Skessuhorn - 02.03.2016, Page 16
MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 201616
Eftir að Skagakonan Salka Mar-
grét Sigurðardóttir lauk BA gráðu í
stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands
lá leið hennar út fyrir landstein-
ana. Hún hóf nám við Hagræði- og
stjórnmálafræðiháskólann í Lond-
on (London School of Economics
and Political Science) og útskrifað-
ist þaðan með meistarapróf í heim-
speki og opinberri stefnumótun. Í
september síðastliðnum hóf Salka
síðan störf sem aðstoðarmaður ráð-
herra í ríkisstjórn Davids Cameron.
„Ég er ein þriggja aðstoðarmanna
Joanna Shields barónessu, ráðherra
internetöryggismála. Einn aðstoð-
armaður sér um stefnumál barnaör-
yggis á netinu, einn um radíkalisma
á netinu og svo er ég í raun tengi-
liður ráðherrans og teymis hans við
umheiminn. Allar beiðnir og upp-
lýsingar almennings, fjölmiðla,
þingsins og annarra ráðuneyta fara
í gegnum mig,“ segir Salka. Einnig
hefur hún á sinni könnu að skipu-
leggja dagskrá ráðherrans, viðburði
og fundi. Að sumu leyti má segja að
líf og starf ráðherrans sé í hennar
höndum. „Það er innan míns verka-
hrings að sjá til þess að hún sé und-
irbúin hvert sem hún fer. Ég aðstoða
hana við ræðuskrif og fylgi henni á
viðburðina,“ segir Salka.
Innan ráðuneyta segir Salka að
starfi að jafnaði tveir pólitískir ráð-
gjafar, sem eru ráðnir af flokki við-
komandi ráðherra og sjái til þess
að ráðherrar fylgi stefnu hans. „En
síðan sjá faglega ráðnir starfsmenn
ráðuneytisins, eins og ég, um að
sú stefna sé innleidd í verki,“ segir
Salka. Hún segir að aðstoðarmaður
ráðherra þurfi að geta hugsað mjög
hratt, haft yfirsýn yfir marga hluti
í einu og vera mjög skipulagður.
Allt gerist á ljóshraða en dagur ráð-
herrans þurfi að ganga eins greið-
lega fyrir sig og mögulegt er. „Það
eru ótrúlega mörg smáatriði sem
þarf að sjá um og bregðast hratt og
örugglega við,“ segir hún.
Fyrsti dagurinn súrrea-
lískur og yfirþyrmandi
Aðspurð hvernig henni hafi dott-
ið í hug að sækja um starf aðstoðar-
manns ráðherra strax að loknu námi
segir hún að Bretar styðji vel við ný-
útskrifa stúdenta. Á sama tíma sé
hins vegar allt mjög miðstýrt. „Ég
sótti um í gegnum stúdentapróg-
ramm breska ríkisins, ásamt 30 þús-
und öðrum umsækjendum og um-
sóknarferlið sjálft tók heilt ár. Eftir
árs ferli var ég loksins dæmd „hæf“
en það var ekki fyrr en eftir það
sem ég gat farið að leiða hugann
að sérstökum stöðum,“ segir Salka.
Hún kveðst hafa farið í nokkur við-
töl áður en hún var ráðin til starfs-
ins sem hún gegnir í dag. „Þeim
fannst tilvalið að fá mig í teymi ráð-
herra, meðal annars vegna þess að
ég hafði unnið sem blaðamaður og
töldu þau að sú reynsla myndi nýtast
í starfi,“ segir Salka, en hún starfaði
sem blaðamaður á DV áður en hún
flutti utan.
Hún segir fyrsta vinnudaginn hafa
verið á sama tíma bæði súrrealískan
og yfirþyrmandi. „Ég mætti í West-
minister í mínum fínustu klæðum
og hitti ráðherrann fyrsta morg-
uninn, en hún var ósköp spennt
að fá unga íslenska konu í teymið.
Ég settist svo niður við skrifborðið
sem var ætlað mér og var strax byrj-
uð að svara símtölum fyrir hönd
ráðherrans eftir innan við klukku-
stund,“ segir Salka. „Þegar ég fór
heim um kvöldið hugsaði ég „hvað
í ósköpunum er ég nú búin að koma
mér í,” en ég gat samt ekki beðið
eftir að mæta aftur daginn eftir,“
bætir hún við létt í bragði.
Salka segir að breska stjórnkerf-
ið sé þungt í vöfum og að hið mikla
skrifræði hafi komið sér á óvart.
„Ég er vön að vinna í grasrótarsam-
tökum þar sem hlutirnir gerast ef
maður keyrir þá áfram á viljanum.
En hér þarf hvert skref að vera sam-
þykkt af mörgum einstaklingum og
stofnunum áður en svo mikið sem
send er út ein málsgrein. Það fer
oft mjög í taugarnar á mér, því ég
hef alltaf verið mikill „do-er,“ seg-
ir hún.
Vægast sagt
skemmtilegt
Blaðamaður stenst ekki mátið
að spyrja hana hvort þetta sé al-
mennt skemmtilegt starf, svona
dag frá degi. Salka er ekki í nokkr-
um vafa. „Þetta er vægt til orða tek-
ið skemmtilegt. Þetta er eins og að
vera í kappakstri og fallhlífarstökki
á sama tíma, því þú ert að keyra
áfram líf einnar áhrifamestu mann-
eskju Bretlands þrátt fyrir að líða
enn eins og 23 ára Skagastelpu sem
er blaut á bakvið eyrun,“ segir hún
og rifjar upp ánægjulegt augnablik
sem hún upplifði fyrir skömmu.
„Skemmtilegasta augnablikið sem
ég hef upplifað enn sem komið er
var þegar við ráðherrann fórum
tvær á stóra verðlaunaafhendingu
um daginn, Women in IT Awards,
þar sem hún flutti ræði. Ég hafði
hjálpað til við þau ræðuskrif og að
heyra ráðherra eins valdamesta rík-
is heims flytja mitt hugverk fyr-
ir framan fjölda fólks var ólýsanleg
tilfinning og ég gat ekki annað en
brosað,“ segir Salka ánægð.
Ráðherra er viðkunnan-
legur fagmaður
Joanna Shields barónessa var gerð
að ráðherra internetöryggismála
síðastliðið vor. Hún er banda-
rísk, starfaði lengi að þróun ým-
issa tæknifyrirtækja í Sílíkondaln-
um svokallaða í Kaliforníufylki þar
vestra. Síðast sem framkvæmdastjóri
hjá Facebook, þar sem hún stjórn-
aði umsvifum fyrirtækisins í Mið-
austurlöndum, Evrópu og Afríku
og þar áður hjá tæknirisanum Go-
ogle. Salka ber henni einkar vel sög-
una. „Hún hefur tekið þátt í að þróa
mörg helstu tæknifyrirtæki heims
og því var þetta ráðherrahlutverk í
raun sérsniðið að henni eftir síðustu
kosningar í maí, en Bretland er nú
eina landið í heiminum með sérstak-
an internetráðherra,“ segir Salka og
lýsir henni sem mikilli fagmann-
eskju. „Á sama tíma er hún ofboðs-
lega viðkunnanleg. Hún kallar mig
„honey“ og „sweety“ í hverri setn-
ingu og endar hver smáskilaboð á
„xxx“,“ segir Salka, en lesendum til
fróðleiks táknar „xxx“ þrjá kossa í
undirskriftum skilaboða á internet-
inu. „Joanna hitti Dorrit um daginn
og gerði það að umræðuefni þeirra
hvað Dorrit gæti verið stolt af ein-
um borgara sínum. Svo hringdi ráð-
herrann sérstaklega í mig til að segja
mér þá sögu. Það fannst mér mjög
krúttlegt,“ segir Salka.
Tekur vinnuna
með sér heim
Vinnudagur Sölku krefst þess oft
að hún vinni fram eftir kvöldi og
um helgar. Þegar hún mætir til
vinnu að morgni veit hún ekki hve-
nær hún hættir þann daginn. Hún
kveðst því eiga erfitt með að kúpla
sig frá vinnunni, en það sé einfald-
lega hluti af starfinu. „Ef ég á að
segja alveg eins og er þá get ég ekki
unnið eftir stimpilklukku. Ef ráð-
herra hringir í krísu að kvöldi eða
um helgar þá get ég ekki sagt „nei,
ég er í fríi“,“ segir hún í léttum dúr.
„Ég tek því vinnuna ósjaldan með
mér heim, en það angar mig lítið.
Það gjald er ég tilbúin að greiða
til að vera innvinkluð í Westmin-
ister.“
Eins og áður sagði hefur Salka á
sinni könnu samskipti ráðherra við
fjölmiðla. Breska pressan er þekkt
fyrir að vera óvægin og segir Salka
að hugsað sé fyrir öllu áður en haft
er samband við fjölmiðla, hvert skref
sé útpælt. „Hér er búið að hugsa út
í það hvernig fjölmiðlar geti spunn-
ið úr orðunum áður en þau eru send
út,“ segir hún. „Ég þekki það sjálf
að sem blaðamaður reynir maður
auðvitað að draga fram umdeilda
punkta. Því er gaman og stundum
fyndið að sjá hina hliðina, þar sem
stjórnmálamenn passa að senda ekk-
ert vafasamt frá sér sem blaðamenn
gætu gert mál úr,“ segir hún og að-
spurð bætir hún því við að hún telji
svipað uppi á teningnum hér heima.
„Ég held að stjórnmálamenn hér
heima beiti oft og tíðum mun meiri
herkænsku en við höldum. Við bara
vitum ekki endilega af því,“ seg-
ir hún.
Ísland ekki
samkeppnishæft
Það er morgunljóst að Salka hef-
ur náð ótrúlega langt á skömm-
um tíma og enginn vafi leikur á að
kraftar hennar gætu nýst hérlendis.
Kom aldrei til greina að snúa heim
að námi loknu? „Upphaflega ætlaði
ég mér bara að búa úti í eitt ár. Þegar
ég var í náminu í LSE hafði ég aug-
un opin fyrir tækifærum bæði heima
og eins hér úti. En ég sá mjög fljótt
að Ísland væri ekki sérstaklega sam-
keppnishæft miðað við þau enda-
lausu tækifæri sem eru í boði í
London,“ segir hún. Vandamálið
hafi því eiginlega leyst að sjálfu sér
þegar hún fékk starfið í ráðuneytinu.
„Í þokkabót hafði ég algjörlega fallið
fyrir þessari borg og var ekki tilbúin
að snúa aftur heim,“ bætir hún við.
Hún kveðst þó geta hugsað sér
að snúa heim í framtíðinni og jafn-
vel hasla sér völl sem stjórnmála-
maður, hún hafi alltaf haft áhuga á
þeim málaflokki. „Ég hefði nú alveg
hug á því, en það er verst hvað Ís-
land virðist lítið fyrir að gefa ungu
fólki tækifæri í pólitík. Þar á ég bæði
við faglega reynslu í gegnum ráðu-
neytin og svo er líka hlægilegt hvað
það er fátt ungt fólk á Alþingi,“ segir
hún. „Það er mér mikið metnaðar-
mál að ungt fólk geti haft álíka áhrif
á nærumhverfi sitt líkt og þeir sem
eldri eru, því öll höfum við nú til-
kall til þessa samfélags sem við deil-
um,“ segir Salka Margrét Sigurðar-
dóttir að lokum.
kgk
Salka Margrét Sigurðardóttir er aðstoðarmaður ráðherra í ríkisstjórn Breta:
„Þetta er eins og að vera í kappakstri og
fallhlífarstökki á sama tíma“
Salka Margrét Sigurðardóttir.
Salka fyrir framan Big Ben, spölkorn frá breska þinghúsinu í Westminister.
Palace of Westminster, breska þinghúsið, á bökkum árinnar Thames. Þar hefur
Salka varið ófáum vinnustundum í vetur. Ljósm. Wikipedia.