Skessuhorn - 02.03.2016, Síða 14
MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 201614
Gunnlaugur Smárason er meist-
aranemi í kennslufræðum og hef-
ur kennt stærðfræði við Grunn-
skólann í Stykkishólmi um nokk-
urra ára skeið. Hann hefur í vet-
ur nýtt tölvuleikinn Minecraft við
stærðfræðikennslu og vinnur nú
að verkefnabók upp úr tölvuleikn-
um. „Ég er með upplýsingatækni
og -miðlun sem aðalfag í meist-
aranáminu mínu. Hugmyndin að
verkefnabókinni kviknaði í stað-
lotu í náminu, þar sem fjarnemar
hittast, spjalla saman, deila hug-
myndum og fleira slíkt. Þar kvaðst
einn hafa séð að Minecraft væri
víða erlendis notaður til kennslu,“
segir Gunnlaugur. „Mér datt í hug
að sækja leikinn, bara kíkja á hann
og athuga hvort það væri eitthvað
vit í þessu,“ bætir hann við. Gunn-
laugur segist hafa farið að skoða
leikinn og strax orðið ljóst að hann
byði upp á ýmsa möguleika sem
myndu nýtast til kennslu í stærð-
fræði. Hann hafi búið til og lagt
fyrir nemendur sína flatarmáls- og
rúmmálsverkefni en einnig verk-
efni í tölfræði. „Ég hef verið að
nota leikinn í minni kennslu síðan
í nóvember. Krakkarnir elska Mi-
necraft og vilja eyða tíma í honum.
Af hverju ekki að nýta það til að
gera eitthvað skemmtilegt í stærð-
fræðitímum,“ spyr Gunnlaugur.
Ekki síður áskorun
fyrir kennara
En hvernig tölvuleikur er Minec-
raft? „Þetta er leikur þar sem spil-
ararnir skapa, það er það fyrsta
sem maður kynnist. En síðan þeg-
ar komið er lengra inn í leikinn þá
snýst hann einfaldlega um að lifa af,
rækta og veiða eigin mat og fleira
slíkt,“ segir Gunnlaugur og bætir
því við að í raun sé hægt að gera
allt í leiknum. „Nokkrir nemend-
ur mínir eru að búa til geimflaugar
í Minecraft,“ segir hann. „Eftir að
krakkarnir eru komnir inn í leik-
inn er í raun bara ímyndunaraflið
sem ræður för. Það er einmitt eitt-
hvað sem við eigum að reyna að
efla hjá nemendum, ekki endilega
að kenna þeim að setja dæmi „rétt“
upp heldur hvetja þá til að leita að
lausna eftir eigin leiðum.“
Bókin inniheldur 17 verk-
efni auk hugmynda að því hvern-
ig stækka má þau og er fyrst og
fremst ætluð kennurum. „Bókin
er hugsuð sem hugmyndabanki af
verkefnum sem kennarar geta nýtt
sér til þess að gera kennsluna fjöl-
breyttari. Þetta er ekki síður fyr-
ir kennara en nemendur og þar er
áskorunin – að gera eitthvað öðru-
vísi sem brýtur upp kennsluna og
nýtist þeim sem eiga erfitt með að
læra á bókina,“ segir Gunnlaugur.
Hann kveðst hafa prófað að nota
leikinn við kennslu bæði sérnem-
enda sem eiga erfitt með að hefð-
bundið bóknám og í heilum bekkj-
um. „Öllum finnst þetta skemmti-
leg tilbreyting og eru hrifnir af
þessu. Það er beðið eftir öllum
Minecraft-tímum sem settir eru á
dagatalið,“ segir hann ánægður.
Verkfæri til að brjóta
upp kennsluna
Auk Gunnlaugs vinnur að verk-
efnabókinni Steinunn Alva Lárus-
dóttir, unnusta hans sem einnig er
í meistaranámi í kennslufræðum.
Hún sér um alla uppsetningu bók-
arinnar auk fræðilegra heimilda.
Gunnlaugur kveðst vona að hann
fái að nýta gerð bókarinnar sem
lokaverkefni en hyggst einnig sækja
um styrk henni tengdri í sprota-
sjóð. Vonast hann til að fá styrk
til að geta haldið opinni heima-
síðu þannig að kennarar geti deilt
hugmyndum og reynslu sinni af
bókinni. Hann hefur þegar kynnt
verkefnið nokkrum kollegum sín-
um, meðal annars í tengslum við
Menntabúðir Vesturlands. „Kenn-
arar hafa almennt verið áhuga-
samir um verkefnið og nokkrir
eru farnir að prófa þetta við sína
kennslu. Þó hafa fæstir látið vaða
og stokkið á vagninn enn, eins og
gengur og gerist,“ segir hann.
Aðspurður hvort kennsla með
tölvuleikjum sé það sem koma
skal telur Gunnlaugur að kennsla
muni aldrei fara fram eingöngu
með þeim hætti. „Ég held að þetta
muni aldrei koma í staðinn fyrir
bækur og hefðbundnari kennslu-
aðferðir. En þetta er auka verkfæri
í verkfæratöskuna og getur hjálp-
að okkur að brjóta upp kennsluna.
Það er um að gera að hafa nám-
ið sem fjölbreyttast,“ segir Gunn-
laugur að lokum.
kgk
Kennari í Stykkishólmi vinnur að
verkefnabók í tölvuleiknum Minecraft
Gunnlaugur Smárason.
Tölfræðidæmi þar sem nemendur bjuggu til súlurit út frá fjölda kubba í veggnum
til hliðar.
Úr frjálsu verkefni nemenda.
Forsíða bókarinnar.
Á næstu dögum verða haldnir fundir víða um Vesturland
þar sem íbúum er boðið að taka þátt og hafa mótandi
áhrif á gerð Menningarstefnu Vesturlands með þátttöku í
vinnuhópum á fundunum.
Fundirnir verða á eftirtöldum stöðum:
Mánudagur 7. mars kl.17.30 Félagsheimilið Grundarfirði
Þriðjudagur 8. mars kl.17.30 Leifsbúð Búðardal
Fimmtudagur 10. mars kl.17.30 Heiðarskóli Hvalfjarðarsveit
Mánudagur 14. mars kl.17.30 Garðakaffi Akranesi
Miðvikudagur 16 mars kl.17.30 Bjarnarbraut 8 Borgarnesi
Við hvetjum íbúa á Vesturlandi til að mæta og leggja sitt af
mörkum til að móta skýra stefnu sem verður leiðarljós fyrir
öflugt menningarstarf og samstarf sveitarfélaga um menn-
ingarmál á Vesturlandi.
Allir velkomnir
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
6
Menningarstefna Vesturlands
Viltu taka þátt í að móta
Menningarstefnu Vesturlands ?
Aðalfundur
Við höldum 1. vetrardag hátíðlegan og
blásum til veislu í Kaupfélagi Borgfirðinga
laugardaginn 25. október 2008 kl. 12-15
Flugger litir veita ráðgjöf og verða með tilboð
Mjólka kynnir vörur sínar
Kynning á hreinsiefnum frá Kemi
Kynning og tilboð á Kerckhaert
járningavörum, umboðsmaður
á staðnum, býður upp á ís
* Vetrarskeifurnar með
breiða teininum komnar *
Tískusýning á vetrarfatnaði,
tilboð á fatnaði frá 66°N
10 - 50 % afsláttur af völdum vörum
í versluninni
Royal Canin, glaðningur fylgir
öllum pokum af hunda-og kattamat.
Umboðsmaður á staðnum
Kaffi og rjómaterta
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Aðalfundur Kaupféla s Borgfirði ga
verður haldinn að Hótel Borgarnesi
þriðjudaginn 15. mars 2016 og hefst kl. 20:30
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum
félagsins.
2. Önnur mál.
Skv. 14. gr. samþykkta KB þá hafa allir félagsmenn aðgang að
fulltrúafundum og hafa þar málfrelsi og tillögurétt.
Borgarnesi, 2. mars 2016
Stjórn Kaupfélags Borgfirðinga.
CLARVISTA
STURTUGLER
FYRIR
VANDLÁTA
Allt í gleri
ÚTI OG INNI
M
ynd: Josefine Unterhauser