Skessuhorn - 29.07.2015, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 20156
Ritstjóra
Vesturlands
sagt upp
LANDIÐ: Fjölmiðlafyrir-
tækið Vefpressan keypti í
lok síðustu viku útgáfufyr-
irækið Fótspor. Með kaup-
unum fylgdi réttur til út-
gáfu á 12 blöðum sem Fót-
spor hefur gefið út undan-
farin misseri og dreift frítt
til lesenda. Meðal þeirra er
blaðið Vesturland sem kom
út einu sinni til tvisvar í
mánuði. Samningurinn um
kaup Vefpressunnar á Fót-
spori var undirritaður með
fyrirvara um að Fjölmiðla-
nefnd og Samkeppniseft-
irlit leggi blessun sína yfir
hann. Samhliða sölu blaða
Fótspors til Vefpressunn-
ar var ritstjórum allra blaða
Fótspors sagt upp störfum
með tölvupóstum. Með-
al þeirra er Geir A. Guð-
steinsson ritstjóri Vestur-
lands. Hann stýrði einn-
ig blaðinu Öldunni fyr-
ir Fótspor sem fjallaði um
sjávarútvegsmál og kom út
mánaðarlega. Í samtali við
Skessuhorn segist Geir hafa
fengið uppsagnarpóst eins
og kollegar hans. Aðspurð-
ur sagðist hann ekkert vita
um hvað nú tæki við varð-
andi útgáfumál Vesturlands
né hvað stjórnendur Vef-
pressunnar hygðust fyrir.
Enginn hefði haft samband
við sig fyrir utan tölvupóst-
inn þar sem samningi hans
við Fótspor var rift. Með-
al annarra ritstjóra blaða
Fótspors sem sagt var upp
eru Kristinn H. Gunnars-
son sem sá um blaðið Vest-
firði, Björn Þorláksson hjá
Akureyri Vikublað og Ingi-
mar Karl Helgason sem sá
um fríblöðin í Reykjavík og
Kópavogi.
mþh
Staða skólastjóra
Grunnskóla
Borgarness
BORGARNES: Þann 13.
júlí rann út umsóknarfrestur
um stöðu skólastjóra Grunn-
skólans í Borgarnesi. Alls bár-
ust átta umsóknir um starfið
en þrír umsækjendur drógu
umsókn sína til baka. Um-
sækjendur eru sem hér segir:
Helga Stefanía Magnúsdóttir,
Íris Anna Steinarsdóttir, Júlía
Guðjónsdóttir, Lind Völ-
undardóttir og Þorkell Logi
Steinsson
–arg
Sokkaverk-
smiðjan Trico
gjaldþrota
AKRANES: Fyrirtækið Trico
á Akranesi hefur verið úr-
skurðað gjaldþrota. Trico var
upphaflega stofnað árið 1952
og framleiddi í gegnum tíð-
ina bæði sokka og annan fatn-
að. Síðustu árin framleiddi
Trico vörur á borð við hita-
þolna sokka sem notaðir voru
af starfsmönnum stóriðju og
slökkviliða. Fjögur stöðugildi
voru hjá Trico undir lokin
áður en fyrirtækið fór í þrot.
mþh
Brýna alla
til dáða í
ferðamálum
STYKKISHÓLMUR: Bæj-
arráð Stykkishólms samþykkti
á síðasta fundi sínum 23. júlí,
bókun um ferðamál. Þar segist
bæjarráðið fagna þeim mikla
vexti sem nú er í ferðaþjón-
ustu í Stykkishólmi. Sérstak-
lega er komum skemmtiferða-
skipa til bæjarins fagnað. Bæj-
arráðið skorar á heimamenn í
ferðaþjónustu að taka hönd-
um saman um að kynna bæinn
frekar og stuðla að fegrun hans
og góðri þjónustu. Alþingi,
ráðherra ferðamála og önnur
ferðamálastjórnvöld eru hvött
til þess að leggja aukna fjár-
muni til uppbyggingar fjölfar-
inna ferðamannastaða. Auð-
velda verði minni sveitarfé-
lögum að byggja upp ýmsa þá
inniviði sem þurfi til. Að lok-
um hvetur bæjarráð Samband
íslenskra sveitarfélaga til þess
að taka þessi málefni sérstak-
lega upp í viðræðum við ríkis-
valdið og efna til ráðstefnu þar
sem einungis verið fjallað um
uppbyggingu ferðaþjónustu
og aðkomu sveitarfélaga og
ríkisvaldsins í æskilegri þróun
þessa mikilvæga atvinnuvegar
sem ferðaþjónustan er.
mþh
Kalla eftir
umsóknum um
sæbjúgnaveiðar
Fiskistofa auglýsir eftir um-
sóknum um leyfi til veiða á
sæbjúgum á næsta fiskveiðiári
2015/2016. Umsóknum skulu
fylgja upplýsingar um veiðar
umsækjenda á sæbjúgum þrjú
síðustu fiskveiðiár og samn-
ingur um vinnslu á sæbjúg-
um í landi eða jafngild yfirlýs-
ing þegar um eigin vinnslu er
að ræða.
mþh
Stefnt er að sjósetningu Víkings
AK fljótlega í byrjun ágústmánað-
ar. Fari allt eftir áætlunum á skipið
að koma til Íslands í desember næst-
komandi. Það er Celiktrans Deniz
Insaat skipasmíðastöðin í Tyrklandi
sem smíðar Víking. Fyrra skip sams
konar gerðar frá Celiktrans, hin nýa
Venus NS, kom til landsins í maí-
mánuði og stundar nú makrílveiðar.
Smíði Víkings mun miða vel og
hnökralaust. Búið er að mála skip-
ið í bláum og hvítum litum útgerð-
arinnar. Áætlað er að Víkingur fari
á flot um verslunarmannahelgina
eða þar um bil. Celiktrans á einnig
að smíða þrjá ísfisktogara fyrir HB
Granda. Nú er samkvæmt frétt á
vef HB Granda, verið að raða sam-
an skipsskrokknum á hinum fyrsta
þeirra sem verður Engey RE. Starfs-
menn stöðvarinnar eru svo byrjað-
ir að skera niður stálplötur í þann
togara sem næstur verður í röðinni.
Fyrstu tveir togarana eiga að afhend-
ast á næsta ári en sá þriðji kemur til
landsins árið 2017. mþh
Nýi Víkingur AK fer á flot eftir mánaðarmótin
Hinn nýi Víkingur AK í skipamíðastöðinni. Mynd/HB Grandi: Þórarinn Sigurbjörnsson.
„Mikið er kalt hérna niðri við sjó-
inn,“ sagði þetta par, sem af ein-
hverjum ástæðum vildi ekki láta
nafns síns getið, þegar blaðamað-
ur gaf sig á tal við þau við höfnina
í Grundarfirði í síðustu viku. Ekki
var nema von að þeim brygði við
kuldann, þau kváðust búsett í sól-
skinsríkinu Flórída í Bandaríkjun-
um og voru gestir skemmtiferða-
skips sem lá fyrir ankeri rétt utan
við bæinn. Þau höfðu brugðið sér í
land til að komast í verslun og biðu
þessi niðri á bryggju að verða ferj-
uð aftur út í skipið. „Þetta er fyrsti
dagurinn okkar hér svo við get-
um eiginlega ekki sagt til um það
strax,“ sögðu þau aðspurð hvern-
ig þau kynni við staðinn enn sem
komið er. „Ferðasöguna getum við
heldur ekki sagt þér. Við treystum
okkur ekki til þess að bera fram ís-
lensku nöfnin á þessum stöðum,“
sögðu þau að lokum, létt í bragði.
kgk
Nafnlaus ferðamennska
Það lá vel á þeim í Grundarfjarðarhöfn, ferðamönnunum sem ekki vildu láta
nafns síns getið, meðan þeir biðu þess að verða ferjaðir aftur út í skemmti-
ferðaskipið sem lá fyrir ankerum utan bæjarins.