitthvað síli í fæðunni. Þetta
er nýtt verkefni sem byrjaði í síð-
asta mánuði og er styrkt af svo-
kölluðum Veiðikortasjóði. Sá sjóð-
ur styrkir aðallega fugla- og spen-
dýrarannsóknir en sílið skiptir auð-
vitað sjófuglana miklu máli. Sílið er
tengiliður milli sjávarins og lands-
ins því fuglarnir sækja matinn í haf-
ið en verpa jú á landi og þar eru
ungarnir.“
Hringormasmit
og fjörur
Rannsóknasetrið Vör er einn-
ig þátttakandi í stóru rannsóknar-
verkefni varðandi hringorm í fiski
í samvinnu við Matís. Það er styrkt
af AVS rannsóknasjóðnum. „Það er
til athugunar að skoða aðferðir til
að reyna að draga úr tíðni hring-
orma í fiskafurðum. Fyrir allmörg-
um árum stóð yfir átak til að fækka
sel við landið en hringormasmitið
berst í fiska gegnum selina. Þeim
hefur fækkað verulega við landið en
ekki er vitað hvort hringormi hafi
fækkað að sama skapi. Það stend-
ur til að kanna þetta núna, en tíðni
hringorma í fiski hefur ekki ver-
ið rannsökuð í ein 15 ár,“ segir Er-
lingur. Sjálfur starfaði hann um ára-
bil hjá svokallaðri hringormanefnd
sem stóð fyrir fækkun sela við land-
ið sem var liður í baráttunni við að
halda hringormatíðni niðri í fiski
við landið.
Annað verkefni sem Vör hyggst
nú sinna er að rannsaka fjörur við
Breiðafjörð. „Þar ætlum við að
fylgjast með þörungum og lýsa
fjörum í Breiðafirði til að búa til það
sem kalla má fjöruvísi. Það verð-
ur lífríki fjaranna lýst, mismunandi
gerðir þeirra skráðar, myndir tekn-
ar af lífverum sem finnast í fjörun-
um og áfram má telja. Í framhald-
inu má búa til eins konar gagna-
grunn og hafa hann opin á netinu
þannig að fólk geti fræðst af því,“
segir Erlingur Hauksson sjávarlíf-
fræðingur.
mþh/ Ljósm. af.
Ágúst Júlíusson, sundmaður hjá
Sundfélagi Akraness, á Smáþjóða-
leikunum í Reykjavík í síðustu viku.
Ljósm. aðsend.
Sveitin sem hreppti silfurverðlaun í
4x100m fjórsundsboðsundi á Smá-
þjóðaleikunum. F.v. Ágúst Júlíusson,
Kolbeinn Hrafnkelsson, Anton Sveinn
McKee og Alexander Jóhannesson.
Ljósm. aðsend.
Svandísarstofa vígð á Jaðri
Vör rannsakar og vaktar
umhverfið í Breiðafirði
Erlingur mælir umhverfisgildi í sjónum
í innanverðum Breiðafirði. Kristinn
skráir niður tölurnar.
Erlingur Hauksson með mæliglas á lofti við umhverfisrannsóknir í grennd við
Flatey á Breiðafirði síðastliðinn föstudag. Kristinn Kristinsson líffræðingur frá
Grundarfirði, sem einnig starfar hjá Vör, fylgist með.
Hluti kvennanna sem starfa á bókasafninu við sýninguna „Vér heilsum glaðar
framtíðinni“. Frá vinstri: Gerður Jóhanna Jóhannsdóttir héraðsskjalavörður, Ásta
Björnsdóttir bókavörður og Halldóra Jónsdóttir forstöðumaður.
Fræðslugangan „Hvaða kellingar?“ á Akranesi