Skessuhorn - 02.03.2016, Síða 10
MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 201610
ASK arkitektum í Reykjavík hefur
verið falið að deiliskipuleggja Sem-
entsreitinn á Akranesi. Samningur
þess efnis var undirritaður síðast-
liðinn föstudagsmorgun. Stefnt er
að því að öllu skipulagsferlinu verði
lokið fyrir árslok. Í tilkynningu frá
Akraneskaupstað segir að skipulagið
taki aðallega til athafnasvæðis Sem-
entsverksmiðjunnar. Akraneskaup-
staður tók við svæðinu í lok árs 2013
og hugmyndin er að nýta það fyrir
íbúðabyggð og þjónustu auk hafn-
tengdrar starfsemi. Upphaflega var
efnt til opins íbúafundar í ársbyrj-
un 2014 um framtíðarnýtingu reits-
ins og var skipaður starfshópur til að
fjalla um framhaldið. Óskað var eft-
ir tillögum að skipulagi reitsins frá
arkitektastofunum ASK arkitekt-
um, Kanon arkitektum og Land-
mótun eftir ákveðnum forskriftum
og voru tillögur þeirra kynntar íbú-
um á fundi í október síðastliðnum. Í
desember var ákveðið að semja við
ASK arkitekta um að ljúka deili-
skipulagsvinnunni. Verkefnið verð-
ur unnið í nánu samráði við Faxa-
flóahafnir enda er hluti skipulags-
svæðisins í eigu þeirra. Gert er ráð
fyrir að verkefnið hefjist á skipulags-
lýsingu og að hin eiginlega skipu-
lagsvinna taki við í maímánuði.
Drög að skipulagi verða að öllum
líkindum kynnt almenningi síðsum-
ars. Endanleg skipulagsgögn skulu
liggja fyrir í september og þá verð-
ur skipulagið sett í auglýsingaferli.
Öllu ferlinu á þannig að vera lokið
fyrir næstu áramót.
Skipuleggja 7,5 hektara
Að sögn Regínu Ásvaldsdóttur bæj-
arstjóra er verkefnið stórt enda sé
skipulagssvæðið alls um 75 þúsund
fermetrar, eða 7,5 hektarar. „Sem-
entsreiturinn sjálfur er 55 þúsund
fermetrar og svo nær skipulagið yfir
Faxabrautina meðfram honum og
einnig yfir hluta hafnarsvæðisins.
Ásýnd strandlengjunnar á Akranesi
mun taka miklum breytingum með
uppbyggingunni þarna.“ Páll Gunn-
laugsson arkitekt hjá ASK arki-
tektum segir verkefnið áhugavert
og óvenjulegt í ýmsum skilningi.
„Hönnunarreiturinn er á sögulegu
svæði og þar er eitt helsta kennileiti
Akraness. Það er tímanna tákn að
leggja niður verksmiðju miðsvæðis í
bæjarsamfélagi og skipuleggja land-
ið til annarra nota. Akraneskaup-
staður sýnir hér mikinn metnað
fyrir sína hönd og íbúanna og fyrir
okkur hönnuðina er verkefnið bæði
ögrandi og spennandi.“ grþ
Samið við ASK arkitekta um skipulag Sementsreitsins
Skrifað undir samninga við Akraneshöfn á föstudagsmorguninn. Sitjandi frá
vinstri: Rakel Óskarsdóttir, formaður starfshóps bæjaryfirvalda um Sementsreit;
Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri; Páll Gunnlaugsson og Gunnar Örn Sigurðsson
fulltrúar ASK-arkitekta. Að baki þeim standa Sigurður Páll Harðarson, sviðsstjóri
skipulags- og umhverfissviðs Akraneskaupstaðar og Bjarnheiður Hallsdóttir
fulltrúi starfshóps bæjaryfirvalda um Sementsreitinn. Ljósm. arh. Þrívíddarmynd ASK-arkitekta af skipulagssvæðinu á Akranesi.
Teikningin sýnir afmörkun svæðisins sem deiliskipulagið nær yfir.
Verkalýðshreyfingin er ein öflug-
asta félagshreyfing þjóðarinnar.
Flestir vita af hreyfingunni, marg-
ir njóta þjónustu hennar, sýna
skilning á hlutverki hennar en
þeir eru líklega fleiri sem gera sér
ekki grein fyrir hversu stórt hlut-
verk hennar er í sögu þjóðarinnar
síðustu hundrað árin. Þess vegna
er mikilvægt að rifja upp söguna
og vekja athygli á framlagi verka-
lýðshreyfingarinnar til mótun-
ar íslensks samfélags. Laugardag-
inn 12. mars næstkomandi verða
hundrað ár liðin frá því að 20 ein-
staklingar frá sjö verkalýðsfélög-
um bundust samtökum um að efla
samtakamátt sinn í baráttunni fyr-
ir bættum kjörum og Alþýðusam-
bandið varð til.
Á fyrstu árum hreyfingarinnar
snérust baráttumálin um að verka-
fólk fengi greitt fyrir vinnu í pen-
ingum, um hvíldartíma og mann-
sæmandi mannabústaði. Alla tíð
síðan hafa réttindamál af ýms-
um toga einkennt starf verkalýðs-
hreyfingarinnar og er nú svo kom-
ið að réttindi og aðbúnaður ís-
lensks launafólks er með því allra
besta sem þekkist í heiminum.
Má þar nefna veikinda- og orlofs-
rétt, sjúkrasjóði og lífeyrisréttindi.
Það má þó ekki sofna á verðinum
því stöðugt þurfa stéttarfélögin að
verja það sem hefur áunnist auk
þess að sækja fram til frekari sigra.
Tímamótanna mun ASÍ minnast
með ýmsum hætti á nokkrum stöð-
um á landinu; í Reykjavík, á Akur-
eyri, Ísafirði og Neskaupstað.
Þjóðminjasafn Íslands
Sögu Alþýðusambandsins verða
gerð skil á ljósmyndasýningunni
Vinnandi fólk í Þjóðminjasafn-
inu í Reykjavík og verður sýningin
opnuð 5. mars nk. Þar verður birtu
brugðið á það hvernig aðstaða og
aðbúnaður vinnandi fólks á Íslandi
hefur breyst frá stofnun ASÍ. Sýn-
ingin er vitnisburður um framþró-
un hjá vinnandi fólki á mörgum
sviðum á síðustu hundrað árum.
Máttur ljósmyndarinnar er magn-
aður, hún sýnir okkur betur en flest
veruleikann eins og hann var.
Listasafn ASÍ
og tónleikar
Í merkilegri listaverkagjöf Ragn-
ars Jónssonar í Smára til Alþýðu-
sambands Íslands, sem varð kveikj-
an að stofnun Listasafns ASÍ 1961,
eru mörg af þekktustu myndverk-
um tuttugustu aldar eftir nokkra
fremstu listamenn þjóðarinnar;
Ásgrím Jónsson, Jón Stefánsson,
Jóhannes Sveinsson Kjarval Nínu
Tryggvadóttur og Svavar Guðna-
son. Á sýningunni Gersemar úr
safneign Listasafns ASÍ, sem opn-
uð verður 5. mars, verða verk eft-
ir ofangreinda listamenn sýnd í
bland við aðrar og minna þekktar
perlur úr safneigninni.
Tónlist hefur leikið stórt hlut-
verk í verkalýðshreyfingunni alla
tíð og tónlist verður einkennandi
í afmælisfagnaði ASÍ. Boðið verð-
ur til tónleika á fjórum stöðum á
landinu 12. mars þar sem ungir
og ferskir listamenn stíga á svið í
bland við eldri og reyndari.
Reykjavík dagur
Fjölskylduskemmtun í tilefni 100
ára afmælis ASÍ hefst í Hörpu kl.
14 laugardaginn 12. mars. Boð-
ið verður upp á tónleika með Páli
Óskari og Úlfi Úlfi í Norðurljósa-
salnum. Auk þess setur tvíeyk-
ið magnaða, Hundur í óskilum,
upp stutta leiksýningu í Kaldalóni
kl. 15 og 16 þar sem farið verður
yfir athyglisverða hluti úr 100 ára
sögu verkalýðshreyfingarinnar. Kl.
17:30 blæs Lúðrasveit verkalýðs-
ins svo til tónleika í Kaldalóni. ASÍ
býður svo gestum Hörpunnar upp
á afmælisköku, kaffi og djús í tilefni
aldarafmælisins. Það er frítt inn á
alla þessa viðburði og ekki þarf að
ná sér í miða til að vera með á fjöl-
skylduskemmtuninni.
Reykjavík kvöld
Frábærir listamenn koma fram til
að fagna þessum tímamótum með
okkur: Retro Stefson, Manna-
korn, Valdimar, Hundur í óskilum,
Mammút og Lúðrasveit Verkalýðs-
ins. Kynnar verða Halldóra Geir-
harðsdóttir og Ólafía Hrönn Jóns-
dóttir. Aðgangur er ókeypis en mið-
ar verða afhentir á tix.is og harpa.is
og hefst afhending miða föstudag-
inn 4. mars kl. 12 á hádegi.
Auk þess verða ljósmyndasýning-
ar og tónleikar á Akureyri, Ísafirði
og Neskaupsstað. Nánar um það á
vef ASÍ.
mm
Alþýðusamband Íslands fagnar hundrað ára afmæli
Með sérstakri samþykkt bæjar-
stjórnar Stykkishólms var ákveð-
ið að skipa teymishóp um skóla-
stefnu sem vinnur að mótun nýrrar
skólastefnu fyrir Stykkishólmsbæ.
Á vef sveitarfélagsins segir að
skólastefnu sé ætlað að ná til allra
þátta skólastarfsins á vegum bæj-
arins og þar með starfsins á vett-
vangi Grunnskóla Stykkishólms,
Leikskóla Stykkishólms, Tónlist-
arskóla Stykkishólms og æskulýðs-
og íþróttamála. Formaður teymis-
hóps um skólastefnu er Hrafnhild-
ur Hallvarðsdóttir formaður skóla-
nefndar Stykkishólmsbæjar. Með
henni starfa fulltrúar allra skólanna,
skólanefnda, foreldrafélaga, fulltrú-
ar æskulýðs og íþróttanefndar sem
og æskulýðs og íþróttafulltrúi bæj-
arins. Gerður var samningur við
Ingvar Sigurgeirsson prófessor á
menntavísindasviði Háskóla Íslands
um að hann tæki að sér ráðgjöf og
aðstoð við verkefnið, en hann hefur
mikla reynslu á sviði stefnumótunar
innan skólakerfisins. „Miklar vonir
eru bundnar við þetta starf sem er
vissulega mjög mikilvægt fyrir bæj-
arsamfélagið,“ segir í tilkynningu
bæjarins.
Næstkomandi föstudag hef-
ur teymishópurinn og Ingvar Sig-
urgeirsson prófessor boðað starfs-
menn skólanna til vinnufundar. Af
þeim sökum þótti óhjákvæmilegt
að fella niður kennslu þann dag
frá hádegi. „Eru foreldrar beðnir
að gera viðeigandi ráðstafanir svo
dagurinn nýtist til þess mikilvæga
verkefnis að kalla starfsfólk skól-
anna til samráðs um mótun metn-
aðarfullrar skólastefnu fyrir Stykk-
ishólmsbæ,“ segir í tilkynningu frá
Stykkishólmsbæ.
mm
Hefja vinnu við mótun
skólastefnu Stykkishólms