Skessuhorn - 02.03.2016, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 20168
Loðnan farin
að veiðast
VOPNAFJ: Víkingur AK
kom til hafnar á Vopnafirði
í lok febrúar með rúm 1700
tonn af loðnu sem fór til
frystingar í uppsjávarfrysti-
húsi HB Granda á staðn-
um. Þá hafði Venus NS einn-
ig verið á veiðum og landaði
rúmlega þúsund tonnum af
loðnu tveimur dögum fyrr.
Vertíðin hófst óvenju seint að
þessu sinni og var þetta fyrsta
loðnan sem skip HB Granda
komu með til Vopnafjarðar á
vertíðinni.
–grþ
Aflatölur
fyrir Vesturland
20. - 26. febrúar
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes 6 bátar.
Heildarlöndun: 74.141 kg.
Mestur afli: Akraberg ÓF:
35.244 kg í fimm löndunum.
Arnarstapi: Engar landanir í
vikunni.
Grundarfjörður 8 bátar.
Heildarlöndun: 343.911 kg.
Mestur afli: Geir ÞH: 75.914
kg í fimm löndunum.
Ólafsvík 22 bátar.
Heildarlöndun: 576.977 kg.
Mestur afli: Bárður SH:
55.665 kg í sex löndunum.
Rif 19 bátar.
Heildarlöndun: 733.987 kg.
Mestur afli: Tjaldur SH:
158.788 kg í tveimur róðrum.
Stykkishólmur 7 bátar.
Heildarlöndun: 156.529 kg.
Mestur afli: Þórsnes SH:
75.714 kg í þremur löndun-
um.
Topp fimm landanir á tíma-
bilinu:
1. Tjaldur SH - RIF:
87.880 kg. 21. febrúar.
2. Tjaldur SH - RIF:
70.908 kg. 25. febrúar.
3. Örvar SH - RIF:
69.908 kg. 22. febrúar.
4. Hringur SH - GRU:
62.553 kg. 24. febrúar.
5. Rifsnes SH - RIF:
61.251 kg. 21. febrúar.
-grþ
Árshátíð GBF
VARMALAND: Fimmtu-
daginn 3. mars verður
árshátíð Varmalandsdeild-
ar Grunnskóla Borgarfjarð-
ar haldin í Þinghamri og
hefst klukkan 17:00. „Boð-
ið verður upp á fjölbreytta
skemmtun fyrir alla fjöl-
skylduna. Frítt inn en kaffið
selt. Hvetjum alla til að
koma konur, karla, ömm-
ur, afa, frænkur og frændur.
Verð fyrir kaffi: 1000 krónur
fyrir fullorðna, 500 krónur
fyrir börn á grunnskólaaldri
en frítt fyrir börn á leikskóla-
aldri og þriðja barn í hóp,“
segir í tilkynningu.
–mm
Auglýst eftir
verkefnastjóra
Unglinga-
landsmóts
BORGARNES: Ung-
lingalandsmót UMFÍ verð-
ur haldið í Borgarnesi um
verslunarmannahelgina á
sumri komanda. Mótið er ár-
legt og þar keppa ungmenni
á aldrinum 11-18 ára í hin-
um ýmsu íþróttagreinum.
UMFÍ hefur auglýst laust
til umsóknar starf verkefna-
stjóra Unglingalandsmóts
2016. Verkefnastjóri mun
starfa að skipulagningu og
framkvæmd mótsins við hlið
framkvæmdastjóra. Ráðið
verður í starfið til um það
bil tveggja mánaða, júní og
júlí og þarf viðkomandi að
vera staðsettur í Borgarnesi
eða nágrenni á starfstím-
anum. Nánari upplýsingar
um starfir veitir Ómar Bragi
Stefánsson landsfulltrúi í
síma 898-1095.
–kgk
VARMADÆLUR
RAUNVERULEGUR SPARNAÐUR
YFIR 10 ÁRA REYNSLA VIÐ ÍSLENSKAR AÐSTÆÐUR OG
HUNDRUÐ ÁNÆGÐRA NOTENDA SEGIR ALLT SEM SEGJA ÞARF.
FJÖLBREYTTIR HITUNARMÖGULEIKAR:
Loft í loft Loft í vatn Vatn í vatn
FUJITSU LTCN LOFT Í LOFT VARMADÆLAN:
Best í prófun hjá SP í Svíþjóð
WWW.GASTEC. IS
Magnús Guðbjarnason í Borgarnesi,
sem oft er kenndur við Straumfjörð á
Mýrum, er rósahafi vikunnar í Vetr-
ar-Kærleik Blómasetursins - Kaffi
kyrrðar í Borgarnesi. Rósina fær
hann fyrir hvað hann er, eins og seg-
ir í tilnefningunni; „ötull sjálfboða-
liði hjá Rauða Krossin-
um, vinnur í þágu sam-
félagsins. Hann er ein-
lægur, fróður maður og
bóngóður, þægilegur í
alla staði.“
mm
Magnús er rósahafi
vikunnar í
Vetrarkærleiknum
Í vikunni sem leið hóf Samkaup
Strax í Búðardal að selja raftæki
frá versluninni Heimilistækjum, en
það mun vera rúmur áratugur síð-
an raftækjadeild var síðast starfrækt
á svæðinu. Samkvæmt upplýsing-
um frá Ingvari Bæringssyni versl-
unarstjóra verða vörurnar á sömu
kjörum og boðið er upp á í versl-
un Heimilistækja og einnig verða
viðskiptavinir þjónustaðir með sér-
pöntunum á þeim vörum sem ekki
verða á lager í Búðardal. Viðskipta-
vinir geta fylgst með vöruúrvalinu
á vefsíðunni www.ht.is og heldur
Ingvar utan um sérpantanir ásamt
samstarfskonu sinni Carolin A
Baare Schmidt.
sm
Raftækjadeild opnuð í Samkaup Búðardal
Ingvar verslunarstjóri í nýju raftækjadeildinni.
Oft geta hversdagslegir hlutir vak-
ið athygli og umhyggja fyrir dýr-
um gefur gott tilefni til þess. Elín Þ.
Melsted býr á Álfhólum í Dölum og
er ein þeirra sem hefur mikla ánægju
af því að fóðra smáfuglana yfir vetr-
armánuðina. Elín gætir þess að eiga
alltaf nóg til af fóðri sem hún strá-
ir út til smáfuglanna og að gamni
sínu hefur hún haldið tölu yfir korn-
magnið sem hún hefur gefið síð-
ustu tvö árin. Árið 2014 gaf hún um
40 kg af smáfuglafóðri en árið 2015
varð magnið heldur meira eða 60
kg. Telur Elín nokkuð líklegt að það
hafi verið örlítið harðara í ári seinna
árið, kornmagnið fór í það minnsta
í meira mæli. Það sem af er nýju ári
bendir til að ekki verði minni þörf á
fóðrun en fyrri árin og er fólk hvatt
til að lauma út góðgæti fyrir þessi
smáu fiðurdýr, a.m.k. meðan ekki
sést í auða jörð.
sm
Hlúir vel að
smáfuglunum