Skessuhorn


Skessuhorn - 19.08.2015, Blaðsíða 26

Skessuhorn - 19.08.2015, Blaðsíða 26
MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 201526 SKÓLABLAÐ SKESSUHORNS FJÓRAR HAGNÝTAR NÁMSBRAUTIR Fisktækniskóli Íslands býður upp á fjölbreytt nám í sjávarútvegi á framhaldsskólastigi. Námið er hagnýtt tveggja ára nám sem er byggt upp sem önnur hver önn í skóla og hin á vinnustað. Nemendur geta valið sér námsleiðir í sjómennsku, Verkefni og vinnustaðir eru valdir með hliðsjón af áhuga hvers og eins. Nám í skóla - nám á vinnustað FISKTÆKNI Tveggja ára hagnýtt framhaldsskólanám til starfa í sjávarútvegi og skeldi. Inntökuskilyrði: Grunnskólapróf. Á Fisktæknibraut er hægt að velja þrjár línur: Sjómennska/veiðar - Fiskvinnsla- Fiskeldi Hvert námsár skiptist í eina önn í skóla og eina á vinnustað undir leiðsögn tilsjónamanns (72 ein). MAREL VINNSLUTÆKNI Eins árs nám við vélar og hugbúnað frá Marel. Inntökuskilyrði: Hafa lokið námi í Fisktækni eða sambærilegu námi. Námsárið skiptist í fagbóklegar greinar og vinnustaðanám undir leiðsögn tilsjónamanns (36 ein). GÆÐASTJÓRN Eins árs nám í gæðstjórnun. Inntökuskilyrði: Hafa lokið námi í Fisktækni eða sambærilegu námi. Námsárið skiptist í fagbóklegar greinar og vinnustaðanám undir leiðsögn tilsjónamanns (36 ein). NETAGERÐ Þriggja ára iðnnám með mikla starfsmöguleika til starfa við veiðarfæragerð (48 ein). Spennandi blanda bóklegs og verklegs náms sem gefur mikla starfsmöguleika eða til frekari menntunnar. Nánari upplýsingar hjá starfsmönnum Fisktækniskóla Íslands í síma 412-5966 eða á Skólaakstur af Reykjanesi Umsóknarfrestur til 5.sept Háskólinn á Bifröst Skóli í alþjóðlegu samstarfi sem menntar samfélagslega ábyrga leiðtoga Laugardaginn 15. ágúst var tek- ið á móti nýnemum í Háskólagátt Háskólans á Bifröst og fór þá fram fyrsta vinnuhelgi þeirra. „Í grunn- námi verður svo tekið á móti ný- nemum 20. ágúst og fyrsta vinnu- helgi þeirra er 21.-23. ágúst. Ný- nemadagur meistaranema er 27. ágúst og fyrsta vinnuhelgi þeirra er dagana 28. og 29. ágúst. Kennsla í grunn- og meistaranámi hefst síðan mánudaginn 24. ágúst,“ segir Anna Elísabet Ólafsdóttir, aðstoðarrektor Háskólans á Bifröst. Viðskiptalögfræði í fjarnámi Anna segir að umsóknarfrestur um nám hafi verið til 15. júní og að- sóknin að skólanum sé góð. „Það bárust rúmlega 500 umsóknir til skólans og tæplega 70% þeirra eru í háskólanám, sem er svipaður fjöldi og í fyrra. Í meistarastigsnám bárust tæplega 130 umsóknir og í grunn- námið tæplega 220 sem er nokkur fjölgun frá síðasta ári. Í Háskólagátt bárust tæplega 150 umsóknir í haust sem er nokkru færra en í fyrra. Hins vegar stefnir í að nemendafjöld- inn sem komi til náms í Háskóla- gátt verði svipaður og síðasta haust. Anna segir fjölmargar nýjungar í námsframboði skólans núna. „Á við- skiptasviði bjóðum við í fyrsta skipti upp á þjónustufræði, þ.e.a.s. BA í viðskiptafræði með áherslu á þjón- ustufræði. Á félagsvísindasviði erum við með nýjar línur: BA í miðlun og almannatengslum og BA í bylting- arfræði. Báðar þessar línur byggja á námslínunni hagfræði, heimspeki og stjórnmál. Þá erum við nú, fyrst íslenskra háskóla, að bjóða upp á viðskiptalögfræði í fjarnámi og við- skiptalögfræði á hálfum hraða fyrir þá sem vilja taka hana með vinnu.“ Anna segir þá nýbreytni að bjóða upp á nám í viðskiptalögfræði í fjar- námi og viðskiptalögfræði með vinnu mælist mjög vel fyrir og mjög margar umsóknir hafi borist um það nám. „Sömuleiðis fengu nýj- ar námsbrautir á félagsvísindasviði góðar viðtökur.“ Meðalaldur hærri en í hinum háskólunum Í Háskólanum á Bifröst er alltaf ein- hver starfsemi að sumarlagi. „Á sum- arönn skólans sem stóð frá byrjun maí til júníloka var kennsla í grunn- námi á öllum sviðum og í meistara- námi á lögfræðisviði. Kennsla var með hefðbundnum hætti, þ.e. bæði var kennt í stað- og fjarnámi og var þátttaka nemenda með ágætum.“ Háskólinn á Bifröst hefur þá sér- stöðu að þar hefur meðalaldur allt- af verið hærri en í hinum háskól- unum. „Hjá okkur er meðalaldur- inn nálægt 37 árum. Að jafnaði búa 20-30% nemenda skólans á Bifröst. Við erum þó stöðugt að hvetja nem- endur til að koma og búa hér í okkar frábæra umhverfi. Flestir nemenda sem búa á Bifröst eru fjölskyldufólk og eru tæplega 40 börn á leikskól- anum og að jafnaði eru milli 40 og 60 börn í grunnskóla Borgarfjarð- ar á Varmalandi.“ Hún segir tals- vert rannsóknastarf unnið við Há- skólann. „Það er alltaf nokkuð rann- sóknastarf unnið á Bifröst, bæði í samvinnu við atvinnulífið og í sam- starfi við erlendar stofnanir. Við vilj- um efla þennan þátt okkar enn frek- ar m.a. með þátttöku í erlendu sam- starfi og við erum virk í að sækja um styrki til ýmissa verkefna sem mörg hver hafa skilað okkur áhugaverðum rannsóknaverkefnum.“ Verkefnamiðað nám Forveri Háskólans á Bifröst var Samvinnuskólinn, sem var skóli til að mennta verðandi forystumenn kaupfélaga og Samvinnuhreyfingar- innar. Spurningin til aðstoðarrekt- orsins er því hvort finna megi sam- svörun í Háskólanum á Bifröst í dag við það sem var í gamla Samvinnu- skólanum. „Markmið Háskólans á Bifröst er og hefur alltaf verið að mennta samfélagslega ábyrga leið- toga. Við bjóðum upp á áhugavert nám þar sem lögð er áhersla á að öðlast skilning á fræðilegum grunni námsgreinanna sem við kennum en að geta beitt fræðunum með hag- nýtum hætti fyrir samfélög og fyr- irtæki. Okkar fræðasvið ná til við- skiptafræði, félagsvísinda og við- skiptalögfræði og á öllum fræða- sviðum er námið verkefnamið- að þar sem nemendur takast á við flókin verkefni, mörg hver komin frá atvinnulífinu. Þá tekur Háskól- inn á Bifröst nú virkan þátt í alþjóð- legu samstarfi. Eitt dæmi þar um er styrkur sem Háskólinn fékk frá Evr- ópusambandinu til að þróa sameig- inlega meistaragráðu í viðskiptalög- fræði sem kennd verður í blönduðu námi, þ.e.a.s. fjarnámi með stað- námslotum sem unnar verða í þrem- ur löndum; Danmörku, Írlandi og á Íslandi. Það er mikil viðurkenning fyrir skólann að hafa fengið þennan styrk og verður spennandi verkefni sem mun spanna næstu tvö árin.“ Í fararbroddi í kennsluháttum Háskólinn á Bifröst hefur skapað sér sérstöðu meðal háskóla landsins og Anna segir skólann hafa lagt áherslu á að vera í fararbroddi þegar kemur að kennsluháttum. „Námið á Bifröst hentar því mjög breiðum hópi nem- enda, nemendum á öllum aldri, nem- endum sem vilja búa í frábæru um- hverfi með hvetjandi samnemend- um, kennurum og samstarfsfólki eða nemendum sem ekki eiga þess kost að flytja búferlum en vilja mennta sig. Við kennum öll námskeið skól- ans með lotubundinni vendikennslu sem þýðir að færri námskeið eru kennd í senn yfir styttri tíma. Þetta hjálpar nemendum að einbeita sér að færri námsgreinum og sinna þeim enn betur. Þá taka kennarar skólans upp alla fyrirlestra sem sett- ir eru inn í kennslukerfi skólans þar sem nemendur geta nálgast þá þeg- ar þeim hentar og eins oft og þeir vilja. Kennslustundir eru nýttar til að dýpka skilning nemenda á fræð- um námsefnisins og hjálpa þeim til að beita því með hagnýtum hætti. Þá er námið byggt upp þannig að nem- endur þurfa að vinna mörg verkefni í hópum sem eykur hæfni þeirra til uppbyggjandi samskipta og tengsla- myndunar.“ Alþjóðlegt skiptinám Í Háskólanum á Bifröst er lögð áhersla á alþjóðlega tengingu og nemendur geta farið í skiptinám nánast hvar sem er í heiminum. Anna Elísabet segi skólann líka taka á móti erlendum nemendum. „Skól- inn tekur á móti um 40-50 erlend- um nemendum í skiptinám sem dvelja á Bifröst í 1-2 annir. Stöðug fjölgun hefur verið að utan og er Ís- land greinilega vinsæll áfangastaður nemenda frá erlendum samstarfs- skólum okkar. Þá erum við að leggja drög að sameiginlegri meistaragráðu í viðskiptalögfræði og erum stöð- ugt að vinna að smærri alþjóðleg- um verkefnum við okkar samstarfs- skóla. Bifröst er t.d. þátttakandi í stóru alþjóðlegu verkefni sem nefn- ist „Law withot walls“ þar sem tek- ist er á við breytt atvinnuumhverfi lögfræðinga. Meðal þátttakenda er skólar eins og Harvard, Stanford og University of Miami. Þetta þýð- ir að kennarar og starfsmenn skól- ans heimsækja oft erlenda skóla og kynna sér starfsemi þeirra sem er mikilvægt í umhverfi háskóla. Þá tökum við á móti erlendum gestum sem vilja kynna sér starfsemi skól- ans. Háskólinn á Bifröst hefur alltaf þótt standa framarlega í fjarnámi og hingað hafa komið starfsmenn ann- arra skóla til að kynna sér fyrirkomu- lagið og þá tækni sem við notum við kennsluna.“ Alþjóðlegur sumarskóli er líka í undirbúningi og Anna segir stefnt á að hann hefjist næsta sumar. „Þar verður boðið upp á sex eininga námskeið á háskólastigi í leiðtoga- fræðum með áherslu á nýsköpun og samfélagslega ábyrgð. Námskeiðið tekur þrjár vikur og verður áhuga- vert félagsstarf og ferðamennska um svæðið tengd námskeiðinu.“ hb Anna Elísabet Ólafsdóttir aðstoðar- skólameistari Úr skólastarfinu í Háskólanum á Bifröst.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.