Skessuhorn - 02.03.2016, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 201612
Hjólbarðaverkstæði
Bílabúðar Benna,
Sími: 590 2045
www.benni.is
Bílar og dekk 578 2525 Akranes
Bílabær 437 1300 Borgarnes
Bifreiðaþjónustan 437 1192 Borgarnes
Dekk og smur 438 1385 Stykkishólmur
G.Hansen dekkjaþjónusta 436 1111 Ólafsvík
K.M.þjónustan 434 1611 Búðardalur
RÉTTU JEPPADEKKIN KOMA ÞÉR ALLA LEIÐ!
Flóasiglingar
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Reykjavíkurborg og Akraneskaupstaður óska eftir rekstraraðila
til að taka að sér tilraunaverkefni um beinar siglingar ferju á milli
Reykjavíkur og Akraness á tímabilinu maí – september 2016.
Hugmyndir sveitarfélaganna eru þær að á tímabilinu sjái rekstrar-
aðili um reglulegar siglingar með á bilinu 50-100 farþega þrisvar
sinnum á dag á milli Akraness og Reykjavíkur. Gert er ráð fyrir að
báturinn nái að sigla leiðina á 30-45 mínútum þannig að vel fari um
farþega þrátt fyrir sjólag. Ekki er gert ráð fyrir flutningi á vélknúnum
farartækjum í þessu verkefni.
Markmið tilraunaverkefnisins er að kanna rekstrargrundvöll
reglulegra bátsferða á milli sveitarfélaganna. Rekstraraðili þarf því
að gera ráð fyrir því að safna upplýsingum m.a. um samsetningu
farþega og aðra tengda rekstrarþætti á fyrirhuguðu samnings-
tímabili. Áhugasömum aðilum verður boðið til viðræðna með það
fyrir augum að ná markmiðum tilraunaverkefnisins.
Umsækjendur skulu vera í skilum með opinber gjöld og lífeyris-
sjóðsiðgjöld. Umsækjendur skulu hafa bát til umráða sem uppfyllir
kröfur laga og reglugerða varðandi farþegaflutning á sjó. Báturinn
skal geta tekið barnavagna og reiðhjól.
Umsókn skal senda innkaupadeild Reykjavíkurborgar á netfangið
utbod@reykjavik.is eigi síðar en 10. mars nk. ásamt yfirlýsingu frá
þar til bærum aðilum um skil á opinberum gjöldum og lífeyris-
sjóðsiðgjöldum auk lýsingu á bát þeim sem umsækjandi hefur til
umráða. Umsækjendur sem uppfylla skilyrði auglýsingarinnar fá
frekari upplýsingar um verkefnið og verður þeim boðið til áfram-
haldandi viðræðna. Reiknað er með að ákvörðun um val á þjónustu-
aðila liggi fyrir í mars 2016.
Síðastliðinn laugardag hélt hesta-
mannafélagið Glaður þrígangs-
mót í Nesoddareiðhöllinni í Búð-
ardal. Þetta er í annað skipti sem
slíkt mót er haldið en í fyrra var
það sett á í staðinn fyrir fjórgangs-
mótið sem var árlegt og var ákveð-
ið að hafa þrígang aftur í ár. Það
var fínasta þátttaka og góður dag-
ur í höllinni. Ólafur Flosason var
dómari mótsins. Í liðakeppninni
dregur æ meir í sundur með lið-
unum. Eftir þríganginn er Vestan-
liðið með 102 stig, Búðardalsliðið
með 43 stig og Sunnanliðið með
22 stig.
Úrslit voru:
Barnaflokkur:
1. Aron Mímir Einarsson, Sleipnir
frá Hróðnýjarstöðum
2. Katrín Einarsdóttir, Mylla frá
Spágilsstöðum
3. Eysteinn Fannar Eyþórsson, Spá
frá Spágilsstöðum
Ungmennaflokkur:
1. Dóróthea S Unnsteinsdóttir,
Demantur frá Lindarholti. 6,00
1. Hrönn Jónsdóttir, Þorri frá Lind-
arholti. 5,83
Karlaflokkur:
1. Harald Ó. Haraldsson, Hryðja frá
Svarfhóli. 6,00
2. Guðmundur H. Sigvaldason,
Sunna frá Stykkishólmi. 6,00
3. Gísli Sverrir Halldórsson, Rafn
frá Hamraendum. 5,83
4. Þórður Ingólfsson, Snillingur frá
Búðardal. 5,67
5. Vilberg Þráinsson, Askur frá Hrís-
hóli. 5,33
Kvennaflokkur:
1. Svanhvít Gísladóttir, Stirnir frá
Leirum. 6,33
2. Monika Backman, Kvika frá
Svarfhóli. 6,17
3. Heiðrún Sandra Grettisdóttir
Blævar frá Svalbarða. 5,83
4. Svala Svavarsdóttir, Þilja frá Spá-
gilsstöðum. 5,50
5. Sjön Sæmundsdóttir, Lukka frá
Lindarholti. 5,33.
ss
Úrslit í þrígangsmóti Glaðs
Efstu í barnaflokki, þau Katrín, Aron og Eysteinn.
Efstu í kvennaflokki fá medalíur sínar.
Stórglæsilegt skemmti- og styrktar-
kvöld Knattspyrnudeildar Víkings
Ólafsvíkur var haldið síðasta laug-
ardagskvöld. Strákarnir í meistar-
flokki sáu um að þjóna til borðs,
selja miða og vaska upp ásamt því
að aðstoða við að frágang. Vel var
mætt á kvöldið sem fram fór á Hót-
el Ólafsvík og var nánast uppselt.
Jónas Gestur Jónasson formað-
ur knattspyrnudeildarinnar hóf
kvöldið, fór hann yfir nokkur at-
riði sem tengjast starfinu. Þakkaði
hann þeim fjölmörgu sem koma að
meistaraflokki kvenna og karla fyr-
ir vel unnin störf. Afhenti hann svo
veislustjóra kvöldsins Gunnari Sig-
urðarsyni hljóðnemann. Gunnar
fór á kostum að venju og lék á als
oddi. Skemmti hann bæði sjálfum
sér og veislugestum af stakri snilld.
Á matseðli kvöldsins var grilluð blá-
langa, saltfiskcarpaccio ásamt grill-
uðum kalkúnabringum og meðlæti.
Voru gestir kvöldsins sammála um
að maturinn hefði verið sérlega vel
heppnaður.
Ræðu kvöldsins flutti Olga
Kristjánsdóttir. Hún sagði frá
ýmsu skemmtilegu eins og henn-
ar er einni lagið. Knatspyrnudeild
Víkings hefur undanfarin ár hald-
ið kvöld sem þessi og þá oft sem
herrakvöld. Eru þau haldin sem
fjáröflun fyrir meistaraflokk. Var
þetta kvöld engin undantekning,
dagana fyrir kvöldið voru til sölu
happdrættismiðar með mörgum
skemmtilegum vinningum. Hægt
er að sjá vinningstölur úr happa-
drættinu á fésbókarsíðu Víkings
Ólafsvík. Tónlistarmaðurinn Frið-
rik Dór skemmti gestum með
söng og gerði mikla lukku. Kvöld-
inu lauk svo með uppboði þar sem
boðnar voru upp íþróttatreyjur til
styrktar starfinu. Knattspyrnudeild
Víkings bárust tvær mjög svo góð-
ar gjafir á kvöldinu. Víkingasveitin,
stuðningsmannafélag liðsins, færði
liðinu 300.000 króna gjöf. Vagn
Ingólfsson og kona hans færðu fé-
laginu einnig höfðinglega gjöf að
upphæð 100.000 krónur. Þakkaði
Jónas Gestur kærlega fyrir þessar
gjafir. Heppnaðist kvöldið eins og
áður segir mjög vel og geta stuðn-
ingsmenn farið að láta sér hlakka til
sumarsins þegar Víkingur Ó. spilar
í Pepsídeildinni öðru sinni.
þa
Skemmtikvöld Víkings Ólafsvíkur
Félaginu bárust ýmsar gjafir.