Skessuhorn - 02.03.2016, Page 19
MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 2016 19
Kaffihúsið og veitingastaðurinn Kaffi Sif á Hellisandi er til sölu
Húsið er 1• 05,3 fm steinsteypt, nýlega einangrað og klætt að utan
Veitin• gastaðurinn er í fullum rekstri og hefur verið í
stöðugum vexti undanfarin ár
Eldhú• sið og veitingasalurinn er vel búinn öllum
viðurkenndum tækjum og tólum til veitingareksturs
Stó• r og vönduð verönd er með húsinu til suðurs og vesturs
með frábæru útsýni yfir hafið og til Snæfellsjökuls
Kaffi Sif er vinsæll viðkomustaður ferðamanna á Snæfellsnesi
Afhending getur orðið fljótlega, en skipti á húsnæði á
höfuðborgarsvæðinu eru möguleg
Nánari upplýsingar eru gefnar í síma 820-3430 (Sif)
Tilboð óskast í eignina og sendist á sifs61@gmail.com
Kaffihús á Hellisandi til sölu
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Stykkishólms
EFLING
i l
Verður haldinn á Hótel Stykkishólmi
mánudaginn 7. mars 2016 kl. 20:00
Venjuleg aðalfundarstörf - Önnur mál
Ný mál og verkefni sem gætu komið
bænum okkar til góða vel þegin.
Félagar eru eindregið hvattir til að mæta og
nýir félagar velkomnir.
Stjórnin
21. AÐALFUNDUR
EFLINGAR STYKKISHÓLMS
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Efling Stykkishólms - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur
Veitur ohf.
Veitur ohf. • Bæjarhálsi 1 • 110 Reykjavík
516 6000 • veitur.is
Útboð
Veitur ohf. óska eftir tilboðum í útboðsverkefnið:
Endurnýjun aðveitulagnar í Skorradal
(Skátaskálalögn):
Verktaki skal grafa fyrir og leggja hitaveitulagnir og
ídráttarrör og annast allan yfirborðsfrágang. Leggja skal
hitaveitulögn og ídráttarrör meðfram núverandi vegi frá
gatnamótum að dæluskúr móts við Skátaskála.
Helstu magntölur eru:
Hitaveitulagnir Stál lagnir 3050m
Ídráttarrör ø50mm 3050m
Þveranir vegræsa 26 stk.
Gröftur 2600m3
Yfirborðsfrágangur 800m2
Útboðsgögn er hægt að sækja án greiðslu frá og með
þriðjudeginum 01.03.2016 á vefsíðu Orkuveitunnar
www.or.is/fjarmal/utbod#page-7016
Útboðsverkefninu er nánar lýst í útboðsgögnum
„VEV-2016-03 Endurnýjun aðveitulagnar í Skorradal
(Skátaskálalögn) útgefin í febrúar 2016“
Tilboð verða opnuð hjá Veitum ohf., Bæjarhálsi 1,
110 Reykjavík, þriðjudaginn 15.03.2016 kl. 11:00.
VEV-2016-03 27.02.2016
Dag ur í lífi...
Tónlistarkennara
Nafn: Hafseinn Þórisson.
Fjölskylduhagir/búseta: Svo-
lítið flókin í augnablikinu en er
giftur og á þrjú börn.
Starfsheiti/fyrirtæki: Tónlist-
arkennari við Tónlistarskóla
Borgarfjarðar.
Áhugamál: Stangveiði, tónlist
og uppstoppun.
Þriðjudagurinn 23. febrúar
2016.
Klukkan hvað vaknaðirðu og
hvað var það fyrsta sem þú
gerðir? Vaknaði um 7:30, vakti
son minn og sendi hann í skól-
ann.
Hvað borðaðirðu í morgun-
mat? Ég fékk mér tvo banana í
morgunmat.
Hvenær fórstu til vinnu og
hvernig? Byrjaði hér heima að
undirbúa mig fyrir tónleika sem
nemendur mínir ætluðu að taka
þátt í seinni partinn.
Fyrstu verk í vinnunni: Tón-
listartímar á Kleppjárnsreykjum
en þar kenni ég á þriðjudögum
og fimmtudögum.
Hvað varstu að gera klukkan
10? Enn að undirbúa tónleika
dagsins.
Hvað gerðirðu í hádeginu?
Fékk mér dýrindis plokkfisk hjá
Gerðu í eldhúsinu í grunnskól-
anum á Kleppjárnsreykjum.
Hvað varstu að gera klukk-
an 14? Smá stopp á kennslu og
fór í klukkutíma göngutúr með
hundinn minn Vila.
Hvenær hætt og það síðasta
sem þú gerðir í vinnunni?
For-Nótu tónleikar í tónlistar-
skólanum í Borgarnesi, þar sem
áhorfendur/heyrendur völdu
fjögur verk til flutnings á Nótu-
tónleikum Vesturlands sem
haldnir verða í Stykkishólmi 12.
mars.
Hvað gerðirðu eftir vinnu?
Fór beint upp í Logaland á
leikæfingu, en Ungmennafélag
Reykdæla æfir um þessar mund-
ir farsann ,,Óþarfa offorsi“ sem
frumsýndur verður 4. mars.
Hvað var í kvöldmat og hver
eldaði? Þar sem ég fór beint
af tónleikunum á leikæfingu þá
fékk ég mér bara kaffi og brauð
með osti í Logalandi.
Hvernig var kvöldið? Kvöld-
ið fór að mestu í leikæfinguna,
kom heim um 22:45.
Hvenær fórstu að sofa? Var
kominn í rúmið rétt fyrir mið-
nætti og fór þá að fletta í Sport-
veiðiblaðinu.
Hvað var það síðasta sem
þú gerðir áður en þú fórst
að hátta? Skrapp aðeins út að
viðra hundinn og fá mér ferskt
loft fyrir svefninn.
Hvað stendur uppúr eftir
daginn? Frábærir nemendur
tónlistarskólans sem stóðu sig
eins og hetjur á tónleikunum.
Eitthvað að lokum? Var ákaf-
lega stoltur af nemendum mín-
um á tónleikunum og komust 9
nemendur frá mér áfram og þá
sér maður að maður er að gera
eitthvað rétt og leggja sitt fram
við að leiðbeina nemendum og
ekki skemmdi fyrir að eiga tvo
syni sem báðir komust áfram.
Síðastliðinn sunnudag kom í ljós
hvaða tuttugu atriði komust í undan-
úrslit í hæfileikakeppninni Ísland Got
Talent, sem sýnd er á Stöð 2. Alls eru
atriðin 20 talsins og eiga Vestlend-
ingar nokkra fulltrúa í þeim hópi.
Fimmti hver keppandi kemur frá
Vesturlandi og vekur sá góði árang-
ur athygli, en allir flytjendurnir stóðu
sig frábærlega á sviðinu. Eva Margrét
Eiríksdóttir frá Víðigerði í Borgar-
firði, en er búsett á Hvanneyri, söng
sig inn í hug og hjörtu dómnefnd-
ar með flutningi á laginu Gæti verið
verra úr söngleiknum Grease. Einn
af dómurum í keppninni ýtti á gull-
hnappinn og tryggði henni þar með
sæti í undanúrslitum. Þá voru einnig
valin þrjú önnur atriði, flutt af Vest-
lendingum, til að taka þátt í undan-
úrslitum. Gylfi Noah Gabriel Fleck-
inger Örvarsson, 14 ára söngvari úr
Ólafsvík, komst í undanúrslit ásamt
16 ára Akurnesingunum Símoni
Orra Jóhannssyni og Höllu Margréti
Jónsdóttur, þar sem Símon Orri söng
óperusöng við undirleik Höllu Mar-
grétar. Þá flaug knattspyrnumað-
urinn Guðmundur Reynir Gunn-
arsson áfram en hann leikur knatt-
spyrnu með Víkingi í Ólafsvík. Hann
sýndi þó ekki listir sínar með boltann
í keppninni heldur tók hann tónlist-
arsyrpu þar sem hann blandaði sam-
an sinni eigin útgáfu af þremur lög-
um. Vestlendingum hefur vegnað vel
í hæfileikakeppninni til þessa en Alda
Dís Arnardóttir frá Hellissandi sigr-
aði í keppninni í fyrra eins og flest-
ir vita og hefur náð langt á tónlistar-
sviðinu.
Undanúrslitaþættirnir verða þrír
talsins. Þeir verða sýndir í beinni út-
sendingu sunnudagana 6. mars, 13.
mars og 20. mars þar sem úrslit í
símakosningu skera úr um hverjir
komast áfram í úrslitaþáttinn.
grþ
Góður árangur Vestlendinga
í Ísland Got Talent
Eva Margrét Eiríksdóttir fékk gullhnappinn fyrir sína
frammistöðu og fór beint í undanúrslit.
Gylfi Örvarsson er 14 ára söngvari frá Ólafsvík.
Guðmundur Reynir Gunnarsson er fyrirliði knattspyrnuliðs-
ins Víkings í Ólafsvík.
Símon Orri Jóhannsson og Halla Margrét Jónsdóttir komust
í undanúrslit með óperuatriði.