Skessuhorn - 19.08.2015, Page 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 34. tbl. 18. árg. 19. ágúst 2015 - kr. 750 í lausasölu
Arion
hraðþjónusta
– hafðu það eins og þú vilt
Arion appið • Netbanki • Hraðbankar
Lúsina burt!
Restaurant Munaðarnes
Borgarfirði
525 8441 / 898 1779
Njótið veitinga
í fallegu umhverfi
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
OPIÐ
12.00 – 21.00
Hvalfjarðar-
dagar
28. - 30. ágúst
Fjölbreytt dagskrá
um alla sveit
Mannbjörg varð úti fyrir miðjum
Breiðafirði síðastliðinn fimmtudag
eftir að kviknaði í handfærabátn-
um Gísla Mó SH 727 sem gerð-
ur er út frá Arnarstapa. Arnar Lax-
dal sjómaður var einn um borð við
veiðar þegar eldur kom upp í stýris-
húsi bátsins. Arnar náði að komast
í björgunargalla og losa björgun-
arbátinn en tæpara mátti það ekki
standa því á skömmum tíma varð
báturinn alelda. Í björgunarbátnum
sendir hann út neyðarblys og það
var síðan Fannar Baldursson, vinur
hans, sem kom fyrstur að á sínum
báti og tók Arnar um borð. Hann
sakaði ekki en var eðlilega mjög
skelkaður eftir þennan atburð. Gísli
Mó sökk skömmu síðar.
mm
Með Skessuhorni í dag fylgir sérblað
sem tileinkað er upphafi skólaársins.
Rætt er við
forsvarsmenn
grunnskóla,
f r amha lds -
skóla og há-
skóla í lands-
hlutanum og
sagt frá því
helsta sem
Símenntun-
armiðstöð-
in á Vestur-
landi býð-
ur upp á í
haust. Samhliða því að grunnskólar
hefjast bætast mörg hundruð ungir
einstaklingar í umferðina. Ökumenn
eru sérstaklega hvattir til að taka tillit
til þess og fara varlega.
Skessuhorn óskar skólafólki; nem-
endum og starfsfólki velfarnaðar í
störfum komandi missera. mm
Eins og fram hefur komið í frétt-
um undanfarna daga settu Rússar
viðskiptabann á flest matvæli frá Ís-
landi fyrir síðustu helgi. Það gera
þeir til að svara viðskiptaþvingun-
um gegn þeim frá ESB og Banda-
ríkjunum. Aðgerðir sem íslensk
stjórnvöld hafa stutt. Gríðarlegir
hagsmunir eru í húfi fyrir Íslend-
inga og ef bann Rússa verður lang-
vinnt mun sala á sjávarafurðum fyr-
ir tugi milljarða króna vera í húfi.
Alls óvíst er hvort nýir markað-
ir finnist fyrir vörurnar. Viðskipta-
bannið hefur því margþætt áhrif.
Meðal fyrstu áhrifanna sem gætti
hér á landi má nefna að síðastliðinn
laugardag var á Akranesi unnið við
uppskipun á frystum loðnuhrogn-
um úr flutningaskipinu Green
Bergen. Hrognunum var ekið rak-
leiðis í frystigeymslu HB Granda á
Akranesi. Hrognunum hafði verið
skipað út fimmtudeginum áður úr
sömu frystigeymslum en þau eru
hluti þeirra loðnuhrogna sem unnin
voru hjá HB Granda á loðnuvertíð-
inni í vetur og áttu að fara til Rúss-
lands. Skipið hélt síðan til Reykja-
víkur að sækja meira af afurðum.
Það varð þó ekki því viðskiptabann
Rússa á fiskafurðir frá Íslandi skall á
í millitíðinni.
En áhrifa viðskiptabannsins gætir
víðar. Mokveiði hefur verið af mak-
ríl síðustu daga skammt frá Ólafs-
vík og út af Rifi en söluhorfur eru
afleitar. Að sögn Péturs Bogason-
ar hafnarvarðar í Ólafsvík, hafa níu
makrílbátar landað að undanförnu
og aflinn hefur verið mjög góður
eða upp í tíu tonn eftir skamman
tíma á veiðum.
Gunnar Bergmann Traustason
fiskmiðlari hjá Portice segir í sam-
tali við Skessuhorn að fyrirtækið
láti frysta makrílinn hjá sér á þrem-
ur stöðum á landinu. „Við erum
með átta báta í föstum viðskiptum
hjá okkur og makríllinn er mjög
stór og góður. Fituhlutfallið er
komið í 29%,“ segir Gunnar. Hann
bætir því við að því miður sé engin
sala eins og er. „En við vonum að
það fara að koma nýir markaðir fyr-
ir þennan fisk. Við erum að borga
55 krónur fyrir kílóið eins og er,“
segir Gunnar en kveðst lifa í von-
inni um að verðið muni hækka með
tímanum og ekki síst að nýir mark-
aðir opnist fyrir afurðirnar.
af/mm
Skólablað
Skessuhorns
Gísli Mó SH. Ljósm. af.
Mannbjörg þegar bátur
varð alelda á Breiðafirði
Þessi mynd var tekin um svipað leyti og Arnari var bjargað. Gísli Mó var þá alelda
og sökk skömmu síðar. Ljósm. Jón Einarsson á Glaumi SH.
Útflutningur í uppnámi
Frystum loðnuhrognum ekið á
laugardaginn aftur í frystigeymslur HB
Granda á Akranesi. Ljósm. mþh.
Karl Svanur Friðjónsson skipstjóri á Signýju HU sem landaði átta tonnum á stuttum tíma á veiðum og hélt aftur til veiða að
löndun lokinni. Ljósm. af.