Skessuhorn


Skessuhorn - 19.08.2015, Side 27

Skessuhorn - 19.08.2015, Side 27
MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 2015 27 Nýjung í átt að löggiltum starfsréttindum Tæknistoðir eru einkum ætlaðar þeim sem hafa reynslu úr atvinnulífinu og eru að minnsta kosti 23 ára, eru á vinnumarkaði og hafa hug á að ná sér í löggild starfstengd réttindi í bíl-, málm- og byggingartæknigreinum. Tæknistoðir Eitthvað fyrir þig? • Frábær leið fyrir þá sem vilja byrja á tækninámi í sinni heimabyggð • Tilvalið nám með vinnu • Hæfilegur námshraði • Fjölbreyttar kennsluaðferðir • Góður stuðningur við nemendur Hagnýtt nám og sérsniðin kennsla Ef þú hefur reynslu úr atvinnulífinu og hefur áhuga á að afla þér iðnréttinda og vilt vita meira hafðu samband við okkur Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi Sími 437 2390 Eða hafðu samband beint við Hörð Baldvinsson verkefnastjóra í síma 841 7710 eða sendu honum póst á hordur@simenntun.is Verð kr. 70.000.-www.simenntun.is Grunnskóli Borgarfjarðar hef- ur þrjár starfsstöðvar. Á Varma- landi eru 92 skráðir nemendur, á Kleppjárnsreykjum eru þeir 90 og á Hvanneyri eru 27 nemend- ur skráðir. Nemendur eru því alls 209 talsins en enn er verið að skrá nemendur í skólann og getur sú tala því breyst. Er þetta mjög svip- aður fjöldi og var skráður í skólann síðastliðið haust. Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir skólastjóri verð- ur í námsleyfi í vetur og munu þau Hlöðver Ingi Gunnarsson, deild- arstjóri á Varmalandi og Ingibjörg Adda Konráðsdóttir, deildarstjóri á Kleppjárnsreykjum, skipta með sér verkum í vetur og bæta skóla- stjórninni við deildarstjórastörfin. Breytingar framundan Skólastarf í Grunnskóla Borgar- fjarðar hefst mánudaginn 24. ágúst með skólasetningu og hefst kennsla samkvæmt stundaskrá daginn eft- ir. Miklar breytingar eru fyrirhug- aðar hjá skólanum komandi vetur. „Á Varmalandi verður allt skóla- hald fært yfir í gamla barnaskóla- húsnæðið því fyrirhugað er að selja gamla Húsmæðraskólann. Þessum flutningum á að vera lokið fyrir áramót. Einnig hefur sveitarstjórn ákveðið að loka Hvanneyrardeild skólans í vor, svo þetta er síðasta starfsár þeirrar deildar í núver- andi mynd,“ segir Ingibjörg Adda í samtali við Skessuhorn. Varðandi breytingar á mannauð skólans seg- ir Ingibjörg Adda þær helstar að einn kennari hættir á hverri starfs- stöð en búið sé að ráða í þær stöð- ur. „Allt er þetta réttindafólk eða á lokaspretti í námi því tveir þeirra munu útskrifast sem kennarar í haust. Við erum mjög heppin með hve lítil starfsmannavelta er hjá okkur, því það auðveldar okkur að halda þeim góða skólabrag sem við erum alltaf að vinna að. Við leggj- um mikla áherslu á að koma fram við alla af virðingu og erum alltaf með þarfir nemenda í forgrunni í allri okkar vinnu.“ Sagan allt um kring Grunnskóli Borgarfjarðar er heilsueflandi grunnskóli og Græn- fánaskóli og eru áherslur skólans í takt við þær stefnur. Þá er unnið að innleiðingu verkefnisins „Leið- toginn í mér“ sem Borgarbyggð er í forgöngu með á landsvísu að innleiða í sína grunn- og leikskóla. „Allt styður þetta hvert annað og fléttast inn í skólastarfið. Leið- togaverkefnið leggur áherslu á að styðja hvern og einn í að verða besta útgáfan af sjálfum sér og þarf þá að huga að heilsu sinni og um- hverfinu og leggja sitt af mörk- um til að gera gott betra.“ Ingi- björg Adda bætir því við að einn- ig fari mikil vinna í innleiðingu aðalnámskrár. Í vetur taki boðað- ar breytingar í námsmati gildi og að lögð verði áhersla á að vanda þá vinnu. Hún segir sérstöðu skólans einna helst felast í nálægð við nátt- úruna og miklar orkulindir. „Og svo er sagan allt í kringum okkur. Auk þess gefur stærð skólans mikla möguleika á fjölbreytni í skóla- starfinu. Við erum alltaf að vinna að því að auka samstarf kennara og nemenda með teymiskennslu og samkennslu árganga.“ grþ Grunnskóli Borgarfjarðar Þarfir nemenda í forgrunni Þessi stúlka mætti með hjólabretti á hjóladagana síðasta vor. Kátir krakkar í vorferð. SKÓLABLAÐ SKESSUHORNS

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.