Skessuhorn - 02.03.2016, Page 23
MIÐVIKUDAGUR 2. MARS 2016 23
Jákvæðni, metnaður og víðsýniwww.akranes.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
1229. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í
bæjarþingsalnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 8. mars
kl. 17:00. Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir
til að mæta og kynna sér bæjarmálin. Vakin er athygli á því að
hægt er að hlusta á beina útsendingu frá fundinum á FM 95,0.
Bæjarmálafundir flokkanna verða sem hér segir:
Sjál• fstæðisflokkurinn í Gamla Kaupfélaginu, laugardaginn
5. mars kl. 10.30.
Frjáls• ir með Framsókn í Haraldarhúsi, Vesturgötu 32,
kjallara, gengið inn frá palli, mánudaginn 7. mars kl. 20.00.
Bjö• rt framtíð í Vitakaffi, Stillholti 16-18, mánudaginn
7. mars kl. 20.00.
Sa• mfylkingin í Stjórnsýsluhúsinu, 1. hæð,
Stillholti 16-18, laugardaginn 5. mars kl. 11.00.
Bæjarstjórnarfundur
Sumarstörf hjá Akraneskaupstað
Jákvæðni, metnaður og víðsýniwww.akranes.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Eftirfarandi sumarstörf eru laus til umsóknar hjá Akraneskaupstað:
Störf flokkstjóra (100% og 50% störf)
við Vinnuskólann, fyrir 20 ára og eldri.
Starf verkstjóra við almennt viðhald og umhirðu
á opnum svæðum, fyrir 20 ára og eldri.
Störf við almennt viðhald og umhirðu
á opnum svæðum, fyrir 18 ára og eldri.
Nánari upplýsingar um fyrrgreind störf er að finna á heimasíðu
Akraneskaupstaðar, www.akranes.is en þar skal jafnframt sækja um
störfin rafrænt á þar til gerðum eyðublöðum.
Umsóknarfrestur er til og með 16. mars.
Veitur ohf. • Bæjarhálsi 1 • 110 Reykjavík
516 6000 • veitur.is
Útboð
Veitur ohf. óska eftir tilboðum í útboðsverkefnið:
Mógilsá Kjalarnesi.
Lagning hitaveitu, vatnsveitu og rafveitu:
Verktaki skal grafa fyrir hitaveitu, vatnsveitu og rafveitu,
leggja hita- og vatnsveitu og annast allan yfirborðsfrágang,
starfsmenn verkkaupa munu annast lagningu rafstrengja.
Framkvæmdasvæðið er við Mógilsá á Kjalarnesi og er
um 550 metra langt.Yfirborð lagnaleiða er grassvæði
að mestu, utan þverunar á malbikuðum akvegum.
Þvera skal akvegi á þremur stöðum og þrjú vegræsi/læki.
Helstu magntölur eru:
Hitaveitulagnir 312 m
Vatnsveita 320m
Ídráttarrör 150m
Yfirborðsfrágangur 550m
Útboðsgögn er hægt að sækja án greiðslu frá og með
þriðjudeginum 1.3.2016 á vefsíðu Orkuveitunnar
www.or.is/fjarmal/utbod#page-7016
Útboðsverkefninu er nánar lýst í útboðsgögnum
„VEV-2016-01- Mógilsá Kjalarnesi. Lagning hitaveitu,
vatnsveitu og rafveitu útgefin í mars 2016“
Tilboð verða opnuð hjá Veitum ohf., Bæjarhálsi 1,
110 Reykjavík, fimmtudaginn 17.03.2016 kl. 11:00.
VEV-2016-01 27.02.2016
Pennagrein
Sexting er orð sem samanstendur af
orðunum „sexual“ og „texting“. Um
er að ræða kynferðisleg smáskila-
boð, oft ljósmyndir sem sýna nekt,
ögrandi stellingar, kynfæri eða eru
með kynferðislegum undirtóni. Oft-
ast eru þessi skilaboð send í trúnaði
á eina manneskju en raunin er sú að
sexting myndir fara mjög oft á flakk
og talið er að um 90% af kynferðis-
legu efni sem fer á netið fari á flakk.
Af hverju sexting?
Manneskjan hefur alltaf fundið leið
til þess að tjá sig kynferðislega í sam-
skiptum og eru unglingar þar engin
undantekning. Með örri tækniþróun
þá verður það bæði aðgengilegra og
auðveldara. Ýmsir aðrir þættir eru
nefndir sem geta ýtt undir það að
unglingar stundi sexting og má þar
nefna lágt sjálfsmat, þrýsting frá jafn-
öldrum eða öðrum, jafnvel ókunn-
ugum. Samkvæmt könnun Saft (saft.
is) 2013 þá höfðu tæplega 10% ung-
linga í 6.-10. bekk sent einhverjum
sem þau höfðu aldrei hitt mynd eða
myndband af sér á sl. 12 mánuðum!
Í USA stunda 50% ungmenna sext-
ing og 25% þeirra áframsenda þær
myndir sem þeir fá á þriðja aðila eða
dreifa enn þá lengra. Þegar íslenskir
unglingar eru spurðir hvort þeir séu
beittir þrýstingi að senda af sér nekt-
armyndir eða myndir í ögrandi stell-
ingum svara 7% unglinga í 8. bekk
játandi, 12% unglinga í 9. bekk og
14% unglinga í 10. bekk. Allt eru
þetta tölur frá því 2013 og tilfinn-
ingin er sú að þetta hafi aukist, jafn-
vel mjög mikið!
Er hefndarklám það
sama og sexting?
Sexting getur orðið að hefndarklámi
ef sá sem fékk það sent t.d. frá kær-
ustu/kærasta í trúnaði nýtir sér það í
hefndarskyni og sendir áfram/dreif-
ir til þess að ná sér niður á eða til að
niðurlægja. Þetta getur síðar leitt af
sér gróft einelti og áreitni.
Er sexting ,,barnaklám“?
Í 210.gr. Almennra hegningarlaga
segir: ,,Hver sem flytur inn, aflar sér
eða öðrum, eða hefur í vörslu sinni
ljósmyndir, kvikmyndir eða sam-
bærilega hluti sem sýna börn á kyn-
ferðislegan eða klámfenginn hátt
skal sæta sektum eða fangelsi allt að
2 árum ef brot er stórfellt“. Þó börn
séu börn til 18 ára aldurs eru börn
á aldrinum 15-18 ára sakhæf sam-
kvæmt almennum hegningarlögum.
Það þýðir að börn á þessum aldri
eru talin bera ábyrgð á gerðum sín-
um og hægt er að refsa þeim ef þau
brjóta gegn refsilögum. Klámfengn-
ar myndir af einstaklingi undir 15
ára er barnaklám!
Netið gleymir engu!
Það sem einu sinni hefur ratað á
netið verður ekki aftur tekið. Það er
nánast engin leið að stöðva dreifingu
sem komin er af stað og mjög erfitt
að finna þá sem standa fyrir dreif-
ingunni. Þó margir haldi að þetta sé
bara inni í litlum hópi þá þarf bara
einn til að dreifa inn á síðu sem síð-
an dreifir á mörg þúsund notendur.
Þessi mál eru lögreglunni erfið þar
sem myndirnar eru oftast vistaðar á
erlendum síðum.
Hvaða get ég
sem foreldri gert?
Foreldrar þurfa að afla sér upp-
lýsinga og tala opinskátt við börn
sín um siðferði og samskipti, hvort
sem er á netinu eða í daglega lífinu.
Þeir þurfa að vera ófeimnir við að
taka umræðuna um kynhegðun og
kynheilbrigði við börnin. Það er á
ábyrgð foreldra að ala upp einstak-
ling með sterka sjálfsmynd, einstak-
ling sem getur greint muninn á réttu
og röngu. Rannsóknir hafa sýnt að
unglingar sem eiga í góðum sam-
skiptum við foreldra sína láta síður
undan hópþrýstingi og eru sjálstæð-
ari og gengur að jafnaði betur í líf-
inu. Tölum saman!
Heiðrún Jansuardóttir
Höf. er verkefnisstjóri æskulýðs- og
forvarnamála á Akranesi og fulltrúi í
Saman-hópnum.
Á þessum vef er hægt að hlusta á
fyrirlestur Þórdísar Elvu Þorvaldsdótt-
ur og Vodafone um sexting: ,,Ber það
sem eftir er - um sexting, hrelliklám
og netið“ https://www.youtube.com/
watch?v=vladV1NHvqo
Hvað veist þú sem
foreldri um sexting?
Aldís Erna Pálsdóttir lauk nýver-
ið meistaraprófi í líffræði við Há-
skóla Íslands. Lokaverkefni hennar
sneri að afráni í æðarvarpi á Breiða-
firði og var unnið í samstarfi við
Náttúrustofu Vesturlands, Rann-
sóknasetur Háskóla Íslands á Snæ-
fellsnesi og landeigendur Selláturs,
Þorvaldseyjar, Gimbureyjar, Lyng-
hólma og Landeyjar. „Ég hafði
upphaflega samband við Róbert hjá
Náttúrustofunni og svo þróaðist
þetta út frá því. Upphaflega langaði
mig að gera verkefni tengt minkn-
um en þeir stungu upp á þessu. Það
tengdist í raun minknum, því hann
er einn þeirra sem étur eggin,“ segir
Aldís í samtali við Skessuhorn. Hún
segir markmiðið með rannsókninni
meðal annars hafa verið að athuga
hversu stór hluti eggja hjá æðar-
fuglinum væri étinn og hvort líkur
á afráni tengdist varptíma fuglsins.
„Svo reyndum við líka að sjá hverj-
ir væru að éta. Við settum mynda-
vélar við sum hreiður en fórum
líka tvisvar í hverja eyju. Fyrst þeg-
ar varpið var nýbyrjað og þá skráð-
um við hvaða gróður var í kringum
hreiðrin, hversu mörg egg voru í
hreiðri og reyndum að meta hversu
mikið skjól væri í kringum þau. Svo
fórum við aftur þegar eggin höfðu
klakist út. Þá var hægt að sjá á egg-
himnunni hvort étið hafði verið úr
eggjunum eða hvort það hefði klak-
ist,“ útskýrir Aldís.
Ekkert afrán
nálægt kríunum
Aldís segir fátt hafa komið á óvart
við gerð rannsóknarinnar en þó
hafi þau fundið út hvað hefði áhrif
á afránið. „Við fundum út að lík-
ur á afráni eru meiri því fyrr sem
æðarkollan verpir og var það lík-
lega út af því að þau hreiður voru
berskjaldaðri því varpið var mjög
strjált í upphafi varptímans. Við
sáum að það eru marktækt minni
líkur á að hreiður væru rænd ef þau
voru í ætihvönn, hún hylur hreiðr-
in vel og byrgir afræningjum sýn
ofan frá.“ Hún segir þó hafa komið
á óvart að ekki hafi verið mest afrán
í þeirri eyju þar sem mest er af máv-
um. „Það virðist vera að sílamávur
og svartbakur veiti ákveðna vernd.
Þannig að þó að þeir éti egg, þá er
ekki endilega slæmt að hafa þá í ná-
grenninu þar sem þeir verja svæðið
fyrir öðrum afræningjum.“ Þá kom
einnig í ljós að ekkert afrán var í
þeirri eyju þar sem var kríuvarp,
enda eru kríur duglegar að reka af-
ræningja á brott.
Æðarfugl er sú fuglategund við
Ísland sem um langan tíma hefur
hlotið hvað mesta vernd frá mann-
inum enda eru verðmæti fuglsins
mikil. Aldís segir afránið vera um
15% á eggjunum en það virðist vera
misjafnt eftir svæðum. Æðarbænd-
ur reyna oft að verja vörp sín við af-
ráni, enda er æðardúnn verðmæt
útflutningsvara og dúntekja mikil-
væg tekjulind fyrir marga landeig-
endur. Aldís segir bændur kannski
eitthvað geta nýtt sér niðurstöð-
ur rannsóknarinnar. „Þessar niður-
stöður geta gefið góða vísbendingu
um þá þætti sem geta haft áhrif á af-
rán í æðavarpi,“ segir hún að end-
ingu.
grþ
Rannsakaði afrán í æðarvarpi á Breiðafirði
Aldís Erna Pálsdóttir gerði meistara-
prófsverkefni um afrán í æðarvarpi.
Hér heldur hún á æðarkollu.
Hópur af stálpuðum ungum í æðarvarpi. Ljósm. Friðþjófur Helgason.