Skessuhorn - 06.01.2016, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 201622
Horft yfir liðið ár og litið til þess nýja
Árni Hjörleifsson oddviti
Skorradalshrepps:
Kynntist betur mörgu
góðu fólki á liðnu ári
„Ánægjulegast fyrir mig
persónulega er að ég hef
sem aðkomumaður hér í
Skorradal fengið að kynn-
ast svo mörgu mjög góðu
fólki eftir ég flutti hingað í
dalinn og hóf svo störf sem
oddviti. Þetta á bæði við um
fólk sem býr í Skorradal en
líka fólk úr nágrannasveitar-
félögunum. Við fórum svo
í að stækka og taka í gegn
skrifstofu sveitarfélagsins hér á Hvanneyrargötu 3 á Hvann-
eyri og það hefur verið skemmtilegt verkefni,“ segir Árni Hjör-
leifsson oddviti Skorradalshrepps. Hann flutti í sveitina fyr-
ir nokkrum árum en hafði áður búið í Hafnarfirði. Þar hafði
hann reyndar fengið nokkra reynslu í sveitarstjórnarmálum, sat
þar í bæjarstjórn í átta ár og lengur í ýmsum nefndum á veg-
um bæjarins.
Árni segir að árið hafi verið gott fyrir hann. „Ég hef hald-
ið áfram við uppbyggingu á húsakosti á Horni í Skorradal þar
sem ég bý. Það hefur gengið mjög vel. Svo gekk mér líka vel
að veiða urriða bæði í Andakílsá og Hornsá. Ég fékk nokkra
urriða þarna, þar á meðal einn fimm punda. Svo tókst mér að
klífa sjálfan tind Skessuhorns. Ég hafði tekið þátt í tilraunum
til þess áður fyrr á árum þegar ég var í Flugbjörgunarsveitinni
en það var að vetrarlagi og við lentum alltaf í brjáluðum veðr-
um og urðum að snúa við. En nú fór ég að sumri til og tók því
bara rólega og komst á toppinn,“ segir Árni með pínu stolti í
röddinni.
Þrátt fyrir allt þetta dró líka ský fyrir sólu á árinu. „Mesta
sorgin og vonbrigðin líka var andlát Jóhönnu Guðjónsdóttur á
Grund. Hún var mikil sómamanneskja og miðpunktur í sveit-
inni með Davíð eiginmanni sínum. Hann var jú oddviti hér í
44 ár og sat 48 ár í hreppsnefnd. Það var mikill skaði fyrir sam-
félagið allt að missa Jóhönnu. Annað sem mætti nefna er við-
varandi óánægja okkar hér í Skorradal með það hve lítið og
hægt gengur í vegabótum innan hreppsins þrátt fyrir endalaus-
an barning við stjórnvöld.“
Árni segir að ýmis verkefni bíði úrlausnar á nýju ári og helstu
væntingarnar séu tengdar því að leiða þær farsællega til lykta.
„Talandi um sveitarstjórnarmálin þá þurfum við að ná að lenda
skólamálum fyrir nemendur úr Skorradalshreppi. Þau hafa far-
ið í grunnskóla á Hvanneyri samkvæmt samningi sem við höf-
um haft við Borgarbyggð en nú er það í uppnámi með lokun
skólans þar. Við höfum verið í viðræðum um nýjan skólasamn-
ing bæði við Borgarbyggð og Hvalfjarðarsveit. Ég vonast til að
við fáum niðurstöðu í þetta mál á árinu. Síðan erum við bjart-
sýn og höfum enn sem fyrr væntingar í vegamálum Skorradals.
Svo væri gott ef skref næðust í ljósleiðaramálum, sá málaflokkur
verður stöðugt meira aðkallandi,“ segir Árni Hjörleifsson.
Ingibjörg Birna Erlingsdóttir
sveitarstjóri:
Reykhólasveit í
góðu jafnvægi
„Opnunin á nýja kaflan-
um á Vestfjarðarvegi 60 frá
Kjálkafirði að Litlanesi með
tveimur þverunum,“ svar-
ar Ingibjörg Birna án hiks
þegar hún er spurð hvað
henni hafi þótt ánægjuleg-
ast á árinu sem leið. „Þessi
kafli var opnaður í haust
og er stóráfangi í vegagerð
í Reykhólahreppi. Svo er
náttúrulega búið að vera gaman að sjá að börnunum fjölgar vel
hjá okkur. Þau voru tíu í hitteðfyrra og nokkur bættust við í
ár. Það fluttu líka til okkar fjölskyldur. Sveitarfélagið er í jafn-
vægi hvað íbúafjölda snertir og við erum að yngjast, það er að
segja að meðalaldurinn hefur lækkað. Hingað hefur flutt mikið
af fólki sem er ungt og það á mörg börn. Hér er mikil gróska og
mikið líf. En það vantar húsnæði,“ segir hún.
Ingibjörg Birna segir einnig ánægjulegt að á árinu hafi haf-
ist skemmtileg samvinna innan stjórnsýslu milli Reykhólasveit-
ar, Strandabyggðar og Dalabyggðar. „Við erum að vinna sam-
eiginlegt svæðisskipulag. Að öðru leyti þá gekk árið vel í heild
sinni. Það er góður andi í stofnunum sveitarfélagsins og allir að
vinna áfram í sínu.“
Hún verður þögul og greinilega hugsi þegar spurt er hver
séu vonbrigði ársins? „Ég bara veit það ekki,“ segir hún loks
en bætir strax við: „Kannski að við skyldum ekki hafa unnið í
spurningakeppninni Útsvari á RÚV en liðið okkar komst samt
áfram á fjölda stiga þannig að við náum fram hefndum á þessu
ári,“ segir Ingibjörg og hlær dátt. „Mér fannst þetta mjög gott
ár bæði fyrir sveitarfélagið og sjálfa mig. Þetta var fimmta árið
mitt í starfi síðan ég flutti hingað vestur á Reykhóla. Í dag finnst
mér ég eiga heima hér. Ég sé mikla möguleika í framtíðinni hér
þó ég yrði ekki sveitarstjóri áfram. Börnunum líður líka vel hér.
Það má segja að þetta hafi verið ár jafnvægis. Allt er í föstum
skorðum og maður hefur vald á öllu í kringum sig“.
Varðandi væntingar fyrir næsta ár segir sveitarstjóri Reyk-
hólahrepps að þær snúist fyrst og fremst um að lið sveitarinn-
ar vinni Útsvarið og leggi Reykjavík í æsispennandi lokakeppni.
„Ha, ha, ha,“ hlær hún dátt. „En svona án gríns þá ætlum við að
vinna áfram á sömu braut og við höfum gert undanfarin ár. Við
ætlum að gera fallegt í kringum okkur og fara í viðhald á ýms-
um fasteignum í eigu sveitarfélagsins. Nú er komin fjárhagsleg
geta hjá okkur til að sinna því enda kominn tími á margt. Svo
er stóra málið á árinu að fylgjast með Vestfjarðarvegi 60 um
Hjallaháls og Ódrjúgsháls. Nú fer fram endurupptaka á um-
hverfismati vegna þessarar framkvæmdar sem áður var búið að
fara fram. Vonandi fæst niðurstaða á þessu ári. Við fylgjumst
spennt með þessu og höfum miklar væntingar því þetta mun
breyta miklu fyrir íbúana hér á Reykhólum. Við horfum líka
til ljósleiðaravæðingar, að það verkefni haldi áfram í undirbún-
ingi á árinu. Við trúum ekki öðru en að þar verði stigin fram-
faraskref þó við höfum orðið fyrir vonbrigðum með fjárveiting-
ar til þessa núna.“
Sturla Böðvarsson bæjarstjóri í
Stykkishólmi:
Framkvæmdaár fram-
undan í Hólminum
„Persónulega er það vel-
gengi fjölskyldunnar og góð
heilsa sem ég hugsa til með
mestri ánægju þegar litið er
um öxl til síðasta árs. Við
höfum átt ótrúlega marg-
ar og góðar samverustundir
sem er nokkuð sem ég legg
mikið uppúr. En tali ég sem
bæjarstjóri Stykkishólms
þá er af ýmsu að taka. Fjár-
hagsstaða bæjarfélagsins hefur batnað. Þar af leiðandi aukast
möguleikar okkar til að takast á við ný verkefni. Efst á baugi nú
hvað þetta varðar er stækkun grunnskólans þar sem bókasafn
og ljósmyndasafn eiga að vera.“
Aðspurður um hvað hafi valdið honum mestum vonbrigð-
um á árinu nefnir hann þjóðfélagsumræðuna. „Þegar ég leit
um öxl nú um áramót þá fann ég vonbrigðatilfinningu yfir því
hve mikið er búið að kynda undir ósamlyndi þjóðarinnar á sam-
skiptamiðlunum og er gert enn. Staða þjóðarbúsins og okkar
Íslendinga er ævintýralega góð miðað við það sem er annars
staðar í veröldinni. Þessu er ekki haldið á lofti heldur er stöð-
ugt alið á ósætti og ósamlyndi þegar við ættum í staðinn fyr-
ir að taka höndum saman og vinna með stjórnvöldum. Ég held
að þetta sé að skaða okkur öll sem þjóð. Við myndum ná enn
betri árangri ef við stilltum betur saman strengi okkar og yrð-
um meira samstíga.“
Þrátt fyrir þetta segist Sturla Böðvarsson þó vera mjög sátt-
ur við 2015. „Margt gekk vel og heilt yfir er ég mjög ánægður
með síðasta ár. Bæjarstjórinn í Stykkishólmi byrjar nýtt ár með
töluverðar væntingar í farteskinu. „Það eru mikil framkvæmda-
áform hjá okkur. Við erum að vinna að mótun skólastefnu fyr-
ir grunnskóla og leikskóla sem ég bind miklar vonir við því við
þurfum mjög á því að halda að móta skýra stefnu í uppeldis-
og fræðslumálum í Stykkishólmi. Vonum að ný atvinnutækifæri
skapist áfram í ferðaþjónustunni. Það er mikill vöxtur framund-
an hjá okkur og við erum að undirbúa það. Áform eru uppi um
að nýta betur auðlindir svo sem þang og þara í Breiðafirði og
vonandi er skelin að koma upp aftur. Ég er bjartsýnn,“ segir
Sturla Böðvarsson.
Sif Matthíasdóttir oddviti í
Helgafellssveit:
Glöð að ýmis mál
komust í höfn á liðnu ári
„Þann 1. september eignuðumst við hjónin sjöunda barna-
barnið sem er drengur,“ svarar Sif Matthíasdóttir oddviti
Helgafellssveitar þegar hún er spurð hvað henni hafi þótt
ánægjulegast á síðasta ári. „Ég er líka afskaplega glöð að okk-
ur tókst að leysa ýmis mál sem við höfum haft hangandi yfir
okkur hér í Helgafellssveit. Vinna við aðalskipulagið kláraðist
til að mynda í vor. Síðan fengum við ljósleiðara í sveitina sem
við lögðum sjálf og hann sannaði sitt gagn á árinu sem leið. Ég
heyri ekki annað en allir íbúar séu ánægðir með ljósleiðarann.
Þessi tækni munar mjög miklu fyrri íbúa. Það er ekki hægt að
segja annað en þetta sé bylting,“ segir Sif.
Aðspurð um hver hún
telji helstu vonbrigði síð-
asta árs segist Sif vera
bjartsýn að eðlisfari og því
ekki mikið fyrir að velta sér
upp úr slíku. „Vissulega er
kannski margt sem manni
finnst að betur mætti fara
bæði í stóru og smáu. Hér
í Helgasfellssveit hefur allt
gengið ágætlega. Sveitar-
félagið er þó enn sem fyrr
fámennt og það er dýrt að
reka svona litla einingu.
Það þyrfti með einhverjum
ráðum að fjölga íbúum. En
annars hefur samvinna milli sveitarfélaga hér á Snæfellsnesi
gengið mjög vel og ég vona að svo verði áfram.“
Sif segist sátt við árið 2015. „Heyskapurinn hefði þó mátt
ganga betur. Það var alltof blautt í fyrrasumar. En í það heila
vil ég segja að á meðan allir halda heilsu og geta unnið sam-
an þá gengur allt ágætlega.“ Hún verður hins vegar leyndar-
dómsfyllri þegar spurt er um væntingar fyrir nýhafið ár. „Þær
eru til staðar en það er ekkert sem ég vil tíunda núna því það á
eftir að ræða það betur,“ segir Sif Matthíasdóttir.
Kristinn Jónasson bæjarstjóri
í Snæfellsbæ:
Möguleikarnir hér eru
geysilegir og bjart
framundan
„Á nýliðnu ári tókst mér
að verja meiri tíma en oft-
ast áður með börnum mín-
um og vinum. Það var af-
skaplega gaman. Ég varð
fimmtugur á árinu og
kannski meyrnar maður
svona með árunum. Fram-
an af ævi hef ég eytt mikl-
um tíma í vinnu og jafnvel
sett hana í forgang en nú
vil ég fara að breyta þessu
og sinna mínu fólki bet-
ur. Svo situr sólmyrkvinn
í mér sem eftirminnileg-
ur viðburður. Það var ekki
myrkrið sem kom þegar
sólin hvarf heldur kuldinn sem varð. Þetta kom mér mjög á
óvart og var áhugavert. Síðan er það auðvitað frábær árangur
Víkings Ólafsvík í 1. deildinni í knattspyrnu,“ segir Kristinn
B. Jónasson bæjarstóri í Snæfellsbæ.
Hann segist ekki geta talið upp sérstök mál sem hafi vald-
ið beinum vonbrigðum. „Mér eru þó minnisstæð mörg erf-
ið starfsmannamál sem hafa snúið að kjaramálum og sitja í
mér. Ég hef ekki upplifað svona áður. Árið 2015 er með erf-
iðari árum sem ég hef átt sem stjórnandi. Það er leiðinlegt
að standa í svona innra stappi þegar maður sjálfur og þau
sem maður er að deila við erum öll í því hlutverki að eiga að
veita íbúunum þjónustu. Um það snúast sveitarstjórnarstörf-
in,“ segir Kristinn. Hann dvelur við þetta og segir að bestu
árin sem bæjarstjóri hafi hann átt fyrst. „Þá voru allir sam-
taka en nú hefur þetta breyst. Það er aukin harka og stífni,
þetta er svona eins og 2007 sé að koma aftur.“
Kristinn segir að 2015 hafi verið mjög gott ár og að vænt-
ingarnar séu jákvæðar fyrir nýhafið ár. „það er margt spenn-
andi framundan. Hér á svæðinu eru svo svakaleg tækifæri.
Það hefur orðið gífurleg sprenging í fjölda ferðamanna og
þar eigum við langt í land að nýta tækifærin. Hingað hafa
hundruð gesta komið bara nú um jól og áramót. Það eru
miklir möguleikar í afþreyingaþjónustu hér á Snæfellsnesi,“
segir hann. Síðan eru einnig væntingar varðandi sjávarút-
veginn þó þar megi líka greina ógnir. „Miðað við haustrall
Hafró ætti ekkert að gerast annað en að það veiðist meira
af þorski hér Vestanlands. Veiðin hjá bátunum nú í upp-
hafi árs er mjög góð. Síldin er komin í Breiðafjörð og inn
á Kolgrafafjörð og hún dregur þorskinn með sér. Í fyrravet-
ur kom loðnan hingað inn á Breiðafjörð þar sem hún drapst.
Ég sé ekki annað en Breiðafjörður eigi eftir að verða fullur
af þorski núna eftir áramót. Horfurnar fyrir 2016 eru mjög
góðar,“ slær Kristinn Jónasson föstu.