Skessuhorn - 19.08.2015, Blaðsíða 16
MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 201516
AUGLÝSING
frá Brekkubæjar- og Grundaskóla
Nemendur komi í skólana mánudaginn 24. ágúst 2015 sem hér segir:
Skólasetning í 1. – 10. bekk verður
kl. 10:00 í íþróttahúsinu við Vesturgötu.
1.-2. bekkur kl. 9.00
3.-4. bekkur kl. 10.00
5.-7. bekkur kl. 10.30
8.-10. bekkur kl. 11.00
BREKKUBÆJARSKÓLI GRUNDASKÓLI
Símanúmer á skrifstofu Brekkubæjarskóla er 433 1300
og símanúmer á skrifstofu Grundaskóla er 433 1400.
Opið hús verður í skóladagvistinni þar sem foreldrar geta gengið
frá vistunartíma og fengið nauðsynlegar upplýsingar á staðnum.
Opið hús í Brekkubæjarskóla mánudaginn 24. ágúst 2015 kl. 10:30.
Opið hús í Grundaskóla mánudaginn 24. ágúst 2015 kl. 9:30.
Allar nánari upplýsingar eru á heimasíðum skólanna.
Veffang Brekkubæjarskóla er www.brak.is og veffang Grundaskóla er www.grundaskoli.is
Skóla- og frístundasvið
Tólfta skólaár Fjölbrautaskóla Snæ-
fellinga í Grundarfirði hófst nú í
morgun, miðvikudaginn 19. ágúst,
með skólasetningu og að henni lok-
inni hófst kennsla samkvæmt stunda-
töflu. Nýnemar voru sérstaklega
boðnir velkomnir síðastliðinn föstu-
dag á nýnemadegi. Þar bauðst ný-
nemum að koma og skoða skólann,
kynnast kennsluumsjónarkerfinu og
fá afhentar sínar stundatöflur. Var
boðið upp á kjúklingasúpu og dag-
urinn látin enda á æsispennandi rat-
leik.
Hrafnhildur Hallvarðsdóttir tók til
starfa sem nýr skólameistari 1. ágúst
síðastliðinn. Áður var hún aðstoð-
arskólameistari en nýr starfsmaður
verður ráðinn í þá stöðu nú á næstu
dögum. Búið er að manna öll önnur
störf við skólann, að sögn Hrafnhild-
ar. Fjöldi nemenda sem skráðir eru í
skólann þetta skólaár er 189 og þar
af eru 43 nýnemar og 32 í dreifnámi.
Það eru örlítið færri nemendur en á
síðasta skólaári en svipaður fjöldi ný-
nema. Skráningum í skólann er þó
ekki alveg lokið þetta haustið.
Góð aðsókn af
upptökusvæðinu
„Hingað koma um 86% þeirra
sem ljúka 10. bekk á Snæfells-
nesi og sunnanverðum Vestfjörð-
um, en það er upptökusvæði skól-
ans, og erum við mjög ánægð með
þá aðsókn. Skólinn hefur starfrækt
framhaldsdeild á Patreksfirði síðan
2007 og þangað sækja nemendur
af því svæði. Meðalaldur nemenda
hefur aðeins lækkað hjá okkur því
nú tökum við inn færri eldri nem-
endur heldur en áður. Það eru því
flestir nemendur á aldrinum 16-20
ára,“ segir Hrafnhildur.
Eins og fyrri ár verða rútuferð-
ir í skólann fyrir þá nemendur sem
búa annars staðar á Snæfellsnesi
heldur en í Grundarfirði. Einnig
verða farnar námsferðir frá fram-
haldsdeildinni á Patreksfirði til
Grundarfjarðar í hverjum mánuði.
Þá koma nemendurnir til Grund-
arfjarðar og taka þátt í hefðbund-
inni kennslu og félagsstarfi í fjóra
daga.
Tvær nýjar námsbrautir
„Við höfum unnið að nýjum náms-
brautum í samræmi við nýja aðal-
námskrá frá árin 2011. Nú bjóðum
við upp á félags- og hugvísinda-
braut, náttúruvísindabraut, opna
braut, listnámsbraut, framhalds-
skólabraut og starfsbraut. Aðsókn
á félags- og hugvísindabraut er
nokkuð jöfn, enda þekkja nemend-
ur þær brautir,“ segir Hrafnhildur.
Á þessu skólaári verða tvær nýjar
brautir í boði fyrir nemendur; opin
braut og listnámsbraut. Kjarninn
á brautum til stúdentsprófs er sá
sami á öllum brautum. Sérhæfing
námsins fer svo eftir áhugasviði
nemenda en samsetning verður
þó að vera í samræmi við þrepa-
skiptingu á brautum til stúdents-
prófs. „Við höldum áfram að vinna
í innleiðingu nýrra námsbrauta því
þeirri vinnu er ekki lokið,“ segir
Hrafnhildur.
Með innleiðingu nýrra náms-
brauta við skólann er stefnt að
því að nemendur geti lokið námi
til stúdentsprófs á þremur árum,
en stefnt var að því í nýrri aðal-
námskrá frá árinu 2011 að nám
til stúdentspróf yrði stytt niður í
þrjú ár frá og með árinu 2015. Við
FSN hefur það þó ekki verið óal-
gengt að nemendur ljúki námi til
stúdentsprófs á þremur árum eða
þremur og hálfu. Gera má ráð fyr-
ir því að það verði nú enn algeng-
ara, með nýrri námskrá, að nem-
endur ljúki námi á þremur árum.
Í FSN mun nemendum þó standa
það til boða að ljúka námi á lengri
tíma ef þeir kjósa það.
arg
Fjölbrautaskóli Snæfellinga í Grundarfirði
Listabraut í boði fyrir framhalds-
skólanema á Vesturlandi
Mikið stuð á nýnemum á nýnemadegi á föstudaginn síðasta. Ljósm. tfk.
Menntaskóli Borgarfjarðar var
settur í níunda sinn í gærmorgun,
þriðjudaginn 18. ágúst. Þá var ný-
nemum boðið til morgunverðar
ásamt starfsfólki skólans. Að morg-
unverði loknum voru nemend-
um afhentar stundatöflur og önn-
ur gögn varðandi skólastarfið og
opnað var fyrir stundatöflur eldri
nemenda á INNU. Kennsla hófst
í morgun samkvæmt stundatöflu
og foreldrum nýnema gefst kost-
ur á að kynna sér skólastarfið og fá
allar helstu upplýsingar á kynning-
arfundi í skólanum kl. 17 í dag. Að
sögn Guðrúnar Bjargar Aðalsteins-
dóttur, skólameistara MB, fer þetta
skólaár af stað með 130 nemend-
ur skráða og þar af er 51 nýnemi.
Það er örlítil fækkun á heildarfjölda
nemenda milli ára en þó eru fleiri
nýnemar skráðir til náms núna en
á sama tíma í fyrra. Áhugasöm-
um nemendum gefst enn kostur
á að skrá sig til leiks. „Nemendur
við skólann koma flestir úr Borg-
arbyggð en einnig fáum við nem-
endur úr Búðardal, Akranesi, Hval-
fjarðarsveit og Húnavatnssýslu. Við
bjóðum nemendum sem ekki búa í
Borgarnesi að búa á nemendagörð-
um hjá okkur en þar er pláss fyrir
átta nemendur, fjóra stráka og fjór-
ar stelpur, og verða öll plássin nýtt í
vetur,“ segir Guðrún.
Samvinna við LbhÍ
Að sögn Guðrúnar skrá flestir nem-
endur skólans sig á félagsfræðibraut
og náttúrufræðibraut, eða um 57%,
18% nemenda eru skráðir á íþrótta-
braut, 12% á framhaldsbraut og
13% á aðrar brautir. Áfram stend-
ur nemendum til boða að skrá sig
í nám á náttúrufræðibraut – bú-
fræðisvið en sú námsbraut er unnin
í samstarfi við Landbúnaðarháskóla
Íslands á Hvanneyri. Nemend-
ur sem velja þessa braut eru fjög-
ur ár í námi, fyrstu tvö árin stunda
þeir námið í MB en seinni tvö árin
á Hvanneyri. Að námi loknu út-
skrifast þessir nemendur með stúd-
entspróf frá MB og búfræðipróf frá
Hvanneyri.
Nám til stúdentsprófs
tekur þrjú ár
Aðspurð hvort það mætti vænta
breytinga fyrir næsta skólaár segir
Guðrún að það verði eitthvað um
þær. „Nokkrar nýjungar eru á kom-
andi skólaári. Námskránni hefur
verið breytt nokkuð og stúdents-
próf er nú 200 einingar í stað 220
eins og áður, starfsdögum fækkar
líka úr 184 niður í 180 daga. Dreif-
nám sem við höfum boðið upp á
í Dalabyggð verður ekki í boði á
komandi skólaári. Það má þó vel
vera að það verði tekið upp aftur
skólaárið 2016-2017 ef eftirspurn
verður mikil. Annaskil verða nú um
áramót en ekki í janúarmánuði. Við
verðum áfram með haustdaga eins
og síðasta haust, það gafst mjög vel.
Markmiðið með haustdögum er að
að brjóta upp hefðbundið skólastarf
og vinna að verkefnum með nem-
endum sem skila af sér afurðum
sem hægt er að sýna í lok vikunn-
ar,“ segir Guðrún. Samkvæmt nýrri
skólanámskrá frá árinu 2011 átti að
vera búið að stytta nám til stúdents-
prófs um eitt ár frá og með haust-
inu 2015. Í MB hefur nám til stúd-
entsprófs alltaf verið þrjú ár. „Við
erum í raun brautryðjendur í námi
sem byggt er upp á þennan máta,
þriggja ára nám til stúdentsprófs,“
segir Guðrún Björg að endingu.
arg
Menntaskóli Borgarfjarðar
Brautryðjendur í
þriggja ára námi til
stúdentsprófs
Svipmynd úr skólastarfi MB.
SKÓLABLAÐ SKESSUHORNS