Skessuhorn - 02.03.2016, Side 22
MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 201622
Útvarpsstöðin Skagarásin fór í loft-
ið í janúar síðastliðnum. Það eru
hjónin Daníel B. J. Guðrúnarson
og Kristjana Guðrún Björnsdótt-
ir, betur þekkt sem DJ Danni og
Kidda, sem stofnuðu stöðina og
sjá þau að mestu um dagskrárgerð.
Eins og staðan er í dag eru útsend-
ingar stöðvarinnar eingöngu á net-
inu. „Við sendum út allan sólar-
hringinn á skagarasin.com en ef allt
gengur vel er planið að koma rás-
inni á FM bylgjulengd,“ segir Daní-
el í samtali við Skessuhorn. Danni
og Kidda glíma bæði við fötlun og
starfa í Fjöliðjunni á Akranesi. Þau
láta þó fötlun sína ekki stoppa sig
og taka sér ýmislegt fyrir hendur.
Þau halda úti vefversluninni krutt-
in.com, bjóða upp á tölvuviðgerða-
þjónustu og taka að sér plötusnúða-
verkefni. Aðspurð hvers vegna þau
ákváðu að stofna útvarpsstöð stend-
ur ekki á svörum. „Það er út af því
að ég er svo mikill útvarpsmað-
ur sjálfur og mér fannst vanta út-
varpsstöð fyrir Skagann og Vest-
urland í heild sinni,“ segir Danni.
Hann hefur töluverða reynslu af
störfum tengdu útvarpi. „Ég var
á gömlu Radíó X stöðinni þeg-
ar ég var í framhaldsskóla og svo
var ég tæknimaður á Útvarpi Sögu
frá 2007 - 2008 og lærði heilmik-
ið þar. Ég hef líka verið með þátt á
þýskri útvarpsrás,“ segir Danni og
vísar þar í þýsku útvarpsstöðina Ra-
dio Music of Dance. „Mér finnst
þýska svo skemmtileg þannig að ég
fann stöð sem vildi mig. Ég sendi
þá bara héðan og tala ensku,“ bæt-
ir hann við.
Bjó til app fyrir
snjallsíma
Dagskrárgerð Skagarásarinnar er
að mestu leyti í höndum Danna en
hjónin eru einnig með einn sam-
eiginlegan þátt. „Svo byrjaði Garð-
ar Örn Þrastarson vinur okkar með
þátt á föstudaginn. Daria, rödd
stöðvarinnar, er svo að hugsa um að
byrja með þátt líka,“ segir Danni og
bætir því við að öllum sé velkom-
ið að vera með þátt á stöðinni. „En
það má taka það fram að ef krakk-
ar undir 18 ára aldri vilja vera með,
þá þurfa þeir leyfi frá foreldrum.“
Þau segja Skagarásina í raun hugs-
aða sem tækifæri fyrir alla sem vilja
spreyta sig í útvarpi og að mark-
miðið sé að spila góða tónlist. „Við
spilum fjölbreytta tónlist, spjöllum
og svo geta hlustendur hringt inn.
Á heimasíðunni er hægt að sjá hvað
er í spilun og hverju þú misstir af.
Við tökum upp alla þætti og svo er
hægt að hlusta á þá á síðunni,“ út-
skýrir Danni. Skemmtilegast þyk-
ir honum að heyra í hlustendum
og heyra hvað þeir hafa misjafn-
ar skoðanir. Þá hefur Danni einn-
ig útbúið app fyrir snjallsíma, þar
sem hægt er að hlusta á Skagarás-
ina í símanum. „Appið er komið
en reyndar bara fyrir Apple síma
til að byrja með. Það var tiltölu-
lega einfalt að útbúa það, ég not-
aðist við svokallaða „appspotr“ síðu
sem er einföld í notkun. Það eina
sem maður þarf að passa er að stan-
dast kröfur um að appið sé farsíma-
vænt. Ef það er það ekki, þá hafna
þeir appinu og hjálpa manni svo að
betrumbæta það.“
Söfnun á Karolinafund
Danni segir ekki mikið mál að setja
upp netútvarpsstöð. „Ég hýsi þetta
allt sjálfur, er með netþjón inni í
herbergi. Ef maður sendir út á net-
inu eins og ég geri er nóg að hafa
nokkrar tölvur og rétt forrit. Það er
ekki mikið mál að gera þetta sjálf-
ur þegar maður er búinn að læra
inn á þetta.“ Óhætt er að segja að
Danni sé með töluverða tækjadellu.
Hann segir útvarpsdelluna hafa
byrjað strax í framhaldsskóla. „Þar
prófaði ég skólaútvarp og áhuginn
kom strax,“ segir Danni og smellir
fingrum. „Ég hef ekki misst áhug-
ann síðan þá. Svo fór ég í tölvu-
tengt starfsnám en er annars sjálf-
lærður að mestu leyti.“
Stúdíó rásarinnar er heima hjá
hjónunum á Akranesi en nú er ein-
ungis um að ræða tilraunaútsend-
ingar. „Stúdíóið okkar er fullbyggt
tækjum til útsendingar og allt er
tilbúið nema það að okkur vantar
styrki fyrir stefgjöldum. Við erum
í tilraunaútsendingum til 17. mars
og ef við eigum ekki fyrir stefgjöld-
unum þá fer stöðin niður aftur,“ út-
skýra þau. Hjónin hafa því stofnað
til söfnunar á Karolinafund, þar sem
hægt er að styrkja stöðina. Á með-
an á tilraunaútsendingum stendur
þarf stöðin ekki að greiða stefgjöld-
in, sem eru í heild sinni um 40 þús-
und krónur á mánuði. „Ég sótti líka
um styrk hjá SSV og er enn að bíða
eftir svörum frá þeim. Svo erum við
líka að selja auglýsingapakka á vef-
síðu stöðvarinnar. Þar má líka finna
allar upplýsingar um styrki og fleira
sem snýr að Skagarásinni,“ segir DJ
Danni að endingu.
grþ
Gunnar Svanlaugsson skólastjóri í
Grunnskólanum í Stykkishólmi hef-
ur sagt starfi sínu lausu frá og með
1. september næstkomandi. Gunnar
hefur starfað við kennslu undanfarin
40 ár, upphaflega við Héraðsskólann
í Reykholti þar til hann hóf störf við
Grunnskólann í Stykkishólmi 1984.
„Minn gamli skólastjóri fékk mig til
að koma vestur í Hólm og leysa af
sem aðstoðarskólastjóri í eitt ár. Það
endaði með því að ég tók við þeirri
stöðu þar til 1994, þegar skólastjór-
inn kvaddi. Þá leysti ég hann af í eitt
ár og sótti svo um stöðuna og tók við
sem skólastjóri,“ segir Gunnar í sam-
tali við blaðamann. Hann segist ekki
hafa ætlað sér að starfa jafn lengi og
raun ber vitni sem skólastjóri skól-
ans. „Ég ætlaði mér að vera í mesta
lagi fimm til tíu ár upphaflega. Sjálf-
um fannst mér það ofsalega lang-
ur tími þegar ég var að byrja og að
það hlyti að vera kraftaverk að ná
því.“ Gunnar segir árin 32 í grunn-
skólanum hafa flogið áfram enda
alltaf ótrúlega skemmtilegur hóp-
ur á hverju skólaári en telur nú orð-
ið tímabært að láta af störfum. „Ég
tel það vera rétta tímapunktinn að
stíga til hliðar þegar maður telur sig
enn vera á tánum í starfinu. Ég bara
elska skólastarfið og reyni að gera
mitt besta á hverjum degi. Örugg-
lega eru skiptar skoðanir um störf
mín eins og annarra stjórnenda enda
eru þetta ekki vinsældarstörf. Mál-
ið er að á meðan að við erum eitt-
hvað að gera að þá er það mjög eðli-
legt að það séu skiptar skoðanir um
okkar störf, eingöngu þannig verður
framþróun í skólastarfinu. En þegar
maður er enn á fullu og óskað er eft-
ir starfskröftum manns annars stað-
ar er lag að stíga til hliðar og hleypa
ungu og vel menntuðu fólki að. Það
kemur alltaf maður í manns stað en
aldrei sama manneskjan að sjálfs-
sögðu og það er kostur því slíkum
breytingum fylgja aðrar áherslur.
Það er spennandi fyrir skólann að fá
nýtt og ferskt blóð inn í starfið.“
Gerist skemmtanastjóri
á Tenerife
Gunnar hefur því ákveðið að hætta í
kennslustörfum og gerast skemmt-
anastjóri á Tenerife hjá Úrval Útsýn.
Hann segist hafa byrjað á því að fara
tvær ferðir í forföllum og líkað vel.
„Ég er að vinna með aldurshópinn
60 plús og það segir kannski svolít-
ið um mig að mér finnst þetta æð-
islegt. Þetta er aldurshópurinn sem
ég hef ekki haft tækifæri til að vinna
almennilega með nema þá helst
í Lions og kirkjukórnum,“ segir
hann og hlær. Um er að ræða fimm
til sex ferðir á ári, þar sem Gunnar
verður skemmtanastjóri á Tenerife
en einnig stendur til að hann fari
sem fararstjóri á skemmtiferðaskip-
um. „Þetta er því ekki föst vinna,
heldur tek ég bara að mér ákveð-
in draumaverkefni. Þess á milli
verð ég heima í Stykkishólmi þar
sem ég get sinnt enn frekar áhuga-
málum mínum og varið tíma með
skemmtilegu fjölskyldunni minni.
Það er ekkert að koma að leið-
arlokum hjá mér,“ heldur hann
áfram. Gunnar segir starfið á Te-
nerife vera mjög fjölbreytt. Hann
byrjar flesta morgna á músíkleik-
fimi og þaðan er farið í göngu,
þar sem farið er í leiki á leiðinni.
Seinni part dags býður hann upp
á aðra fjölbreytta afþreyingu, svo
sem minigolf, golf, bingó, félags-
vist, boccia og danskennslu. „Svo
er ég með þrjár til fjórar kvöldvök-
ur í viku þar sem ég spila á gítar
og píanó og mikið er sprellað og
sungið. Aðalmarkmiðið hjá mér er
að allir hafi gaman að vera sam-
an eins og hver og einn vill hafa
það. Það hefur verið góð þátttaka
í viðburðunum hjá mér, síðast var
ég með 95 manna hóp og þátttak-
an var um 80 til 85 manns í öllum
mínum viðburðum.“
Ætlar að kynna
landið sitt fagra
Gunnar telur óvenju góða þátt-
töku í viðburðunum megi með-
al annars þakka að hann gefur
glæsilega vinninga í kringum við-
burðina. „Ég fór strax af stað með
það þannig að ég samdi við fyrir-
tæki í Stykkishólmi og fór út með
gjafabréf. Þannig er kannski að-
alvinningurinn í kringum við-
burðina gistinætur á Hótel Stykk-
ishólmi, Hótel Egilsen eða ferð
með Sæferðum um Breiðafjörð-
inn. Í næstu ferð var ég með vinn-
inga frá fleiri stöðum á Snæfells-
nesi sem og Húsafelli og Borgar-
nesi,“ útskýrir Gunnar. Hann seg-
ist kynna sér staðina vel og auglýsa
þá um leið og hann kemur gjafa-
bréfunum út. „Núna er ég tilbúinn
með vinninga frá Ísafirði og Akur-
eyri fyrir ferðina í haust. Ég kynn-
ist fólki í hverri ferð og fólki sem
vill útvega mér gjafabréf frá stöð-
unum sem það kemur frá. Þessu
hefur verið mjög vel tekið og ljóst
að þetta er allra hagur því ég fjalla
um og auglýsi staðina í leiðinni.
Svo geta fyrirtækin stílað gjafa-
bréfin inn á rólegan tíma. Svona
ætla ég að kynna landið mitt fagra
og vona að mér vinnist tími til að
ljúka því metnaðarfulla verkefni,
samhliða gríðarlega skemmtilegri
vinnu með skemmtilegu fólki hjá
Úrval Útsýn bæði hér á Íslandi
sem og á Spáni.“
grþ
Gunnar stígur brátt til hliðar sem skólastjóri í Stykkishólmi
Gunnar í starfi skemmtanastjóra á Tenerife.
Stofnuðu netútvarpsstöð á Skaganum
Gunnar Svanlaugsson mun hætta
sem skólastjóri Grunnskólans í
Stykkishólmi í haust.
Danni og Kidda í stúdíói sínu á Akranesi.
Garðar Örn Þrastarson er einnig með þátt á Skagarásinni.