Skessuhorn - 19.08.2015, Blaðsíða 18
MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 201518
Grundaskóli á Akranesi er fjöl-
mennasti grunnskólinn á Vestur-
landi. Fjöldi nemenda nú í ágúst
verður 584, sem þó er fækkun frá
fyrra ári. „Árgangurinn sem innrit-
ast nú er fámennari en sá sem var
útskrifaður síðastliðið vor og verð-
andi 10. bekkur er að auki óvenju
fámennur,“ segir Hrönn Ríkharðs-
dóttir skólastjóri Grundaskóla. Hún
segir jafnframt að haustið 2016 verði
breyting á og þá verði þrjár bekkjar-
deildir í öllum árgöngum. Eins og
endranær eru fleiri drengir en stúlk-
ur í skólanum. Skólasetning verður
mánudaginn 24. ágúst og kennsla
hefst samkvæmt stundaskrá dag-
inn eftir. Hrönn segir kennslu verða
með sambærilegum hætti og und-
anfarin ár. „Unglingastigið held-
ur áfram með sínar áherslur á sjálf-
stæð vinnubrögð, verkefnatíma og
þemu. Lögð verður áhersla á leið-
sagnarmat í skólanum eins og áður
og kennt verður í anda Byrjenda-
læsis og Orðs af orði eins og und-
anfarin ár.“ Hún nefnir einnig að
spjaldtölvuvæðing haldi áfram, þar
sem felist margvísleg tækifæri og
möguleikar sem eftirsóknarvert er
að nýta í skólastarfinu. Grundaskóli
er móðurskóli í umferðarfræðslu og
gegnir Hildur Karen Aðalsteins-
dóttir starfi verkefnastjóra. „Nem-
endur munu í upphafi skólaársins
fá afhentan Spegilinn sem er í senn
dagbók nemenda og upplýsinga-
handbók um skólann. Unnið hefur
verið að gerð skólanámskrár og er
hún væntanleg á heimasíðu skólans
á haustdögum, vonandi strax í byrj-
un september,“ segir Hrönn.
Nýtt náms-
upplýsingakerfi
Starfsmenn skólans eru samtals 92.
Að sögn Hrannar eru allir kenn-
arar skólans með kennsluréttindi á
grunnskólastigi og að litlar breyt-
ingar verði á starfsmannahópnum í
vetur. „Þó koma til starfa María Þ.
Helgadóttir þroskaþjálfi og Vilborg
Lárusdóttir iðjuþjálfi. Við fögnum
ráðningu þeirra sérstaklega. Verk-
efnastjórar stiga verða þeir sömu
og áður og Margrét Þorvaldsdótt-
ir kemur til baka úr launalausu
leyfi í fyrra starf sem verkefnastjóri
sérkennslu. Nýir kjarasamning-
ar kennara koma til framkvæmda
í vetur og spennandi að sjá hvaða
tækifæri felast í þeim,“ útskýr-
ir Hrönn. Sú breyting verður á að
ekki verða hefðbundnir viðtals- eða
vitnisburðadagar næsta vetur, held-
ur verður foreldrum boðið að koma
til viðtals yfir allt skólaárið. Mið-
að er við að slík viðtöl verði ekki
sjaldnar en tvisvar á skólaárinu og
oftar ef þurfa þykir. „Foreldrar geta
einnig óskað eftir fundi með um-
sjónarkennurum eða öðrum kenn-
urum hvenær sem er. Við munum
taka í notkun nýtt námsupplýsinga-
kerfi frá Mentor og er því ætlað
að veita nemendum, foreldrum og
skólafólki greinargóðar upplýsing-
ar um námslega stöðu jafnt og þétt.
Allir kennarar skólans munu sækja
námskeið vegna þess nú í upphafi
skólaársins.“
Innleiða Vinaliðaverkefni
Grundaskóli hefur gert samning við
Árskóla á Sauðárkróki um leiðbein-
ingu í innleiðingu svokallaðs Vina-
liðaverkefnis. Verkefnið er norskt
að uppruna og að sögn Hrannar
hefur það á fáum árum náð mikilli
útbreiðslu og er nú starfrækt í yfir
þúsund skólum í Noregi. „Vina-
liðaverkefnið er hluti af Vinaverk-
efninu og gengur út á það að hvetja
nemendur til meiri þátttöku í af-
þreyingu í frímínútunum og skapa
betri skólaanda. Við munum byrja
með 5. -7. bekk í vetur og sjá svo til
með framhaldið en markmiðið er að
bæta við vinnu með 3. bekk sem og
7.-10. bekk.“ Hún segir aðal mark-
miðið með verkefninu vera að bjóða
öllum nemendum skólans fjölbreytt
úrval afþreyingar í löngu frímínút-
um, þannig að bæði yngri og eldri
nemendur skólans finni eitthvað við
sitt hæfi. „Markmið okkar er að allir
nemendur skólans hlakki til að mæta
í skólann sinn, alla daga. Skólalóðin
og frímínúturnar eru samkvæmt ein-
eltisrannsóknum, því miður, helsti
vettvangurinn fyrir einelti. Vina-
liðaverkefnið er ekki eineltisáætlun
heldur stuðningsverkefni við einelt-
isáætlun skólans og er hugmynda-
fræðin sú að þar sem boðið er upp
á skipulagt starf, fái gerendur ein-
eltis aðra hluti til að hugsa um. Að-
gerðarleysi er nefnilega oft rótin að
slæmum hlutum.“
Spornað gegn einelti
Forvarnir gegn einelti eru greini-
lega ofarlega á baugi í Grunda-
skóla. Á skipulagsdögum nú í ágúst
mun Vanda Sigurgeirsdóttir fræða
starfsfólk skólans um forvarnir
gegn einelti og Kristín Einarsdótt-
ir mun segja frá verkefni sínu Leik-
ur að læra. „Þessi innlegg bæði eru,
eins og Vinaliðaverkefnið, hluti af
þeirri áherslu skólans að sporna af
öllum mætti gegn einelti. Þá munu
starfsmenn einnig taka þátt í um-
ræðu um framtíð og skipulag skóla-
mála á Akranesi sem er verðugt
og spennandi verkefni og brýnt að
móta stefnu í þeim efnum til lengri
tíma,“ segir Hrönn. Grundaskóli er
nú að hefja sitt þrítugasta og fimmta
starfsár og segir Hrönn að hann sé
samt í hugum fólks nýi skólinn á
Akranesi. „Það bíða mörg verkefni
starfsmanna skólans og það er bara
tilhlökkun og eftirvænting í fólki.
Veturinn leggst vel í okkur,“ segir
Hrönn Ríkharðsdóttir að endingu.
grþ
Grundaskóli á Akranesi
Markmiðið er að allir hlakki til að mæta í skólann sinn
Smellt af einni fjölmennri sjálfu á
skólaskemmtun.
Einbeittar námsstúlkur í Grundaskóla.
Langar þig í háskólanám?
Menntastoðir er lausnin!
Enda tilvalin leið fyrir þá sem langar að koma sér af stað í námi
Nýtt upphaf
„Ótrúlega skemmtilegt
hvað allir voru á svip-
uðu plani þó svo að
aldur hafi verið frá 20
og uppúr. Það voru
flestir komnir til að
læra og alltaf allir til í
að hjálpa hvort öðru.“
Selma Margrét Arnardóttir
nemi í Menntastoðum 2013-2014 og nú nemandi í
Háskólagáttinni á Bifröst
Markmið námsins er að stuðla að jákvæðu viðhor námsmanna til áframhaldandi náms og
auðvelda þeim að takast á við ný verkefni Í náminu er lögð áhersla á að nemendur læra að
læra, ei sjálfstraust sitt og lífsleikni. Námið er miðað við fullorðna nemendur, þ.e.
einstaklinga 23 ára og eldri.
Menntastoðir eru kenndar í dreifnámi sem þýðir að námið er blanda
af staðlotum og arnámi þar sem nemendur fá námsefnið í gegnum
kennslukerð Moodle og svo hitta þau kennara og aðra nemendur einu
sinni í mánuði í Borgarnesi. Námið er verkefnamiðað og er námsefnið
unnið jafnt og þétt á námstímanum.
Námsgreinar eru; íslenska, enska, danska, stærðfræði, bókfærsla,
tölvu og upplýsingatækni ásamt námstækni.
Námið er metið sem fullnægjandi undirbúningur fyrir nám í Háskólabrú
Keilis, Háskólagátt Háskólans á Bifröst og frumgreinadeild Háskólans í
Reykjavík, einnig má meta námið til eininga í framhaldsskóla.
Kennsla Fyrsta lota á haustönn verður föstudaginn 18. september og laugardag-
inn 19. september í Borgarnesi.
Verð: 128.000 kr.
Nánari upplýsingar gefur Helga Lind verkefnastjóri Menntastoða
á netfangið helgalind@simenntun.is eða í síma 8951662
„Að vera nemandi
í Menntastoðum
hefur veitt mér þann
stuðning og aðhald
sem ég þarfnast til að
hefja nám að nýju eftir
margra ára hlé. Það
hefur styrkt mig og
aukið áhuga minn á
áframhaldandi námi.“
Harpa Hannesdóttir
nemandi í Menntastoðum 2014-2015
Við minnum á fræðslusjóði stéttarfélaganna og niðurgreiðslur þeirra vegna þátttöku í námi og á námskeiðum.
Kynntu þér rétt þinn hjá þínu stéttarfélagi!
SKÓLABLAÐ SKESSUHORNS