Skessuhorn - 10.06.2015, Page 29
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2015 29
Til sölu Toyota Highlander árg. 2004
7 manna bíll með dráttarkrók. Ekinn
200.000 km. Nýbúið að skipta um
tímareim. Sími 693-9080.
Svefnsófi
Nýlegur tungusvefnsófi (eins og hálfs
árs) frá Húsgagnahöllinni til sölu. Grár
að lit, svo til ónotaður. Upplýsingar í
síma 865-7558.
Kisur vantar heimili
Er með tvær sætar og ljúfar kisur sem
þurfa nýtt heimili. Eru kassavanar.
Nánari upplýsingar í síma: 438-1441
eða 780-7989.
Óskum eftir íbúð
Ungt par með 4 ára stelpu. Óskum
eftir 3-4 herbergja íbúð í Borgarnesi
í kringum ágúst-september. Erum
reglusöm, róleg og reyklaus,
skilvísum greiðslum heitið. Getum
fengið meðmæli frá fyrri leigusala.
Greiðslugeta er 140 þús. á mánuði.
618-7879, Hrund og 690-3624,
Þóroddur.
Gistiíbúð í Eyjafirði
Bjóðum upp á gistingu í íbúð með
tveimur tveggja manna herbergjum
með uppbúnum rúmum og
handklæðum. Íbúðin leigist eftir
samkomulagi frá einni nóttu. Stutt
í sund og golf. Verið velkomin í
Eyjafjörðinn. Tíu mínútna akstur frá
Akureyri. Uppl. í síma 894-1303/463-
1336 eða edda@krummi.is. Einnig er
hægt að fara á hestbak ef óskað er eftir
hjá hestaleigunni Káti.
Vantar íbúð
Vantar 2-3 herbergja langtímaleigu
íbúð á Akranesi frá áramótum des - jan
2016. Upplýsingar í spalmadottir1@
gmail.com eða í síma 867-2971.
Húsnæði til leigu
Til leigu mjög gott einbýlishús ásamt
90 fermetra bílskúr. Staðsett í Svínadal
í Hvalfjarðarsveit. 5 til 6 herbergja.
Hitaveita. Uppl í netfang gummi.
albert@simnet.is.
Óska eftir Ferozu
Er að leita mér að Ferozu, óryðgaðri
en má þarfnast lagfæringa, fyrir lítið
eða skipti á torfæruhjóli. Upplýsingar í
síma 696-2334 eða á ispostur@yahoo.
com.
Gamlar gangstéttarhellur óskast
Í Borgarnesi... Mig vantar gamlar
stórar gangstéttahellur, 50x50 eða
40x40 cm. Tolli s. 661-7173 eða
gullhamrar@hotmail.com
Borgarnes póstkort
Til sölu eru
póstkort með
myndum frá
Borgarnesi.
Sjá: http://
hvitatravel.
is/postcards 12 gerðir í setti, eða
12 stk að eigin vali á 1,000.- kr. Frí
heimsending innanlands. Pantanir og
nánari upplýsingar fást á netfanginu
gullhamrar@hotmail.com eða í síma
661-7173.
Viltu losna við bjúg, sykurþörf og
léttast líka?
Þá er Oolong- og Pu-erh teið eitt það
albesta. Pakki með 100 tepokum er
á 4.300. Ef keyptir eru 2 pk. er verðið
7.800. Sykurþörfin minnkar og hverfur
oftast eftir stuttan tíma og bjúgurinn
fer mjög fljótt. Gott fyrir líkamlega og
andlega heilsu. S: 845-5715, Nína.
Herbalife, skjót og góð þjónusta
Afgreiði pantanir samdægurs.
Engin bið. Er oftast með allar
næringarvörurnar á lager. Gott verð
og þjónusta. Sendi um allt land. Greiði
burðargjaldið ef pantað er fyrir 12.000
kr. eða meira í einu. S: 845-5715, Nína.
Strandveiðibátur, útgerðarbíll o.fl.
Lengdur Flugfiskur með síðustokkum
og flotkössum. 230 hp. Volvo Penta,
5500 klst. Duoprop-drif yfirfarið hjá
Brimborg f. ári. Gengur 25m+. Klár í
strandveiði með 3 færarúllum, nýju
haffæri og botnmálningu. V. 5,3.
Eigum einnig VW pickup pallbíl í fínu
standi. Bravo II hældrif árg. 2000, nýjar
legur og krossar. V. 350Þ. Skipti á nýl.
DNG 6000i mögul. Sími 894-7070,
Björn.
Bækur til sölu
Jeppabókin, Búvélar og ræktun, Saga
Alþingis 5 bindi, Nýtt kvennablað 5
bindi, Sléttuhreppur, Listaverkabók
Einars Jónssonar, Saga Strandamanna,
Grallarinn og Æviskrár Strandamanna.
Upplýsingar í síma 557-7957.
Verktakar/byggingaraðillar
athugið!
Bjóðum upp á ýmsar lausnir er
viðkemur aðgangsstýringum,
öryggiskerfum og
eftirlitsmyndavélum. Sími 771-1301.
leidni.is
Borgarbyggð - miðvikudagur
10. júní
Skálmöld á Sögulofti í Landnámssetri
kl. 17. Eldar loga og blóð flýtur á
Sögulofti. Einar Kárason og dóttir hans
Júlía Margrét flytja saman söguna í
formi eintala.
Borgarbyggð - miðvikudagur
10. júní
Vinnukvöld Skógræktarfélagsins
í Reykholtsskógi. Mæting við
Höskuldargerði í Reykholti kl. 19 og
unnið í 2 klst. Skógræktarfélagið
hefur bakkaplöntur tilbúnar til
gróðursetningar af ýmsum tegundum.
Gróðursetningarverkfæri verða tiltæk
en einnig væri gott ef fólk á verkfæri
að hafa þau með. Gróðursett er með
plöntustöfum eða s.k. geyspum.
Akranes - fimmtudagur 11. júní
Í tilefni 100 ára kosningaafmælis
kvenna árið 2015 verður opnuð sýning
í Guðnýjarstofu á Safnasvæðinu
kl. 17. Fjölbreytt og merkileg saga
heilbrigðisþjónustu rifjuð upp og
nokkrum stórbrotnum konum gerð
skil. Sjá nánar frétt í Skessuhorni.
Dalabyggð - laugardagur 13. júní
Sauðafellshlaup. Við vonumst að sem
flestir komi í Dalina, hlaupi með okkur
og eigi góðan dag undir Dalanna
sól. Hlaupið hefst og endar við
brúsapallinn á Erpsstöðum. Hlaupið
er eftir þjóðvegi 60 að Fellsenda og
upp veg 585, á Fellsendabrekkunni er
stefnan tekin uppá Sauðafellið, það
hlaupið þvert og niður að bænum
Sauðafelli, og komið að þjóðvegi 60 á
ný og þá er hringnum lokað er komið
er að Erpsstöðum á ný. Hlaupaleiðin
er um 12 km. Boðið verður uppá
barnagæslu á Erpsstöðum meðan
á hlaupinu stendur, leikir og dýrin
á bænum skoðuð. Tónleikar verða
í fjósinu um kvöldið. Eftir hlaup er
hægt að skella sér á Lauga í sund (36
km). Eftir hlaupið er býður Rjómabúið
Erpsstaðir uppá kaffi og rjómaís! Allir
fá orkudrykk er þeir koma á endastöð.
Nánari upplýsingar og skráning á
facebook - Sauðafellshlaup 2015.
Akranes - sunnudagur 14. júní
Guðsþjónusta í Akraneskirkju kl. 11.
Sr. Þráinn Haraldsson þjónar. Allir
hjartanlega velkomnir!
Grundarfjörður - sunnudagur
14. júní
Sigríðarganga, fjallganga á Eyrarfjall
í Framsveit við Grundarfjörð verður
kl. 14. Mæting hjá Hallbjarnareyri.
Fjallganga á Eyrarfjall og hlaupið niður
Strákaskarð. Ganga upp tekur um einn
og hálfan tíma ef rólega er gengið.
Síðan er hlaupið niður fjallið, skemmsti
tími er 49 sekúndur, en oftast er miðað
við 3 mínútur. Það setur engin met í
fyrstu tilraun.
Stykkishólmur - mánudagur
15. júní
Námskeiðið Börn og umhverfi, fyrir
þá sem eru fæddir árið 2003 eða fyrr
og vilja fræðast um þroska barna
og slysahættur í umhverfi barna,
slysavarnir og skyndihjálp. Námskeiðið
verður frá kl. 17 dagana 15., 16. og 18.
júní. Opnað hefur verið fyrir skráningu
og vonum við að námskeiðið verði
vel sótt. Frítt er á námskeiðið og
námsgögn á staðnum. Skráning er á
netfanginu sbhjaltalin@simnet.is eða
í síma 848-9816. Leiðbeinendur verða
Einar Strand, Dóra Björk og Karina
Nilsen. Bestu kveðjur, Stjórn Rauða
krossins í Stykkishólmi.
Á döfinni
Markaðstorg Vesturlands
Nýfæddir Vestlendingar
5. júní. Stúlka. Þyngd 2.705 gr. Lengd
45,5 sm. Foreldrar: Harpa Dögg
Sævarsdóttir og Elvar Sigurðsson,
Akranesi. Ljósmóðir: Signý H.
Jóhannesdóttir, LSH. Stúlkan heitir
Angelika Elvarsdóttir.
7. júní. Drengur. Þyngd 4.695 gr.
Lengd 57 sm. Foreldrar: Rikka Emilía
Böðvarsdóttir og Daníel Merlin
Taroni, Akranesi. Ljósmóðir: Lóa
Kristinsdóttir.
8. júní. Stúlka. Þyngd 3.305 gr. Lengd
51 sm. Foreldrar: Dagný Jónsdóttir
og Agnar Kjartansson, Akranesi.
Ljósmóðir: Erla Björk Ólafsdóttir.
8. júní. Stúlka. Þyngd 3.820 gr. Lengd
52 sm. Foreldrar: Unnur Rebekka
Þráinsdóttir og Ásmundur Jónsson,
Akranesi. Ljósmóðir: Elísabet Harles.
8. júní. Stúlka. Þyngd 3.580 gr.
Lengd 52 sm. Foreldrar: Thelma Lind
Sigurhansdóttir og Hugi Ómarsson,
Kópavogi. Ljósmóðir: Lára Dóra
Oddsdóttir.
ÓSKAST KEYPT
HÚSBÚNAÐUR / HEIMILISTÆKI
LEIGUMARKAÐURBÍLAR / VAGNAR / KERRUR
Leik- og grunnskóli
Hvalfjarðarsveitar
Við Skýjaborg vantar til starfa fyrir næsta skólár
Deildarstjóra á yngri deild.• Umsækjandi um kennarastarf þarf að hafa
kennsluréttindi, góða skipulagshæfileika og mikla hæfni í mannlegum
samskiptum. Leikskólinn leggur áherslu á lýðræði og opinn efnivið.
Í leikskólanum dvelja um 40 börn á aldrinum 1-6 ára. Í leikskólanum
gefst tækifæri til að takast á við fjölbreytt og skemmtileg verkefni sem
tengjast þróun leikskólastarfs, samvinnu leikskólans við grunnskólasvið
skólans og fleiri stofnanir.
Laun samkv. LN, KÍ, FL og/eða viðkomandi stéttarfélagi
Umsókn með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og
umsagnaraðila sendist til Jóns Rúnars Hilmarssonar, skólastjóra,
jon.runar.hilmarsson@hvalfjardarsveit.is – Leik- og grunnskóli
Hvalfjarðarsveitar, Hvalfjarðarsveit, 301 Akranesi.
Nánari upplýsingar veitir Jón R. Hilmarsson skólastjóri í síma 858-1944.
DÝRAHALD
TIL SÖLU
Opið:
Mánud. – föstud. kl. 9 – 18
Lokað á laugardögum í sumar
Grensásvegi 46, 108 Reykjavík - Sími 511 3388
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Áþreifanlegt
prjónagarn
Bakaríið Brauðval Akranesi er til sölu. Flutti nýlega í annað
húsnæði (leigu) í gamla miðbænum.
Góð kaffiaðstaða í sal. Nýr Sweba/Dahlen steinofn.
Önnur tæki og búnaður í góðu lagi.
Endalausir möguleikar fyrir duglegt fólk.
Upplýsingar veitir Ingimar í síma 866-5940.
VIÐSKIPTATÆKIFÆRI
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
ÖRYGGISKERFI/MYNDAVÉLAR