Skessuhorn - 10.06.2015, Page 31
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚNÍ 2015 31
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
eBOX er ný, þægileg og einföld lausn til að flytja minni sendingar
frá Evrópu til Íslands. Á ebox.is er reiknivél sem segir þér á
augabragði hver flutningskostnaðurinn er. Traust og áreiðanlegt
leiðakerfi Eimskips á Norður-Atlantshafi tryggir að sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
auðveldar smásendingar
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
������� ���������
� e���.��
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Vesturlandsliðin þrjú sem kom-
ust í 32. liða úrslit Borgunarbikars
karla í knattspyrnu léku í síðustu
viku. Leikar fóru þannig að einung-
is Víkingur Ó kemst í 16 liða úrslit-
in en Akranesliðin Kári og ÍA féllu
úr leik.
Skagamenn mættu Fjölni í Borg-
unarbikar karla á miðvikudagskvöld-
ið. Var þetta í annað sinn á aðeins
fjórum dögum sem liðin mættust en
þau léku sem kunnugt er í deildinni
síðastliðinn sunnudag. Lauk þeim
leik með 2-0 sigri Fjölnis þrátt fyr-
ir að Skagamenn hugðust hefna fyrir
þau úrslit í bikarnum deginum áður.
Gestirnir úr Grafarvoginum komust
yfir á 13. mínútu. Þórir Guðjónsson
fékk sendingu inn á vítateig, skall-
aði hana fyrir fætur Mark Charl-
es Magee sem var einn og óvaldað-
ur á markteig og skoraði af öryggi
framhjá Páli Gísla Jónssyni í marki
Skagamanna. Aðeins fimm mínút-
um síðar fékk Fjölnir innkast sem
fleytt var áfram inn í teiginn þar
sem Mark Charles var staðsettur og
skoraði öðru sinni með góðu skoti.
Fjölnismenn réðu lögum og lof-
um til loka fyrri hálfleiks en sókn-
ir þeirra strönduðu á Páli Gísla í
markinu.
Skagamenn mættu betur stemmd-
ir til síðari hálfleiks en þess fyrri.
Fjölnismenn höfðu þó enn yfirhönd-
ina framan af en Páll Gísli varði eins
og berserkur í markinu. Skagamenn
sóttu einnig en sköpuðu sér ekki af-
gerandi færi fyrr en á síðustu mín-
útu leiksins. Þá átti Arsenij Buinickij
skot sem markvörður Fjölnis varði.
Ásgeir Marteinsson náði frákastinu
en vörn Fjölnis bjargaði á síðustu
stundu. Áður en það gerðist, á 83.
mínútu, hafði Aron Sigurðsson hins
vegar skorað þriðja mark gestanna
af öryggi eftir að hann fékk stungu-
sendingu inn fyrir vörn ÍA. Leikn-
um lauk því með þriggja marka sigri
gestanna og Skagamenn því úr leik í
Borgunarbikarnum.
Baráttusigur á Akureyri
Víkingar Ólafsvík tryggðu sér sæti í
16 liða úrslitum Borgunarbikarsins
eftir sigur á Þór í leik sem fram fór
á Akureyri. Var þetta baráttusigur í
ljósi þess að gestirnir lentu tvisvar
sinnum undir. Fyrsta mark heima-
manna kom á 17. mínútu eftir horn-
spyrnu meðan vörn Víkinga svaf á
verðinum. Boltinn barst á Svein Elí-
as Jónsson sem var einn og óvaldað-
ur á markteig og skallaði boltann í
netið. Aðeins þremur mínútum síð-
ar jöfnuðu gestirnir með afar skraut-
legu marki. Sandor Matus, mark-
vörður Þórs, kom þá út úr marki
sínu og náði boltanum úti við hlið-
arlínuna en var ekkert að flýta sér að
koma honum frá sér. Að lokum sendi
hann á samherja sem var valdaður af
Kristni Magnússyni. Kristinn nýtti
sér það, náði boltanum og sendi í
autt markið af 40m færi.
Næsta korterið sóttu bæði lið á
víxl en það voru Þórsarar sem kom-
ust yfir á nýjan leik á 36. mínútu.
Sveinn Elías skallaði langa sendingu
á Kristinn Þór Rósbergsson sem
fór framhjá einum varnarmanni og
skoraði af mikilli yfirvegun. Staðan í
hálfleik 2-1 fyrir Þór.
Seinni hálfleikur var tíðindalít-
ill fram á 81. mínútu þegar Ingólfur
Sigurðsson jafnaði fyrir Víking með
skoti af löngu færi. Markið kom eins
og þruma úr heiðskýru lofti en ætla
má að Sandor Matus hefði átt að
gera betur í marki Þórs. Þegar þrjár
mínútur lifðu leiks tryggði Kristófer
Eggertsson Víkingum sigurinn með
marki af svipuðu færi sem hafnaði
alveg úti við stöng. Lokatölur 2-3,
Víkingi í vil.
Víkingur er eina Vesturlandslið-
ið sem eftir er í keppninni og dróg-
ust þeir gegn Fjölni þegar dreg-
ið var í 16 liða úrslitum Borgunar-
bikars karla síðastliðinn föstudag.
Leikur Víkinga og Fjölnis fer fram
á Fjölnisvelli í Grafarvogi fimmtu-
daginn 18. júní.
Kári úr leik
Þriðjudaginn 2. júní fóru leik-
menn Kára austur í Neskaupstað
og mættu fyrstu deildarliði Fjarða-
byggðar á Norðfjarðarvelli, en
Kári leikur sem kunnugt er í þriðju
deild. Því var ljóst frá upphafi að á
brattann yrði að sækja fyrir Kára-
menn og þegar flautað var til leiks-
loka urðu þeir að sætta sig við að
þátttaka þeirra í Borgunarbikarn-
um væri á enda. Lokatölur 4-0 fyr-
ir heimamenn í Fjarðabyggð. Læri-
sveinar Sigurðar Jónssonar í Kára
geta þó borið höfuðið hátt því þetta
var þeirra fyrsti tapleikur í 17 leikj-
um í röð í deild og bikar. kgk
Skagamenn mættu Fylki á Akranes-
velli á sunnudagskvöldið. Fyrir leik-
inn voru þeir í ellefta sæti með fjög-
ur stig eftir sex leiki en Fylkismenn
voru í því áttunda með átta stig. Að-
stæður til knattspyrnuiðkunar hefðu
mátt vera betri. Það blés af Faxafló-
anum, kalt var í veðri, rigningar-
suddi og völlurinn blautur. Á köfl-
um var líkt og gular treyjur Skaga-
manna þetta sjómannadagskvöld
væru blautir sjóstakkar úti á ballar-
hafi. Fyrir leikinn var Karl Þórðar-
son heiðraður af ÍA en hann lék á
sínum tíma hvorki meira né minna
en 366 leiki fyrir Skagaliðið.
Fylkismenn höfðu yfirhönd-
ina í upphafi leiks, fengu dauðafæri
strax á sjöundu mínútu þegar Albert
Brynjar Ingason átti skot af markteig
en Ármann Smári náði að koma fæt-
inum fyrir boltann og stýra honum
yfir. Aðeins þremur mínútum síð-
ar komust Fylkismenn í skyndisókn
tveir á móti einum eftir fast leikat-
riði Skagamanna. Þórður Þorsteinn
gerði hins vegar mjög vel í vörninni
og komst inn í sendingu sem hefði
komið Fylki í dauðafæri. Á 21. mín-
útu gerðist nokkuð undarlegt atvik.
Boltanum var vippað inn á markteig
Skagamanna og sóknarmaður Fylkis
náði lausum skalla að markinu. Árni
Snær virtist hafa lítinn áhuga á skall-
anum og lét boltann skoppa framhjá
sér þar sem Þórður Þorsteinn tók
hann á marklínunni. Árni hlýtur að
hafa vitað af Þórði því þetta var allt
saman nokkuð undarlegt.
Eftir fremur tíðindalítinn fyrri
hálfleik væri ofsögum sagt að betra
hafi tekið við í þeim seinni. Fylkis-
menn áttu besta færi leiksins þegar
boltinn var skallaður í stöng á 56.
mínútu. Ólafur Valur Valdimarsson
átti bakfallsspyrnu frá markteignum
á þeirri 84. en boltinn yfir. Lokatöl-
ur á Akranesvelli 0-0 og liðin fá því
eitt stig hvort um sig.
Eftir leikinn fara Skagamenn
upp um eitt sæti í deildinni, í það
tíunda, með fimm stig. Þrátt fyrir
tíðindalítinn leik hljóta heimamenn
að vera ánægðir með að hafa hald-
ið hreinu og að fá stig út úr leikn-
um eftir tap í síðustu þremur deild-
arleikjum.
Næsti leikur liðsins verður geng
erkifjendunum í KR í Frostaskjól-
inu mánudaginn 15. júní.
kgk/ Ljósm. Guðmundur Bjarki
Halldórsson.
Skagakonur lögðu land undir fót
og mættu sameiginlegu liði Þórs/
KA í 16 liða úrslitum Borgunarbik-
ars kvenna í Boganum á Akureyri
síðastliðinn föstudag. Lið Þórs/KA
er í toppbaráttu úrvalsdeildar en ÍA
leikur sem kunnugt er í fyrstu deild.
Því var ljóst frá upphafi að Skaga-
konur ættu erfiðan leik fyrir hönd-
um í bikarnum. Þær stóðu í heima-
mönnum framan af og leikurinn var
markalaus þegar flautað var til hálf-
leiks. Á 54. mínútu skoruðu heima-
menn fyrsta mark leiksins og þá var
ekki aftur snúið. Þær áttu eftir að
bæta við þremur mörkum til við-
bótar áður en flautað var til leiks-
loka og lokatölur norðan heiða 4-0,
Þór/KA í vil og þátttöku Skaga-
kvenna í Borgunarbikarnum þar
með lokið þetta sumarið.
Næsti leikur liðsins verður deild-
arleikur gegn HK/Víkingi á Akra-
nesvelli laugardaginn 13. júní næst-
komandi og hefst hann klukkan
13:00. kgk
Víkingur Ólafsvík náði í þrjú dýr-
mæt stig á heimavelli síðasta laug-
ardag þegar liðið mætti BÍ Bol-
ungarvík. Víkingsmenn spiluðu
mjög vel í fyrri hálfleik og komust í
2 – 0. Þeir byrjuðu seinni hálfleik-
in einnig vel og fengu ágætis færi til
að klára leikinn en tókst þó ekki og
þegar um það bil 20 mínútur voru
liðnar af honum skoruðu gestirnir.
Var við það eins og botninn dytti úr
spilamennsku Víkings. Ekki urðu
þó mörkin fleiri í leiknum og nið-
urstaðan því 2 – 1 sigur Víkings.
Næsti leikur er gegn HK í Kórn-
um laugardaginn 13. júní.
þa
Ármann Smári Björnsson var valinn maður leiksins af stuðningsmönnum ÍA. Hér
tekur hann við verðlaunagrip sem Smári Jónsson gerði og gaf.
Skagamenn héldu
jöfnu gegn Fylki
Darren Lough einbeittur á svip en
hann átti prýðilegan leik í vörn Skaga-
manna sem hélt hreinu á móti Fylki.
Skagakonur úr leik í bikarnum
Víkingur sigraði Vestfirðingana
Páll Gísli Jónsson varði á köflum meistaralega í marki Skagamanna í leiknum gegn Fjölni. Það dugði þó ekki til og þriggja
marka tap staðreynd. Hér kýlir hann boltann frá marki sínu. Ljósm. Guðmundur Bjarki Halldórsson.
ÍA og Kári töpuðu en Víkingur Ó vann
Skagakonur þurftu að lúta í gras fyrir sameiginlegu liði Þórs/KA í 16 liða úrslitum
Borgunarbikarsins á föstudaginn. Ljósm. kfia.is.