Skessuhorn - 02.03.2016, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 20166
ASÍ fólk
samþykkti
kjarasamning
Sameiginlegri allsherjarat-
kvæðagreiðslu félagsmanna
aðildarsamtaka Alþýðusam-
bands Íslands um kjarasamn-
ing milli aðildarsamtaka ASÍ
og Samtaka atvinnulífsins
frá 21. janúar síðastliðinn
lauk síðastliðinn miðviku-
dag. „Já“ sögðu 9.274 eða
91,28%. „Nei“ sögðu 832
eða 7,81%. Auðu skiluðu
97 eða 0,91%. Kjarasamn-
ingurinn var því samþykkt-
ur. Á kjörskrá voru 75.635.
atkvæði greiddu 10.653 eða
14,08%.
-mm
Héraðsdýra-
læknir í rúmt ár
VESTURLAND: Matvæla-
stofnun hefur auglýst laust
til umsóknar tímabund-
ið starf héraðsdýralæknis
Vesturumdæmis. Ráðning-
artímabil er 1. júní 2016 til
15. ágúst 2017. Aðsetur hér-
aðsdýralæknis innan um-
dæmisins er samkomulags-
atriði milli aðila, segir í aug-
lýsingu. Héraðsdýralæknir
ber ábyrgð á og hefur eft-
irlit með heilbrigði og vel-
ferð dýra, frumframleiðslu
matvæla, slátrun og vinnslu
dýraafurða auk sóttvarna
gegn smitsjúkdómum og
viðbrögðum við þeim í um-
dæminu. Hann ber ábyrgð á
framkvæmd opinbers eftir-
lits, skipulagi vaktþjónustu
dýralækna og er ábyrgur
fyrir rekstri umdæmisskrif-
stofunnar.
–mm
Dagur Baldurs
og barna hans
BORGARFJ: Mánudaginn
29. febrúar var spilaðir tví-
menningur hjá Briddsfélagi
Borgarfjarðar í Logalandi.
Spilaður var Monrad með
forgefnum spilum. Kol-
hreppningarnir Gísli í Mýr-
dal og Ólafur á Brúarhrauni
fóru af stað með látum og
settust sem fastast á 1. borð
í N-S. Þangað komu fórn-
arlömbin í röðum þar til
að þeim köppum leiddist á
toppnum og hleyptu öðrum
að. Þetta varð kvöld Baldurs
í Múlakoti og barna hans.
Baldur og Jón voru aldrei
langt að baki þeim Kol-
hreppingum og lönduðu 2.
sætinu með jafnri og góðri
spilamennsku. En Heiðar
og Anna Heiða Baldursbörn
gerðu mun betur, ruddu
Gísla og Ólafi af stallinum
og stóðu uppi sem verðug-
ir sigurvegarar með rúm-
lega 60% skor. Næstu tvö
mánudagskvöld verður ein-
menningur félagsins leikinn
og verður um tveggja kvölda
aðskilin spilakvöld að ræða
svo að mönnum er frjáls
að mæta annað kvöldið eða
bæði en að sjálfsögðu verð-
ur það sigurvegari úr sam-
anlögðu sem fer með bikar-
inn heim.
-ij
Spenna fyrir
lokakvöld BA
AKRANES: Spennan er
mikil í toppbáráttu sveita
Briddsfélags Akraness þeg-
ar eitt kvöld er eftir af aðal-
sveitakeppni félagsins. For-
mannssveitin leiðir með 81
stig en fast á hæla hennar
kemur sveit Tryggva Bjarna-
sonar með 74. Þessar sveit-
ir mætast einmitt í lokavið-
ureigninni á fimmtudags-
kvöld. Þarf Tryggvi að sigra
með a.m.k. 19 stigum gegn
11 til að hafa Einar og fé-
laga undir. Í þriðja sæti fyr-
ir lokakvöldið er síðan sveit
Guðmundar Ólafssonar með
65 stig og á eftir keppni við
sveit Heiðars Baldurssonar
sem vermir nú fjórða sætið
með 52 stig.
–mm
Lausaganga
hrossa
VESTURLAND: Lögregl-
an á Vesturalndi fékk all-
nokkrar tilkynningar í lið-
inni viku um lausagöngu
hrossa á vegsvæðum í um-
dæminu. Flest tilfellin voru
á Snæfellsnesvegi. Hross eru
að sleppa út úr girðingum,
sem liggja sums staðar niðri
eða eru á kafi í snjó. Þegar
harðnar á dalnum í frosti og
snjó þarf að sögn lögreglu að
huga vel að öllum útigangi
og gefa vel. Hross sem ekki
fá nóg að éta leita frekar út
úr girðingarhólfum. Ábyrgð
eigenda er mikil ef eitthvað
gerist.
–mm
Fulltrúar hestamannafélaga á Vest-
urlandi hafa ákveðið að efna til Vest-
urlandssýningar sjötta árið í röð. Er
hún ráðgerð laugardaginn 2. apríl
klukkan 20 í Faxaborg í Borgar-
nesi. Undirbúningur er hafinn og
mun allt kapp verða lagt á að sýn-
ingin í ár verði sem glæsilegust. Að
sögn undirbúningsnefndar munu á
sýningunni koma fram vestlensk-
ir gæðingar og dæmi um atriði eru
sýningar hjá börnum, unglingum,
ungmennum ásamt fimmgangs- og
fjórgangshestum, skeiði, tölti, kyn-
bótahrossum og ræktunarbúum
ásamt mörgum fleiri atriðum með
góðum gestum.
Að sögn mótshaldara verður dag-
skrá kynnt þegar nær dregur. Þeir
sem hafa ábendingar um atriði
eða hross, sem eiga erindi á sýn-
inguna geta komið þeim á fram-
færi við eftirtalda: Baldur Björns-
son, s. 895-4936, Benedikt Þór
Kristjánsson, s. 896-1581, Hlöð-
ver Hlöðversson, s. 661-7308, Sig-
rún Ólafsdóttir, s. 862-8422 eða
Þorgeir Ólafsson, s. 692-6779. Sér-
stakir tengiliðir fyrir atriði barna,
unglinga og ungmenna eru: Berg-
lind Ragnarsdóttir, s. 897-1072
og Bjarki Þór Gunnarsson, s.
848-2094. mm
Hestamannafélögin stefna að
Vesturlandssýningu
Svipmynd af Vesturlandssýningunni í fyrra. Hér sýndu börn og unglingar í
Faxaborg.
Hundurinn, sem fannst
haltrandi í vegkantinum
ofan Borgarness aðfara-
nótt síðastliðins mánudags
og var talinn vera þreyttur
og hrakinn, reyndist vera
17 ára gamall og því eðli-
lega fótfúinn enda orðinn
rúmlega 100 ára gamall
samkvæmt gömlu „hunda-
og mannára“ reglunni.
Sagði eigandi hans að satt
best að segja þá tryði hann
því varla að hundurinn
hefði getað gengið nokkra
kílómetra til að komast
út á þóðveginn því hann
væri orðinn svo lélegur til
gangs. Eigandinn kvaðst
hafa verið að viðra hund-
inn og því hleypt hon-
um út. Stuttu síðar hafi hundur-
inn horfið. Hann kvaðst hafa leit-
að árangurslaust að honum fram
eftir kvöldi. Það var svo kona sem
tók hundinn upp í bíl hjá sér eftir
að hafa séð hann haltra um í veg-
kantinum skammt ofan
við Borgarnes og keyrði
með hann til Reykjavíkur.
Hún sagðist ætla að hugsa
vel um hann og ekki hafa
getað hugsað sér að farið
yrði með hann til hunda-
eftirlitsmanns. Konan
hafði samband við Lög-
regluna á Vesturlandi og
tilkynnti að hún færi með
hundinn heim til sín og
hugsaði um hann þar til
hefðist upp á eigandanum.
Eftir að myndir af hundin-
um birtust á hundasíðum
á netinu og í fjölmiðlum
gaf eigandinn sig fram og
náði í hundinn. Eigandinn
var konunni afar þakklátur
fyrir að hafa aumkvað sig
yfir hundinn og hugsað svona vel
um hann.
mm/tþ
Aldinn hundur á flækingi